Morgunblaðið - 19.10.1945, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Föstuclagur 19. okt. 1945
Guðlaug í Ólafsdal
í DAG er aldarárstíð Guð-
laugar Zakaríasdóttur, hús-
freyju í Ólafsdal, þVí að hún
var fædd þann 19. okt. 1845.
Það er ekki tilgangurinn með
þessum fáu línum að gera minn
ingu þessarar stórmerku konu
nokkur skil, enda yrði það
langt mál, ef vel væri gert, •—
en óhæfilegt væri þó, ef hennar
væri að engu getið í blöðum á
þessum tímamótum, svo mikið
á þjóðin henni að þakka.
Allir fulltíðamenn munu
kannast við To'rfa Bjarnason,
skólastjóra í Ólafsdal, enda
þótt minningu hans hafi ekki
verið sýndur sá sómi, sem hann
verðskuldar, en margir munu
þeir vera, sem lítið eða ekkert
kannast við konu hans, Guð-
laugu Zakaríasdóttir, enda var
hennar verkahringur þrengri
en háns, svo sem jafnaðarlega
er um konur, og því fór af henni
minna orð út i frá en honum.
En þeir, sem þekktu Ólafsdals-
heimilið í þeirra tíð, af persónu
legum kynningum vita það, að
hún var engu minni skörungur
heima fyrir, en bóndi hennar
og, þarf þó langt til að jafna og |
lengi að leita til að finna annan
eins heimilisföður og Torfi var.
Þa:u voru frændsystkini hjón
in og kynntust ung hjá frænda
sínum, bændaskörungnum Ás-
geir Einarssyni, alþingismanni,
sem kenndur er jafnan við Þing
eyrar. Þar felldu þau hugi sam
an og giftust haustið 1868.
Reistu bú næsta vor að Varma-
læk í Borgarfirði, en fluttu það
an búferlum að Ólafsdal, vorið
1871 og hafði Torfi keypt jörð-
ina. Þar bjuggu þau saman með
an Torfi lifði, til 1915, og síðan
bjó Guðlaug þgr til æfiloka —
en hún dó 1937 — með Mark-
úsi syni sínum.
Frá 1880—1907 hjeldu þau
skóla þar í Ólafsdal. Jeg segi
þau með ráðnum hug, því að
bæði var það, að Guðlaug átti
á sína vísu þótt í stjórn búnað-
arskólans í Ólafsdal og svo var
hitt, að hún tók lengi stúikur
til kennslu í hússtjórnarstörf-
um og hafði hún þó í engan
skóla gengið — nema á góðum
heimilum, í æsku sinni — frem
ur en Torfi — og er það eitt m.
a. órækt vitni um þann heima-
mund atgjörfis og mannkosta,
er þau höfðu hlotið í vöggu-
gjöf.
Guðlaug var framúrskarandi
bústjórnarkona, að ráðdeild og
dugnaði og svo afkastamikil til
allra verka, að fáar konur koma
þar til jafns við hana. Til marks
um vinnuafköst hennar er t. d.
það, að þrátt fyrir umsvifamikil
húsmóðurstörf, á fjölmennu fyr
irmyndarheimili, skilaði hún
meiri tóskap eftir vikuna, jafn-
aðarlega, en vinnukonur henn-
ar, þótt tóskapurinn væri þeirra
aðalverk. Þetta er ekki þjóð-
saga, heldur liggur það fyrir í
vikulegum vinnuskýrslum, er
Torfi ljet halda um allt það er
unnið var á heimilinu, ekki að-
eins talið í vinnustundum, held
m
ur og í- afköstum. sem töluleg-
um mælingum varð á komið eft
ir vikuna.
Guðlaug var mikil skapfestu-
kona — og það voru þau hjón
bæði — en hún hafði ekki þá
framúrskarandi lipurð og stjórn
skapsmunanna, sem svo mjög
einkenndi Torfa og gerðu hann
svo ástsælan meðal allra þeirra,
er nutu stjórnar hans. En um
hana mátti með sanni segja að
„hún væri drengur góður“ og
þess nutu margir,
Til marks um það hvers virði
hún var manni sínum, er sú
saga, að hún tók sjer eitt sinn
hvíld frá heimilisstörfum og
hugðist vera viku út í Breiðar-
fjarðareyjúm, en vart var vik-
an hálfnuð, er Torfi ljet senda
eftir henni og ljet þau orð
fylgja, að alt færi um þverbak
á heimilinu ef hún kæmi ekki
heim þegar.
Þeim Ólafsdalshjónum varð
12 barna auðið og nutu þau
hins ágætasta uppeldis og ment.
unar, bæði heima og í skólum
utan heimilis, eftir því senj
þeim entist aldur til. En sú
þunga raun var á foreldrana
lögð, að sjá þeim á bak flestum
og aðeins 2 dætur og einn son-
ur lifðu móður sína.
Þeim, sem vilja kynnast
kvenskörungnum Guðlaugu í
Ólafsdal nokkru nánar, af frá-
sögn einnar þeirraf konu, er
var í „skóla“ hjá henni, í æsku
sinni, skal á það bent að flutt
mun verða erindi um Guðlaugu
í útvarpinu í kvöld.
M. Stefánsson.
Pingírjettir
Á DAGSKRÁ Ed. var í gær
frv. um hafnargerðir og lend-
ingarbætur, þess efnis, að allar
hafnargerðir og lendingarbæt-
ur verði framvegis framkvæmd
ar eftir sömu lögurrp Flutt af
sj ávarútvegsnef nd.
Form. sjávarútvegsnefndar,
Guðm. I. Guðmundsson sagði,
að samgöngumálaráðherra hefði
sent nefndinni frv. með ósk
um, að nefndin flytti ' það.
Nefndinni hefði ekki annist
tími til að athuga frv. nánar,
en þetta væri samskonar lög-
gjöf og gilt hefði um vita, vegi
og' brýr. Flest öll almennu á-
kvæðin. sem væru í hinum sjer
stöku lögum, hefðu verið t/‘k-
in upp í þessi heildarlög Ekki
þyrfti að fjölyrða um, hve ó-
heppilegt væri, að sjerstök lög
giltu um hverja höfn.
Samgöngumálaráðherra Em-
il Jónsson mælti síðan nokkur
orð og sagði, að öllum hafnar-
'lögum og lögum um lending-
arbætur hefði verið safnað í
eina heild, þannig, að þessi nýju
lög yrðu einfaldari í fram-
kvæmd. Samgöngumálaráð-
herra benti á, að það væri ný-
mæli, hverjar hafnir skuli vera
styrkhæfar, en í 3. gr, frv. seg-
ir, að „skilyrði fyrir styrkveit-
ingu og ábyrgð ríkissjóðs er,
að hafnargerðin eða lendingar-
bæturnar sjeu framkvæmdar
undir yfirumsjón vitamála-
stjóra eða annars manns, sem
samgöngumálaráðherra sam-
þykti.
Málinu var vísað til 2. umr,
og sjávarútvegsnefndar.
Á dagskrá Nd. voru 3 mál:
Frv. um viðauka við .1. nr.
45, 1937, um bann gegn drag-
nótaveiði í landhelgi. Sjávar-
útvegsnefnd flytur frumvarpið
að beiðni ajvinnumálaráð-
herra. Er hjer lagt til, að heim-
ilað verði að friða þau svæði,
þar sem bestar eru uppeldis-
stöðvar fyrir flatfisk. Þarf með
mæla frá Fiskifjelagi íslands
og fiskideild atvinnudeildar,
til þess að slík friðun sje fyrir-
skipuð.
Frv. fór til 2. umr.
Hin tvö málin voru um lend-
ingarbætur og fóru til nefndar.
Til fólksins á Sólheimum í
Laxárdal: Mæðgur 50 kr.
Til veiku stúlkunnar: S. B. 50
kr. G. Þ. 10 kr X. X. 20 kr.
Skrifstofuvjelar
Samlagningar-, marjL'öldunar- qg Ritvjel-
ar. Nokkur , stykki fyrirliggjandi.
Einar J. Skúlason
,, Brattagata 3B.
K.+K**
*
!
!
1.
í
l
í
».‘WVV
f
I
j
A N
Rjúpnadráp er stranglega bannað í eft-
irtöldum löndum: Valla, Norður-Grafar,
Þverárkots, Hrafnhólá og' Stardals í Kjal-*
arneshreppi, og Fellsenda í Þingvalla-
hreppi,
ÁBÚENDUR.
Saumavjelar
Stígnar Singer heimilisvjelar og ein raf-
knúin armvjel með hjólfæti, hentug fyr-.
ir skinnasaum. ,
Einar J. Skúlason
Bi’attagata 3B. •••
Perlur — Palliettur
Kjólabúðin
Bergþórugötu 2.
0
t $
•:• •:•
l
f.
RAWL PLUGS
Steinborar, Tappar nr. 8, 10. 12 14.
Járn & Gler h.í.
Laugaveg 70. — Sími 5362.
X
,»,
%
AUGLÝSÍNG ER GtTLLS ÍGILDI
Írttwti n m—wmnffl-m a a
SO l'M A rTTECTIVE! SO I CAN'T
GET T14E LJ’/f-POWN ON ALL TWE5E
ÍMYSTERIOUS TRAIN PELAYS ANP
1 TIE-UPS i_ e>AW! f-r-
---MURPERS
'ARE SIMPLER, X-9. NOW
HERE'S A GIRL POUNP ON
A LONELY ROAP. TWE
CAILY THING IN HER
PUR5B
^ANP WERE'S TWE W A SLIPE,
HENNESSY.
I WANT TO
TAKE SOME
SCRAPINGS
PKOMl
EJflr Robert Sform
Z'M GOING BACK TO THE
BUREAU ANP GET THESE
©CSAPINGS ANALYZEP. yOU
CHECK WHETHER ANV PECENT
WASHINGTON TRAIN5 WEÍ?E
MVSTERIOUSLY 9ELAYEP.
X-9: Jæja, sVo að jeg er leynilögreglumaður. Og
jeg á að getað snapað uppi, hvernig þessar dular-
fullu lestarstöðvanir verða, svei! — Hinn G-maður-
inn: Morð eru auðveldari X-9. Nú, hjer hefir stúlku
lík fundist á afskekktum vegi! Það eina, sem var í
tösku stúlkunnar var ..... merkt jámbrautará- Washingtonlestina. X79: Lánaðu ipjer naglaskafa,
ætlun. —; Hennessy, jeg ætla vð vi a hvpð er undir nöglunum
X-;9: Upp ipeð haUinn þetta getur verið þáð, á henni. — Svö fe. je , . rannsóknarstofuna og læt
sem jeg var að; bíða eftir. —•(I .líkhúsinu) Lög- . ranpsaka þetta, en þi! ... .hpgar,hvort eitthvert. at
reglumaður: Hjerna er áætlunin, X-9, og merkt við hefir verið gert í' 'aah.ngtonlestinni á meðan.