Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974 35 Urðu að sætta sig við iafntefli .... M , O J Mikil kaflaskipti í leik íslenzka liðsins við Svisslendinga í gær ÍSLENDINGAR urðu að sætta sig við jafntefli, 21- 21, í handknattleikslands- leik við Svisslendinga sem fram fór í borginni Wint- erthur, við Ziirich í gær- kvöldi. Er þetta öllu slakari frammistaða hjá landslið- inu, vonast hafði verið eft- ir þar sem Svisslendingar hafa hingað til ekki verið hátt skrifaðir í handknatt- leiksíþróttinni. Að sögn Bergs Guðnasonar, farar- stjóra íslenzka landsliðsins, sýndu Svisslendingarnir þó skemmtilegan leik á móti íslendingunum í gær- kvöldi, og höfðu einn þátt áberandi betur á valdi sinu en íslenzka liðið — hraða- upphlaupin, en þannig skoruðu þeir mörg marka sinna. — Okkar menn voru seinir í vörnina, eins og svo oft áður, sagði Berg- ur. Jafntefli í þessum leik gefur ekki ástæðu til bjart- Ólafur H. Jónsson sýndi góðan leik í gærkvöldi. sýni á bærilega útkomu í leikjunum tveimur sem ís- lendingar eiga eftir í þessu móti, gegn Vestur-Þjóðverj- um og Ungverjum. Seinni Asgeir (t.v.) og Ólafur Sigurvinssynir. Ásgeir Sigurvinsson gerir þriggja ára samning við Standard Verður Ólafur bróðir hans atvinnumaður hjá sama félagi? ÁSGEIR Sigurvinsson gekk f fyrrakvöld frá nýjum samningi við féiag sitt Standard Liege. Gildir hann f 3 ár. 1 samtali sem Mbl. átti f gær við Ásgeir úti f Belgíu kom fram, að hann er mjög ánægður hjá félaginu og telur samninginn sem hann gerir nú mjög hagstæðan. Ekki vildi hann fara nánar út í það hvað samningurinn hljóðar uppá. Þá frétti Mbl. í gær, að Ölafur Sigurvinsson, bróðir Ásgeirs, hefði fengið tilboð um að gerast atvinnuknattspyrnumaður hjá Standard Liege. Ásgeir vildi sem minnst um það mál segja, sagði að það væri alveg á byrjunarstigi. Sagði hann, að til greina kæmi að fleiri fslenzkir knattspyrnu- menn yrðu atvinnumenn f Belgíu, og þá frá og með næsta sumri. Þessi mál væru Ifka á byrjunarstigi. Ekki vildi Ásgeir nefna ákveðin nöfn, sagði aðeins, að þeir hefðu áður verið nefndir f sambandi við atvinnumennskuna. Á hann þar við Guðgeir Leifs- son, Jóhannes Edvaldsson og kannski einhverja fleiri. Álbert Guðmundsson, fyrrverandi formaður KSl, er staddur f Belgfu um þessar mundir, og aðstoðaði hann Ásgeir við samningagerðina. Sagðist Asgeir vera Albert mjög þakklátur fyrir hjálpina. Enda þótt þessi nýi samningur gildi til þriggja ára, þýðir það ekki að Asgeir verði að dvelja hjá félaginu allan þann tfma. Hann Framhald á bls. 20 hálfleikur þess leiks stóð yfir er við náðum sam- bandi við Berg í gær, og var staðan i hálfleik 8—7 fyrir Ungverja. — Þjóð- verjarnir tefla nú fram alveg nýju liði, sagði Berg- ur, — það virðist vera létt- leikandi, en aðalmunurinn á þessum tveimur liðum og okkar liðum er þó mark- varzlan, en bæði liðin hafa á að skipa góðum mark- vörðum. Islenzka liðið byrjaði leikinn heldur ógæfulega í gærkvöldi. Eftir skamma stund var staðan orðin 6—1 fyrir Svisslendinga, og sýndi íslenzka liðið heldur slakan leik á þessum upphafsmínútum — reynd voru skot sem ýmist lentu framhjá eða voru varin af svissneska markverðinum, og vörn islenzka liðsins var einnig illa á verði. — Manni var hætt að lítast á blikuna, þegar þannig gekk, sagði Bergur. En íslenzka liðið náði sér svo vel á strik og sýndi góðan hand- knattleik það sem eftir lifði hálf- leiksins. Það komst yfir í 8—7 og f hálfleik var staðan 11—8 fyrir Island. Var því markatalan 10—2 fyrir Island seinni hluta hálfleiks- ins. I byrjun seinni hálfleiksins hélt íslenzka liðið svo sínu striki. Stað- an varð 14—10, 15—12 og 16—13, Einar Magnússon — nýtti vel vítaskotin. en þá skall allt aftur f baklás hjá fslenzka liðinu. Svisslendingar komust yfir í 17—16 og eftir það var jafnt á öllum tölum. Þegar um mínúta var til leiksloka skoruðu Svisslendingar sitt 21 mark og var mikii spenna ríkjandi um hvort íslendingum tækist að jafna. Þeg- ar 20 sekúndur voru til leiksloka fékk Ólafur Jónsson sendingu inn á línu og skoraði af öryggi og bjargaði þar með jafnteflinu fyrir Island. Það voru þeir Ólafur H. Jóns- son og Axel Axelsson sem léku aðalhlutverkin í þessum leik. Báð- ir sýndu þeir frábæran hand- knattleik á köflum og drifu is- lenzka liðið áfram með krafti sfn- um og dugnaði. Þá var þáttur Einars Magnússonar allgóður. Hann var lítið inná nema þegar dæmd voru vítaköst á Svisslend- inga. Þau voru fimm í leiknum og skoraði Einar af öryggi úr þeim öllum. Stefán Halldórsson, sem var inná allan leikinn, komst einnig mjög vel frá leiknum, svo og hinir nýliðarnir tveir, Pálmi og Pétur. Hins vegar var Viðar f daufara lagi f leiknum og afskap- lega óheppinn með skot sín. Þeir sem hvfldu í þessum leik voru þeir Guðjón Erlendsson og Gunnar Einarsson, sem enn hefur ekki jafnaði sig af meiðslum sín- um og er óvíst hvort hann getur nokkuð leikið í ferðinni. Mörk íslenzka liðsins skoruðu: Axel Axelsson 7, Ólafur H. Jóns- son 5, Einar Magnússon 5 (öll úr vftaköstum), Stefán Halldórsson 2, Jón Karlsson 1 og Viðar Símon- ason 1. Dukla Prag Það þarf engan að undra þótt Svlar ræði nú um það af fullri alvöru að hætta þátttöku I Evrópu- bikarkeppninni I knattspyrnu. Að- eins 728 manns ómökuðu sig til þess að horfa ð leik Djurgaardens og Dukla Prag er liðin mættust I fyrrakvöld I UEFA-bikarkeppninni I Stokkhólmi. Staðan I hálfleik var 0—0. en Nehoda og Gajdusak skoruðu I seinni hálfleik fyrir Duklaliðið, en Svíunum tókst ekki að svara fyrir sig. IOFNÞURRKAÐUR HARÐVIÐUR ABAKKI ASKUR BEYKI EIK, japönsk EIK, Tasmania HNOTA IRAKO LIMBA MAHOGNY OREGON PINE PAU MARFIN RAMIN YANG TEAK WENGE PANELL A UTIHURÐIR úr harðviö HARDVIÐAR GÓLFLISTAR ÚR BEYKI, EIK. JELLUTONG MAHOGNY og TEAK GEREKTI á útihuröir úr OREGON PINE OG TEAK. Svalahurðir - Utihurðir - Gluggasmíði SÓGIN HF HOFÐATUNI 2. SIMI 22184.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.