Morgunblaðið - 27.09.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974
29
Mynd þessi var nýlega tekin af sendinefnd Islands hjá Sameinuðu þjóðunum. Frá vinstri eru: Þðrarinn
Þórarinsson form. utanrfkismálanefndar Alþingis, Tómar Karlsson varaform. sendinefndarinnar, Hólm-
frfður Jónsdóttir, eiginkona Ingva Ingvarssonar og Ingvi.sem er formaður sendinefndarinnar.
Islendingar fá 3 þús. t. sfldar-
kvóta fyrir norðan írland
FISKUR FRA DALVIK
Á BELGÍSKAN MARKAÐ
FRYSTIHtJS Kaupfélags Eyfirð-
inga á Dalvfk hefur hafið tilraun
til að flytja fisk með flugvél á
markað f Bclgíu og hefur fyrsti
farmurinn þegar farið utan með
flugvél frá Iscargo. tvar Baldvins- ,
son, frystihússtjóri á Dalvfk,
sagði Mbl. f gær, að þessi fyrsta
tilraun hefði gefizt það vel, að
ákveðið hefði verið að halda
henni áfram og er áætlað, að
næsta ferð verði farin f upphafi
næstu viku.
Ivar sagði, að fyrir þremur
vikum hefði Belgi komið að máli
við þá á Dalvík og farið fram á, að
þeir gerðu þessa tilraun. Eftir
fyrstu tilraun virðast allir ánægð-
ir, þar sem fiskur á markaði f
Belgíu þolir engan samanburð við
íslenzka fiskinn. ívar vildi ekki
gefa upp verð það, sem fengist
fyrir fiskinn, en hann kvað það
sæmilegt. Yfirleitt væru þetta
fisktegundir, sem erfitt væri að
losna við hér heima, en enn-
fremur þyrfti úrval fisktegunda
einnig að vera nokkuð mikið.
Helztu tegundirnar, sem sendar
eru til Belgíu, eru flatfiskur,
steinbítur og karfi.
Mikið veltur á þvf, að fiskurinn
sé vel unninn, því að það lækkar
hlutfall flutningskostnaðar mikið,
sagði Ivar. Hann kvað áhættuna
talsverða, þar sem veður yrði að
vera gott og lendandi f Belgíu. Ef
það væri ekki, lægi allur fiskur-
inn undir skemmdum og allt væri
unnið fyrir gýg. Þegar fyrsta
ferðin var farin flutti Iscargo-vél-
in fiskinn til Belgfu, en tók þaðan
kýr, sem flytja átti til Mílanó. Til
baka kom hún svo með heimilis-
tæki.
Ungó Ungó
Dansleikur
Hljómsveitin Haukar hefur verið erlendis og
víðar í sumarfríi nú um mánaðartíma, en nú
gefst Haukaunnendum aftur tækifæri til að
skemmta sér með þessari frábæru stuðhljóm-
sveit.
Sætaferðir frá B.S.Í.
AUSTURATLANTSHAFSFISK-
VEIÐINEFNDIN hefur sam-
þykkt að heimila tslendingum að
veiða 3 þúsund lestir af sfld á
svæði norðan Irlands og vestan
Skotlands. Svæði þetta er fyrir
vestan 4. gráðu og hafa tslend-
ingar yfirleitt Iftið veitt á þvf.
Hins vegar er tslendingum heim-
SlÐASTLIÐINN föstudag, hinn
13. sept. 1974, var Stórstúku ís-
lands afhent vandað og fagurt
orgel til afnota í fundarsal
templara f Templarahöllinni við
Eirfksgötu 5 í Reykjavík, en sá
salur var útbúinn fyrir Stórstúku-
þingið sfðastliðið vor. Gefendur
eru Kristinn Vilhjálmsson, fram-
kvstj. Templarahallarinnar, Guð-
ný Torfadóttir kona hans, Jón
og Anna Sigríður börn þeirra, og
tengdasonur þeirra, Finn Fred-
riksen, kaupm. í Lilleström í
Noregi (skammt frá Osló). Gjöfin
er gefin til minningar um hjónin
Jón Pálsson bankaféhirði og
önnu Sigríði Adolfsdóttur,
fósturforeldra frú Guðnýjar, en
þau voru virkir starfsmenn í
Reglunni; Jón m.a. stórtemplar
1911—1913, og reyndar lands-
kunnur fyrir ýmis önnur menn-
ingarstörf. Var orgelið vígt með
því, að séra Guðjón Guðjónsson
æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar
Iék á það: „Víst ertu Jesús kóngur
klár“ og þrjár prelúdíur eftir
Johan Sebastian Bach. Stór-
templar, Ölafur Þ. Kristjánsson
fyrrv. skólastjóri, þakkaði gjöfina
fyrir hönd Reglunnar og fól
orgelið í umsjá Þingstúku Reykja-
vfkur, en húsráð hennar annast
rekstur Templarahallarinnar.
Einnig tóku til máls ýmsir menn,
er mundu merkishjónin Jón
Pálsson og önnu Sigrfði Adolfs-
dóttur og störf þeirra á ýmsum
ilt að veiða 30 þúsund tonn austan
gráðunnar. Þessi heimild er fyrir
árið 1975, en alls má veiða á svæð-
inu 205 þúsund tonn.
Þórður Asgeirsson, skrifstofu-
stjóri f sjávarútvegsráðuneytinu,
sagði í viðtali við Mbl., að for-
maður nefndarinnar hefði borið
sviðum þ.á m. Kristinn Vil-
hjálmsson. Einnig flutti Finn
Fredriksen ávarp, en hann er
einn af forystumönnum templara
í sínum heimabæ. Yfir 70 manns
voru á samkomunni. — Þess má
geta, að þar voru tveir templarar
frá Færeyjum, Niels Juel Nielsen
tryggingafulltrúi í Þórshöfn og
kona hans.
fram tillögu um kvótaskiptingu
aðildarríkja nefndarinnar að
veiðum á þessu svæði á fundi
nefndarinnar í Bonn f sumar.
Ekki var gengið til atkvæða um
skiptinguna fyrr en nú nýlega og
var það þá gert bréflega. Sam-
þykktu íslendingar tillöguna,
enda tók hún tillit til krafna
Islendinga um 3 þúsund tonn, en
áður hafði verið tillaga uppi i
nefndinni um 2 þúsund tonn til
handa íslendingum.
Bróðurparturinn af heimilaðri
veiði kemur f hlut Breta, sem
mega veiða á svæðinu 109 þúsund
tonn. Næstir að kvótastærð eru
Norðmenn með 24 þúsund tonn,
þá trar með 20 þúsund tonn, Þjóð-
verjar með 15 þúsund tonn, Hol-
lendingar með 12 þúsund tonn og
Danir og Færeyingar með 9
þúsund tonn. Aðrir aðilar eru
með smærri kvóta, þar á meðal
Islendingar með 3 þúsund tonn
eins og áður segir.
Góðtemplarar
fá orgel að gjöf
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK
AUSTURBÆR
Ingólfsstræti, Þingholtsstræti,
Laufásveg 2—57,
Kjartansgata. Hverfisgata
63 —105, Hátún, Skaftahlíð,
Bergstaðastræti, Laugavegur
34—80. Skaftahlíð.
Sóleyjargata.
ÚTHVERFI
Austurbrún, Snæland, Vatns-
veituvegur,
KÓPAVOGUR
Skjólbraut, Þverbrekka.
Upp/ýsingar ísíma 35408.
HAFNARFJÖRÐUR
Blaðbera vantar víðsvegar um
bæinn. Upplýsingar á afgr.
Arnarhrauni 14 sími 50374.
ARNARNES
Blaðburðarfólk vantar
FLATIR
Blaðburðarfólk óskast.
Upplýsingar í síma 52252.
KEFLAVÍK
óskareftir blaðburðarfólki.
Uppl. á afgr. Hafnargötu 48A
sími 1 1 13 og 1 1 64.
Sendill óskast
á afgr. Morgunblaðsins fyrir
hádegi. Uppl. í síma 1 01 00.