Morgunblaðið - 06.09.1945, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.09.1945, Blaðsíða 10
10 'wmm MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 6. sept. 1945 „ .. .. (7*9 er ■ JÓNATAN SCRIVENER <d^tir CCiau.de —JCoucfliti Stríðsherrann á Mars 2) renffjaiacja Eftir Edgar Rice Burroughs. 17. Jeg hefi sjálfsagt staðið grafkyrr í heila mínútu, eftir að jeg var kominn upp í bátinn. Hann hafði ruggað dá- lítið, er jeg steig í hann, en þó hefði urg hans við börð- stokk báts míns helst átt að berast bátverjum, ef ein- hverjir voru, að eyrum. En enga breytingu hafði jeg heyrt í bátnum, og rjett á eftir var jeg búinn að leita um allan bátinn. Hann var tómur. Jeg fálmaði nú um klettana, sem báturinn lá bund- inn við, og fann þar mjótt þrep, sem jeg vissi, að hlaut að vera leiðin, sem bátverjar höfðu farið eftir. Að það gætu engir verið aðrir en Thurid og fjelagar hans, var jeg viss um af stærð og byggingu báts þess, er jeg hafði fundið. Jeg kallaði á Woola og steig upp á þrepið. Hinn risa- vaxni, grimmi hundur kom á eftir mjer, liðugur eins og köttur. Um. leið og hann fór yfir bátinn, sem Thurid og f jelag- ar hans höfðu verið í, urraði hann illilega, og þegar hann kom til mín upp á klettasilluna, fann jeg að hárin risu á honum af reiði. Jeg held að hann hafi fundið á sjer, að óvinir mínir hafi verið nýlega á þessum stað, því jeg hafði gkkert gert til þess að reyna að gera honum skiljan- legt, að við værum að elta einhvern, sem mjer væri illa við. Þetta flýtti jeg mjer nú að gdra, og að sið grænu mann- anna á Mars, gerði jeg það aðallega með hugsanaflutningi þeim, sem er orðinn mjög þroskaður þar á hnetti, en að öðru leyti í orðum, að við værum að reyna að finna þá, sem til skams tíma höfðu verið í bátnum, er við gengum yfir. Woola gaf í ikyn með lágu urri, svipuðustu kattarmali, að hann hefði skilið þetta, • og bauð jeg honum nú að fylgja mjer og beigði til hægri handar eftir klettaþrepinu, en varla hafði jeg gert það, fyrr en jeg fann að hann tog- aði í herklæði mín. (Herklæði Marsbúa eru úr leðri, alsett gimsteinum hjá aðalsmönnum). Heimamaður: Af bverju 17. dagur „Þegar maður fær skýrt og skorinort svar við spurr.ingu, sem maður hefir enn ekki tjáð. Þjer eruð dálítið þreytandi. Jeg hringdi í raun rjettri tii þess að segja yður, að jeg verð að heim an í einn eða tvo daga Við verð um að hittast, þegar jeg kem aftur. Hvernig líkar yður lífið 1 íbúð Scrivener?“ ,,Prýðilega“. „En það svar — drottinn minn! Þjer hafið aðeins einn hæfileika. Vitið þjer, hver hann er?“ „Nei — hefi ekki minstu hug mynd um það“. „Yður tekst að korrta því inn hjá fólki, að öruggt sje að gera yður að trúnaðárvini. Ef það væri í raun rjettri öruggt, myndi alt horfa öðru vísi við. Ef til vill tekst yður einn góðan veðurdag að sannfæra mig um, að svo sje“. „Jeg mun ekki reyna það“, svaraði jeg. „En það er öruggt“. „Hversvegna? Notfærið þjer yður það ekki, þótt einhver gefi yður trúnað sinn?“ „Nei“. „Mjer heyrist helst, að þjer munið vera prýðilegur áhorf- andi. Hvaða eiginleikar eru nauðsynlegir, til þess að geta orðið góður áhorfandi?“ „Má jeg hugsa mig um í eina mínútu?“ „Já — eina mínútu“, svaraði hún. „Til þess að geta orðið góður áhorfandi verður maður að vera hlutlaus — maður má ekki láta tilfinningarnar koma neitt við sögu“. „Þá get jeg aldrei orðið góð- ur áhorfandi. — Jeg hitti yð- ur þegar jeg kem aftur til bæj- arins. Jeg hefi hugsað mikið um yður og mig langar til þess að tala við yður. Þjer verðið að heimsækja mig. — Góða nótt“. - „Góða nótt“. Jeg lagði heyrnartólið á og bað gesti mína afsökunar. — Samræðurnar gengu frem ur stirt. Middleton mælti ekki orð af munni, en jeg tók eftir því, að hann starði án afláte á Pálínu, eins og hún væri vera úr Öðrum heimi, í hvert sinn sem hann hjélt að hún tæki eigi eftir því. — Ef henni varð litið á hann, flýtti hann sjer að líta niður fyrir sig. Þannig liðu tíu mínútur. — Þá reis Míddleton á fætur. „Nú verð jeg að fara. Það var ákaflega fallegt af yður, að bjóða mjer inn fyrir“. Hann sneri sjer að Pálínu, og bauð henni góða nótt. Jeg fylgdi honum fram í and dyrið. Um leið og jeg hafði lok að dyjrunum að bókaherberginu vatt hann sjer að mjer. . „Hver er hún? Jeg veit, að það er dónalegt að spyrja svona ■— en hver er hún?“ „Hún er vinkona Scrivener“, svaraði jeg. „Það getur ekki verið. Hún er vinkona yðar, eigið þjer við“. „Nei — Scriveners". Hann horfði þegjandi á mig. Svo sagði hann snöggt: „Jeg sá að hún hjelt á lykli“. „Já“, sváraði jeg. „Hún hef- ir lykil að útidyrunum hjer“. „Guð minn góður! Eigið þjer við, að hún sje frilla hans?“ „Nei. Jeg á ekki við það“. „Hvernig vitið þjer, að hún er það ekki?“ spurði hann, og bar ótt á. „Hún sagði mjer það“. „Drottinn minn! Og þjer trú ið orðum hennar?" „Já. Jeg hefi enga ástæðu til annars“. Hann leit á mig, og einkenni legt bros ljek uro varir hans. „Nei — ef til vill ekki. 'Við erum bersýnilega mjög ólíkir. Einu sinni var jeg á því, að all- ir segðu satt. Nú hallast jeg fremur að því, að allir ljúgi“. „Þjer trúið því þá sennilega ekki, þegar jeg segist vonast.til þess að sjá yður aftur?“ , Hann gaf frá sjer þennan stutta, gleðivana hlátur. „Þjer eruð fífl að segja það“. „Hversvegna?“ spurði jeg. „Það eru aðeins fífl, sem bjóða þeim, sem einmana eru, að heimsækja sig“. „Það gæti verið, að fíflið, sem hjer á í hlut væri einmana líka. Þjer skulið a. m. k. koma, ef þjer kærið yður um“. Þegar hann var farinn, gekk jeg aftur inn í bókaherbergið. Pálína reis á fætur og gekk á móti mjer með útrjettar hend ur — eins og hún væri að gefa til kynna, að við hefðum ekki getað heilsast alménnilega í naer veru Middleton. „Gestur yðar er einkennileg- ur maður“, sagði hún, sinni hreinu, hljómfögru röddu. — „Hann er mjög óhamingjusam- ur — er það ekki?“ „Hversvegna haldið þjer það?“ spurði jeg. „Jeg rjeði það af því, hvern- ig hann hló“, svaraði hún. — „Hann vakti forvitni mína“. „Af hverju? En áður en þjer segið mjer það, skulið þjer fá yður sæti“. Hún settist aftur við arininn. Það leit ekki út fyrir, að hún væri neitt tímabundin. Það var einkennilegt að vera hjer einn með henni og hafa á tilfinning- unni, að maður þekkti hana vel — þ,ví að, þegar öll kurl voru komin til grafar, vorum við al- ókunnug hvort öðru. Hún sat keik og það var eitthvað fjar- stæðukent við barnslegan al- vörusvipinn á andliti hennar og glæsilegan kvöldkjólinn, sem sýndi fínar, mjúkar línurnar í hálsi hennar og ávala fegurð axlanna. „Af hverju horfið þjer svona á mig?“ Jeg kipptist við. Óafvitandi hafði jeg starað á hana. — Jeg svaraði: „Vegna þess, að þegar jeg horfi á yður, hefi jeg altaf á tilfirmingunni, að veroldin sje samkvæmi, sem yður hefir ver ið boðið í. Og það er undarlegt samkvæmi — það viðurkenni jeg. Þjer eruð úr einhverjum öðrum heimi — jeg veit ekki, hvaða heimi — en þjer hafið orðið að klæðast fötum þessa heims, í kurteisisskyni við gest- gjafa yðar, og það er eins og þjer sjeuð að bíða eftir því, að einhver komi og flytji yður aft ur þangað, sem þjer eigið heima“. „Þetta væri eins vel hægt að segja um yður“, sagði hún og brosti. „Engu að síður er það satt, — að nokkru leyti. En jeg ætlaði að segja yður, hversvegna gestur yðar vakti fofvitni mína. Hvað heitir hann?“ „Andrjes Middleton. Hvers- vegna vakti hann áhuga yðar?“ „Vegna þess, að mjer finnst einhvernveginn að hann sje á rangri hillu í lífinu. Lífsferill hans hefði átt að vera mdrkaður — ákveðinn — frá öndverðu, en hann hefir — hann hefir — „Orðið strandaglópur?“ „Já — hann hefir orðið strandaglópur“, endurtók hún hægt. „Það er eitthvað við þetta herbergi“, hjelt hún áfram, „sem gerir það að verkum, að maður hikar við að fitja upp á því, sem maður ætlaði í raun rjettri að ræða um áður en mað ur kom inn í það. Þjer voruð að tala við kónu í símann áðan — var ekki svo?“ „Jú“. „Þjer skilgreinduð pýrðilega, hvað það væri, að vera góður áhorfandi“. „Þegar þjer hafið lesið eins mikið og jeg, ungfrú Mande- ville — —“. „Pálína — og við ættum að þúast“. „Þökk fyrir. Þegar þú ert bú in að lesa eins mikið og jeg, Pálína, getur komið fyrir, að þú vitnir óafvitandi í bækur“. „Jeg vissi ekki, að þú ættir neina kunningja í Lundúnum". „Jeg á það ekki“, svaraði jeg. „Jeg var að tala við vinkonu Scrivener — frú Francescu Bellamy". Jeg sá þegar í stað, að hún kannáðist við nafnið. Hún sat þegjandi stundarkorn — og mjer fanst alt í einu jeg sjá mynd Francescu við hlið henn- ar. Það var næsta furðulegt, hve ólíkar þær voru, og þegar jeg hugsaði til þess, að það skyldi hafa verið Scrivener, sem kynti mig þessum ólíku manneskjum, Pálínu, Francescu og Middle- ton, var jeg gripinn tilfinningu, sem átti eitthvað skylt við ótta. Mjer fanst það alt í einu óheilla vænlegt, að maður, sem jeg þekkti ekkert og hafði aldrei sjeð, skyldi þannig vera ráð- andi afl í lífi mínu. Málafintnings- skrifstofa Einar B. Guðinnndssci. Goðlangtir Þorláksson. Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. — Það stendur hjerna í blað inu, að í New York sje ekið yf ir mann á hálftíma fresti. — O, sussu, sussu, aumingja maðurinn. ★ — Hvað kallið þið eiginlega þetta sull, kaffi eða te? spurði bálreiður gestur. — Mjer finst það helst vera eins og bensín á bragðið. — Ef það er eins og bensín á bragðið, svaraði þjónninn, þá get jeg fullvissað yður um, að það er kaffi, því að teið okkar er nefnilega eins og uppþvotta- vatn. ★ Hann: — Jeg er eins og jeg væri tveggja ára gamall í dag. Hún: — Meinarðu hest, barn eða egg? ★ Sísí: — Jeg eh oft að hugsa um, hvað karlmenn tala um, þegar þeir eru einir. Dídí: — O, ætli þeir tali ekki um það sama og við. Sísí: — Hvað þeir geta verið andstyggilegir. ★ Sá ókunnugi: — Svona nokk- | uð myndi nú þýða slagsmál heima hjá mjer. slærðu mig þá ekki? Sá ókunnugi: — Af því að jeg er ekki heima hjá mjer. ★ — Þú þarna niðri, hrópaði faðirinn ofan af lofti, klukkan er orðin þrjú, heldurðu, að þú getir verið hjer í nótt? — Þakka yður fyrir, svaraði hinn rólyndi elskhugi dóttur- innar, en þá verð jeg að hringja heim fyrst. ★ Eins og kunnugt er reiddust Frakkar ákáflega yfir því, að fá ekki að vera meðal þeirra þjóða, sem fyrst tóku atómo- orkuna í notkun og fengu heið urinn af því að hafa fyrst klof- ið atómið. Nú er sagt, að de Gaulle sje að dunda við það í frístundum sínum, að kljúfa atómið með fallöxi. 'k Ljettlyndur kaupmaður opn- aði verslun, en ekki tókst betur en svo, að skömmu síðar varð hann að loka með því að við- skiptavinirnir urðu aldrei nógu margir. Hann setti eftirfarandi auglýsingu á búðarhurðina: — Opnað vegna misskilnings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.