Morgunblaðið - 17.02.1959, Qupperneq 12
12
MORCVISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. febr. 1959
Viðskiptafræðingur
óskar eftir atvinnu
Tilboð merkt: „4777“ sendist afgr. Mbl. fyrir 20. febr.
77/ sölu
Til sölu er timburhús á hornlóð við Bræðraborgarstíg.
Húsið er hæð, kjallari og ris. Á hæðinni er 3 herbergi og
eldhús í risi 3 herbergi og bað, en í kjallara geymslur,
þvottahús o.fl. — Hagstætt verð.
Upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÖNSSONAR.
Austurstræti 9 — Sími 14400.
Viðskiptaskráin 1959
Er nú í undirbúningi með ýmsum breytingum og
nýjungum.
Fyrirtæki og einstaklingar,
sem reka viðskipti í einhverri mynd, eru beðin að
láta vita, séu þau ekki þegar skráð í bókinni.
Félög og stofnanir,
sem ekki eru þegar skráð, eru einnig beðin að gefa
sig fram og láta í té upplýsingar um stjóm, tilgang
o.fl.
Enginn, sem vill láta sín getið í viðskiptalífi
landsins, má láta sig vanta í Viðskipta-
skrána.
Allar upplýsngar e(ru gefnar í síma 17016.
Viðskiptaskráin
Símar 17016 og 11174 — Tjarnargötu 4.
Jersey
tvíprjónað, hentugt
íJakkakjóla og
D r a g ti r
6 tízkulitir
MARKABHRINl
Hafnarstræti 11.
n
Sigurður Egilsson, Sveinsstöðum:
v~
Fjandvinir" frelsisins
ÞAÐ mun almenn skoðun í
Skagafirði, hjá þeim er til þekkja,
að Gísli Magnússon bóndi í Ey-
hildarholti sé maður greindur
vel og pennafær í bezta lagi. Þá
er hann og skólagenginn. Ekki má
þó skilja þetta þannig, að hann
sé óskeikull fremur en aðrir
dauðlegir menn. Nokkrar blaða-
greinar hafa birzt eftir hann á
undanförnum árum,. margar vel
skrifaðar og hafa því borið höf-
undinum gott vitni. Hinu hefur
þó brugðið fyrir, að málflutn-
ingur hans hafi verið einhliða og
rökin þá verið látin víkja fyrir
stórum orðum og Ijótum.
Það virðist héraðssiður í Skaga-
firði, að svara ekki blaðaskrifum
Gisla Magnússonar, þó oft væru
til þess nægar ástæður. Ekki veit
ég, hvort það stafar af ótta við
pennahæfni hans, eða eitthvað
annað liggur þar til grundvallar.
í „Tímanum“ 17. des. sl. skrif-
ar Gísli Magnússon grein undir
fyrirsögninni „Sælir eru einfald-
ir“. Grein þessi, sem hér verður
gerð að umræðuefni, virðist vera
svar til Árna Guðmundssonar á
Sauðárkróki. út af viðtali hans
við blaðamann frá Morgunblað-
inu. Auðsjáanlegt er af grein
Gísla að Árni hefur rætt um
verzlunarmál í Skagafirði. Þetta
var ekki heppilegt, því að Gísla
Magnússyni mun finnast, að bezt
fari á því að hann einn skrifi
um verzlunarmál héraðsins og
aðrir korrii þar sem minnst nærri.
Nú sé ég ekki Morgunblaðið að
jafnaði. (K.S. ekki enn boðizt til
að borga það fyrir mig), en það
gerir ekki til í þessu sambandi,
því að ég tel mig hvorki þurfa að
svara fyrir Morgunblaðið né Árna
Guðmundsson. Hins vegar erum
við Gísli Magnússon báðir félag-
ar í Kaupfélagi Skagfirðinga,
Gísli „einn af húsráðendum —
-----og því mikils háttar". en ég
aðeins réttur og sléttur félags-
maður án nokkurra mannvirð
inga. Gísli Magnússon segir í áð-
urnefndri Tímagrein: „Á. G. tal-
ar um „einokun" Kaupfélagsins
— —“ og síðar: „Annaðhvort
vita þessir vesalingar ekki hvað
einokun er, eða þeir snúa sann-
leikanum í lygi vitandi vits“.
Nokkur von finnst mér, að Gísla
Magnússyni, sem varaformanni
í K.S. renni í skap þegar Kaup-
félag Skagfirðinga er bendlað
við einokun ,enda væri það vissu
lega hörmulegt ef það ætti sér
nokkra stoð í veruleikanum. G.
M. telur sig skilja orðið einokun
betur en aðrir, enda er honum
það hin mesta nauðsyn vegna
'stöðu sinnar hjá K.S. Þó hefur
I G. M. sem og aðrir þurft að sækja
fræðslu um merkingu orðsins til
sögunnar, enda er það auðvelt,
þar sem margt hefur verið um
einokun ritað bæði fyrr og síðar.
En ef það gæti nú verið, að G.
M. væri farinn að ryðga í sögu,
þykir mér rétt að rifja upp fyrir
honum eftirfarandi frásögn úr
Sögu íslendinga eftir Pál Eggert
Ólason þar sem hann lýsir einok
unarverzlun Dana á fslandi í lok
seytjándu aldar. Páll segir svo
orðrétt: „Alkunn er sagan um
Hólmfast Guðmundsson á Brunna
stöðum ,sem seldi lítið eitt af fiski
í Keflavík 1698, en skyldi selja í
Hafnarfirði, og hafði raunar
verzlunin þar ekki viljað við
taka. Hann var hýddur við staur
í viðurvist Múllers amtmanns,
með því að hann hafði eigi upp
í sektir annað en lélegan bát, sem
kaupmaður vildi eigi“. — ■—
Þessi frásögn sýnir glöggt, að að-
aleinkenni einokunarverzlunar
var ein verzlun á hverjum verzl-
unarstað. Við þá verzlun voru
menn skyldugir að skipta, jafnvel
þó sú verzlun vildi ekki taka við
vörum þeirra. Ekki vil ég full-
yrða, að G.M. vilji koma hér á
verzlunareinokun í hinni gömlu
mynd, enda væri þá langt gengið.
En hitt er auðsætt af skrifum
hans og sálufélaga hans í Fram-
sóknarflokknum, að óskadraumur
þeirra er ein verzlun á viðskipta-
svæði Kaupfélags Skagfirðinga.
Ein hjörð, einn hirðir. Það mun
vera takmarkið ,enda væri þá
Gísli Magnússon hirðirinn eða
einhver af hans nótum. Þetta
4ra herb. íbúð
Höfum til sölu mjög glæsilega 4 herb. íbúð í Laugarnes-
hverfi.
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.,
Agnar Gústafsson, hdl., Gísli G. lsleifsson, hdl.,
Björn Pétursson: Fasteignasala.
Björn Pétursson: Fasteignasala.
Austurstræti 14, H. hæð — Símar: 2-28-70 og 1-94-78.
Nýtt símanúemar
1-94-80
Heildverzluvtin Reykjafell
Templarasundi 3 — Sími 1-94-80.
Nýir bílar
Chevrotlet ’59 af dýrustu gerð. Ford ’59 sjádfskiptur
með öllu.
Þessir bílar eru til sölu hjá okkur.
Ýmis skipti möguleg.
Rílamiðslöðin Vagn
Amtmannsstig 2C — Sími 16289 og 23757.
mundi svo G. M. vilja kalla verzl-
unarfrelsi. Bezt «r að víkja að
þessu nokkru nánar. Engum, sem
lesið hefur Tímagrein G. M. getur
komið til hugar, að hann óski eft-
ir annarri félagsverzlun á Sauð-
árkróki en Kaupfélagi Skagfirð-*
inga, svo kaldar kveðjur fær
nýstofnað Verzlunarfélag Skag-
firðinga hjá honum. Vill hann þá
kaupmannaverzlanir á Sauðár-
króki? Ekki er heldur hægt að
hugsa sér það, vegna þess að það
hefur verið föst iðja Tímans und.
anfarin ár og áratugi að rægja
og svívirða kaupmannastéttina,
og verður að gera ráð fyrir að
Gísli fylgi því blaði að málum í
höfuðatriðum, þar til annað sann-
ast. Hvað er þá eftir? Kaupfélag
Skagfirðinga. Þá vita menn það.
En látum það nú vera, þótt G.
M. og sálufélagar hans vilji láta
kaupfélögin annast alla verzlun.
Hitt er mun lakara, að fullgilda
félaga í samvinnufélögunum telja
þeir ekki aðra en þá, sem krjúpa
að fótskör Framsóknar, og finnst
mörgum það kröpp kjör. Á síðast-
liðnu vori reyndu Framsóknar-
menn í Skagafirði með brögðum
og lævísi að koma því í kring, að
engir Sjálfstæðismenn yrðu
kjörnir fulltrúar á aðalfund K.
S. Ekki mun þó K. S. enn sem
komið er hafa grætt neitt á
brölti þessu, og eitthvað má hug-
arfar Gísla Magnússonar mild-
ast, eigi blaðaskrif frá hans hendi
að verða félaginu til framdrátt-
ar. I grein sinni segir hann m.a.
„að kaupfélagið hafi hjálpað
ýmsum til að komast yfir örðug-
asta hjallann —------“. Já rétt
er nú það, kaupfélagið hjálpar
„ýmsum“. Um þetta mætti margt
ræða, en verður ekki gert að
sinni. Þá er Gísli einnig í Tíma-
greininni sæll i sínu hjarta yfir
hinu mikla valdi sem peningarn-
ir geta skapað: „félagið er viða-
mikið og traust fyrirtæki og við
skiptin mikil, enda þorri manna
á félagssvæðinu svo þroskaður
orðinn og sjáandi, að honum er
Ijóst, að saman hlýtur að fara
hagur féiagsins og félagsmanna“.
Svo mörg eru þau orð. Enginn
vafi er á því, að K. S. hefur dreg
ið saman mikið fé, og er það ekki
að lasta út af fyrir sig. En ekki
fæ ég séð, að auðsöfnun félagsins
stafi af öðru en hárri verzlunar-
álagningu. Augljóst er, að á þann
hátt getur félagið sjálft grætt.
En hvað um félagsmennina?
Græða þeir á að kaupa dýrar
vörur? Ég held varla. Jafnvel
grunar mig, að það muni reynast
erfitt fyrir Gísla Magnússon að
gera þá „svo þroskaða og sjá-
andi“, að þeir trúi slíku. Hitt þyk-
ir mér sennilegra, að svo andlega
umkomulausir verði Skagfirðing
ar aldrei.
í grein sinni talar Gísli um
„fjandvini kaupfélaganna". Ég
geri ráð fyrir, að hann eigi þar
við þá samvinnumenn, sem ekki
fá skilið, að kaupfélögin eigi eða
þurfi að vera „bænahús krjúp-
andi þræla“. Og hvað mætti þá
segja um þá menn ,sem vilja af-
nema réttinn til að velja og
hafna? Eru þeir ekki að vega að
sjálfu frelsi landsmanna? Mætti
ekki kalla þá „fjandvini" frelsis-
ins?
Sveinsstöðum í jan. 1959
Sigurður Egilsson.
Brúnt seðlaveski
tapaðist mánudaginn 16. þ. m.
Sennilega við Miklatorg, eða á
hraðferðinni Austurbær—Vest-
urbær. Finnandi vinsamlegast
geri viðvart í síma 10871 eða
14575. — Fundarlaun.
Somkomur
K. F. U. K_Ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Inntaka
nýrra meðlima. Séra Magnús Bun
ólfsson talar. Söngur, kaffi o. £L
Fjölmennið.
Fíladelfía
Almenn biblíulestur kl. 8,30. —
Allir velfeomnir.