Morgunblaðið - 17.12.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.12.1957, Blaðsíða 20
ir -ér '&' 'k DAGAR TIL JÓLA fUtrgwnWaMtii 7 & 'k 287. tbl. — Þriðjudagur 17. desember 1957. DAGAR TIL JÓLA Fjármálastjórn Eysteíns hefur leitt vandræ&i yfir þjóðina Ingólfur Jónsson skoraði á hann að segja af sér VXÐ 2. umræðu fjárlaga flutti Ingólfur Jónsson rökfasta og glögga ræðu um f jármálin og atvinnumálin. Brá þingmaðurinn upp skýrum myndum af þeirri óheiilaþróun, sem núverandi stjórnarstefna hefur leitt af sér. Ingólfur Jónsson deildi fast á fjármálaráðherra fyrir ráðleysi og undanslátt. Leiddi hann rök að því að þjóðarnauðsyn væri á því að breyta um stefnu og skoraði á fjármálaráðherra að segja af sér. Sem dæmi um fjármálaöngþveitið benti ræðumaður á, að fjár- lög fyrir árið 1956, síðustu fjárlög fyrrv. stjórnar, hefðu verið að upphæð 661 millj. kr. en fjárlög ársins 1957, fjárlög vinstri stjórn- arinnar, 811,6 millj. kr. Hækkunin næmi 151 millj. kr. Benti ræðumaður á, að fjárlög fyrir árið 1958 myndu sennilega komast yfir 900 millj. kr. Nýjar skattahækkanir Skatthækkun við síðustu ára- mót nam 300 millj. kr. sagði Ingólfur Jónsson. Mætti reikna með- nýjum sköttum í febrúar n.k. eftir bæjarstjórnarkosning- arnar, vegna fjárlaga og þarfa út flutningssjóðs, sem nemur hundr uðum milljóna króna. Undir hinni hvössu og rök- föstu ádeilu Ingólfs Jónssonar varð fjármálaráðherra miður sín og gat ekki borið af sér þær þungu sakir, sem felast í ádeilu þingmannsins. f stað þess reynir „Tíminn“ s.l. sunnudag að rang- færa orð Ingólfs um lánamálin og staðhæfir að hann hafi kallað Sogslánið „eyðslulán". Kæðan var tekin á segluband eins og allar þingræður og er kaflinn sem Tím inn reynir að snúa út úr orðrétt- ur á þessa leið: „Við síðustu áramót tekur hæstvirt ríkisstjórn fjögra millj. dollara lán í Bandaríkj- unum, sem er matarlán, eyðslu lán. Þessu fé var ekki varið til framkvæmda, sem skyldu auka útflutningsframleiðsl- uná. Framkvæmda, sem síðar gætu borgað þessi lán. Nei, þessu fé var varið til veniu- legs innflutnings, til þess að draga úr gjaldeyrishallanum“. Tíminn hefur mikla fyrirlitn- ingu á lesendum sínum þegar hann snýr staðreyndunum þannig við, til þess að sverta pólitískan andstæðing.En ekki verður mál- staður Eysteins Jónssonar betri fyrir það. Fjármálastjórn hans hefur þegar leitt vandræði yfir þjóðina. Togari tekinn SEYÐISFIRÐI, 16 des.: — Varð- skipið Þór kom hingað í dag með stóran brezkan togara, sem varð- skipsmenn ákærðu fyrir að hafa verið að veiðum á fiskfriðunarsvæð inu. Hér er um að ræða Grimsbý- togarann Churchill. Fyrir rétti, en réttarhöld hóf- ust í dag, var ákæran lögð fram. Samkvæmt henni hafði togarinn verið 0,6 sjóm. fyrir innar. „línu", er varðskipið kom að honum út af Glettinganesi. Skipstjórinn, W. A. Hardie, mót- mælti ekki staðarákvörðunum varð skipsmanna á Þór og viðurkenndi að þær væru réttar. Dómur er væntanlegur, í máli skipstjórans, á morgun. Togarinn er með um 500 kitta afla, eða því sem næst fjórðung hleðslu. — Benedikt. Þrem mönnum bjargað úr eyju í foráttuveðri Stjórnarkjör í Sjómanna- félagi Hafnarfjarðar STJÓRNARKJÖR stendur nú yfir í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar. Tveir listar eru í kjöri: B-listi, sem skipaður er lýðræðissinnum og studdur er af andstæðingum kommúnista og A-listi, sem kommún- istar standa að og skipaður er þeirra fylgifiskum. Kosningin fer fram í skrifstofu i Sigurður Pétursson. — Trúnaðar- félagsins, Vesturgötu 10 og er mannaráð: Þorvaldur Asmunds- kosið daglega frá kl. 5 til 6 síðd. ®°n- Þórir Sjgurjónsson Ágúst O. . Jonsson, Sofus Halfdanarson, B.-hsti lyðræðissmna er þannig, Ingvar Bjarnason og Baldur Eð- skipaður: Einar Jónsson, form., ! valdsson. Kristján Kristjánsson, varaform., | Þess er fastlega vænzt, að allir Halldór Hailgrímsson, ritari, Guð- andstæðingar kommúnista í félag- jón Frímannsson, féhirðir, Krist- j inu, vinni ötullega að sigri B.-list- ján Sigurðsson, varaféhirðir. — ans og geri sigur hans sem glæsi- Varamenn: Hannes Guðmundsson, I legastan. Orðsending frá Sjálfstæðisflokknum SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur opnað skrifstofu, til undirbúnings bæjarstjórnarkosninganna, í Vonarstræti 4 II hæð. Skrifstofan veitir upplýsingar um kjörskrár og aðstoðar við kjörskrárkærur. Þar eru einnig veittar upplýsingar varðandi utankjörstaðaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan verður fyrst um sinn opin frá kl. 9—6 daglega. Símar skrifstofunnar era: 24753 og 17100. m m Vegna veðurs var ekki kveikt á Óslóar-trénu á Austurvelli, með þeirri viðhöfn, sem fyrirliuguð hafði verið. — En kveikt var þó á þ« á tilsettum tíma. — Frú Magnhild Orgland, sem var klædd norskum þjóðbúningi, kveikti á trénu kl. 4 á sunnudag- inn. STYKKISHÓLMI, 16. des. BÓNDINN á Straumi í Skóga- strandarhreppi, Sverrir Guðmunds son og synir hans tveir, voru hætt komnir á laugardaginn, er þeir urðu veðurtepptir í lítilli eyju, í af- takaveðri og stórhríð. Sverrir bóndi hafði farið út í eyjuna til að huga að fé sem hann á þar. Er eyjan nokkuð undan landi. Synir hans eru báðir um tvítugt. Þeir voru rétt nýkomnir út í eyjuna, er skyndilega brast á þvílíkt ofsaveður að fátítt má telj- ast. Ekkert viðlit var fyrir menn- ina að reyna að komast frá eyjunni á bátnum, því hann er lítill. Frá Straumi var símað hingað til Stykkishólms og beðið um hjálp. Það var ekki árennilegt að leggja út á sjóinn í því foráttu- veðri sem hér var. En Eggeit Björnsson, formaður á 7 tonna bát sem annast að nokkru flutn- ing hér um Breiðafjörðinn, brá skjótt við ásamt tveim mönnum öðrum. Út í þessa eyju er, undir venju- legum kringumstæðum, um 45 mín. til 1 klst. sigling. Þangað náði Eggert um síðir á bátnum, sem er gott sjóskip og gangmikið. Til hlés við eyjuna renndi Eggert skipinu að strönd hennar. Þar stukku þeir út í bátinn, Sverrir og synir hans, en Eggert formaður flutti þá síð an í land, skammt frá Straumi. Hér í Stykkishólmi er almennt talið, að óvíst hefði verið að menn irnir í eyjunni hefðu allir komizt heilu og höldnu úr þessum háska, ef þeir hefðu orðið að vera um kyrrt næturlangt, því hríðarveður var á, en Eggert formaður lýsti þessu veðri með því allra versta Sjómannaráðsfefnu-nefnd situr á rökstólum hér HÉR í Reykjavík situr nú á rök- stólum nefnd manna sem kjörin var á sjómannaráðstefnu Alþýðu sambands íslands, til þess að sam ræma kröfur bátasjómanna. Sem kunnugt er hafa félög þeirra um land allt sagt upp kjarasamning- um sínum við útgerðarmenn, og einnig fiskverðssamningi. Ráðstefna þessi hófst í lok síð- ustu viku. Tóku þátt í henni full- trúar bátasjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði af Suðurnesjum, Vestmannaeyjum, Akranesi og Norðuriandi. Fulltrúi bátasjó- manna á Vestfjörðunum gat ekld tekið þátt í ráðstefnunni, því með svo skömmum fyrirvara hafði verið til hennar boðað, og ófært flugveður þar þar til í gærdag að hann komst hingað. ' í þessa nefnd ráðstefnunnar voru kjörnir Hilmar Jónsson frá Sjómannafél. Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Sigurður Stefáns- son frá Vestmannaeyjum, Krist- ján Jensson frá Breiðafjarðar- félögum, Sigríkur Sigríksson frá Akranesi, Margeir Sigurðsson fyr ir Suðurnesjasjómenn og frá stjórn ASÍ er Snorri Jónsson. Þessi nefnd manna átti fund með Lúðvík Jósefssyni ráðherra á sunnudaginn. Hafði nefndin í gær gert stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna grein fyrir sam ræmdum kröfum varðandi kjara- samninga sjómanna við Faxaflóa. í dag er sennilegt talið að nefnd- armenn muni ræða fiskverðsamn ingana við L.Í.Ú. — Störf nefnd- arinnar er miðuð við að fram- haldsráðstefna komi saman í þess ari viku og liggi þá fyrir sam- ræmdar kröfur bátasjómanna um kaup og kjör og fiskverðs- samninga fyrir komandi vertíð. sem hann hefði verið á sjó í, er heim kom úr þessum björgunar- leiðangri ásamt félögum sínum tveim. — Árni. Rafmagnslaust varð í gærdag SJÁVARSELTA var orsök raf- magnstruflananna sem urðu í gær hér í Reykjavík og víðar a orku- veitusvæði Sogsvirkjunarinnar. — Var bærinn rafmagnslaus í 2 klukkustundii'. Kennsla féll niður í ýmsum skólum bæjarins af þess- um sökum síðdegis . gær. Straum- urinn rofnaði um kl. 1,30 síðdegis. 1 suð-vestan aftaka veðri sem var á sunnudaginn, barst sjávar- seltan allt austur að orkuverunum við Sog, en sjávarselta hefur iðu- lega valdið skammhlaupi í há- spennukerfi orkuveranna og svo varð einnig í gær. Einnig varð skammhlaup inni í Elliðaárstöð, þar sem háspennuleiðslurnar að austan eru tengdar í háspennu- vii'ki. Voru sendir þangað slökkvi liðsbílar með háþrýsti-dælur til þess að þvo seltuna af háspennu- virkinu. Kveikii í — var að leiia að kerti SLÖKKVILIÐIÐ fór í gær á þrem bílum, inn í Herskálabúðir, því þaðan hafði verið kaliað eftir lið- inu. Eldur var þar í litlu íbúðar- húsi, sem skjótt var kæfður og urðu skemmdir ekki verulegar. Þetta var er bærinn var raf- magnslaus. Krakki var með eld- spýtur að leita að kerti, í skáp í eldhúsi. Komst eldur frá spýtunni í skápinn og tók brátt að loga. Sem fyrr segir urðu skemmdir ekki miklar, en eldurinn hafði flögrað um skápinn og eldhúsloft- ið. Þetta var við Suðurlandsbr. 120 Telp an litla tapaði barnalífeyri móður sinnar KLUKKAN laust fyrir 8,30 í gærkvöldi kom níu ára telpa inn í lögregluvarðstofuna. — Hún hafði týnt peningunum hennar mömmu og gat ekki fundið þá. Hún var þú búin að leita frá því klukkan að ganga 2, en ár- angurslaust. Hið týnda fé nemur kr. 650.00. Sorgarsaga litlu telpunnar er á þessa leið: Móðir hennar hafði sent hana til þess að sækja fyrir sig barnalífeyri í skrifstofur Al- mannatrygginga, sem eru á horni Snorrabrautar og Laugavegs. Þangað hafði hún komið klukk- an rúmlega 1 í gær. — Þar voru henni greiddar kr. 685.00. — Hún tók fyrst 35 kr. 1 seðlum og stakk þeim í úlpuvasann sinn og síðan í þann sama vasa sex hundrað krónu seðlum og einum 50 króna seðli. — Hugðist hún síðan hraða sér heim með peningana. Ætlaði hún með strætisvagni sem stanz- ar á Snorrabrautinni, kippkorn frá skrifstofum Almannatrygg- inganna. Þegar hún kom á bið- stöðina, varð hún þess vör, að peningarnir, allir stóru seðlarnir, voru horfnir úr úlpuvasanum hennar. Hófst þá taugastríð telp- unnar, sem lyktaði með algjör- um ósigri hennar. Þrátt fyrir daglanga leit langt fram í myrk- ur allt í kring, tókst henni ekki að finna hina týndu peninga. Barnið var yfirkomið af harmi yfir óhappi sínu, er á lögreglu- stöðina kom. Lögreglumaður, sem fylgdi telpunni heim, sagði er hann kom til baka. Á heimilinu eru sex börn og móðirin með barni. — Hafi einhver fundið peninga telpunnar, þá er ég sannfærður um að hann getur varla haft meiri þörf fyrir þá en móðir telpunnar. Er finnandinn beðinn að gefa sig fram á lögreglustöðinni. „25 krómi veltaif „25 KRÓNU VELTAN“ er í fullum gangi. Sjálfstæðisfólk! Mætið á skrif- stofu Fjáröflunarnefndarinnar í Sjálfstæðishúsinu og takið þátt í veltunni. Þið, sem skorað hefur verið á, vinsamlegast gerið skil hið allra fyrsta. Skrifstofan er opin frá kL 9—5. FJÁRÖFLUNARNEFND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.