Morgunblaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.08.1959, Blaðsíða 19
&?iðjudagur 17. ágúst 195S MORCUNBL 4Ð1Ð 19 — Varðarferð Framh. af bls. 6. um, og ætti Njáls-saga þar mest- an þátt. Síðan mælti hann á þessa leið: Semjum aldrei við ofbeldið. „Einar Ól. Sveinsson segir og, að Njáll hafi lyft merki siðaðs samfélags gagnvart hnefarétti og agaleysL Hann hafi viljað láta lög þing koma í stað vopnaþings og að „kjaminn í hugmyndum Njálu sé trú á manninn". Alls þessa megum við vera í dag minnug. Við eigum aldrei að láta merki siðaðs samfélags falla í barátt- unni gegn hnefarétti og agaleysi og aldrei að glata trúnni á mann- inn og frelsi hans. Við eigum því ekki að láta stundarhagsmuni Og fagurt tal glepja okkur til samstarfs við fulltrúa hnefarétt- arins og kúgara hins frjálsa manns. Það eru til menn, íctn halda t. d., að hægt sé að sveigja kommúnista frá . marxistískum fræðikenningum þeirra til roun- særrar veruleikastefnu, knýja þá frá lýðsxrumi til ábyrgðar og hemja þá til heiðariegs samstarfs innan ríkisstjórna. Ég er van- trúaður á þann boðskap. Ég beld einnig, að sú stjórnarstefna, sem kaupir sér frið fyrir skemmdar- verkaminnum með þvi að af- henda þeim hlutdeild í stjórn landsins, hafi gefizt upp. Sagan sýnir og glögglega, að þeir, som eemja við ofbeldið, tortýmast, Þannig var dómur sögunnar vfir mönnunum, sem fóru til Miir.c- hen, þannig urðu örlög Benesar og tékknesku forystumannanna. I>eir héldu hins vegar velli, sem ekki gáfust upp og ekki slógu af sannfæringu sinni. Þannig var um Churchill og þannig er lim Adenauer í dag. Góðir Sjálfstæðismenn. Á þessum fomhelgu slóðum skul- um við því öðru fremur minnast boðskapar öndvegis rits gullaldarbókmennta okk- ar, að islenzkri þjóð ber, á meðan sær dunar, að vera trú köllun sinni, trúnni á manninn og semja aldrei frið við ofbeld- ið“. Var gerður góður rómur .JS máli Birgis Kjaran. Því næst, tók Þorsteinn Jósepsson enn til máls og flutti mjög fróðlega lýsingu á því, sem fyrir bar. Var svo litast um nokkra stund og bótti mönnum BleiKsárgljúfur ærið hrikalegt. Er það á kafla svo mjótt, að næstum má stíga yfir það. Ofar er það nokkru breið- ara og þar hafa menn stokkið yíir en ekki öllum reitt vel af. Að þessu loknu skipuðu menri sér í brekkuna og ljósmyndarinn Vigfús Sigurgeirsson tók mynd af hópnum. Að þessu öllu loknu var enn haldið af stað inn eítir, og ekki létt fyrr en komið var að efstu fyrirhleðslunni, sem bægir Markarfljóti frá Fljóts- hlíðinni. Er fljótið þar mjög straumþungt og virðist mikið mæða á garðinum, en hann er hið mesta mannvirki. Sást nú vel inn í Þórsmök, en veðrið var ákaflega gott, sólskin og létt- skýjað. Einnig sást Eyjafjalla- jökull allt til efsta tinds, og hvar- vetna blöstu við fjöllin í ótal lit- brigðum. Bergþórshvoll. Nú var snúið við og sama leið farin til baka, en síðan ekið suð- ur á bóginn yfir mikið flatlendi og loks komið að Bergþórsnvoli. Söfnuðust menn saman fyrir aust an bæinn, en Sigurður Líndal, lögfræðingur, rakti aðdragand- ann að Njálsbrennu og gerði grein fyrir staðháttum Að Berg- þórshvoli eru engar fornmir.jar sýnilegar enda talið, að bærinn hafi alltaf verið byggður á sama stað, og einnig líklegt að lands- lag hafi breytzt síðan á söguöld. Er því ekki mikið að sjá á Berg- þórshvoli og útsýni hafði nokk- uð spillzt, með því að ský hafði dregið fyrir og byrgt hina hærri fjallatinda. Oddi á Rangárvöllum. Frá Bergþórshvoli var ekið íak leiðis að Odda. Þar var mztur fram borinn að nýju og settust menn að snæðingi í túninu. Að því loknu var safnazt saman fyr- ir framan bæinn og þar sagði Sigurður Líndal sögu staðarins í stuttu máli. Sá staður er eink- um frægur sem menntasetur, ekki sízt vegna tengsla við suðræna menningu og þar hlaut Snorri Sturluson menntun sína. S&ra Arngrímur Jónsson rakti síðan sögu kirkjunnar á staðnum, en í henni eru margir merkir gripir, sem séra Arngrímur gerði grein fyrir. Síðan var gengið til kirkju. Þar gat að líta á vegg málaða mynd af heilögum Nikulási úr Bár, verndardýrlingi kirkjunnar, en á altari var kross og kalcikur, hvorttveggja úr kaþólskum sið. Að þessu öllu loknu var siigið upp í bílana og haldið heim á leið. r Heimleiðis Sama leið var nú farin og áð- ur. Var höfð nokkur viðstaða að Hellu og síðar við Kamba. Nutu menn á báðum stöðum kvöid- kyrrðarinnar i ríkum mæli, en veður var eins og bezt gerist á íslenzkum síðsumarskvöidum. Til Reykjavíkur var komið kl. 11,30 og við Austurvöll skildust leiðir. Það var mál allra, sem í för- inni voru, að hún hefði tekist með afbrigðum ve'l. Fararstjórn haíði á hendi Þorvaldur Garðar K.rist- jánsson, en honum til aðstoðar voru þeir Sveinn Björnsson, kaupm., Baldur Jónsson, íþ’-ótta- vallarstjóri, Sverrir Jónsson, verziunarmaður, Valdimar Ólafs son og Haraldur Teitsson, skrif- stofustjóri V arðarfélagsins. — Höfðu þessir menn undirbúið ferðina af mikilh kostgæfni. — Greinargóð leiðarlýsing eftir Þorstein Jósepsson hafði verið fjölrituð og fylgdi henni ljós- prentað kort. Þorbjörn Jóhannes- son, kaupm., lét í té nesti, sem var hið ljúffengasta og sköru- lega fram reitt. Framkvæmd ferðarinnar og skipulag allt var einnig með ágætum. Ekki er ann- að vitað en allir hafi komið heil- ir heim, því ekki kunni læknir fararinnar, Úlfar Þórðarson, nein tíðindi að segja úr sínum verka- hring. — Indverjar Framh. af bls. 1. hefði stafað af því að almenn- ingur í héraðinu varð fyrir von- brigðum af stjórn þeirra. Þá staðhæfði hann, að komm- únistastjórnin í Kerala hefði virt dómstóla að vettugi. Hún lét jafnvel sleppa mönnum, sem dómstólarnir höfðu dæmt til dauða og fjölda mála, sem voru tekin aftur af fylkisstjórninni var meiri en í öllum öðrum hér- uðum Indlands til samans. Einnig sagði Pant ráðherra, að kommúnistar hefðu misbeitt lög- reglu héraðsins sjálfum sér og flokki sínum til framdráttar. Þeir notuðu völdin til þess að tryggja sér völd og yfirráð til frambúð- ar í ýmsum stéttarfélögum og til þess að hygla á öllum sviðum að sínum mönnum. Hlýða Moskvu 1 umræðunum í dag var það þó Acharaya Kripalani foringi indverska Jafnaðarmannaflokks- ins, sem gerði hörðustu atlöguna að kommúnistum. Hann sagði m.a. að indverskir kommúnist- ar hlýddu í blindni fyrirskipun- um frá Moskvu, að þeir fyrir- litu stjórnarskrá Indlands og að ætlun þeirra vásri að koma á ein- ræði minnihlutans, eins og tíðkaðist í kommúnistaríkjunum. Nehru forsætisráðherra talaði ekki í dag, en það er búizt við að hann flytji lokaræðuna ann- að kvöld, áður en atkvæða- greiðsla fer fram í málinu. Sú atkvæðagreiðsla verður trausts- yfirlýsing á sambandsstjórnina. Togaraflotiim endnrnýjaSur smám saman FORSÆTISRÁÐHERRA upplýsti á Alþingi fyrir helgina, vegna fyrirspurnar, sem fram hafði verið borin, að ríkisstjórnin hefði á þessu ári ákveðið veitingu 4 innflutnings- og gjaldeyrisleyía fyrir 4 nýjum togurum. Auk þess hefðu væntanlegir eigendur not- ið aðstoðar hins opinbera við samningsumleitanir, og yrðu þeim veitt lán fyrir 50—90% af andvirði togaranna, lögum sam- kvæmt. Gert væri ráð fyrir að satnið yrði um kaup jafnmargra togara næsta ár með það fyrir augum, að þeir kæmu til landsins 1961. Þannig væri unnið að þvi að endurnýja togaraflotann jafnt og þétt, en með því móti einu væri hægt að hagnýta síðustu fran- farir í tæknlegum efnum. Hey f auk í Breiða- mi víkurhreppi STYKKISHÓLMI 17. ágúst — Aftakaveður gekk hér yfir um síðustu helgi. Varð veðrið verst milli kl. 6 og 8 á laugardags- morguninn. Uruð miklir heyskað- að víða í Breiðavíkurhreppi og á einum bæ fuku t. d. 40 hestar af hey. Reynt var að breiða yf- ir sátur, en veðrir reif það allt upp. Heysleða tók upp á einum bæ og fauk hann langar leiðir. — Fréttgritari Leiðrétting í minningargrein hér í blaðinu sl. laugardag um Odd 'St. Tryggva son misritaðist m. a. bæjarnafnið Lónkot, sem er hið rétta, en ekki Lóukot, eins og stóð í greininni. Aðrar villur eru meinlausar. G. G. - fþróttir við að fara utan og þiggja hið ágæta heimboð, og var það mjög harmað af þeim hjónum. Þegar á allt er litið, verður að telja, að ferð þessi hafi tekizt með ágætum vel. Þúsundir franskra manna og kvenna hafa fengið dálitla snertingu af því sem íslenzkt er við það að sjá sýningar flokksins. Flest fólk kannaðist við Island, sumt vissi ekki almennilega hvar það var, en allt var það ákaflega elsku- legt og vingjarnlegt í garð Is- lendinganna og vildi allt fyrir þá gera. Fararstjóri flokksins var Valdi- mar Örnólfsson, íþróttakennari, stjómandi dansanna Helga Þór- arinsdóttir, en stjórnandi glím- unnar var Gunnlaugur J. Briem. Aðrir þátttakendur voru: Þór- unn' Einarsdóttir, Ragnheiður Ingvarsdóttir, Sæunn Magnús- dóttir, Edda Skúladóttir, Iris Ingibergsdóttir, Inga Á. Guð- mundsdóttir, Rúnar Guðmunds- son, Sveinn Guðmundsson, Ólaf- ur Guðlaugsson, Sigmundur Ámundason, Hafsteinn Þorvalds- son, Eysteinn Þorvaldsson og Greipur Sigurðsson. Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi, bar veg og vanda af undirbúningi fararinnar, fyrir hönd Glímufélagsins Ármann, en gat ekki komið því við að fara með flokknum utan, sökum anna. Hann á þar mikla vinnu að baki, og er það von þátttak- enda allra, að góður árangur þessarar farar megi verða hon- um umbun fyrir sín unnu störf. Hið sama má raunar segja um Kjartan Bergmann Guðjónsson, glímukennara Armenninga. Hann hafði í allan vetur æft glímu- mennina undir ferð þessa, en gat svo ekki, á síðustu stundu, farið ferðina, sökum starfa sinna, sem skjalavörður Alþingis. Síldarsöltunin SIGLUFIRÐI, 17. ágúst — Um þessa helgi hefur verið saltað á Norður- og Austurlandi 198,311 tunnur, sem skiptist þannig: Siglufjörður 111,823, Raufarhöfn 29,879, Dalvík 18.638, Grímsey 1461, Hjalteyri 2442, Hrísey 2213, Húsavík 5573, Ólafsfjörður 7089, Reyðarfjörður 542, Sauðárkrók- ur 2068, Seyðisfjörður 1394, Skagaströnd $040, Vopnafjörður 4222. Hæstu söltunarstöðvar lands- ins eru nú: Sunna Siglufirði 9118, Óli Henrikssen 7958, Hafsilfur, Raufarhöfn 6885 tunnur. Bræðslusíld hjá SR Siglufirði 258.590 mál. Raufarhöfn 122.04. Skagaströnd 31.594. Húsavík 2004. Rauðka Siglufirði hefur tekið á móti 49.263 málum og er þá síldarúrgangur ekki talinn með hjá verksmiðjunum. Hér er norð- an bræla, rigning og mikill sjór. Nokkur erlend síldveiðiskip liggja hér inni. — Guðjón. Hesti stolið ij úr girðingu í FYRRI viku var stolið dðkk- jörpum hesti, þar sem hann var geymdur í haga í Helgadal í Mos- fellssveit, og hefur ekkert til hans spurzt síðan. Hefir rann- sóknarlögreglunni nú verið til- kynntur þjófnaður þessi. Fimmtúdaginn eða föstudaginn 6.—7. ágúst varð bóndinn í Helga dal var við tvo menn, sem komu á bil að girðingunni og tóku hest- inn. Eigandinn vissi ekki um stuldinn fyrr en næsta sunnu- dag. Hér er um að ræða 5 vetra gamlan gæðing, taminn og spak- an. Hann er dökkjcirpur, órak- aður nema ennistoppurinn klippt ur og faxið liggur allt öðru megin. Hesturinn hefur mikið tagl, er járnaður en ómarkaður. Þeir, sem knnu að hafa orftið hestsins varir, eru beðnir um að gera rannsóknarlögreglunni eða næsta yfirvaldi aðvart. Þakka hjartanlega vinum og vandamönnum heilla- skeyti, blóm og margskonar góðar gjafir, heimsóknir og hlý handtök á 70 ára afmæli mínu. Ennfremur þakka ég sérstaklega félagssystrum mínum í Kvenfélagi Stokks- eyrar, sem sýndu mér þann hlýhug að gera mig heiðurs- félaga og halda mér óg fjölskyldu minni virðulegt sam- sæti 9. ágúst s.l. og færðu mér góðar gjafir. Viktoría Halldórsdóttir, Sólbakka, Stokkseyri Hugheilar þakkir til allra sem heiðruðu mig með heim- sóknum ,gjöfum og skeytum á sjötíu ára afmæli mínu 14. ágúst s.l. Böðvar Böðvarsson Voðmúlastöðum, Austur-Landeyjum. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu mig með heimsóknum, blómum, gjöfum og heillaskeytum á 80 ára afmæli mínu þann 15. þ.m. Guð blessi ykkur öll. Karólína Káradóttir, Njálsgötu 49. Hjartkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR HILDIBRANDSSON Ásvallagötu 23. lézt að sjúkrahúsi Hvítabandsins, sunnudaginn 16. ágúst Fyrir hönd aðstandenda. Guðmundur Einarsson, Guðrún Davíðsdóttir Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR Brunnstíg 10, andaðist í Landspítalanum, sunnudaginn 16. þ.m. Eiríkur Þorsteinsson, börn og tengdasynir. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNlNA SOFFlA JÓSEPSDÓTTIR Miðtúni 20 lézt í Bæjarspítalanum sumiudaginn 16. ágúst. Jarðarförin ákveðin síðar. Börnin Minn hjartkæri eiginmaður, GUÐMUNIHJR Á. BJARNASON verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 19. ágúst kl. 1,30. \ Ragnheiður Þórólfsdóttir Eiginmaður minn, ODDGEIR HJARTARSON rafvirki, Kirkjuveg 82, Vestmannaeyjum verður jarðsunginn frá Landakirkju, miðvikudag. 19. þ.m. og hefst athöfnin með húskveðju að heimili hins látna kl. 2 e.h. Ásta Ólafsdóttir, börn, tengdaböm, barnabörn og systir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.