Morgunblaðið - 06.02.1940, Síða 8
Þriðjudagur 6. febrúar 1940-.
i
... «■ Síða i híuti Litla píslarvottsino ■ ""W"
Síðusua aliek rauðu akurlilfunnar
„Bf til vill reynir hann það, en
ekki er það sennilegt. En best er
að vera við öllu búinn. Hafið með
ofluga sveit, borgari, segjum tutt-
ugu eða þrjátíu valda hermenn,
vel vopnum búna, sem geta á
hvaða augnabliki sem er ráðið
niðuriögum óbreyttra manna,
hversu veí vopnaðir sem þeir
kunna að vera. Fjelagar Rauðu
akurliljunnar eru tuttugu talsins,
að foringjanum meðtöldum, og jeg
get ekki sjeð, hvaða tök fanginn
hefir á því hjer í klefanum, að
brugga okkur vjelráð. En það er
mál, sem þjer getið haft í hendi
yðar. Jeg hefi enn eitt ráð að
gefa yður, sem mun vernda okkur
og menn okkar gegn öllum vjel-
ráðum og brögðum af fangans
hálfu, og jeg er þess fullviss, að
þjer munið fallast á það“.
„Látið mig heyra hvað það er“.
„Yitanlega verður fanginn flutt-
ur í kerru. Þjer getið, ef þjer
viljið, ekið í kerrunni með honum
og haft hann í hlekkjum og þar
með útilokað alla möguleika til
flótta hans, meðan á ferðinni
atendur. En —“ og nú þagnaði
Cbauvelin alllengi, sem jók mjög
á forvitni fjelaga hans, „munið,
að við verðum að hafa konu hans
og einn af vinum hans með okkur.
Áður en við förum úr París í
fyrramálið, munum við gera fang-
anum Ijóst, að við fyrstu tilraun
sem hann kynni að gera til þess
að flýja og ef við fáum minstu
átyllu til að halda, að hann sje
að gabba okkur, þá munuð þjer,
Heron borgari, gefa fyrirskipun
um, að fyrst verði vinur hans og
síðan frú Marguerite Blakeney
skotin niður fyrir hans augsýn“.
Langt og veikt blístur heyrðist
nú frá Heron. Hann gaut
augunum yfir öxlina og leit til
fangans, svo sneri hann sjer að
fjelaga sínum aftur.
I>að mátti lesa undrunina úr
svip hans. Þorpari hafði þarna
fundið mann ,sem var honum klók-
ari og var hreikinn yfir, að við-
urkenna hann sem sinn meistara.
hini Orczy
„í satans nafni, Chauvelin borg-
ari“, sagði hann að lokum. „Mjer
hefði aldrei getað dottið neitt svip-
að í hug“.
Chauvelin bandaði frá sjer með
hendinni.
„Jeg er viss um, að þessi ráð
muni duga“, sagði hann vingjarn-
lega, „eða máske viljið þjer held-
ur fangelsa konuna og halda henni
í gislingu“.
„Nei, ekki að nefna“, sagði Her-
on og hló kuldalega. „Sú lausn
gefur mjer ekki sömu tækifæri
sem hin. Jeg mundi ekki telja mig
eins öruggan á leiðinni----Jeg
hafði altaf haldið, að konuskratt-
inn væri sloppin burtu-----Nei,
nei! Jeg vil miklu heldur sjálfur
hafa auga með henni, eins og þjer
stunguð upp á, Chauvelin borg-
ari — — og hafa hana nálægt
fanganum“, bætti hann við ruddá-
lega. „Því að ef hann sæi hana
ekki, myndi hann máske fremur
reyna að komast undan hennar
vegna. En auðvitað lætur hann
ekki skjóta hana fyrir augunum
á sjer. Ráð yðar er afbragð, borg-
ari, og þjer hafið heiður af því.
Og ef Englendingurinn gabbar
okkur“, bætti hann við ragnandi,
„og við fyndum ekki Capet myndi
jeg hafa ánægju af að stytta konu
hans og vini aldur“.
„Ánægja, sem jeg gæti vel unt
yður, borgari“, sagði Chauvélin.
„Þjer hafið sennilega rjett fyrir
yður —- — það er áreiðanlega
best, að þjer hafið sjálfur augu
með konunni — — Fanginn mun
ekki tefla-henni í hættu, það full-
yrði jeg. Þegar hún mætir okkur
og áður en lengra er farið, segjum
við skýrt og ákveðið við hann:
„Annað hvort eða“. Nú hafið þjer
heyrt mín ráð, Heron borgari.
Ætlið þjer að fylgja því?“
„Já, út í æsar“.
Og með gagnkvæmu trausti
þrýstu þeir saman höndum, sem
þegar voru svo saurgaðar blóði
saklausra, að aldrei myndi afmáð.
baronessu
IV. kapítuli.
Uppg-jöf.
vað skeði næsta hálftímann í
klefanum í Conciergeriet-
fangelsinu hinn nítjánda dag
hreinsunarinnar á þessu öðru ári
byltingarinnar, er svo þekt frá
sögunni, að þess gerist ekki þörf
að rifja upp.
Sagnaritarar, sem hafa kynt sjer
alt sem fram fór þessa hræðilegu
nótt, hafa sagt okkur, að for-
maður velferðarnefndarinnar gaf,
einni stundu eftir miðnætti þá fyr-
irskipan, að hjá fanganum yrði
látin heit súpa, hveitibrauð og vín-
glas, en síðasta hálfan mánuð
hafði fanginn ekki fengið annað
til að nærast á en lítið rúgbrauð
og vatn. Undirforinginn, sem hafði
þessa nótt vakt í næsta herbergi,
fekk stranga fyrirskipun um, að
fanginn yrði ekki fyrir minsta ó-
næði þar til kl. 6 næsta morgun,
en þá skyldi láta hann fá til morg-
unverðar, hvað sem hann kysi.
Þetta vitum við alt og eins hitt,
að þegar Ileron borgari hafði gef-
ið allar nauðsynlegar fyrirskipan-
ir viðvíkjandi ferðinni næsta
morgun, kom liann aftur til fang-
elsisins, þar sém hann hitti Chauve
lin fjelaga, sem beið eftir honum
í vaktherberginu.
„Jæja“, spurði hann óþolinmóð-
ur, „hvernig líður fanganum?“
„Honum virðist líða betur og
hann er hressari“, svaraði Chauve-
lin.
„Jeg vona, að honurn líði ekki
of vel“.
„Nei, honum virðist líða sæmi-
lega“.
„Hafið þjer sjeð hann — eftir
að hann borðaði í nótt?“ —
„Aðeins úr dyrunum. Hann
hvorki borðaði nje drakk neitt að
ráði, og undirforinginn átti erfitt
með að halda honum vakandi, þar
til þjer komuð“.
„Jæja, þá er best að við byrjum
á brjefinu“, sagði Heron og var
sýnilegur órói yfir honum, sem
engan veginn fór. vel þessum
klunnalega manni. „Penna, blek
og paþpír, undirforingí“, sagði
hann í skipunarróm.
„Það er á borðinu í klefa fang-
ans, borgari“, sagði undirforing-
inn.
Hann gekk á undan fjelögunum
tveim, gegn um vaktherbergið að
dyrum fangaklefans, lyfti upp
járnsfánni, meðan þeir fói*ú inn,
en ljet hana því næst falla í sínar
skorður aftur.
Framh.
I. O. G. T.
ST. VERÐANDI NR. 9.
Fundur í kvöld kl. 8. Vígsla
embættismanna. — Kosning
kjörmanna. -— Systrasjóðs-
kvöld. — Systurnar stjórna
fundi. ■— Að fundi loknum
verða boðnir upp öskupokar.
Síðan hefst sameiginleg kaffi.
drykkja. — Skemtiatriði: 1.
Jónas Guðmundsson: Ræða 2.
Tvísöngur: (Tvær ungar stúlk-
ur syngja). 3. Bogi Benedikts-
son: Upplestur. 4. Sjónleikur.
Að kaffidrykkjunni lokinni
verða frjálsar skemtanir. Syst-
urnar eru beðnar að koma með
öskupoka. Fjölmennið.
Systrasjóðsnefndin.
ST. SÓLEY.
Fundur í kvöld kl. 8 í Bindind-
ishöllinni við Fríkirkjuveg. Inn-
taka og fleira. Æt.
VÖN ÞVOTTAKONA
tekur þvotta og strauingar hei
Uppl. í síma 1600.
‘TTiuJ
Lundúnablaðið „Evening Stand-
ard“ segir frá eftirfarandi
atviki:
—- Aldraður, gráhærður maður
hringdi dyrabjöllunni hjá finska
sendiherrann í London og bað um
að fá- að tala við sendiherrann.
Þjónninn, sem kom til dyra, spurði
manninn að nafni, en maðurinn
sagði að það skifti engu máli.
Þjónninn sagði að lítil von væri
til þess að sendiherrann tæki á
móti manni, sem ekki vildi segja
til nafns síns. Gesturinn svaraði
])VÍ einu til, að hann væri í áríð-
andi erindagjörðum.
' Þjónninn fór og fann sendiherr-
ann og sagði honum upp söguna.
Eendiherrann bað um að mannin-
nln ýrði vísað inn í móttökuher-
bergi.
Þegar gamli maðurinn hitti
sendiherrann tók hann fast í hönd
hans og sagði:
— Jeg veit ekki hvað breska
stjórnin ætlar að gera til þess að
hjálpa Finnum, en mig langar til
að óska yður til hamingju með
þá hreysti og þann dugnað, sem
finska þjóðin hefir sýnt í barátt-
unni við Rússa.
Síðan rjetti maðurinn sendiherr-
anum peningabunka, sem í voru
5000 sterlingspund (rúmlega 100
þúsund krónur).
— Þetta er lítið framlag frá
mjer, sagði hann. Nafn mitt skift-
ir engu máli í því sambandi.
★
anskur bóndi hringdi til
dýralæknis og bað hann að
koma og skoða kú, sem væri fár-
veik. Dýralæknirínn var ekki sjer-
lega áfjáður í að koma til bónd-
ans., því langt var að fara.
Hvort sem þjer drepið kúna eða
læknið hana skal jeg borga yður
100 krónur, sagði bóndinn í sím-
ann og þá loks Ijet dýralæknirinn
tilleiðast að koma.
En kýi-in var svo veik að hún
drapst áður en dýralæknirinn
kom. Þegar læknirinn lagði af
stað heimleiðis bað hann bóndann
að greiða sjer 100 krónurnar.
— 100 krónur, sagði bóndinn
undrandi. Hafið þjer kannske
læknað kúna?
— Nei, en.
—■ Hafið þjer drepið hana?
— Nei, eruð þjer vitlaus.
— Jæja, þá skulda .jeg yður
heldur engar 100 krónur!
llr
Danskt blað birtir eftirfarandi
og er afar inóðgað, sem von er:
„Bandaríkjamenn gera sjer ein-
kennilegar hugmyndir um danska
herinn. Ameríska tímaritið „Time“
birti nýlega grein um Danmörku.
Þar er m. a- sagt að danski her-
inn noti rófur í stað handsprengja
í sparnaðarskyni“.
★
A flestum málum er orðið guð
ritað með fjórum bókstöfum. Les-
arinn getur nú spreytt sig á að
finna út á hvaða málum,- Dien —
Lord — Deus — Gott — Adet —
Godt — Sorn — Alla — Deva —
Dios — Teos — Zeus — Amon
— Papa — Baal — Illu — Shin
— Nebo — og Hakk. Síðasta orðið
var hindúiska.
HAFIÐ ÞIÐ LÚS
eða aðra sjúkdóma á trjám yð-
ar, þá látið mig annast það. —
Knud Jörgensen, garðyrkju-
maður.
SNlÐ OG MÁTA ”
Dömukápur, dragtir, dag-
kjóla, samkvæmiskjóla og alls
konar barnaföt. Saumastofan
Laugaveg 12, uppi (inng. frá
Bergstaðastræti). Símar 2264
og 5464.
OTTO B. ARNAR,
löggíltur útvarpsvirki, Hafnar
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj
um og loftnetum.
^CAtftPttlrt^cw
UNGBARNAVERND LÍKNAR
í Templarasundi, opin alla
þriðjudaga og föstudaga kl.
3—4. Ráðleggingar fyrir barns-
hafandi konur 1. miðvikudag
hvers mánaðar kl. 3—4.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
I kvöld kl. 81/4. Vakningarsam-)
koma. Major Sannes o. fl. Allir
velkomnir!
^taups&apuc
MATBAUNIR
Grænar baunir í dósum og
lausri vigt. — Gulrætur — Gul-
rófur. Þorsteinsbúð, Grundarstíg
12, sími 3247. Hringbraut 61, —
Sími 2803.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS’
öll frá 1927 til sölu. — A. v. á..
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,.
glös og bóndósir. Versl. Alda,.
sími 9lá9, Hafnarfirði.
NÝA FORNSALAN
Kirkjustræti 4, kaupir allskonar
notaða muni. Staðgreiðsla. Sækj—
um heim.
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólgiös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. SpariS
milliliðina, og komið beint tll
okkar, ef þið viljið fá hæst*-
verð fyrir glösin. Við sækjum
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Bjöm Jónsson, Vesturgötu 28»
Sími 3594.
ÞORSKALÝSI
Laugaveg Apoteks viðurkend*
meðalalalýsi fyrir börn og full-
orðna, kostar aðeins kr. 1,35*
heilflaskan. Selt í sterilum
(dauðhreinsuðum) flöskum. —
Sími 1616. Við sendum um allac
bæinn.
EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR
ug blúsur í úrvali. SaumastofaB
Uppsólum, Aðalstrspti 18. —
8ími 2744.
SPARTA DRENGJAFÖl
Laugaveg 10 — við allra hæí
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. <.
2 og 3. Verð frá 0,40 au. p*
kg. Sími 3448.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm‘
Guðmundsson, klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
GULRÓFUR
seljum við í heilum og hálfurr
pokum á kr. 5.50 og kr. 3,00
Sendum. Sími 1619.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela.
glös og bóndósir. Flöskubúðin
Bergstaðastræti 10. Sími 5395
Sækjum. Opið allan daginn.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina seluT
Hjörtur Hjartarson, Bræðra-
borgarstíg 1. Sími 4256.
FÆÐI
er selt á Vatnsstíg 4. Stakar
máltíðir líka.
%K&n*s£ct'
KENNI AÐ SNÍÐA
Tek að sníða. Aðalheiður Þór-
arinsdóttir, Miðstræti 8. —
Sími 4409.