Morgunblaðið - 15.01.1946, Side 6
c
MORGUNBLAÐIB
Þriðjudagur 15. jan. 1946
Blekkingavefur kommúnista
ÞAÐ HEFIR LONGUM
vakið athygli, að bardagaaðferð
ir kommúnistá er með öðrum
hætti en annarra íslenskra
stjórnmálaflokka. Þetta þarf í
rauninni engan að undra, því
að kommúnistar hafa valið sjer
það hlutverk að blekkja ís-
lensku þjóðina til fylgis við
þjóðfjelagsháttu einræðisins,
sem eru svo ósamrýmanlegir i
skapgerð þjóðarinnar, að fáir
eða engir íslendingar gætu
hugsað sjer að lifa við slíkt
skipulag, nema kommúnista-
foringjarnir, sem sjálfir gera
sjer vonir um að verða einræð
isherrar í hinu nýja skipulagi.
Enginn, sem fylgst hefir með
ferli kommúnista á undan-
förnum árum, fer í grafgötur
með það, að hið rússneska ein-
ræðisskipulag er grundvallar-
hugsjón og lokatakmark ís-
lensku komúnistanna. Þessu tíl
sönnunar þarf ekki að nefna
annað en hina skilyrðislausu
þjónkun þeirra við valdhaf-
ana í Moskv'u, jafnvel þótt þessi
þjónkun hafi oft neytt þá til
þess að brjóta mjög í bág við
álit almennings hjer á landi,
sem þeim hlýtur þó að vera ó-
Ijúft, meðan þeir verða að;
starfa á lýðræðisgrundvelli. —
Sem dæmi má nefna, að þrátt!
fyrir gífuryrði kommúnista um 1
þýska nasismann síðustu árin
fyir stríð, sneru þeir algerlega,
við blaðinu í ágúst 1939 er vin-
áttusamningur Hitlers og Stal.
ins var gerður, og studdu síðar
beint og óbeint málstað Hitlers
gegn Vesturveldunum, þar til
,,vináttusamningurinn“ fór aft-
ur út um þúfur. Þeir vildu t.d.
banna íslenskum skipum að
sigla til Bretlands þegar verst
horfði fyrir Bretum, en reyna
í staðinn að gera verslunarsamn
inga við Þýskaland (!) Kom-
múnistum er líka Ijóst, að ein-
ræðishugsjón þeirra er ógeðfeld
íslenskum kjósendum, sje hún
boðuð grímulaust. Þessvegna
miðast allar þeirra bardagaað-
ferðir við að villa mönnum sýn,
telja mönnum trú um það, að
kommúnisminn sje eitthvað
annað og betra en hann raun-
verulega er. Þessa bardagaað-
ferð nota kommúnistaforingj-
arnir áreiðanlega með bestu
samvisku. Þeir munu álíka,
eins og skáldið frá Kötlum hef-
ir sagt með óvenjulegri hrein-
skilni, er kommúnisti er í hlut,
að einræði þeirra sje „einræði
mannlegrar skynsemi“ og þjóð
inni því fyrir bestu. En þar sem
þeim er ljóst, að almenningur
hjer á landi ljær engri þeirri
einræðisstefnu fylgi, sem sýnd
er í sinni rjettu mynd, verður að
afla henni fylgis með blekking-
um og hugtakafölsunum, og eru
slíkar bardagaaðferðir í besta |
samræmi við æðsta boðorð sið-
fræði kommúnista og annarra
einræðisflokka, að „tilgangur-
inn helgi meðalið“.
„Austræna lýðræðið“.
KOMMÚNISTUM þykir það
eðlilega ekki vænlegt til sig-1
nrs, að rökræða stefnu sína, j
eða láta fólk kynnast hinu
raunverulega ástandi í fyrir-!
myndarríkinu sínu, Rússlandi.
Gömul og ný reynsla sýnnv
það líka hvert fylgi kommún-
Pólitískt einræði er
lokatakmarkið
ista er í-þeim löndum, ]#ir sem ið“. Þessi tilraun misheppnað
fólkið fær að kynnast honum ist þó algjörlega, svo sem
í siuni rjettu mynd og síðan kunnugt er. Það gekk ekki í
hefir frelsi til að láao vilja fólkið, að lýðræðishugsjón-
sinn í ljósi, svo sert^kom í ljós inni sje fullnægt í landi, þar
við kosningarnar í Austurriki sem bönnuð er starfsemi allra
og Ungverjalandi á sl. hausti. stjórnmálaflokka' ,nema eins,
Bardagaðferðir þeirra eru og útvarpsfyrirlesarinn og
hinsvegar fólgn^r í því, að^þeir flokksmenn hans, er
velja einræðisáformum síni;m reyndu að taka upp hanskann
einhver heiti, sem þeim þykir fyrir hann, urðu að almennU
líkleg til ,að láta vel í eyrum ajhlægj. „Ráðj.tjórnarlýðræð-
aimennings, gera þau að póli- ið” var ekki framar nefnt á
tískum slagorðum, sem látin nafn í dálkum Þjóðviljans, og
eru glamra sem hæst og oft- einn af ritstjórunum bað menn
ast í eyrum kjósendanna, og í guðanna bænum, að láta ekki
jafnframt reynt að fá þá til hið vegsamaða „ráðstjórnar-
að trúa því, að þessi álitlegu ]ýðræði“ fæla sig frá því áð
heiti tákni ekki einræðisáform kjósa kommúnistana, því að
kommúnista, heldur einhverj- þeir myndu aldrei framkvæma
ar hugsjónir, sem almenning- þessa hugsjón sína. Mun það
ur aðhyllist og vill fram- raunar einsdæmi, að stjórn-
kvæma. I málaflokkur skuli biðja sjer
I þessu ljósi verður hið gíf- Úlsis á þeim grundvelli, að
Fjöímennur fundur Sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði
uryrta lýðskrum kommúnista
hann ætli ekki að framkvæma
best skoðað. Til þess að fletta, 'áefnu sína(!)
ofan af öllum blekkingum j
kommúnista og hugtakafölsun »,Efnahagslegt lýðræði .
um þyrfti lengra mál en hjer ÞÓ AÐ kommúmstar færu
er rúm fyrir, og verða því að- banniS hinar eftirmmmleg-
eins valin dæmi af handahófi.
Þau orð, sem mest allra eru
misnotuð af kommúnistum,
eru orðin lýðræði og frelsi. |1,eirra un(lir Því komlð’ að
Hugsjónir frelsis og lýðræðis honum verðl beitt með ár’
ustu hrakfarir, eru þeir ekki
af baki dottnir með blekking-
aráróður, enda er pólitískt líf
eru Islendingum hjartfólgnar,
og enginn stjórnmálaflokkur,
sem tekur opinskátt afstöðu
gegn þessum hugsj.ónum, get
ur ekki vænst neins fylgis með
þjóðinni. En þessar hugsjón-
ir eru höfúðandstæður komm-
únismans, og þetta hlýtur að
skapa kómmúnistaflokki, sem
verður að afla sjer fylgis með
al kjósenda í lýðræðislegri bar
áttu. nokkurn vanda. En þessi
vandi er leystur með því, alJ
taka þessi orð upp, sem póli-
tísk slagorð í baráttu komm-
únista, en auðvitað með því
að srnia merkingu þeirra alveg
við. I trausti þess, að almenn- um
ingur átti sig ekki á þeirri
hreytingu, sem gerð hefir ver-
ið á merkingu orðanna, þykj-
ast kommúnistar ber.jast und-
ir merkjum frelsis og lýðræð-
is. og leitast við að afla sjer
fylgis í sk.jóli þeirra vinsælda,
sem orð þessi njóta.
Þó að því verði ekki neitað,
að kommúnistar hafi náð veru
legum árangri með slíkum
blekkingum, hefir þeim þó
stundum brugðist bogalistin í
þessu efni, svo að lærdóms-
ríkt er.
Öllum er það í fersku minni,
þegar einn útvarpsfyrirlesari
kommúnista valdi sjer það
angri.
Þó að heppilegt þætti að af
neita ráðstjórnarlýðræðinu um
sinn, var tekið að lofa annars-
konar lýðræði, sem gefa átti
alþýðunni gull og græna
skóga, og nefndu kommúnist-
ar það ,efnahagslegt lýðræði*.
Orðið lætur ekki illa í eyrum,
það virðist gefa loforð um
aukið athafnafrelsi og bætt-
an efnahag almenningi til
handa.
En hvað táknar þá þetta
efnahagslega lýðræði komm-
únista? Samkvæmt kenning-
kommúnista sjálfra á
fyrst og fremst að tryggja það
með opinberum rek.stri at-
vinnufyrirtækjanna. Það þýð-
ir, að í þjóðskipulagi komm-
únismanns, nær einræðisvald
hinna pólitísku valdhafa einn
ig til atvinnulífsins. Þar á
meðal eru yfirráð allra áróð-
urstækja, svo sem: útva rps.
blaða og prentsmiðju, óskoruð
í höndum einræðisherranna.
Enginn fær að birta neitt á
prenti, nema það hafi áður
verið ritskoðað af embættis-
mönnum einræðisflokksins.
Ýfirráð hinna póíitísku vald
hafa yfir atvinnutækjunum
hafa einnig óhjákvæmilega í
för með sjer afnám hinna þýð
hlutverk á síðastliðnu hausti, ingarmiklu mannrjettinda, sem
að revna að sannfæra hlust-|nefnd eru atvinnufrelsi. Einn
endur um ágæti -hinnar rúss- aðili hefir alræðisvald yfir
nesku einræðisstefnu, í út-
varpserindum sínum. Ilann
varð vitanlega að velja stefn-
atvinnutækjunum. Hann hef-
ir þá jafnframt alræðisvald
j7fir kaupi og kjörum, getur
unni eitthvert það heiti, sem j skipað hverjum sem er til
líklegt væri til þess að villa þeirra • starfa, er hann óskar
mönnum sýn. Hann skírði ein-
og á þá staði, er hann ákveð-
ræði kommúnistaflokksins! ur.
rússneska „ráðstjórnarlýð- j Sannleikurinn um „efnahags
ræði“ eða „austræna lýðræð- Frarnh. á bls. 7
Frá frjettapitara vorum
í Hafnarfirði.
SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN í
Hafnarfirði efndu til fundar s.l.
föstudag, og hófst hann kl.
8.30 e. h. Fundurinn var hald-
inn í húsi flokksins og var það
fullskipað hafnfirskum Sjálf-
stæðismönnum og konum.
Bjarni Snæbjörnsson læknir
flutti framsöguræðu um bæj-
j armál og bæjarstjórnarkosning
j ar. Kom hann víða við í ræðu
sinni, meðal annars sýndi hann
fram á það með ljósum rökum,
að fast að helmingur af tekj-
um Hafnarfjarðar s.l. fimm ár,
eða 1941—46, hefðu verið
stríðsgróðaskattur, sem hafði
verið greiddur af fyrirtækjum
! í bænum, sem væru rekin af
einstaklingum, væri þetta ljós
vottur þess, að Hafnarfjarðar-
bær ætti fyrst og fremst vel-
megun sína að þakka dugnaði,
getu og framtakssemi einka-
framtaksins í þænum. — Um
framkvæmdir í bænum s.l. kjör
tímabil kvað Bjarni að mis-
jafnt væri um að segja, þó væri
það áþerandi, að flest það, er
framkvæmt hafi verið, hafi ver
ið runnið undan rifjum Sjálf-
stæðismanna, nema að undan-
skildu Ráðhúsinu, en stefna
Sjálfstæðismanna í því máli var
algerlega á öndverðum meið við
stefnu Jafnaðarmanna, því
Sjálfstæðismenn vildu að bygt
yrði verulegt Ráðhús, sem gæti
rúmað allar íkrifstofur bæjar-
ins — hús, sem væri það stórt,
að í sambandi við það væri hægt
að reka veglegt samkomuhús,
með stórum og skemtilegum
samkomusölum.
Að bærinn gæti losað sig úr
öllu því endemis skuldafargi, er
hann undir stjórn Jafnaðar-
manna hafði komist í, kvað
Bjarni ávalt hafa verið stefnu-
mál Sjálfstæðismanna, og því
ítarlega ýtt á eftir því máli, af
hálfu Sjálfstæðismanna, er vel
fór að árna í ári, þar til það
mál var til farsælla lykta leitt,
er bærinn hafði greitt upp all-
ar skuldir sínar.
Framkvæmd og fullkomnun
mannvirkja sem Strandgötunn
ar, Sundlaugarinnar og ekki
hvað síst Hafnargerðarinnar,
kvað Bjarni ávalt hafa verið
með fremstu stefnumálum Sjálf
stæðismanna í Hafnarfirði, þótt
hinsvegar sjeu þeir ekki ánægð
ir með þær framkvæmdir, er
fram hafa farið í þessum mál-
um, því þær hafa verið slæleg-
ar og illa unnar, enda verk-
stjórn við þessi .mannvirki mið
ur heppileg.
Síðari hluti framsöguræðunn
ar fjallaði um stefnu Sjálfstæð
ismanna í bæjarmálunum.
Lagði framsögumaður stfenu-
skrá flokksins í þeim fyrir fund
inn í tillöguformi og las og
skýrði hana lið fyrir lið.
Að lokinni framsöguræðunni
voru frjálsar umræður og tóku
eftirtaldir menn og konur til
máls: Júlíus Nýborg skipasm.,
Loftur Bjarnason framkvæmda
stj., Árni Ágústsson skrifst.m.,
Guðjón Magnússon skósm.m.,
Eggert ísaksson verkam., Þor-
leifur Uónsson fulltrúi, frú
Jakobína Mathiesen, Eyjólfur
Kristjánsson sparisjóðsgjaldk.
og Stefán Jónsson framkv.stj.
Það kom greinilega fram hjá
ræðumönnunum, að Sjálfstæð-
isfiokkurinn fer sameinaður í
þá baráttu, sem framundan er
— baráttuna um meirihlutann
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Aldrei fyrr í sögu Hafnar-
fjarðar hefir verið meiri þörf á
því, að stjórnhæfir menn skip-
uðu stjórn bæjarins og að
framkvæmdarvaldið verði falið
mönnum, sem í framkvæmdun
um sýna kunnáttu, hagleik, hag
sýni og stjórnsemi. Því er það,
að í bæjarstjórnarkosningunum
27. jan. n.k. munu Hafnfirðing-
ar fylkja sjer um B-listann —
lista Sjálfstæðismanna.
stjérnarfar í Japan
London í gærkvöldi.
í FYRRADAG kom fram
mikil gagnrýni á Japansstjórn
í rússnesku blaði. Blað þetta er
,’Propagandist“, málgagn aðal-
nefndar kommúnistaflokksins
rússneska, sem segir, að ástand
það, sem nú ríki í Japan, hljóti
að vera öllum „frelsiselskandi
þjóðum áhyggjuefni, og sjer-
staklega þó þjóðum þeim, sem
byggja lönd, sem Japanar ógn-
uðu með ágengni og yfirdrotn-
unarstefnu“.
Blaðið segir, að völdin í Jap-
an sjeu raunverulega í hönd-
um þeirra sömu, sem höfðu þau
fyrir uppgjöfina, og komi þetta
í veg fyrir, að lýðræði verði
komið á í landinu. Segir blaðið
að stjórnin gegni engu kröfum
„lýðræðisflokka“, heldur hafi
herlögreglu til þess að vernda
hið gamla stjórnskipulag. Ekki
segir blaðið, að stjórnin láti
undir höfuð leggjast að halda
hlífiskildi yfir stríðsglæpa-
mönnum, og valdi þetta alt ótta
og kvíða meðal lýðræðisþjóða,
sjerstaklega þar sem seint
gangi að afvopna japanska her
inn. Ekki minnist blaðið á her-
námsstjórnina í Japan, fremur
en hún sje ekki til. — Reuter.
Ármann gengst
fyrir glímunám-
skeiði
UNDANFARIN ár hefir
Glímufjelagið Ármann staðið
j fyrir námskeiðum í íslenskri
glímu fyrir byrjendur. Hafa þau
gefist vel og orðið til þess að
1 fleiri Reykvíkingar- hafa farið
að æfa glímu en ella. Fjelagið
hefir nú ákwðið að efna til eins
námskeiðs í vetur. Hefst það
n.k. laugardag í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar við Lind-
argötu.
i Námskeið þetta er sjerstak-
lega ætlað unglingum á aldr-
inum frá 13 til 18 ára. Kenn-
arar verða þeir Kjartan Berg-
mann Guðjónsson og Ingólfur
Jónsson.