Morgunblaðið - 27.09.1974, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974
13
Faydeau í Þjóðleikhúsinu:
Skrif aði leik-
rit til að losna
við skólann
GEORGE Faydeau er leikhúsgest-
um hér að góðu kunnur fyrir leik-
rit sitt Flð á skinni, sem Leik-
félag Reykjavfkurhefurnúsýnt
yfir 200 sinnum og ávallt fyrir
fullu húsi á hverri sýningu, — og
mun sýna það áfram f haust.
Fyrsta frumsýning Þjóðleikhúss-
ins f haust er á einu kunnasta
verki Faydeau, Hvað varstu að
gera f nótt? Alls skrifaði Faydeau
35 leikrit, en hann byrjaði 7 ára
gamall að skrifa. Astæðan til þess
þá var sú, að hann vildi losna við
skólann, og þegar pabbi hans
spurði hann, hvað hann hefði fyr-
ir stafni, úr þvf að hann lærði
ekki lexfurnar sfnar, svaraði
hann þvf til, að hann skrifaði leik-
rit. „Haltu þá bara áfram að
skrifa leikrit", sagði pabbi hans
þá, og það gerði strákur eftir það
eða þar til hann lézt 1921.
Faydeau er einn kunnasti gaman-
leikjahöfundur Frakka á þessari
öld.
Ekki er ráðlegt að rekja gang
leiksins, þvf þar fer mörgum sög-
um fram, ýmist undir sæng eða
Frumsýning á:
Hvað varstu
að gera
í nótt?
undir rúmi á koppnum, en allt
snýst um ástir og úr verður mikill
misskilningur. Leikstjóri er
Christjan Lund frá Svfþjóð, en
hann er kunnur f leikhúslffinu
þar. Að undanförnu hefur hann
mest unnið hjá sænska sjónvarp-
inu. Lund hefur sviðsett tvö leik-
rit hérlendis hjá Leikfélagi
Reykjavfkur f Iðnó, Þjófa Ifk og
falar konur og Beggja þjónn. Að-
stoðarleikstjóri er Sigmundur
örn Arngrfmsson. Leikmyndir
gerði Þorbjörg Höskuldsdóttir
Sigrfður og Gfsli í hlutverkum sfnum í sðfanum.
Anna Kristfn og Bessi f hlutverkum sfnum á rúmstokkn-
um.
Bessi og Sigrfður f hlutverkum sfnum á rúmstokknum
listmálari, og hún teiknaði einnig
búninga.
Leikritið Hvað varstu að gera f
nótt? var frumflutt f Parfs árið
1908, en það eins og önnur leikrit
Faydeau þykir sfgilt gamanleik
rit, og hafa leikrit hans verið
sýnd mjög vfða f Evrópu á
undanförnum árum.
Hlutverkin f leiknum eru alls
17. Aðalhlutverkin tvö eru Ieikin
af Sigrfði Þorvaldsdóttur og
Gunnari Eyjólfssyni. Þá leikur
Arni Tryggvason, Pochet föður
Améliu, (Sigrfður Þorvaldsdótt-
ir) og Valur Gfslason leikur rík
an, gamlan frænda. Bessi Bjama-
son fer með hlutverk prinsins f
leiknum, en hann kemur mjög
við sögu. Margrét Guðmundsdótt-
ir leikur Irene greifafrú og Ævar
Kvaran fer með hlutverk hers-
höfðingja. Þá fer Gfsli Alfreðsson
með hlutverk Etienne, sem er
stórt f leiknum. t minni hlutverk-
um eru leikararnir Flosi Ölafs-
son, Guðmundur Magnússon,
Klemenz Jónsson, Anna Kristfn
Arngrfmsdóttir, Bryndfs Péturs-
dóttir, Guðrún Stephensen og
Brfet Héðinsdóttir.
Gunnar og Sigrfður f hlutverkum sfnum á rúmstokkn
um.