Morgunblaðið - 12.12.1964, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.12.1964, Blaðsíða 17
Laugardagur 12. des. 1964 MORGUNBLADIÐ 17 Þórarinn Björnsson skólameistari í ræðustóli. Ingólfur Árma- son og Haraidur Sigurðsson við borðið. (Ljósm. Sv. P.) Framhaldsa&alíund ur um Daváðshús Akureyri, 11. des. Frænkur Þórarinn frá Steintúni: ÚTFALL. Útg'efandi höfundur. Reykjavík 1964. EKKI er það óþekkt fyrirbrigði, að út komi ljóðasöín sem bera því vitni að höfundarnir hafL lesið verk frægra skálda og hrif- ist af þeim, og það sem mest er um vert: þessir höfundar eiga sér stundum dálítinn heim fyrir sjálfan sig, og ef til vill fáeina aettingja eða vini. Eftir að hafa lesið „Útfall" eftir Þórarinn frá Steintúni, hugsaði ég með sjálfum mér Kannski er nauðsynlegt fyrir höfundinn að setja þetta á prent, en mun nokkuð af því lifa sem skáldskapur? Ég ætla öðrum að svara þeirri spurningu. Ég vil aðeins geta þess að í bók Þórar- ins frá Steintúni eru tvær vísur sem bera fyrirsögnina: „Úr leik- ritinu Frænkurnar voru tvær“. Ég áiít að það þurfi sérstaka lagni til að detta ofau á svona rtafn á kvæði. Svo birti ég sem lítið sýnis- horn kvæðið „Útfall“: og tungl Húmslæðu vefur um haf og láð helköld örlaganótt. Vindar gnauða við gættir og Ijóra — til griða fær enginn sótt. Leiðin, vinur, er lokuð til baka, láttu útfallið við þér taka. f ævilokin fæst engu breytt. Haustblað fellur í haf tímans, — hljótt og eitt. Kristján Röðulsr SVÖRT TLN(GL. Hrimnir, 1964. f einsemd minni hef ég skynjað lífið óljóst eins og draum um eitthvað sem er gleymt. Þannig hefst sjötta Ijóðabók Kristjáns Röðuls: „Svört tunigl“. Af þessari ljóðabók Kristjáns Röðuls má ráða að hann stefnir að endurnýjun Ijóðmyndar sinn- ar. Hann reynir nýjar tjáningar- ieiðir, og honum tekst stundum laglega: Sá sem horfir á tré — er ekki einn — Að gleðjast við ljós, það er að lifá*. . . Þegar sólin slokknar kemur dauðinn eins og tungl — Ljóðin „Á göngu“ og „Lag eftir Tsjaikovskí“ sýna ltka að Kristjáni Röðuls fer fram. Hann takmarkar sig meira en áður, lætur hið ósagða tala til lesand- ans. Og það er einkum í stytztu ljóðunum sem hann nær árangri. Þeir sem hafa fylgzt með ljóða- gerð Kristjáns, og' meta einlægan vilja hans til að verða skáld, munu fagna þessari bók. En Kristján gerir sér vonandi grein fyrir því, að þessir sömu lesend- ur tnunu gera til hans harðari kröfur næst. Þess vegna ætti ljóð eins og til dæmis „Flakkar- inn“ ekki að sjást framar í bók eftir hann. Þar skín í gegn svo augljós hrifning Kristjáns af þekktu Ijóði, að lesanda verður á að hugsa hvort Kristján eigi sér engan leiðbeinanda, engan sem lesi handrit hans áður en hann lætur þau á þrykk út ganga. Ég held að Kristjáni sé nauðsynlegt að eiga sér slíkan hauk í horni. Smekkur hans er enn ekki nógu þroskaður. Jóhann Hjálmarsson. UMRÆÐU8 á fundinum í Stúd- entafélaginu á Akureyri í gær- kvöldi, þar sem rætt var um Davíðshús, stóðu nokkuð fram yfir miðnætti og voru fjörugar. Tvær tillögur til ályktunar komu fram, en þeim var vísað til stjórn arinnar til samræmingar og síðan er framhaldsfundur ráðgerður eftir nokkra daga. Sv. P. I frétt blaðsins í gær misrit- aðist í frásögn af ræðu Xngólfs Árnasonar. Hann sagði, að sumt benti til þess að skáldið hefði ekki óskað eftir að heimili hans varðveittist sem safn. Þetta leið- réttist hér með. Guðmiindur G. Hagalín skrifar Vettvanginn í dag — um lýðræði og einræði — stjórnmál, bókmenntir og listir — æskuna og áfeUisdómana — og reiða menn. — Greinina nefnir hann: Mál er að linni. ÞAÐ er haft eftir sjálfum Bis- marck, að einræðið væri bezta stjórnarfyrirkomulag, sem enn hefði orðið til í veröldinni, að því tilskildu, að einræðisherrann væri jafngóður og fullkominn guði sjálfum og ráðherrar hans og ráðunautar væru englar að dyggðum, hugsunarhætti og grandvarleik. Ennfremur mun hann hafa sagt, að þrátt fyrir galla blaðanna, væru þau þó það eina, sem veitti ríkisstjórnum og öðrum valdhöfum það aðhald, sem ekki yrði án verið, ef stjórn- arfar og fjármálalíf ætti ekki að verða gegnsýrt af spillingu. Þeir eftirminnilegu atburðir, sem gerzt hafa á vettvangi al- þjóðamála síðan 1914, hafa sízt dregið úr trúnni á gildi lýðræðis- ins, þrátt fyrir öll þau áföll, sem það hefur hlotið. Hinar vestrænu lýðræðisþjóðir, sem háð hafa stríð um frelsi sitt upp á líf og dauða við djöfulóða herskara einræðisherranna og margar stunið undir blóðugri stálkrumlu einræðis og kvalalosta árum sam- *n, munu vart þykjast geta lofað lýðræðið svo sem vert væri, enda hefur það sýnt sig, að með sam- hjálp og samstöðu hafa þær, þrátt fyrir bölvun kreppunnar 1930—’39 og í ofanálag hörmung- ar sex ára styrjaldar og víða ger- eyðingu verðmæta, öðlazt á ekki fullum tveimur áratugum betri lífskjör en dæmi eru til áður í aliri mannkynssögunni, sam- tímis því, sem nú hefur öllum öðrum en bölmóðum ofstækis- mönnum Vesturlanda orðið Ijóst, að þær þjóðir, sem eiga við að búa það ríkiseinræði, sem fylgj- endum þess í lýðræðislöndunum og áróðursvél einræðisríkjanna, hafði tekizt að varpa yfir nær- fellt himneskum ljóma, búa ekki aðeins við ófrélsi og persónulegt öryggisleysi á flestum sviðum, heldur líka við skort á lífsnauð- synjum og lífsþægindum eftir nær hálfrar aldar stjórnartíma einræðisvaldanna. En hyllendur lýðræðisins gleyma því gjarnan, að eigi það að verða til aukins velfarnaðar um ókomin ár og aldir, þarfnast það umbóta og verndar, en því er voði búinn, ef þeir, sem hylla það, eru því ekki heilir, heldur nota sér veilur þess og grafa undan þeim styttum, sem það stendur á, Þær styttur eru ekki aðeins frelsi alls almennings til að hugsa og álykta, láta í ljós skoðanir sínar og fylgja þeim fram, heldur og ef til vill fyrst og fremst hæfni hans til alls þessa, en sú hæfni er undir því komin, að hann njóti heilbrigðr- ar fræðslu, öðlizt víðan sjóndeild arhring og ríka ábyrgðartilfinn- ingu, en það getur vart orðið, nema hann sé ekki blekktur af þeim, sem hann hefur trúað fyrir forustu mála sinna, fyrir vernd- un þeirra menningarverðmæta, sem hafa reynzt þjóð hans stoð og stytta manndóms og menning- arlífs á liðnum nauðöldum — og að hin unga kynslóð sé ekki gerð að ginningafíflum samvizku- snauðra loddara og fjárplógs- manna. V En víða er pottur brotinn í þessum efnum á Vesturlöndum, og þá ekki síður hér á landi en annars staðar, þó að hér sé þess brýnust þörf, að hver uppvax- andi maður komist til þess mann- dóms og þeirrar menningar, að hann reynist fær um að leiða sjálfur siálfan sig, án þess að gleyma því, að hamingja þjóðar- innar er hamingja hans. Daglega sjáum við beitt óheil- indum, rangfærslum og ósannind um á vettvangi þjóðmálanna og komumst að raun um, að þagað er stundum þunnu blóði um það, sem miklu varðar, en ekki þykir henta að draga fram i dagsljósið. Við höfum séð, að áratug eftir áratug hafa flokkar, sem farið hafa með völd, gengið meira og minna bak orða sinna og gjarnan sagt svart vera hvítt, og viðbrögð stjórnarandstæðinga hafa svo verið þau að þaga um það, sem vel hefur verið gert hjá þeim, sem með völdin hafa farið eða vindast illa við, jafnvel þegar „gildir þjóðarsómi“. Ennfremur höfum við verið vitni að því, að stjórnarandstaðan hefur gersam- lega vanrækt að gera grein fyrir þeim jákvæðu aðgerðum, sem hún hafi hugsað sér, ef hún kæm- ist til valda. Hún hefur treyst því, að ef hún kæmist í stjórnar- aðstöðu og yrði að feta að miklu leyti í fótspor andstæðinganna, mundi mega takast að dylja gaml ar blekkingar með nýjum eða að minnsta kosti kenna fyrirrennur- um sínum um ósamræmið í orð- um hennar og gerðum — svo illa hafi verið komið, að ekki hafi verið unnt að framkvæma heil- brigða stjórnarstefnu. Og í krafti þess, að á þúsundum heimila — einkum úti á landsbyggðinni — er aðeins keypt eitt blað, flokks- blaðið, hefur furðanlega tekizt fram að þessu að snúa Faðirvor- inu upp á þann vonda. Þá er og það fyrirbrigði ekki nein mark- leysa, þegar meta skal pólitískt siðferði hér á landi, að hér blómgast blöð, sem beinlínis lifa á að gera eina fjöður að fimm hænum — sbr. ólyginn sagði mér. Stundum koma þau þó við raunveruleg kaun og mundu geta verið hollur hirtingarvöndur, ef þau ekki aðra stundina hentu á lofti staðleysur eða gerðu úlfalda úr mýflugu, einkum með tilliti til persónulegra ávirðinga. Á sviði bókmennta og lista er ástandið einnig að ýmsu leyti við sjárvert. Þar þróast margvísleg sýndarmennska. Það er ekki að- eins æskilegt, heldur ber til þess brýna nauðsyn, að ungir lista- inenn orðs, lita og lína leiti sér nýrra viðfangsefna og tjáningar- forma og hafi hliðsjón af um- heiminum. Islenzkt menningarlíf hefur ávallt þróazt þannig, að á akri dýrmætrar erfðamenningar hafa verið gróðursettar erlendar nytja- og skrautjurtir og nýjum aðferðum beitt við ræktun þeirra, aðferðum, sem ekki hafa aðeins hentað hinum nýja og að nokkru framandlega gróðri, held- ur einnig aukið gróðramagn þeirra tegunda, sem fyrir voru. Þetta hefur einmitt orðið þannig sakir þess, að þó að hinir ungu hafi í fyrstu farið geyst og hald- ið hópinn, hafa þeir, þá er þeim hefur aukizt persónuleg listar- og lífsreynsla, fundið sér sitt per- sónulega form, sem hefur verið í nánum tengslum við íslenzkar erfðir, mótað af íslenzkri náttúru og íslenzku mannlífi, en þó borið glögg merki áhrifa umheimsins. Á þessu virðist orðinn nokkur brey ting. Ýmsir kunnáttusamir menn á vettvangi listarinnar tjá persónuleika sinn ávallt þannig, að allur þorri manna finnur þar engin tengsl við íslenzkt mannlíf fyrr og nú eða íslenzka náttúru, og á vettvangi bókmenntanna láta ýmsir sig litlu varða það, sem fram fer í kringum þá og er þeim nánast, og sumir virðast meta það meira að tolla í alþjóðlegri og síbreytilegri tízku en að finna sköpunarþrá sinni persónulegt form, sem sé hvort tveggja í senn, að meira eða minna leyti, samhæft íslenzkum menningar- erfðum og frjóvgað erlendum á- hrifum, sem ekki séu álíka ærsla kennt múgsefjunar- og stundar- fyrirbrigði andlega vegalausra manna og til dæmis bítlaæðið. Og það er líka eins og einmitt þessir menn finni, hvort sem þeir nota orð eða liti, að þeir séu utan- garðsmenn hjá öllum þorra þjóð- ar sinnar, þvi að yfirleitt hafa þeir leitað sér athvarfs hjá hin- um íslenzku fulltrúum erlendrar einræðisstefnu. Þeir virðast finna, að þar hitta þeir fyrir aðra utangarðsmenn, en hins veg- ar láta þeir sig það engu skipta, að þessir menn eru þeir einu í íslenzku þjóðfélagi, sem þeim raunverulega bæri að varast, ef þeim væri listastefna sín alvöru- mál en ekki fálmkennt fitl, þar eð hún er hvarvetna fordæmd, þar sem skoðanabræður hinna ís- lenzku einræðisfulltrúa hafa náð völdum — og listamennirnir tald- ir í hópi skemmdarverkamanna. Þeir láta eins og þeir viti það ekki, þessir yfirleitt gáfuðu fá- ráðar, að þeim er því aðeins veitt skjól og vegsemd hjá fulltrúum einræðisins, að þeir eru í fyrsta lagi vel þegin atkvæði og áróð- urstæki og í öðru lagi taldir gagnlegir til að leiða menningar- lifið á villigötur, þar eð fjölmarg- ir listasnobbar og menningarlegir apakettir og hérvillingar hampa þeim fúslega og gera sitt til að þeir fái unnið verk þeirrar köll- unar í hinu íslenzka þjóðfélagi, sem húsbændum þeirra er þókn- anleg. Ekki einu sinni hið harm- ræna og frá siðferðilegu og manndómslegu sjónarmiði hörmu lega fordæmi mesta prósasnill- ings íslenzkra samtíðarbók- mennta fær vakið þá af hinum fasta syndasvefni sjálfblekkingar og siðleysis. V Hvað svo um æsku landsins og þá áfellisdóma, sem yfir henni hafa verið felldir? Það mætti öll- um vera vitanlegt, að meginþorri íslenzkra æskumanna er dugandi fólk, sem vinnur meira og minna markvisst að því að afla sér þekkingar, kunnáttu og mennt- unar og sýnir oft frábært þrek og framtak. En allstór hópur veit sér hvorki veg né stig og lifir svo og lætur eins og hver einstaklingur beri alls enga ábyrgð gagnvart sjálfum sér og sínum nánustu, Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.