Morgunblaðið - 03.08.1967, Blaðsíða 1
28 SIÐIJR
54. árg. — 172. tbl.
FIMMTUDAGUR 3. AGUST 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tshombe enn
ekki framseldur
Aigeirsborg, 2. ágúst AP—NTB
TALSMAÐUR dómsmálaráðu-
r.eytisir.s í Algeirsbor-, sagði í
dag, að hann vissi akki til þess
að undirrituð hefði verið opin-
ber tiiskipun um að Moise
Tshombe skuli framseldur kor.g
óskum yfirvöldum. Fréttir frá
Kinshasa í gær hermdu, að B< -
umedienne forseti haf<5i undir-
ritaö siíka tilskipun.
Skrifstofa forsætisráðuney1;*-
ír.s hefur enga tilkynmng i gef-
ið út um þetta mál. en fréttin
frá Kinshasa er mjög dregin í
efa í Algeirsborg. Hæstiréttur
Alsírs samþykkti framsal
Tshombes fyrir nokkrum vikum
eftir að huonum hafði verið rænt
í flugvél yfir Miðjarðarhafi.
í Kinshasa var Joseph Mo-
butu forseti í dag sæmdur
æðsta heiðursmerki Kínverska
alþýðuveldisins við hátíðlega
athöfn.
Hörö átök í Kongó
— Fimmtíu stjórnarhermenn felldir
í bardaga við uppreisnarmenn
Kinshasa, 2. ágúst — AP —
AÐ MINNSTA kosti 50 kong-
óskir hermenn voru drepnir í
fjögurra klukkustunda orrustu
við uppreisnarmalaliða í skóg-
inura við Bukavu í gær. Er haft
eflir áreiðanlegum heimildum,
að kongóski herinn hafi misst
marga brynvagna í þessum átök
um og hórfað í áttina til Buk-
avu undan málaliðunum, sem
sóttu fram.
Kongósku hermennirnir, sem
hraktir voru á flótta, munu hafa
valdið skelfingu á meðal þeirra
1000 Evrópumanna, sem dvelja
i Bukavu, en þeim var neitað
um leyfi til þess að yfirgefa
borgina.
Ofangreind átök eru hin
mestu, sem kongóski herinn hef
ur lent í við uppreisnarmenn,
frá því að hinir síðarnefndu
hörfuðu frá Kisangani (áður
Stanleyville), næst stærstu borg
Kongos hinn 13. júlí sl., en í
her uppreisnarmannanna eru
200 hvítir málaliðar og 800 Kat-
angahermenn.
Foringi uppreisnarmannanna,
Jean Schramm, sendi Mobutu
forseta skilaboð fyrir tíu dög-
um, þar sem hann kvaðst fús
til þess að hefja samninga við
stjórn hans, en Mobutu virti þau
að vettugi, að því er sagt er, og
fjórir brynvagnar voru fluttir
Framihald á bls. 3.
Johnson talinn ákveö-
inn að vera í framboði
— Fylgi Ronalds Reagans vekur athygli
Wasihington, 2. ágúst, NTB.
Stjómmálafréttaritarar í Was
hington eru ekki þeirrar skoð-
unar, að Johnson forseti muni
láta telja sig á aS taka bráSlega
ákvörðun um aS verða ekki i
framboði við forsetakosningarnar
á næsta ári.
Hópur demókrata, sem leitast
við að fá Robert Kennedy, öld-
ungadeildarþingmann, tilnefnd-
an sem frambjóðanda á næsta
ári, birti í byrjun þessarar
vikiu bréf, sem sent hafði verið
fbrsetanum. Er Johnson var beð-
in að tjá skoðun sína á þessu
bréfi á mániudag, yppti hann
bara öxlum. Framangreindur
hópur óskar þess enn fremur, að
Fulbright, öldungadeildarþing-
maður, verði útnefndur sem
frambjóðandi í varaforsetaemlb-
ættið. í bréfinu var gefið í skyn,
að Johmson myndi þjóna flokki
sínum bezt með því að verða
ekki í framboði.
Robert Kennedy hefur áður
hvað eftir annað vísað á bug
öllum þeim, sem gert hafa ti!-
raun til þess að fá hann út-
nefndan sem frambjóðanda til
forsetaembættisins og hann
hefur ennfremur ítrekað, að
hann muni styðja Johnson til
endurkjörs.
Blaðið „The Washington Post,
skýrði í dag frá skoðanakönn-
Framhald á bls. 3.
Tvær konur horfa á rústir helmila sinna i einu elzta hverflnu i Caracas. Þannig er ástand-
ið víða um borgina. (AP-mynd)
Úeirðir breiðast út í Kína
— Bœndur í uppreisnarhug í Shantung — Streyma til
bœja til árása á Maosinna — Cnn barizt í Wuhan
Hongkong, 2. ágúst,
NTB-AP.
NÝJAR óeirðir hafa brotizt
út í strandhéraðinu Shant-
ung í Austur-Kína, þar sem
kínverski herinn fær flesta
nýliða sína. Nokkrir bændur
rændu og pyntuðu meðlimi
opinberrar rannsóknarnefnd-
ar, sem send var til höfuð-
borgar fylkisins fyrir stuttu.
Áður hafa borizt fréttir um,
að andstæðingar Maos for-
manns hafi reynt að ræna
Chou En-lai, forsætisráð-
herra, er hann heimsótti
Wuhan, þar sem uppreisn
hefur geisað síðan í júlí.
Útvarpið í Tsinan i Shantung
hermir, að fjöldi bænda hafi
streymt til bæjarins Lin-i til
þess að ráðast á stuðningsmenn
Maos. Óeirðir hafa einnig geisað
í Tsaochuang-svæðinu í Shan-
tung, en þar var hersveitum
Japana veitt harðvítugt viðnám
í heimsstyrjöldinni. Útvarpið
segir, að nokkrir flokksleiðtogar
hafi sveigt inn í braut kapítal-
ismans, og heldur þvi fram, að
stuðningsmenn Maos hafi sætt
ægilegri kúgun. Stéttarfjendur
berjast til síðasta manns og hafa
hafið örvæntingarfulla gagnárás
gegn Mao formanni, segir út-
varpið.
Japanskt blað birti í dag ítar-
lega frásögn af því, ihvernig
Chou En-lai, forsætisráðherra,
komst hjá handtöku, þegar hann
heimsótti Wuhan fyrir skömmu
til þess að reyna að koma þvi
til leiðar, að tveimur fulltrúum
Peking-stjórnarinnar yrði sleppt
úr haldi. Blaðið segir, að háttsett
ur flokksstarfsmaður í Wuhan,
Qhung Han-huj, hafi safnað
miklu liði á flugveilinu.m til
þess að bandtaka forsætisráð-
USA:
Nefnd skipuð til þess að
kanna kynþáttaóeirðirnar
— Cnn kynþáttaóeirðir í Milwaukee
— Þjóðvarnarliðið farið frá Detroit
Washington, 2. ágúst — NTB
OPINBER bandarísk nefnd verð
ur sett á fót til þess að komast
fyrir rætur orsakanna að kyn-
þáttaóeirðunum í Bandaríkjun-
um nú í sumar og mun hún fá
4 millj. dollara fjárveitingu (um
170 millj. ísl. kr.) til ráðstöfun-
ar. Var skýrt frá þessu í
Washington í dag.
Hermenn og lögreglumenn áttu
enn í höggi við leyniskyttur á
húsþökum i borgarhluta blökku
manna í Milwaukee og var það
þriðja sólarhringinn í röð, sem
óeirðirnar þar héldu áfram.
Leyniskytturnar hindruðu lög
regluliðið og þjóðvarðliðið í þrjá
klukkutíma í því að sækja fram,
en hvorir tveggja svöruðu skot-
hríðinni. Engar fréttir hafa bor-
izt um, að neinn hafi særzt al-
varlega. Óeirðir þessar hófust í
Milwaukee á sunnudag og hafa
2 menn látið lífið í þeim, en 590
verið handteknir. Um 80 íkveikj
ur áttu sér stað í gærkvöldi og
einnig var talsvert um rupl.
Frá Detroit berast þær frétt-
ir, að allir þeir alrikishermenn,
sem í fyrri viku voru sendir þang
að í því skyni að bæla niður
kynþáttaóeirðirnar, hafi verið
sendir burt þaðan. Cyrus Vance,
sérstkur sendimaður MeNamara
varnarm'álaráðherra í Detroit,
hefur skýrt frá því að röð og
reglu hefði aftur verið komið á
í borginni og að þeir alríkisher-
menn, sem enn væru eftir í borg
Framhald á bls. 3.
herrann, en á síðustu stundu
hafi Ohou En-lai borizt vitneskja
um hvað til stæði frá flokks-
starfsmanni í Wuhan, og flug-
vélin var því látin lenda á öðr-
uun flugvelli. Seinna var fulltrú-
um Peking-stjórnarinnar sJeppt
úr haldi.
• Samkvæmt opinberum frétt
um frá Kína er uppreisninni í
Wuhan enn ekki lokið. Fyrir
einni viku hótaði Pekingstjórn-
in blóðbaði, ef uppreisnarmenn
gæfust ekki upp, en í da.g sagði
Peking-útvarpið, að andstæðing-
unum yrði fyrirgefið, ef þeir
legðu niður vopn. Útvarpið held
ur áfram að gagnrýna andstæð-
inga Maos formanns í Wuhan,
en fyrir nokkrum dögum sagði
útvarpið, að margir liðsforingj-
ar í bænum hefðu játað mistök
sín og lofað bót og betrun.
Wuhan er mikilvæg iðnaðarborg
með 2 milljónum íbúa og er mið
stöð allra samgangna við Yang-
tze-fijót í Hupeh-héraði.
• Japönsk fréttastofa hermdi í
dag, að Liu Shao-chi, forseti,
hefði birt þriðja iðrunar.bréf
sitt, en þó neitaði hann ennþá
að játa á sig allar þær sakir, sem
á hann hafa verið bornar. í bréf
inu, sem mun hafa verið birt ný-
lega, játar Liu, að honum hafi
orðið á viss mistök, en um leið
heldur han því fram, að í öðrum
málum hafi hann breytt sam-
kvæmt ákvörðunum flokksins.
Samningar um Jemen?
Kairó, 2. ágúst. AP.
Egyptar haía lagt til, að samn
ingur sá. sem Feisal Saudi-Ara-
bíukonumgur og Nasser forseti
gerðu með sér í Jeddah fyrir
nokkrum árum um frið í Jem-
en, verði endurvakioin, að því
er blaðið „A1 Ahram“ í Kairó
hermdi í dag. Utanríkisráðherra
Egypta, Mahmoud Riad, lagði
þetta til á U'tanríkisráðherra-
fundi Arabaríkjanna í Khar-
toum í dag, og vill hann að þrem
ur hlutlausum Arabarikjum
verði falið að hafa eftirlit með
því að samningurinn sé virtur.