Morgunblaðið - 16.10.1970, Page 17
MORG-UNBLAÐIÐ, FÖiSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1976
17
Ótrúleg breyting í Yietnam
Hljóðlát straumhvörf: Herlið Viet
Cong á barmi upplausnar
Ef tir P. J. Honey
Greinarhöfundiir, P.J.
Honey, lektor í víetnöniskum
fræðum við Lundúnaháskóia
og: einn fremsti sérfræðingur
heimsins í víetnömskum mftl
efnum, er ekki einn um þft
skoðun, að straumhvörf
kunni að hafa orðið i stríð-
inu í Víetnam, enda þótt um-
heimurinn hafi varla veitt
því nokkra eftirtekt. í eftir-
farandi grein ieiðir hann
rök að því, að „friðunarað-
gerðir“ og „víetnamísering“,
það er aukin iilutdeild Suð-
ur-Víetnama sjálfra i stríðs-
rekstrinum, beri góðan ávöxt
og ftrangurinn sé sá, að hern-
aðarástandið hafi gerbreytzt
Suður-Víetnömum í vii og
stórum aukið öryggi lands-
manna. Skæruliðar Viet
Cong, segir hann, eru hund-
eltir, og barftttuhugur Suð
ur-víetnamskra hermanna
hefur aldrei verið meiri.
alla flutninga og samgöngui
Viet Cong háskalegar og jafn
vel ógerlegar. Þorpsráðum hef
ur verið komið á fót í svo að
segja öllum héruðum að undan
gengnum bæja- og sveita
stjórnakosningum, og þessi ráð
stjórna vörnum þorpanna og
hafa auk þess á hendi alla
venjulega stjórnsýslu, stjórna
félagslegum og efnahagslegum
umbótum og framkvæmdum,
skipa lögreglulið og svo fram-
vegis. Þessi bylting að neðan
er á góðri leið með að leggja
grundvöll að jafnvægi og ör-
yggi, sem Viet Cong reynist
ógerningur að raska. Og raun
ar búa þeir skæruíiðar Viet
Cong, sem enn eru á ferli, við
skort á matvælum, vistum og
peningum, baráttuhugur þeirra
er lítill og allstór hópur svikst
stöðugt undan merkjum. í
hverju þorpi er haldin spjald-
skrá yfir virka kommúnista í
hverju umdæmi og spjöld með
myndum af eftirlýstum mönn-
um eru fest upp á áberandi
stöðum.
HREINSUNAR-
Djúptækar breytingar hafa
átt sér stað í Suður-Víetnam á
undanfömum árum og ger-
breytt öllu hernaðarástandinu,
en umheimurinn gerir sér að-
eins örlitla grein fyrir því sem
heíur gerzt. Breytingamar
hafa verið hægfara og eru ár-
angur samfelldra og samstilltra
aðgerða, pólitískra og hernað-
arlegra. Þær hafa því ekki
vakið mikla eftirtekt enda hafa
erlendir fréttaritarar, sem hafa
fasta aðsetu í Saigon, stöðugt
einblínt á þá þætti þróunarinn
ar, sem liggja meira í augum
uppi. Engu að síður hafa ekki
gerzt markverðari tiðindi það
sem af er stríðinu.
Á fyrstu mánuðum ársins
1969 reyndu Suður-Víetnamar
að ná sér eftir áhrif Tet-sókn-
arinnar og hinna geysiöflugu
árása, sem fylgdu í kjölfar
hennar. Árásunum var hrund-
ið, og kommúnistar biðu mikið
afhroð, en Suður-Víetnamar
sóttu í skyndi inn í þorpin á
landsbyggðinni, drógu þjóðfán
ann að húni og treystu áhrif
stjórnarinnar. Skæruliðar Viet
Cong létu þó enn mikið, að sér
kveða og voru stöðugt á ferli
að næturlagi til þess að inn
heimta skatta, reka áróður og
safna nýliðum. Jarðsprengjur
á vegum og fyrirsát kommún-
ista gerðu þó að verkum, að
umferð var enn hættulegri, og
vöruflutningar voru hættuleg-
ir og ótryggir sem áður. Núna
er þetta gerbreytt. Umferð er
örugg og með eðlilegum hætti
um mestan hluta landsins,
þorpsbúar geta sofið óhræddir
i rúmum sínum á nóttunni, og
það eru skæruliðar Viet Cong
sem eru hundeltir. Ástæðan fyr
ir þessari áhrifamiklu breyt-
ingu eru „friðunaraðgerðir",
eins og Bandarikjamenn kalla
það, eða „Binh Dinh“, eins og
aðferðirnar eru kallaðar af
Víetnömum sjálfum.
Þessar aðgerðir eru allflókn
ar og margþættar. Mikilvæg
asta ráðstöfunin, sem hefur ver
ið gerð til þess að tryggja auk
ið öryggi, er myndun sjálfs-
varnarsveita í þorpum á lands-
byggðinni. Þessar sjálfsvarnar
sveitir ganga undir nafninu
„Dan Ve“, eru aðallega skip-
aðar ólaunuðum sjálfboðaliðum
úr þorpunum, og klæðast þeir
svörtum einkennisbúningum og
eru vopnaðir léttum vopnum.
Þeir standa vörð umhverfis
þorpin á hverri nóttu, liggja í
leyni fyrir skæruliðum og gera
Sérþjálfaðir suður-víetnamskir hernienn á fjallasvæði nftlægt Kambódiu. Aðgerðirnar í
Kanibódíu liafa framar öðru orðið til þess að auka sjálfstraust suður-víetnamskra iier-
manna og traust Bandaríkjamanna tii þeirra, að dómi suður-víetnamskra lierforingja.
AÐGERÐIR
Þessi framför varð ekki
möguleg fyrr en hinum víð-
tæku árásum kommúnista var
hrundið árið 1968 og eftir að
deildir úr meginliðsaflanum
voru neyddar til að hörfa til
svæðanna hjá landamærum
Laos og Kambódíu. Sumar
deildir héldu vissulega kyrru
fyrir á byggðum svæðum, og
sömu sögu var að segja um
skæruliða Viet Cong, en mörg-
um hefur nú verið útrýmt og
hinar eru hundeltar og tor-
tímt með skipulegum hætti af
suður-víetnamska fastahernum.
1 hvert sinn sem tekizt hefur
að brjóta á bak aftur megin
herstyrk kommúnista á til-
teknu svæði og bækistöðvum
þeirra hefur verið náð, er fylk-
isherliði falið það verkefni að
annast svokallaðar hreinsunar-
aðgerðir, síðustu leifar and-
spyrnunnar eru brotnar á bak
aftur, handtökur fara fram og
loks er svæðið hertekið. Við
þetta eru víglínusveitir stjórn
arinnar lausar allra mála, þær
geta tekið þátt í frekari hern-
aðaraðgerðum á öðrum stöðum,
og sagan endurtekur sig. Fylk-
isherliðin halda áfram að út-
rýma hermönnum kommúnista
með aðstoð hinna vopnuðu
borgarasveita sjálfboðaliðanna
úr þorpunum á landsbyggðinni.
„Dan Ve“. I hvert sinn sem
sjálfboðaliðarnir komast í tæri
við hersveitir sem þeir ráða
ekki við, kalla þeir fylkisher-
liðið á vettvang gegnum tal-
stöð og lætur því í té allar
nauðsynlegar upplýsingar um
fjölda óvinahermanna staðsetn
ingu þeirra og vigbúnað.
Hernaðaraðgerðir með þessu
sniði hafa staðið yfir í marga
mánuði með þeim árangri, að
mestur hluti byggðra svæða i
Suður-Víetnam hefur verið
hreinsaður af hermönnum
kommúnista. Friðunaraðgerðun
um hefur miðað svo vel áfram,
að nýlega þegar ég var á ferð
í Suður-Víetnam, gat ég farið
með fylkisstjóranum í Thua
Thien-héraði, þar sem aðalborg
in er Hué sem svo hart varð
úti í árásum kommúnista, í
kvöldeftirlitsferð, sem stóð frá
kl. 9 til kl. 1 eftir miðnætti.
Fyrir einu ári hefði ferð af
þessu tagi verið óhugsandi, en
það versta.sem fyrir okkur kom
var, að við rákumst á tvo sof-
andi varðmenn í stöðvum sín-
um, en í sjálfu sér ber þetta
vitni um þá öryggistilfinningu
sem er ríkjandi.
Viss uggur er látinn í ljós um
þann möguleika, að meðlim-
ir úr neðstu lögum kommún
ista haldi kyrru fyrir í þorp-
unum og bíði aðeins eftir hent-
ugu tækifæri til þess að hefja
aðgerðir að nýju. Slíkir neðan-
jarðarútsendarar geta ekki
valdið neinum erfiðleikum í
bráð, ef þeir fyrirfinnast í
raun og veru, en yfir stendur
hernaðaraðgerð, sem gengur
undir nafninu Phoenix og á að
veita tryggingu gegn því, að
kommúnistar hefjist handa
að nýju í framtíðinni. Embættis
menn, sem starfa á vegum
Phoenix-áætlunarinnar, fá í
hendur og rannsaka skýrslur
frá venjulegum borgurum um
meinta starfsemi útsendara
kommúnista, handtaka borgara,
sem nægar sannanir eru gegn,
og framkvæma ítarlegar rann-
sóknir á starfsemi þeirra.
Breytt viðhorf suður-viet-
namska heraflans til brottflutn
ings bandaríska herliðsins er
álíka áberandi og aukið öryggi.
Suður-vietnamskir hermenn
horfast nú I augu við það að
þurfa að berjast einir síns liðs
gegn kommúnistum áður en
langt um líður. Margir banda-
rískir hermenn hafa þegar ver-
ið fluttir á brott, og stór land-
svæði, þar á meðal allt ósa
svæði Mekong fljótsins, sem
myndar IV herstjórnarumdæm-
ið, heyra nú að öllu leyti und-
ir víetnamska heraflann. Þeg-
ar ég átti tal við Di hershöfð-
ingja, yfirmann 9. herfylkisins,
sem stundar um þessar mundir
aðgerðir á óshólmasvæðinu, ját
aði hann að nærvera banda-
rískra deilda hefði fyrrum haft
neikvæð áhrif á baráttudug
suður-víetnamskra hermanna.
Biásið í lúður fyrir árás suður-víetnaniskrar stórsveitar 33. herdeildarinnar ft stöðvar Viet
Cong nálægt Cantho. Sjftlfstraust suður-víetnamskra liermanna liefur að dómi s-víetnamskra
herforingja aukizt við það að þeir komust að raun um að nútímatækni, sem Bandaríkjamenn
hafa beitt í stríðinu, var ekki eins nauðsynleg og áður var taiið.
„Þegar við fylgdumst með um-
angsmiklum og flóknum birgða
flutningum Bandaríkjamanna,
loftárásunum,-sem voru gerðar
nær samstundis og mætt var
harðnandi viðnámi, stórskota
árásum, birgðaflutningum með
þyrlum og svo framvegis,"
sagði hann, „vissum við, að við
gætum aldrei komizt með tæm-
ar þar sem Bandaríkjamenn
höfðu hælana hvað þetta snerti,
og þetta hafði þau áhrif að
baráttudugur Víetnamanna tók
að dvína. En svo fóru Banda-
ríkjamenn burtu, og öll ábyrgð
in lenti á okkar herðum. Fljót-
lega komumst við að raun um,
að svona stórfelldur stuðning-
ur var ekki lífsnauðsynlegur.
að við gátum fyllilega stað
Fratnhald á bls. 24