Morgunblaðið - 01.09.1956, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 1. september 1956
Brýn þorf að heilsuhœli Náttúrulœkn•
ingaíélagsins verði fullgert sem fyrst
Úr ræðu Valtýs Stefánssonar
IGÆR boðaði stjórn og framkvremdarstjórn Náttúrlækningafé-
lags Íslands blaðamenn á fund sinn og tjáði þeim að félagið
hyggðist hefja skuldabréfaútboð til þess að safna lánsfé til þess að
fullgera heilsuliæli félagsins í Hveragerði. Er ýtarlegar sagt frá
því á öðrum stað hér í blaðinu í dag, en mikil og brýn þörf er á að
félagið geti hið fyrsta fullgcrt heilsuliælið og veiít þcim sem þangað
sækja hina beztu aðbúð, böð o.fl.
Við þetta tækifæri hélt Valtýr
Stefánsson ritstjóri stutta ræðu
og skýrði frá störfum heilsuhæl-
isins í Hveragerði, en hann hefur
dvalizt þar nokkra síðastliðna
mánuði.
Gerði hann sérstaklega að um-
ræðuefni hið mikla og framúr-
skarandi ötula starf Jónasar
Kristjánssonar læknis við að
stuðla að aukinni heilsurækt og
heilbrigðu líferni íslenzku þjóð-
arinnar.
Fórust honum orð eitthvað á
þessa lund:
Með stakri frónfýsi og mikilli
rausn hefur Jónas Kirstjánsson
komið upp þessu heilsuhæli á
fyrra ári, er rúmar 28 vistmenn,
fyrir allt að því 1,6 millj. króna.
En nú vill svo til, að Jónas
Kristjánsson og styrktarmenn
hans eru komnir í fjárþrot í bili.
Þar eð ég hef kynnzt því, hve
brýn þörf er á slíku hæli, get ég
elcki orða bundizt og því hef ég
átt tal við framkvæmdastjóra
hælisins, sem hingað er kominn
með mér til þess að við í samein-
ingu getum tjáð blaðamönnum,
að allir þeir sem geta lagt eitl-
hvert fé af mörkum, að láni, geta
nú unnið góðverk og hjálpað þess
um heilsufrömuði um fé til að
reisa þær viðbætur sem Náttúru-
lækningaíélagið þarf á að halda
þar austur frá.
Jónas Kristjánsson læknir ann
ast einn læknisstörf á Náttúru-
lækningahælinu nú. Hann er nú
86 ára, frár á fæti sem ungur,
sístarfandi að annast um sjúkl-
ingana, unga og gamla. Ævistarf
Jónasar er orðið svo mikið og
merkilegt, að ég tel það mjög
illa farið ef ekki fæst einhver
maður til að skrá meginið af
þeirri lífsreynslu sem hann hefur
aflað sér á langri ævi.
Um það bil sem Jónas Krist-
Skýiur skökku við í
frásögn Tímans
í SAMBANDI við ummæli Tím-
ans varðandi atvinnuástandið á
Bíldudal, þar sem blaðið kvartar
yfir því, að aðeins fjórir Bílddæl-
ingar hafi fengið skipsrúm á
báti, sem leigður var úr kaup-
túninu til Ólafsvíkur, hefur Mbl.
snúið sér til Einars Bergmanns
í Ólafsvík, sem tók umræddan
bát á leigu.
Einar skýrði frá því að bátur-
inn hafi verið tekinn til leigu til
tveggja mánaða, til 20. septem-
ber. Hann hafi samt orðið að
rifta samningnum fyrr og hætta
útgerð bátsins, vegna þess, að
hann haíi ekki fengið nægan
mannskap á hann. Á Bíldudal
fengust aðeins fjórir menn á bát-
inn.
Kirkjubyyylno tíháða
fríkirkjusafnaðarins
SÖKKLAR undir kjallara voru
steyptir i fyrrakvöld í sjálfboða-
vinnu og mótauppslætti er haldið
áfram af kappi. En til þess að
uppslátturinn þurfi ekki að stöðv
ast um sinn í næstu viku er nauð-
synlegt að sjálfboðaliðar fjöl-
menni til starfa upp úr hádeginu
i dag og aftur á mánudagskvöld-
ið eftir kl. 7. í dag þarf að slá frá
sökklum, Ijúka við að ganga frá
frárennslispípum undir kjallara-
gólfi, leiða inn vatnið, sem er
rétt við kirkjuvegginn, og fylla
upp undir kjallaragólfið. Ef þetta
tekst i dag er hægt að steypa
kjallaragólfið á mánudagskvöldið
ásamt sökklunum undir kirkju-
skipinu og þá þarf engin töf að
verða á mótauppslætti í næstu
viku. Safnaðarfólk er því sér-
staklega beðið að fjölmenna eftir
hádegi í dag og aftur á mánu-
dagskvöldið.
Siinykenndranámskeiíi
SÖNGKENNSLUNÁMSKEIÐIÐ
á vegum Söngkennarafélags fs-
lands og fræðslumálastjórnar,
sem áður var auglýst, verður sett
í dag kl. 4 í Gagnfræðaskólanum
við Vonarstræti.
4*
Nasser, Herodot og
Skúli Þórðarson
IRÆÐU þeirri, sem Nasser hélt
í Alexandríu þegar hann til-
kynnti töku Súez-skurðarins,
mælti hann orð, sem oft er vitn-
að til:
„Við eigum Súez-skurðinn.
Hann var byggður af Egyptum og
eltt hnndrað og tuttugu þúsundir
Egypta létu lífið við það verk.
Við munum nota ágóða Súez-
félagsins til að byggja Assuan-
stífluna. Hún verður byggð á höf-
uðskeljum hinna 120.000 manna."
Þessi tala Nassers hefur valdið
mildum heilabrotum. Að vísu er
vitað að ýmsir létu lífið meðan
á byggingu skurðarins stóð, en
ílestum nema þá Skúla Þórðar-
syni hefur þótt talan ótrúlega
há. Ýmsir telja að NSsser hafi
skrökvað dánartölunni upp í æs-
ingaskyni.
En Nasser hefur ekki skrökv-
að tölunni heldur haft hana eftir
ágætri heimild eins og eftirfar-
andi tilvitnun sýnir:
„Það er fjóra daga verið að
jánsson varð stúdent bauð hinn
víðfrægi læknir og læknaskóla-
kennari Guðmundur Magnússon
Jónasi að búa á heimili sínu og
varð hann þá handgenginn þess-
um afbragðs kennara og vísinda-
manni. En Jónas var ekki langt
kominn út á læknanámsbrautina,
er hann fór að gruna að eitthvað
kynni að vera bogið við rekstur
lækninganna. En þó hann væri
orðinn fullnuma læknir og fær í
flestan sjó í starfsgrein sinni vann
hann aldrei með neinum bægsla-
gangi að lækningum sínum, allt
stærilæti var honum andstætt,
hin rólega yfirvegun var honum
að skapi. Er hann ungur sótti
um íslenzka læknishérað var hon
um veitt hið erfiða Fljótsdalshér-
að' og var hann þar eystra í 10
ár. Ávann hann sér þar mikið
JONAS KRÍSTJÁNSSON
traust héraðsbúa. Á fyrstu lækn-
isárum hans reistu héraðsbúar
hans fyrir áeggjun hans sjúkra-
hús að Brekku í Fljótsdal. Á
fyrstu héraðslæknisárum hans
nýkominn frá Háskólanum í Höfn
byrjaði hann að hafa afskipti af
mataræði héraðsbúa með því ör-
yggi og þeirri festu að þeir hurfu
frá hvíta hveitinu í lcökugerð og
öðru.
Á fyrstu læknisárum Jónasar
snéri hann sér aðallega að skurð-
læknisaðgerðum, sem hann reynd
ist fljótt snillingur í og aflaði
sér óskoraðs trausts sem læknir í
þeim efnum. En hugkvæmur á-
hugamaður eins og Jónas Krist-
jánsson gat sjaldan verið lengi
um kyrrt. Hann þurfti sifellt að
leita fróðleiks í önnur lönd og
þar kom að hann komst í sam-
band við forystumenn þeirra sem
leita að bótum manna meina
í hollu lífi og mataræði.
Fyrir löngu heilluðu náttúru-
lækninga hugsjónirnar Jónas og
sannfærðu hann um að hér þuríti
ef vel væri að koma á samtökum
til varanlegra heilsúbóta fyrir
alla þjóðina, með þeim árangri
að hann er nú 86 ára gamall
svo andlega og líkamlega heil-
brigður, sem ungur væri.
Meisfaramót Reykiavíkur:
r
Eftir aðalhlutann hefur 1R
77 stig, KR 64, Ármann 36
SÍÐARI aðalhluti Meistaramóts Reykjavíkur í frjálsum íþrótt-
um gaf hinum f yrri eftir bæði hvað árangur sneríir og
skemmtilega keppni, ef undan er skilið sentimetrastríð í sleggju-
kasti, kringlukasti og þrístökki. Þar urðu úrslitin óvænt, en að
öðru leyti fór allt eins og vio mátti búast. Stigin standa nú þannig
að ÍR hefur 77 stig, KR 64 st. og Ármann 36 st.
fara eftir skurðinum, svo langur
er hann, —--------vatnið fellur
úr Níl í skurðinn og. ekki langt
frá bænum Bubastis, en við ara-
bíska bæinn Patum liggur hann
út í egypzka hafið. Fyrst grófu
menn sundur hið egypzka slétt-
lendi, sem næst er Arabíu.
Lengra inn í landi kemur að fjall-
lendi, sem nær allt til Memphis.
Eitt hundrað og tuttugu þúsund
Egyptar, sem grófu þarna undir
stjórn faraósins Nekos, létu lífið.
Nekos lét verkið falla niður með
þvl að guðleg spásögn birti hon-
um, að hann væri að vinna fyrir
ósiðaðar þjóðir. En Egyptar kalla
alla þá ósiðaða, sem ekki tala
sömu tungu og þeir.“ Þannig
skrifar Grikkinn Herodot í 2.
bók, 149. kafla ritsins „Níu bæk-
ur sögunnar.“
Þess ber svo að geta að Nekos
sá, sem Herodot nefnir, ríkti yíir
Egyptum kringum árið 700 fyrir
Krists burð
Á ÚRSLIT ÓVISS
Aðalhluta mótsins er þá lokið,
en eftir er að keppa í þrautunum,
boðhlaupum, hindrunarhlaupi og
10 km hlaupi. Það er þvi enn ó-
víst hvert félaganna hreppir tit-
ilinn „bezta frjálsíþróttafélag
Reykjavíkur 1956“.
★ TVÖ ÞJÓFSTÖRT
Veðrið var óhagstæðara til
keppni síðari daginn en þann
fyrri — enda árangur eftir því.
10 m hlaupið og 110 m grinda-
hlaupið fór fram eftir brautinni
öfugri, þ.e.a.s. byrjað var þar
sem venjulega er endað. — Mun
þetta hafa verið gert til þess að
hlaupararnir fengju ekki mót-
vind, en vindur var 2—3 vindstig.
Það leiðindaatvik kom fyrir í
100 m hlaupinu að Hilmar Þor-
björnss. „stal“ tvívegis í úrslita-
hlaupinu. Vakti þetta nokkrar j
deilur meðal starfsmanna. Slík ’
atvik eru alltaf hvimleið, en það
getur jafnvel hent beztu hlaup-
ara að þjóístarta ekki síður en
aðra.
★ „STÁLU“ TITLUNUM
Friðrik Guðmundsson var
óvæntasti sigurvegari þetta
kvöld. Iiann „stal“ meistaratitl-
inum af Hallgrími í kringlukast-
inu og skaut Þórði Sigurðssyni
aftur fyrir sig í sleggjukastinu.
Líkt má segja um Jón Pétursson
í þristökkinu, sem óvænt hlaut
titilinn í fjarveru Vilhjálms Ein-
arssonar.
★ ÚRSLIT
100 m hlaup: R.víkurmeistari:
Daniel Halldórsson ÍR 10,9; 2.
Einar Frímannsson KR 11,1; 3.
Sig. Gislason KR 11,1. — Hilmar
Þorbjörnsson var dæmdur úr
hljóp með og fékk tímann 10,8
sek.
400 m hlaup: R.víkurmeistari:
leik vegna tveggja þjófstarta, en
Þórir Þorsteinsson Á 49,7; 2.
Daníel Halldórsson ÍR 51,2; 3.
Sig. Gísláson KR 52,7; 4. Sæmund
ur Pálsson Á 55,6.
1500 m hlaup: R.meistari: Svav
ar Markússon KR 3:59,6; 2. Sig.
Guðnason ÍR 4:03,0; 3. Kristleif-
ur Guðbjörnsson KR 4:06,0; 4.
Kristján Jóhannsson ÍR 4:12,8
110 m gr.hlaup: R.meistari:
Pétur Rögnvaldsson KR 15.4: 2.
Björgvin Hólm ÍR 16,1; 3 Daníel
Halldórsson ÍR 18,6; 4. Einar Frí-
mannsson KR 16,7.
Þristökk: R.meistari: Jón Pét-
ursson KR 13,36; 2. Helgi Björns-
son ÍR 13,32; 3. Björgvin Hólm
ÍR 13,02; 4. Unnar Jónsson ÍR
12,50.
Stangarstökk: R.meistari: Val-
björn Þorláksson ÍR 4,10; 2 Heið-
ar Georgsson ÍR 4,00; 3. Brynjar
Jensson Á 3,30; 4. Einar Frí-
mannsson KR 3,30.
Kringlukast: R.meistari: Frið-
rik Guðmundsson KR 47,46; 2.
Hallgrímur Jónsson Á 47,41; 3.
Þorsteinn Löwe KR 45,73; 4. Þor-
steinn Alfreðsson Á 44,20.
Sleggjukast: R.meistari: Frið-
rik Guðmundsson KR 48,90; 2.
Þórður Sigurðsson KR 48,77; 3.
Gunnar Huseby KR 39,64; 4.
Eiður Gunnarsson Á 37,29
Knaffspyrna
UM næstu helgi hefjast haust-
mótin í knattspyrnu. Fara þá
fram kappleikir í öllum flokkum
á hinum ýmsu völlum bæjarins.
Aðalleikur helgarinnar verður
í haustmóti meistaraflokks, og
eigast við KR og Fram. Verður
leikurinn á Melavellinum og
hefst kl. 14.00. Dómari verður
Þorlákur Þórðarson. Bæði liðin
verða að halda sér í góðri æfingu
fyrir síðustu leiki íslandsmóts-
ins, sem býða heimkomu Vais-
liðsins.
í 1. flokki leika KR og Fram
einnig, hefst sá leikur á laugar-
dag á Melavellinum kl. 16.00. Þá
leika KR og Valur í 1. flokki
(rniðsumarsmót) á mánudag kl.
19.00 á Meiavellinum.
Þriðji leikurinn á milli KR og
Fram um næstu helgi verður í 2.
flokki, á Háskólavellinum, á
laugardag og hefst hann kl.
15.15. Verður það fyrsti leikur
Fram-liðsins eftir liina sigursælu
för þess til Sjálands á dögunum.
Þá hefst haustmót 3. flokks á
sunnudagsmorguninn á Háskóla-
vellinum. Leika fyrst Fram og
Víkingur, kl. 9,30, og strax á eftir
KR og Valur. Þau léku annars
Haustmót 4. flokks er þegar
hafið. Á sunnudaginn var sigraði
Þróttur KR með 3:0 og Fram
sigraði Víking með 4:0. Mótið fer
fram á Fram-vellinum ok kl. 9,30
á sunnudag leika Valur og Þrótt-
ur, og strax á eftir KR og Fram.
Úrslifin verða í dag
MEISTARAKEPPNI karla í
Golfklúbb Reykjavíkur hófst 25.
ágúst og lýkur henni í dag. —
Ætlunin var að meistarakeppr.i
lcvenna byrjaði um leið, en henni
hefur orðið að iresta. Eftirtaldir
kylfingar komust í meistara-
flokk: Benedilct Bjarklind, Einar
Guðnason, Guðlaugur Guðjóns-
son, Ingólfur Isebarn, Jóhann
Eyjólfsson, Ólafur Bjarki Ragn-
arsson, Ólafur Ág. Ólafsson og
Smári Wiium. Þess má geta, að
ýmsir góðkunnir kylfingar komu
því ekki við, að taka þátt í
keppninni, og má þar til nefna
Ewald Berndsen, Þorvald As-
geirsson og Albert Guðmundsson.
1. umferð á Reykjavíkurmeist-
aramótinu fór sem hér segir:
Ólafur Ásg. Ólafsson vann
Ingólf Isebarn.
Smári Wiium vann Benedikt
Bjarklind.
Einar Guðnason vann Guðlaug
Guðjónsson.
Ólafur Bjarki vann Jóhann
Eyjólfsson.
2. umferð:
Ólafur Ág. Ólafsson vann
Smára Wiium.
Ólafur Bjarki vann Einar
Guðnason.
Til úrslita keppa því Ólafur
Ág. Ólafsson og Ólafur Bjarki
Ragnarsson, og hefst keppnin kl.
14 í dag á golfvellinum. Má
búast við því að lceppnin verði
mjög hörð og spennandi, enda
eru þeir félagar meðai beztu
kylfinga landsins. Ólafur * Ág.
Ólafsson varð íslandsmeistari í
golfi í sumar og hafði áður orðið
íslandsmeistari 1954. Ólafur
Bjarki hefur hins vegar orðið
Reykjavíkurmeistari síðustu tvö
árin og varð annar á landsmót-
inu 1953 og 1956, en hlutskarp-
astur utanbæjarmanna á lands-
mótinu á Akureyri í fyrrasumar,
er Hermann Ingimarsson úr
Golfklúbb Akureyrar varð Is-
landsmeistari.