Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 13
Skrifstofa Félags ein- stæðra foreldra er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 3 — 7. Aðra daga kl. 1—5. Simi 1 1822. K.F.U.M og K.F.U.K., Hafnarfirði, Sunnudaginn 27. okt. Kl. 10.30. barnasamkoma. Öll börn velkomin. kl. 8.30 almenn samkoma. Ræðu- maður séra Guðmundur Óskar Ólafsson. Allir velkomnir. Ménudagurinn 28. okt. Fundur I unglingadeildinni kl. 8. Opið hús frá kl. 7. Hjálpræðisherinn Sunnudag kl. 20.30 samkoma. Velkomin. Filadelfia Keflavík Samkoma kl. 2 á morgun. Gestir þátttakendur. Krossinn vigður. Æskufólk syngur. Allir velkomnir. Filadelfia Sunnudagsgangan 27/10. verður um Heiðmörk, Brottför kl. 1 3. frá B.S.Í. Verð 300 kr. Ferðafélag íslands. FERÐAFELAG ISLANDS 1975 BÍLASÝNING í DAG KYNNUM VIÐ NÝJU LÍNUNA FRÁ FORD í AMERÍKU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKT0BER 1974 Heimatrúboðið Vakningavikan hefst á morgun að Óðinsgötu 6a kl. 20:30. Samkoma verður hvert kvöld vik- unnar. Sunnudagaskóli kl. 14. Verið velkomin. Munið flóamarkaðinn laugardag og sunnudag. Stúkan Framtiðin og Barnastúkan Svava. K.F.U.M. á morgun: Kl. 10.30 fh. Sunnudagaskólinn að Amtmanns- stig 2b. Barnasamkomur i funda- húsi KFUM&K i Breiðholtshverfi 1. Drengadeildirnar: Kirkjuteig 33, KFUM&K-húsunum við Holta- veg og Langagerði og i Framfara- félagshúsinu í Árbæjarhverfi. Kl. 1.30 eh Drengjadeildirnar að Amtmanns- stig 2b. Kl. 8.30 eh. Almenn samkoma að Amtmanns- stíg 2b. Bjarni Ólafsson, kennari og Gisli Sigurðsson, verzlunar- maður tala. Allir velkomnir. Barnayerndardagurinn er í dag: Heimili fyrir tauga- veikluð börn opnað um næstu mánaðamót FORD GRANADA MERCURY MONARCH árgerð 1975 opið frá 10-18 FYRSTI vetrardagur hefur verið fjár- öflunardagur Barnaverndarfélags Reykjavíkur og systurfélaga þess úti á landi um árabil. Á Barnaverndar- daginn, sem svo hefur verið nefndur, fer fjáröflun fram með sölu barna- bókarinnar Sólhvörf og merkja félagsins. Nú i haust eru liðin 25 ár frá stofnun Barnaverndarfélags Reykjavíkur. Dr. Matthlas Jónasson stofnaði félagið og var formaður þess þar til á siðastliðnu vori er hann baðst undan enduikjöri. Núverandi formaður félagsins er Sigur- jón Björnsson sálfræðingur. Frá upphafi hefur starfsemi félagsins beinzt að þvl, að bæta hag þeirra barna, sem eiga við likamlega eða andlega vanheilsu að strlða, bæði með beinum fjárframlögum til einstakra barna og viðtækara styrktarstarfi. Þannig hefur félagið t.d. styrkt fólk til FelMslif □ Gimli 597410287 — 1 sérmenntunar I hjálparstörfum, staðið að útgáfu fræðslurita um málefni af- brigðilegra barna og styrkt hjálpar- stofnanir með fjárframlögum. Árið 1960 stofnaði Barnaverndar- félag Reykjavikur Heimilissjóð tauga- veiklaðra barna. Nýlega var keypt hús að Kleifarvegi 1 5 hér I borg og lagði sjóðurinn fram hluta kaupverðsins, en Reykjavikurborg afganginn. [ húsinu verður tekið svokallað meðferðarheim- ilifyrir taugaveikluð börn. Er Reykjavik urborg eigandi heimilisins og mun annast rekstur þess. Nú er verið að leggja slðustu hönd á undirbúning þess, að hægt verði að taka þar við börnum til meðferðar. Heimilið verður tekið I notkun um næstu mánaðamót en þar verður rúm fyrir 6—7 börn. Gert er ráð fyrir þvl að börnin séu á skólaaldri, en meðaldvalartimi barna á slfkum heimilum mun vera um 9 mán- uðir. Sigurjón Bjömsson, Stefán Júliusson, Lára Sigurbjörnsdóttir, Pálina Jónsdóttir, Kristinn Bjömsson, Ingi Jóhannesson og Jón Karlsson. Jón Karlsson, sálfræðingur, hefur verið ráðinn forstöðumaður heimilis- ins, en auk hans verða þar 7 fastráðnir starfsmenn. Á fundi forvígismanna barna- verndarsamtaka með fréttamönnum kom fram, að talið er, að fimmta hvert barn þurfi á sérfræðilegri aðtoð að halda vegna taugaveiklunar og annarra geðrænna truflana. Áeinkennum slíkra truflana fer oftast að bera þegar barnið kemst á skólaaldur og farið er að gera auknar kröfurtil þess. Þá kom og fram að nú þegar stofnun meðferðarheimilsins er orðin að veru- leika væntir stjórn Barnaverndarfélags- ins þess, að hægt verði að snúa sér að fleiri verkefnum til hagsbóta fyrir van- heil börn, og er sérstaklega óskað eftir ábendingum I þvl efni. Litur stjórn félagsins svo á, að enda þótt eðlilegt sé, að hún hafi frumkvæði um verk- efnaval að nokkru leyti, beri henni að leitast við að koma til móts við skyn- samlegar óskir um stuðning frá öðrum aðilum eftir því sem fjárhagsgeta leyfir og eftir því sem samræmist lögum félagsins f dag verða merki og Sólhvörf til afhendingar sölubörnum I öllum barnaskólum Reykjavlkur og Kópa- vogs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.