Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1971
Samþykkt hafísráðstefnunnar:
ísland beiti sér
fyrir samvinnu um
hafísrannsóknir
ALMÓÐLEGU hafísráðstefn-
unni, sem haldin var á Hótel
Sögru lauk síðdegfis í grær. Erind-
in sem flutt voru í gær fjölluðu
aðallegra uni ísmælingrar iir lofti
og mællngrar ogr athugranir á ís
úr kafbátum. Margir erlendu full
trúanna héidu utan í gærkveldi
en nokkrir þeirra sem enn eru
hér á landi mnnu fljúgra með vél
Landhelgrisgræzlunnar yfir ísinn
út af Vestfjörðum í dag ef veð-
ur leyfir.
Morgunfundurinn í gær hófst
kl. 9 og var honum stjórnað af
Moira Dunbar frá Kanada. Er-
indi fluttu W. Wittmann og R.
D. Kétchum, E. Palosuo og D. C.
Archibald. Síðdegisfundinum var
stjórnað af dr. F. Nusser frá
Þýzkalandi, en R. A. Lade, E. L.
Lewis, A. D. Super, A. Kovacs,
og W. D. Hibler, fluttu þá er-
indi. Meðal ályktana sem Al-
þjóðahafísráðstefnan gerðd var
sú að fara þess á leit við Rann-
sóknaráð rikisins að það vekti eft
ir diplómatiskum leiðum, athygli
rikja, sem hagsmuna eiga að
gæta á Norðurhöfum og aðiidar-
rikja Suðurskautssáttmálans á
þörfinnd á því að samræmdar
yrðu aðferðir við athugun og
tiikynningar á hafis. Einnig kem
ur frarn í ályktuninni að ráð-
stefnan viil að Rannsóknaráð-
ið beiti sér fyrir þvi að hin
ýmsu riki skiptist á upplýsing-
um um hafís og að þeim upp-
lýsingum verði safnað saman í
upplýsi ngamiðstöðvu m, að hvers
konar rannsóknir á hafisvanda-
málum verði sameinaðar i aukn-
urn mæli og betur samraemdar,
að þörf sé á samræmdri áætlun
um haffræðilegar og veðurfræði-
legar athuganir og rannsóknir á
orku- og vatnsmagnsþróun á höf
unum við Noreg, Grændand, Is-
land og Irminger-hafi gagnvart
hafísbreiðunni í Norðurhöfum og
Austur-Grænlandsstraumnum, og
k>ks að ráðið beiti sér fyrir að
gerð verði áætlun um samræmd-
ar hafísathuganir og rannsókn-
ir á Suðurhveli.
Þegar áJyktanir ráðstefnunnar
höfðu verið samþykktar flutti
Steingrímur Hermannsson fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
Hærri vextir
París, 13. maí, AP.
FRAKKLANDSBANKI hækkaði
í dag vexti úr 6,5% í 6,75%. Er
þetta gert til þess að lánsfé veirði
aðeins dýrara og áhrifin komi
fram sem hemáll á verðbólgu í
landinu.
rikisins nokkur orð og þakkaði
fundarmönnum fyrir komuna.
Untersteiner frá Seattle í USA
flutti lokaorð fyrir hönd visinda-
mannanna og gat hann þess m.a.
að nú væru liðin 13 ár frá síð-
ustu ráðstefnu, llkri þeirri sem
hér hefur verið haldin. Var sú
ráðstefna í Maryland í USA.
Sagði Untersteiner, að á þessum
13 árum hefðu náðst þrír mark-
verðir áfangar, þ.e.a.s. tilkoma
nýrra tækja í mælingum, hrað-
virkar tölvur og uppgötvun olíu-
linda í höf uniurn. — Charles
Swithinbank þakkaði síðan fram
kvæmdastjórn fyrir hönd þátt-
takenda fyrir vel unnin störf og
Ioks sleit Hlynur Sigtryggsson,
formaður undirbúningsnefndar
ráðstefnunrui.
Neitunarvaldi beitt
gegn Mansfield?
Nixon snýst öndverður gegn frumvarpinu um
heimkvaðninu 150.000 hermanna frá Evrópu
Washington, 13. mai AP—NTB
NIXON forseti mun beita neit-
unarvaldi gegn frumvarpi Mike
Mansfields, leiðtoga demókrata í
öldungadeildinni, um 150.000
manna fækkim í herliði Banda-
ríkjanna í Evrópu, nái það fram
að ganga, að þvi er Hugh Scott,
leiðtogi repúblikana í öldunga-
deildinni, skýrði frá í dag. „For-
setinn getur ekki sætt sig við
samþykkt, sem leiðir til þess að
þjóðþingið ákveður stefnu At-
lantshafsbandalagsins,,< sagði
Scott.
Forsetinn er á þeirri skoðun,
að svo geti farið að frumvarp-
ið verði samþykkt, en neiitar enn
eindregið að fallast á breyting-
artillögur öldungadeildarmanna
úr flokki repúblikana sem eiga
í vök að verjast, að því er Scott
sagði blaðamönnum. Atkvæða-
greiðsla fer fram á miðvikudag
í næstu viku um frumvarpið
viku síðar en ætlað var. Scott
sat á fundum I d£ig með þing-
mönnum og starfsmönnum
Hvíta hússins, þar á meðal dr.
Henry Kissinger.
William P. Rogers utanrikis-
ráðherra sagði öldungadeildar-
mönnunum Scott, Robert Griff-
tn og John Sherman Cooper úr
flokki repúblikana og Mansfield
þingleiðtoga demókrata á fund-
um í dag, að veruleg fækkun I
bandaríska herliðinu í Evrópu
gæti raskað öryggi Evrópu og
haft áhrif á hernaðarstöðu
Bandaríkjamanna í Miðaustur-
löndium. Talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, Robert J. McClosk
ey, sagði að Rogers og Nixon
forseti hefðu heitið bandalags-
þjóðunum i NATO því að hafa
náið samráð við þær áður en
hugsanleg fækkun ætti sér stað.
í Mons i Belgíu sagði yfirmað-
ur herliðs NATO, Andrew J.
Goodpaster hershöfðingi, í dag,
að „einhliða brottflutningur
mundi leiða til upplausnar
NATO.“
Talsmaður Hvíta hússins, Ron-
ald Ziegler, sagði að fækkun í
herliðinu gæti lagt NATO að veMi
og veikst öryggishagsmuni
Bandaríkjanna, Hann sagði að
stjórn Nixons hefði nýlegarann-
sakað nákvæmlega áhrifin sem
mundi leiða eif fækkun í herlið-
inu í Evrópu. Mike Mansfield
telur óhagstæðan greiðslujöfnuð
og bága stöðu dollarans renna
sterkum stoðum undir kröfuna
um heiimkvaðningu herliðs og
auknar fjárveitingar til innan-
landsmála í stað skuldbindinga
út á við.
Pólýf ónkórinn í Garða-
kirkju á laugardag
PÓLÝFÓNKÓRINN og Kórákól-
irm héldu þrjá samsöngva i
Kristgkirkj u í Reykjavík í síðast-
liðimni vi'ku við góða aðsókn og
mikla hrifningu áheyrenda.
Mörg tilmæli hafa borizt um að
endurtaka þessa hljóimleika. —
Þesa vegma efna kóramir til sam
söngs í Garðakirkju á Álftamesi
iaugardagiinin 15. þ. m. kl. 6 síð-
*
Islenzkur prestur gladdi
franska sjómannsekkju
Sendi henni bréf og peninga
degis, og verður þar flutt sama
efnisskrá og í íyrri viku, verk
eftir J. S. Bach, Hándel, Schub-
ert, Monteverdi o. fi. Meðal verk-
efna eru mótettan „Jesu meine
Freude" eftir Bach og kórar úr
„Messíasi'* eftir Hándel, og lýkur
hljómleikumuTn með „Hallelúja-
kórnum“. Á anmað hundrað
manns taka þátt í hljómleikun-
um undir stjóm Ingólfs Guð-
brandgsoraar, en orgelleikari er
Ámii Arinbjamarson.
Garðakirkja er hið fegursta
guðshús og hljómburður þar
mjög góður. Kiirkjan var endur-
byggð fyTÍr nokkrum árum og
hefur tekið algjörum stakka-
skiptum hið ininra.
í FRANSKA blaðinu Le
Marin er sagt frá því að
gömul sjómannsekkja hafi
nýlega fengið smápeninga-
upphæð og bréf frá íslenzk-
um presti, sr. Stefáni Snæv-
arr á íslandi, en maður henn-
ar, Louis Gosselin, fór á sín-
um yngri árum 17 fiskveiði-
ferðir til íslands og bjargaði
skipi í síðustu ferðinni.
Ekkjan, sem er 8 barna
móðir og er nú 78 ára gömul,
varð ákaflega undrandi þegar
hún kom við í litla húsinu
sínu i þorpinu Petit Fort, því
þar átti hún að kjósa, og
fann þá oréf frá islenzk-
um presti og ávísun upp á
95 franska franka.
Sr. Stefán Snævarr, prest-
ur á Dalvík, er Norðfirðing-
ur, og þar kom fyrrum mik-
ið af Frökkum á duggunum
sínum og seldu vettlinga og
fleira en fengu fisk í sfaðinn.
Hann kynntist því frönsku
sjómönnunum. Og nú fékk
hann þá hugmynd, að gefa
greiðsluna fyrir aukaverk sín
um jólin í fyrra einhverjum
frönskum fiskimanni. En
hann hefur áður sent fé til
hjálparstarfs eftir jarð-
skj álfta í Frakklandi. Franska
sendiráðið í Reykjavík hafði
milligöngu. Og ræðiismaður
íslands í Boulonge sendi ekkj
unni bréfið frá prestinum og
peningana.
Það hafði komið í ljós, að
Louis Gosselin, sem kallaður
var hvíti úlfurinn í héraði
sínu, hafði verið 17 vertíðir
skipstjóri á íslandsmiðum og
í síðustu ferð sinni 1934 hafði
hann á skipi sínu bjargað
togara. Hann hafði ungur
gengið í þjónustu útgerðar-
fyrirtækisins Thoris, sem
stofnað var 1797, og hefur
gengið í erfðir, ættlið fram
af ættlið. Louis Goaselin,
sem var talinn einn bezti
skipstjóri fyrirtækisins, fékk
skipið Aiglon, og hélt á því
í sína fyrstu ferð á íslands-
mið. Hann er látinn fyrir all-
mörgum árum.
Ekkja hans fékk nú litla
peningasendingu frá 'íslandi,
en bréfið frá íslenzka prestin-
um gladdi hana þó enn
meira. Sr. Stefán Snævarr
hefur fengið þakkarbréf frá
henni.
Met-
verð
á gulli
London, 13. maí, AP.
GULL hækkaði enn í verði í
kauphölliun í dag vegna gjald-
eyrisóróans og hefur ekki verið
verðmeira í eitt og hálft ár. Verð
á frjálsum markaði var 40,85 doll
arar únsan, 40 sentum hærra en
í gær. í Ziirich var verðið 40,70
við opnun og hækkaði fljótlega
í 40,90 dollara.
j Þegar eftir komuna tili
l Reykjavíkur í gær efndi
' Rippon, brezki ráðherrann,'
I sem hefur með höndum samn (
| ingaviðræður Breta við I
EBE, til blaðamannafundar.
Var mynd þessi tekin við það'
) tækifæri í einum hinna nýju (
| fundarsala á Loftleiðahótel-I
| inu. Við hlið Rippons siturj
blaðafulltrúi hans.
BRIDGE
t 13. umferð í uindanúrslitum
heimsmeistarakeppninnar í
bridge, sem fram fer þessa dag-
ana á Formósu urðu úrsldt þessi:
Bandaríkin A — Frakkland
(90:32) 20—0
Formósa — Bandaríkin B
(122:51) 20—0
ÁstraMa — Brasilía
(87:82) 11—9
Staðan er þá þessi: 1. Bandaríkin A 188 stig
2. Frakkland 145 —
3. Ástralía 123 —
4. Formósa 107 —
5. Brasilía 80 —
6. Bandaríkin B 61 —
Bandarísku heimsmeistararmr
„DALLAS-ásarnir" hafa nú
trygigt sér rétt tid keppnd um
heimsmeistaratitilinn, en erm er
ekki útséð um hvaða sveit
keppir við þá. Franska sveitin
hefur spilað mjög vel, en tapaði
með miklum mun í siöusitu um-
ferðinni fyrir heimsmeisturun-
um. Ástraiska sveitin hefur kom
ið mjög á óvart og hefur enn
möguleika á að komast í úrslit
Úrslitakeppndn hefst um næstu
helgi og spila þá sveitir nr. 1 og
2 um heimsmeistaratitilinin og
verða þá væntanlega spiluð 160
spiL Sveitir nr. 3 og 4 spila um
þriðja sætið og sveitir nr. 5 og 6
um fimmta sætið.
Mál gegn
Z“
99
Paris, 13. maí — AP —
EKKJA gríska þingmarensina
Georgios lambrakis hefur höfð-
að skaðabótamál á hendur höf-
undiim kvikmyndarinnar „Z“ og
höfundi og útgefenda skáldsögu
um mann hennar á þeim forsend
um að í bókinni og kvikmynd-
inni séu staðreyndir rangfærðar.
Ekkjan krefst þess að fá
greidda 72.000 dollara hjá hof-
undum kvikmyndarinnar og
18.000 doiilara hjá höfundi skáld-
sögunnar, Vassilis Vassilikios og
útgefanda hans. Ekkjunni var
tjáð af lögfræðingum að Lambr-
akis væri sýndur sem hetja og
aðstandendur hans þyrftd ekki
að skammast sín. Auk þess kváðu
þeir dómstóla virða rétt höf-
unda til að fara frjálslega með
sögulegar staðreyndir.