Morgunblaðið - 14.09.1944, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 14. sept. 1944.
ÞÓRARINIM JONSSON
hrenpstj. «i fyrv. alja. Ijaltabakka
í DAG er til moldar borinn
á Blönduósi í Húnavatnssýslu
Þórarinn Jónsson hreppstjóri
og fyrv. alþingismaður á
Hjaltabakka. Hann var fædd-
ur í Geitagerði í Skagafirði 6.
febr. 1870. Foreldrar hans voru
Jón Þórarinsson síðast bóndi á
Halldórsstöðum á Langholti í
Skagafirði, f. 26. ág. 1843, d.
á Halldórsstöðum 22. ág. 1881,
gáfumaður og góður hagyrð-
ingur. Faðir Jóns á Halldórs-
stöðum var Þórarinn bóndi á
Grófargili í Skagafirði, sonur
síra Jóns Guðmundssonar,
prests á Hjaltastað í Múlasýslu
og konu hans Margrjetar Stef-
ánsdóttur, systur Einars stud.
og umboðsmanns á Reynistað,
föður Katrínar, móður Einars
skálds Benediktssonar. Jón
Þórarinsson á Halldórsstöðum
og Einar Benediktsson voru því
þrerrienningar að frændsemi.
Kona Þórarins á Grófargili
og móðir Jóns Þórarinssonar
var Elísabet dóttir Magnúsar
Magnússonar bónda í Garði í
Hegranesi og konu hans Mar-
grjetar Sigurðardóttur, af ætt
Asverja; eru þetta alkunnar
og ágætar skagfirskar bænda-
ættir. Elíáabet var mikilhæf
tápkona, hún var systir Magn-
úsar bónda í Holti í Svínadal,
móðurföður þeirra Magnúsar
sál. Guðmundssonar ráðherra
og Magnúsar Pjeturssonar
bæjarlæknis í Reykjavík, og
ennfremur systir Stefáns, föð-
ur Magnúsar sál. kaupm. og
bónda á Flögu í Vatnsdal.
Kona Jóns Þórarinssonar og
móðir Þórarins á Hjaltabakka
var Margrjet (f. 27. maí 1835,
d. 26. jan. 1880) Jóhannsdótt-
ir bónda á Kjartansstöðum í
Skagafirði Guðmundssonar
bónda í Litlugröf Einarssonar;
er þetta einnig dugmikil, skag-
firskt bændaætt.
Þótt hjer sje ekki lengra
rakið er augljóst, að Þórarinn
var af góðu bergi brotinn og
þó all ólíku. Að honum stóðu
hæfileikamenn í allar áttir, þar
á meðál góðir hagyrðingar,
menn nokkuð reikulir í ráði og
gleðimenn, en einnig margir
fastlyndir menn og óvægnir,
ef því var að skifta, sem ekki
ljetu hlut sinn, hver sem í hlut
átti. Þeim, sem þektu Þórar-
inn best, kenrHir það ekki á ó-
vart, að hann átti til slíkra að
telja.
Þórarinn misti ungur for-
eldra sína, og gekk Elísabet
amma hans honum í móður
stað. Hann stundaði nám við
búnaðarksólann á Hólum og
útskrífaðist þaðan 1890. V arð
kennari við skólann frá 1893—
96. Bústjóri á Hjaltabakka frá
1896—99, bóndi á Hjaltabakka
frá 1899 -til dauðadags.
Þórarinn bjó jafnan snotru
búi. Hann bygði á jörð sinni
eitt af fyrstu steinsteyptu íbúð
arhúsunum í Húnavatnssýslu
og bætti hana á fleiri vegu.
Jafnframt kom hann upp stór-
um barnahóp. Auk bústarfa
hlóðust snemma á hann marg-
vísleg trúnaðarstörf innan hjer
aðs. Þannig var hann hrepps-
nefndaroddviti frá 1900—1920,
hreppstjóri frá 1906. Sáttamað-
ur yfir 30 ár. í fræðslunefnd
frá 1908—30 og lengst formað-
ur hennar. í stjórn Kvennaskól
ans á Blönduósi mjög lengi og
form. hennar frá 1920 og síð-
an. í stjórn sjúkrahússins á
Blönduósi í mörg ár. Skipaður
í yfirfasteignarmatsnefnd Húna
vatnssýslu 1927 o. fl. Störf
þessi mun hann hafa- rækt af
áhuga og samviskusemi, og
ájerstaklega er mjer minnis-
stæður áhugi hans og um-
hyggja fyrir hag kvennaskól-
ans á Blönduósi.
Þess varð ekki langt að bíða,
að Þórarinn yrði einnig lands-
kunnur. Árið 1905, eftir að
stjórnin var flutt inn í landið,
kvaddi Hannes Hafstein þáver.
ráðherra Þórarinn til að taka
sæti á Alþingi sem konung-
kjörinn alþingismann og full-
trúa bændastjettarinnar. Þetta
kjör sýnir best, hvers álits Þór-
arinn naut þá þegar, því Hann-
es Hafstein átti að þessu sinni
kost á að velja úr öllum álit-
legustu bændum Heimastjórn-
arfl., er ekki sátu á þingi. Það
mun hafa verið Hermann Jón-
asson, áður skólastj. á Hólum
og þáver. þingm. Húnv., er
fyrstur benti Hannesi Hafstein
á Þórarin. Hermann var sam-
kennari og vinur Þórarins frá
búnaðarskólanum á Hólum og
þekti því manna best hæfileika
hans.
Tveim árum síðar (1907)
vakti Þórarinn enn athygli al-
þjóðar, er hann sagði af sjer
þingmensku. Varð þá öllum
ljóst, að hjer var á ferðinni
maður, sem vildi ráða sjer
sjálfur, skoðunum sínum og
atkvæði og kaus heldur að af-
sala sjer þingmensku en að
beygja sig. Hann var kosinn
alþm. Húnv. 1911 og sat á Al-
þingi 1911—14 og 1916—23
fyrir Húnavatnssýslu, og fyrir
V.-Húnav. frá 1923—27, eftir
að kjördæminu var skift.
Þórarinn var atkvæðamaður
á þingi, mælskur og mikilhæf-
ur, skapstór og Ijet ekki hlut
sinn, víð hvern sem var að
eiga. Hann átti lengi sæU í
fjárveitinganefnd Nd. og var
framsögumaður hennar á mörg
um þingum. Hann var fram-
sögum. launamálanefndar 1919
og var viðbrugðið skörungs-
skap hans og víðsýni. Einnig
má nefna, að hann hafði fram-
sögu af hendi landbúnaðar-
nefndar Nd. um jarðræktar-
lögin, er þau voru fyrst sett
1923. Hann Ijet mörg önnur
þjóðmál til sín taka, einkum
landbúnaðarmál, fjármál og
samgöngumál.
Þórarinn var meðalmaður á
hæð, vel vaxinn og snarlegur,
fríður í andliti og svipurinn
einbeittur, skapið mikið og
maðurinn ekki ávalt mjúkur
viðkomu, en gleðimaður í
góðra vina hóp og þá oft hrók-
ur alls fagnaðar, prýðilega hag
mæltur sem faðir hans, en hjelt
því lítt á lofti. Hann var
íþróttamaður á yngri árum,
þar á meðal ágætur glímumað-
ur og mikill og áhugasamur
veiðimaður. Um Þórarin má
með sanni gegja, að hann var
vel að sjer gjör um flesta hluti.
Hann var sæmdur riddara-
krossi Fálkaorðunnar.
Þann 16. júní 1899 gekk
Þórarinn að eiga Sigríði Þor-
valdsdóttur Ásgeirssonar síðast
prests að Hjaltabakka. Var
hjónaband þeirra að sögn kunn
ugra manna til fyrirmyndar.
Þau eignuðust 11 mannvænleg
börh, er upp komust, og eru 10
þeirra á lífi. Sigríður andaðist
17. maí s.l. Varð því skamt
milli þeirra hjónanna.
Þórarinn ljest að heimili sínu
Hjaltabakka 5. sept. s.l., 74 ára
að aldri. Hann hafði þá lokið
dagsverkinu að mestu, en á-
huginn var sami og áður. Vin-
um hans verður hann ógleym-
anlegur. Jeg vil að endingu
taka hjer upp orð forseta Nd.,
er hann mintist hans á Alþingi:
„Með Þórarni Jónssyni er til
moldar hniginn einn hinna
merkustu manna í íslenskri
bændastjett“.
Ritað á Alþingi 14. sept. 1944.
Jón Sigurðsson,
Reynistað.
Þjóðverjar í vand-
ræðum með her-
sveitirnar í Norður-
Noregi
Frá norska blaða-
fulltrúanum.
FRÁ SVÍÞJÓÐ berast þær
frjettir, að margar þýskar her-
sveitir sjeu fluttar frá Norður-
Finnlandi til Austur-Finnmerk
ur í Noregi. Hvort sem Þjóð-
verjar ætla sjer að hafa þessar
hersveitir áfram í Norður-
Noregi eða flytja þær suður á
bóginn, eiga þeir við mikla
erfiðleika að etja. Húsnæðis-
leysið er gífurlegt og engar lík
ur til að úr því verði bætt áður
en vetrar. Rússar halda uppi
stöðugum loftárásum á her-
sveitirnar. Hins vegar skortir
Þjóðverja einnig farartæki, ef
þeir ætla sjer áð flytja her-
sveitirnar suður á bóginn. Sem
stendur er það miklum erfið-
leikum bundið fyrir Þjóðverja
að flytja hersveitirnar sjóleið-
is. Og þá er ekki um nema eitt
að ræða: að láta hersveitirn-
ar fára gangandi suður á bóg-
inn. Og það getur ef til vill
orðið hvað mestum erfiðleik-
um bundið. _ ___
Virkjagerð Þjóð-
verja í Danmörku
ÞJÓÐVERJAR hafa byrjað
varnarvirkjagerð í Danmörku.
Virkin liggja frá Esbjerg með
fram Kongeaa til Vandrup og
þaðan til Kolding.
Þýskir borgarar í Danmörku
sem kvaddir voru til vinnunn-
ar, komu til starfsins fyrir
nokkrum dögum síðan, en hin-
ar fyrstu þýskra kvenna, sem
kvaddar voru til vinnunnar,
lögðu af stað til vinnustöðv-
anna í gær (10. sept.).
Verkamennirnir eru kvadd-
ir til vinnunnar að dönskum
yfirvöldum fornspurðum. ■—
Verkafólkið er látið hafast við
í skólahúsum og samkomuhús-
um.
(Ur danska útvarpinu hjer).
Skilin í þriðja sinn.
London: — Kvikmyndaleik-
konan Lana Turner hefir feng-
ið skilnað frá manni sínum,
Stephen Crane, kaupsýslu-
manni í New York. Þetta er í
^iriðja skifti, sem hún skilur
við þenna sama mann.
Sagnakver lil minn-
ingar um Símon
Dalaskáld
KOMIÐ er á bókamarkaðinn
„Sagnakver, helgað minningu
Símonar Dalaskálds", en um
þessar mundir eru 100 ár liðin
síðan Símon fæddist. Efninu í
kverið hefir Snæbjörn Jónsson
bóksali safnað.
í kverinu eru 49 sagnir víða
af landinu og um ýmsa kunna
menn, og merka.
Útgefandi er Leiftur h. f., en
kverið er prentað á Akureyri
í Prentverki Odds Björnssonar.
Handrit Sibeliusar
eyðilögð.
LONDON: Finnska útvarpið
skýrði frá því fyrir skömmu,
að mest af hindritum hins
fræga finnska tónskálds, Sibel-
íusar, hefði eyðilagst í loft-
árás. Voru þar á meðal hand-
ritin að ýmsurp hinna fræg-
ustu verka tónskáldsins.
<$^K$>^>^3>3>3x$>3>^^K$x§K£<$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$K$K$x$x£<$x$*$x$xíx$x§x$>3x$><$x$x$x$xí>«j>
Vandað ein býlishús
f við Langholtsveg til sölu. Nánari uppl. gefur
GUÐLAUGUR ÞORLÁKSSON
Austurstræti 7. — Sími 2002.
^<$<$x$x$>^k$x$x$>3x$x$x$x$x$x$x$x$xíx$x$x$x$x$x$x$x$x®x^<$x£<»3x$x$x^$x$k$x$x$x$x6>3><$x^
Sendisveinn f
- w
w
óskast 1. októher til sendiferða á skrifstofu- í Miðbæn- 4
w
!| um. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 19. þ. inán. %
merkt „Svar“. ‘jk
<$K$X$X$X$X$X$X$X$X$><$XSX$X$>^<$X$X$XSX$X$XS><$><3><S><SX$><$><S><M>44<$><$X$XS><$XS><$XSX$X$XS><$X$X$>
«X$X$>^X$X$>^><$X$>^X$>^X$X$X$X$>^^<$^><$><$><$X$X$><$X$X$><$><$X$X$X$><$X$><$>^,^>^X$X$><$X$><$^X^
Agætt steinhúsf
í Ólafsvík til sölu I
<fo
Nýlegt- steinhús í Ólafsvík (læknishúsið) |
í ágætu ástandi og með nýtísku þægindum, er I
til sölu nú þegar, ef viðunandi boð fæst. f
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, |
sem veitir kauptilboðum móttöku til 22. þ. I
m. — Rjettur áskilinn til að hafna öllum til- |
boðum, eða taka hverju sem er. %
|
Gunnar Þorsteinsson Hrl. i
v>
Thorvaldsensstræti 6. Sími 1535
<«
w
<$^X$><$X$^X$X$X$XJX$X$X$>#^X$X$X$^X$X$X$^X$X$X$X$X$X$X$X$^X$X$><$X$X$^^X$>«^X$X$X$4>
© % ^SI*
isnus
til sölu. Nánari upplýsingar gefur
GUÐLAUGUR ÞORLÁKSSON
Austurstræti 7. — Sími 2002.
<^<®X^$>^x$X$^<$X$X$X$X$X^<$X$X$X$X$X$X$X$X$X$X$X$K$XÍ><$X$X$X$X$X$^>^^X$X$X$K$X$X$><$X$>