Morgunblaðið - 23.01.1966, Side 2

Morgunblaðið - 23.01.1966, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 23. janúar 1966 SVFÍ ekki aðili að vænt anlegum samtökum um umferðaröryggi Ráðstefna um umferðaröryggi, sem trygglngafélög o.fl. aðiljar boðuðu til, var sett í Hótel Sögu í gær kl. 2. Fundarstjóri var kjörinn fíaldvin Þ. Kristjáns son. Jóhann Hafstein, dómsmála ráðherra, fíutti ávarp, en síðan flutti EgiJI Gestsson framsögu- erindi fyrir tillögu um stofn- un „Landssambands gegn um- ferðarslysum“. Næsitur tók til máls Gunnar Friðrvksson, forseti Slysavarna- félags íslands, og lýsti því yfir fyrlr hönd samtaka sinna, að jvxu mundu ekki taka þátt í rxtofnun landssambands þessa og rökstuddi það. Þá stóð upp Arin- björn Kolbeinsson, formaður Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, og kvað stjórn félagsins ekki taka ákvörðun um þátttöku í samtökum þessum, fyrr en á fundi sínum, er halda átti síðar í gærkvöldi. Sagði hann undirbún- ing ráðstefnu þessarar lítinn og framlag undirbúningsnefndar magurt, og því frekari upplýsinga þörf fyrir félag hans. Ráðstefnunni barst skeyti frá forseta íslands, herra Ásgeiri Ás geirssyni, þar sem landssamtök- Hifa- veitan UNDANFARNA daga hafa verið talsverð hitaveituvand- ræði í elzta hluta bæjarins, sak- ir vatnsskorts af völdum frosts- ins. í stuttu viðtali við Mbl. í gær skýrði hitaveitustjóri, Jó- hannes Zoega, frá því, að ástand ið væri þó heldur skárra en dag- ana þar áður. Ekki gerði hann þó ráð fyrir, að ástandið myndi batna svo nokkru næmi, fyrr en hlýna tæki í veðri. Mbl. hafði samband við Olíu- félagið Skeljung og fékk þær upplýsingar, að saia á gas-olíu tii upphitunar hefði talsvert auk izt nú undanfarið, og sérstaklega hefði verið mikið um pantanir í gamía bænum. Aftur á móti fékk blaðið þær upplýsingar hjá Kol og Salt, að lítil sem engin hreyfing hefði orðið á kolasölu þessa frostadaga. um þeim, er stofna ætti, var árn- að allra heilla. Væntanlegir þátttakendur í samtökunum eru m.a. trygg- ingafélög, félög bifreiðastjóra, sérleyfishafa, leigubílstjóra o. fl., Kvenfélagasamband íslands, Landssamband ísl. barnakenn- ara, Læknafélag Islands, Lög- fræðingafélag íslands, Prestafé- lag íslands, Rauði kross íslands, Reykjavíkurborg og Samband ísl. sveitafélaga, svo að nokkrir aðiljar séu nefndir. Fundur stóð í gær til kl. 18 og mun standa í dag frá kl. 10 til 17, og á ráðstefnunni þá að ljúka. lieiðrétting í FRÉTT í Mbl. í gær um fram- kvsemdir íslenzkra aðalverk- taika í Hvalfirði er meinleg prentvilla. Þar segir að „nú séu starfandi á vegum ísilenzkra aðalverktaka 8 menn . . .“. Setn- ingin átti að sjálfsögðu að vera þannig: Nú eru starfandi á veg- um Íslenzkra aðalverktaka í Hvalfirði 8 menn o. sv. frv. Leið- rétrtist þefcta hér með. Engir Færeyingar fást á bátana í Reykjavík Skatteinlsmunur tíilinn ráða UM þessar mundir eru Færey- ingar að koma hingað í ver- stöðvarnar við Suðvesturland. Misjafnlega gengur þó að fá þá til starfa og .mun mismunun skatta ráða mestu um það. Sjó- menn vantar nú stórlega, einkum Fjórir fyrstu menn á Reykjavíkurmótinu enn taplausir í GÆR voru tefldar biðskákir úr 5., 6. og 7. umferð á Reykja- víkurmótinu. Úrslit urðu þau, að Friðrik vann Guðmund Sigur- jónsson, Vasjúkov vann Kiening- er, en Kieninger vann aftur á móti Jón Kristinsson. >á vann Freysteinn Jón Hálfdánarson og gerði jafntefli við Wade. Tveim- ur biðskákum var enn ólokið, er blaðið fór í prentun í gær — skákum þeirra Freysteins og Kieninger, og Jóns Kristinssonar og Guðmundar Sigurjónssonar. Staðan eftir þær skákir, sem nú er lokið, er því þannig: 1.-2. Friðrik og Vasjúkov með 6 vinninga hvor. 3. O’Kelly með 5 vinninga. 4. Guðmundur Pálmason 4 v., en þessir fjórir fyrstu eru enn taplausir. Ekki útlil fyiir hlýnundi veður KL. FIMM í gærmorgun var hæg norðaustanátt og gekk á með éljum á norðan- verðum Vestfjörðum og í Grímsey. Einnig var vottur af éljum á Austfjörðum. Ann ars staðar var stillt og bjart- viðri. Frostið var um fimmt- án stig sums staðar í inn- sveitum, en víðast í kringum fimm stig við strendur. Ekki var útlit fyrir hlýn- andi veður í bráð. Kl. átta í gærmorgun var níu stiga frost í Reykjavík og á Akureyri. Kl. fimm í gærmorgun var fjögurra stiga frost í Stokk- hólmí, þriggja í Osló, sjö í Berlín og tólf í Brattahlíð á Grænlandi. Hiti var við frost mark í Kaupmannahöfn; eins stigs hiti í Lundúnum, fjög- urra í París, þriggja í Þórs- höfn í Færeyjum og þriggja í New York. 5.-6. Kieninger og Freysteinn með 3 v. og biðskák hvor. 7.-7. Böök og Björn Þorsteinsson með 3 vinninga. 9. Jón Kristinsson með 2Vz vinning og biðskák. 10. Wade með 2% vinning. 11. Guðmundur Sigurjónsson með lVz vinning og biðskák. 12. Jón Hálfdánarson með Vz vinning. f dag kl. 13 verður 8. umf. tefld og tefia þá saman: Guðmundur Pálmason og Wade, Guðmundur Sigurjónsson og Freysteinn. Böök og Jón Kristinsson, O’Kelly og Vasjúkov, Björn Þorsteinsson og Friðrik, og Kieninger og Jón Hálfdánarson. Á morgun verður svo níunda umferð tefld. Þá eigast við þeir Friðrik og Guðmundur Pálma- son, Jón Hálfdánarson og Guð- mundur Sigurjónsson, Freysteinn og Böök, Jón Kristinsson og O’Kelly, Vasjúkov og Björn Þorsteinsson, og Wade og Kien- inger. Bíll ofan í Varmó KL. að ganga tvö í gærdag valt bíll á beygjunni við brúna yfir Varmá hjá Brúarlandi í Mosfellssveit, en þar var laun- hált. Bíllinn lenti ofan í ána og bifreiðastjórinn, Dagbjartur Grímsson, var fluttur í Slysa- varðstofuna. Hann var ekki tal- inn mikið meiddur. Sirengjasveitin I Solisti Veneti“ kemur 11 ÍTALSKA strengjasveitin „I sol- isti Veneti", sem lék hér fyrir tveimur árum, verður hér á ferð og leikur nk. föstudagskvöld í Austurbæjarbiói. á smærri báta. Hér í Reykjavík mun enginn Færeyingur hafa verið ráðinn á þessa vertið enn sem komið er. Kunnugt er, að einn af útgerðarmönnum borgar- innar hafði í sinni þjónustu 30 Færeyinga í fyrra, en fær nú engan. Þess ber að geta í þessu sam- bandi, að heima í Færeyjum eru sjómenn, sem hingað ráða sig, skattaðir að fullu, og er þetta varnarráðstöfun þar heima fyrir til að hamla gegn því að sjómenn fari hingað. Verða þeir því að borga skatta bæði þar og hér. Af þeim sökum munu sum út- gerðarpláss hafa boðið Færeying- unum, sem þykja yfirleitt góðir starfsmenn, alger útsvarsfríðindi, en sé um skattfríðindi þeim til handa að ræða, verður útgerðin á hverjum stað að taka á sig að borga þá. í fyrra var upphaflega lagt fyr- ir að taka 27% af Færeyingun- um í skatta hér í Reykjávík, en það var síðar lækkað niður í 13%. Nú brugðu útgerðarmenn víða mjög fljótt við og leituðu snemma eftir Færeyingum, og berast þær fregnir frá Færeyjum að þeim, sem hingað vildu koma, hafi verið boðin alger skattfríð- indi. Augljóst er af þeim ara- , ' grúa lausna, sem bárust að ' myndagátunni og krossgát- | unni í Jóla-Lesbókinni, að I I þúsundum heimila hafa menn j stytt sér stundir við ráðn- ' ingu þeirra. Bréfah J jgan 1 * 3 4 | þakti heilt skrifborð eins og I sjá má á myndinni. — Dreg- i . ið hefur verið um verðlaunin. ' Ráðning krossgátunnar birt- ) ist í Lesbókinni í dag, en I | ráðning myndgátunnar verð- i ur birt í næstu Lesbók. — Týnda sprengjan Framh. af bls. 1 flutt brottu og engin merki um óhug er að sjá á hermönnunum sem sprenigjunnar leita. En bænd urnir í héraðinu, sem er eitt hinna fátækustu á Spóni, eru uggandi um sinn hag. „Þetta hefði getað orðið ein/hver bezta uppstkeran sem hér hefur feng- izt um árabil, sagði einn þeirra — en nú eru okkur allar bjargir bannaðar. Hvað eigum við að taka til bragðs?“ Aðrir sögðu að þýðingarlaust væri að leita sprengjunnar á ekr unum, hún hlyti að hafa sprung ið er flugvélarnar skullu til jarð ar eftir áreksturinn, þá heifði sézt greinileg sprenging. Af braki ýr flugvélinni hefur fátt fundizt heillegt utan hluti af stjórnklefa annarrar vélarinn ar og bútur af bolnum. Sjö manns fórust í slysinu en fjórir björguðust. Vörpuðu þeir sér út í falilhlífum yfir Miðjarðarhafi og var bjargað af fiskilbátum sem þar voru á ferð. Megintilgangi með för Shiina ekki náð — enn óleyst vandamúlið um jap- önsku eyjarnar, sem Sovétrikin her- tóku i styrjöldinni Moskvu, 22. janúar — NTB. UTANRÍKISRÁÐHERRA Japan, Etsusaburo Shiina, kom í dag flugleiðis til Tokyo, eftir viku- dvöl í Moskvu. För hans var gerð í þeim tilgangi að styrkja efna- hagssamstarf Sovétríkjanna og Japan. Samkomulag mun þó ekki hafa náðzt um ýmis vandamál, stjórnmálalegs eðlis. Shiina mun hafa lagt hart að stjórn Sovétríkjanna að beita sér fyrir því, að komi'ð verði á um- ræðum um frið í Vietnam. Sjálf- ur segir utanríkisráðherrann, eftir heimkomuna, að viðræður sínar við Aleksei Kosygin, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, um það mál, hafi ekki borið árang- ur. Til umræ'ðu á fundi Shiina og æðstu ráðamanna Sovétríkjanna var einnig framtíð nokkurra eyja, sem Sovétríkin lögðu undir sig, meðan á síðari heimsstyrj- öldinni stóð. Shiina hefur ekkert viljað segja um árangur af um- ræðum um þetta mál, en haft er eftir góðum heimildum i Moskvu, að utanríkisráðherrari- um hafi ekkert orðið ágengt á því sviði. Shiina lýsti því yfir við blaða- menn, áður en hann lagði af stað í heimsóknina til Moskvu, að Sovétríkin hefðu sýnt tak- markaðan vilja á. þeirri lausn þessa máls, sem Japanir óskuðu eftir. Hefði umráðaréttur eyj- anna verið eitt helzta þrætuepli Sovétríkjanna og Japan, frá lokum heimsstyrjaldarinnar síð- ari. •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.