Morgunblaðið - 06.11.1964, Page 10
1©
MORGU NBLAÐIÚ
Föstudagur 6. nóv. 1964
Bágt á ég með börnin tvö,
bæði hátt þau gráta.
Ef þau væru orðin sjö,
eitthvað munu þau láta.
ÞANNIG hljóðar gömul vísa,
sem rifjaðist upp þegar við
heimsóttum fjölskyldu suður
í Kópavogi, sem á rúmum
hálftíma jók tölu barnanna úr
4 í 7,'þegar húsfreyjan, Pálína
Einarsdóttir, fæddi þríbura á
Fæðingardeild Landspítalans
fyrir 13 dögum. Nú er hún
komin heim með viðbótina,
sem dafnar vel.
Tvær agnarlitlar hnátur
lágu þar andfar1'* barnarúmi
og sú þ^Sja I vagni við hlið-
ina á þfeim. Þetta eru myjidar
stúlkur, voru 10, 11 og 12
merkur á þyngd, þegar þær
komu í heiminn og tvær
þeirra eineggja tvíburar.
Minni börnin, þau Lísa og
Holger, tveggja, þriggja ára,
Foreldrarhir, Kai Nilsen og PiVína Eimarsdóttir, með nýfæddn þríburana sína og tvö af 4
eldri börnuuum, þuu Jiolger og Lííu.
Fjölskyldan siækkaði um
þrjár hnatur á
sem nú eru orðin stóru
systkinin, eltu mömmu sína
um íbúðina, en elztu börn-
in tvö, 8 og 11 ára, voru
ekki við. Faðirinn, Kai Nilsen,
bakari, horfði stoltur á þessa
nýju viðbót við fjölskylduna.
— Áttuð þið von á þríbur-
um? spyrjum við Pálínu. Og
hún segir að læknarnir hafi
haldið að þetta væru tvíburar,
þar til 3 vikum áður en börn-
in fæddust.
— Hvernig leizt ykkur á
það?
— Nú, það var ekkert hægt
að gera við því!
— Þetta er aldeilis ábót!
Hvað þarf eiginlega að þvo
margar bleyjur á dag? Og við
lítum á hrúgur af nýstrokkn-
um barnaþvotti á straubrett-
inu.
— Ég veit það ekki. Ég hefi
aldrei átt nema eitt. Annars
hefi ég stúlku hálfan daginn
núna fyrst, til að taka þvott-
ana, segir Pálína, og bætir því
við að sem betur fer væti
hvorki tveggja né þriggja ára
barnið sig lengur. Og maður
hennar segir að fæðingin hafi
gengið mjög vel, konan hafi
veikzt um kl. 6 og fimm mín-
útur fyrir níu hafi fyrsta
stelpan fæðzt og þær allar
verið í heiminn komnar kl.
hálftíu.
Faðirinn er að sjálfsögðu
mjög ánægður með afkvæmin.
Hann er bakari í Bernhöfts-
bakaríi og félagar hans sögðu
í gamni að skýringin á því að
börnin eru þrjú, sé sú, að það
sé svo mikil gerjun í brauð-
unum hjá honum og í kring-
um hann. Hann kvaðst nú
ætla að fara að kaupa þrjár
barnavöggur. Áður en hann
sótti konuna á Fæðingardeild-.
ina, fór hann niður í bæ til
að kaupa barnahúfu, og þegar
hann sagði við afgreiðslustúlk
una: — Þrjár, takk! Þá leit
hún gagnrýnandi á hann.
Hann væri eitthvað skrýtinn
í kollinum þessi.
Lítið veit þó hinn stolti
faðir hvað bíður hans, ef
marka má orð móðurinnar,
sem sagði að það væri einmitt
svo ógætt að eiga tvíbura, því
þá neyddist faðirinn til að
sinna öðru á nóttunni. En þeg-
ar þau eru orðin þrjú „sem
gráta hátt“, þá fer jafnvel að
vera nóg að gera fýrir tvo á
nóttunni. Systurnar þrjár í
Kópavogi gefa þó góð fyrir-
heit. Móðir þeirra segir að
þær hafi verið vandar á að
heimta mat sinn sinn á hverj-
um tíma, svo hægt sé að gefa
þeim í röð, hverri á eftir ann-
arri. Það er líka eins gott, þeg-
ar gefa þarf þremur á þriggja
tíma fresti.
Aldarafmæli Klöecker
Humbuldt Deutz
Á ÞESSU ári er liðin öld
siðan þýzki uppfinningaimaður-
inn N.A. Otila stofnaði ásamt
verkfræðingnum Eugen Langen
verksmiðjufyrirtæki í Köln und-
ir nafninu N.A. Otto & Cie.
IÞessi verksmiðja var sú fyrsta
í 'heiminum, sem fékkst ein-
göngu við framieiðslu brennslu-
Ihreyfla. Undirþrýstingshreyfill
þeirra Otto og Langen, sem var
hagkvæmasti frumihreyfill þeirra
tíma, og sá fyrsiti sem smíðað-
ur var í stórum stíl, var fram-
leiddur til ársins 1877. Árið 1876
tókst N.A. Otto að fullkomna
fjórgengishreyfil sinn, gas-
brennsluhreyfil, sem varð upp-
hafið að mó'JDrvæðingu seinni
tíma. Þá hafði félagið fært út
kvíarnár og nefhdist Motoren-
fabrik DEUTZ AG. Enn í dag
eru slíkir hreyflar oft nefndir
Otto-hreyif.ar, til aðgreiningar
frá Diesel-hreyflum, háþrýsti-
hreyflum með beinni innspýt-
ingu.
Á langri ævi óx félaginu fisk-
ur um hrygg, jafnframt því sem
það tengdist öðrum vélá- og
ökutækjaverksmiðjum. í dag er
Klöckner-Humioldt-Deutz AG
eitt af stærstu fyrirtækjum V-
Þýz...,lands og framleioir dies-
el-hreyfla allt að 4000 hestöfl-
um að stærð, vörubifreiðar,
strætisvagna, langferðabifreibir,
dráttarvé ar, járnbrautarvagna,
eldvarnatæki og slökkviliðsbif-
reiðar, vélar og verksmiðjur fyr
ir námu og efnaiðnað, sements-
verksmiðjur, stálbyggingar alls-
konar, gastúrbínur og 1-i.iu-
hreyfla.
Aldarafmæli sitt hélt félagið
ihátíðlegt þann 16. október s.l.
Þessa merkisatburðar er minnst
á margan hátt í Þýzkalandi, m.a.
hefur vesturþýzka póstmóla-
stjórnin gefið út sérstakt frí-
merki í ti.efni þess.
Hér á íslandi er Kiöckner-
Humbolt-Deuiz vei þekkt fyrir-
tæki og framleiðsla þess, svo
sem báta- og skipavélar, diesel-
rafstöðvar og vörubifreiðar,
dráttarvélar og dieselhreyflar í
fjölda vinnuvéla lör.igu orðin
landskunn sem meðal þess bezta
sem fáan.egt er á heimsmarkað-
inum.
Einkaumboð fyrir Klöckner-
Humboldt-Deutz AG hér á landi
hefir HAMAR h.f.
Tapast hefur
rukkunarhefti frá Morgunblaðinu, líklega
á Freyjugötu, Njarðargötu eða Berg-
staðastrætí. — Skilist á skrifstofu
blaðsins.
— R. Kenneay 1
Framhald af bls. 1
að batur væri hann að sínum
sigri kominn en Robert, sem
sigraði Keating í New York-
ríki með um 800.000 atkvæða
mun, þar sem Edward fékk
meira en milljón atkvæða
meirihluta í Massaehusetts.
Ræddu þeir bræðurnir síðan
stjórnmál í ríkjunum tveim
og höfðu fréttamenn, sem við
staddir voru fund þeirra hið
mesta gaman af. Varð einum
þeirra að orði og minntist
með sökknuði gamalla daga:
„Þeir eru svo líkir, þegar þeir
tala, raddhreimurinn alveg
sá sami, að það er erfitt að
greina þá í sundur — báðir
alveg eins og hann eldri bróð I
ir þeirra, Kennedy sálugi for '
seti“.
Þegar verið var að taka af
þeim myndir bræðrunum og
konum þeirra, Joan og Ethel,
sem báðar voru þarna líka,
báðu ljósmyndarar Robert að
færa sig aftar, hann skyggði
á yngri bróður sinn. „Ætli
hann eigi ekki eftir að gera
það í Washington líka“ svar
aði Edward og hló við. Bræð-
urnir voru glaðir og reifir,
eins og við var að búast,
fögnuðu tvöföldum sigri og
þeim ánægjulegu tíðindum að
Edward kæmi sennilega heim
af sjúkrahúsinu fyrir jól. —
Einnig þráttuðu þeir um það
i mesta bróðerni hvorum
bæri að lilíta forsjá hins.
„Ég var einmitt að minna Ted
á það“, sagði Robert, en frétta
men skellihlógu, „að ég væri
eldri en hann (Robert er 38
ára, en Edward yngri) og það
væri hefð í okkar fjölskyldu
að eldri bróðirinn . . . “ —
lengra komst hann ekki, því
einn fréttamanna greip þá
fram í og sagði: „En er ekki
Edward eldri í hettunni í öld
ungadeildinni?** •
Stúlka óskast
til vinnu hálfan eða allan daginn við léttan iðnað.
Tilboð með uppl. sendist afgr. Mbl. fyrir 8. þ.m.
merkt: „Vesturbær — 9444“.
Lítil íhúð óskast
Eins til tvegfg ja herbergja íbúð óskast strax.
Bæjifútgerð Reykjavikur
sími 24345.
Bltaðburðafólk
óskast til blaðburðar í eftirtalin hveríi
Þingholtsstrœti
Óðinsgata
Fossvogsblettir
Bergþórugata
Seltjarnarnes
Miðbœr
Freyjugata
Sími 22-4-80