Morgunblaðið - 09.08.1975, Side 20

Morgunblaðið - 09.08.1975, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGtJST 1975 % Norrænt kristilegt stúdentamót í Laugardals- höll 0 Fjöldi erlendra þátttakenda sem ... Torkennileg tunga ... réttir nokkuð úr gjaldeyriskútnum Er liður í margumræddu norrænu samstarfi torkennilega tungu talaða. Kemur f ljós að þetta er al- Bjuggumst við 500—600 Þrátt fyrir mikíð annriki gat Gíslf Jónasson sér tíma til að tala við tíðindamann Kross- gatna um undirbúning og fram- kvæmd norræna kristilega stúdentamótsins sem haldið er þessa dagana. Gísli er skrif- stofustjóri mótsins. Hvenær hófst undirbúningur að þessu móti? „Undirbúningur hófst fyrir tveim árum. Var þá stofnuð undirbúningsnefnd sem hóf þegar að starfa. Kannaði hún ferðir til landsins, útvegaði húsnæði sem átti að vera M.H. og leitað var tilboða í allan mat á mótið.“ Hvenær byrjaði sfðan innritun á mótið? „Hún hófst í marz og apríl sfðastliðnum. Við bjuggumst við í upphafi að fjöldinn yrði um 500—600 og var allur undir- búningur miðaður viðþað', en þegar tölur tóku að berast til okkar var Ijóst að fjöldi er- lendra þátttakenda mundi fara yfir 1000. Endanlegur fjöldi varð svo 1360. Þetta hafði það f för með sér að við urðum að færa allt mótssvæðið frá M.H. í stærsta fáanlega húsið i Reykjavík, Laugardalshöllina. Þessi flutningur gerði okkur talsvert erfitt fyrir en allt gekk þetta vel að lokum." Það hlýtur að hafa verið erfitt að taka á móti svona mikl- um fjölda og koma honum fyrir? „Jú, það var að mörgu leyti erfitt. Flugið dreifðist á svo langan tíma og fólkið kom á öllum tímum sólarhringsins. Fólkið var keyrt frá Keflavík- urflugvelli inn f Laugardals- höll. Þar fengu allir mótsgögn og upplýsingar um svefnstað. Sfðan voru Borgaryfirvöld svo almennileg að lána okkur strætisvagna til að flytja fólkið frá Laugardalshöll á svefnstað. Þetta gekk allt fljótt og vel fyr- ir sié. Vlð þökkum Gfsla greið svör. heimsmálið enska, sem hljómar næsta torkennileg hér í öllum samnorræna vaðlinum. Þetta eru þá tveir Bretar, sem komnir eru hingað út til mótsins. Annar þeirra, David Turner, kveðst hafa nýlokið Iögfræði- prófi frá Lundúnaháskóla og sé nú að taka sitt kandídatsár á lögfræðistofu. Hann er Norður- íri að uppruna, en hefur dvalið öll sín háskólaár í London. Turner segist hafa orðið kristinn fyrir áhrif vina sinna á N-Irlandi fyrir u.þ.b. fjórum ár- um. Hann er nú f svokölluðu landsráði Inter-Varsity Fellow- ship á Bretlandi (Universities and Colleges Christian Fellow- ship). Það segir hann vera sam- band smærri félaga (Unions), er starfa í hinum ýmsu háskól- um og kennaraskólum. Við .spyrjum þá, hvernig þessi félög hagi starfsemi sinni. Félögin hafa 8—10 manna framkvæmdanefnd. Innan hennar eru störf er vfkja að almennum stjórnarstörfum, en aðrir sjá um bóka-, bæna-, kristniboðs- og auglýsingamál o.s.frv. I félögunum eru margir bæna- og biblíuleshópar, sem hittast einu sinni f viku. I þeim eru 6—10 stúdentar, og koma þeir tíðum saman á stúdenta- görðunum og einnig ef færi gefst milli fyrirlestra. Þá eru og haldnir nokkrir stórfundir á misseri í skólunum, t.d. á laug- ardögum. Fred Hughes er starfsmaður IVF og hefur starf í kennarahá- skólum sem sérverkefni. Að sögn felst starfið i að halda tengslum við hin einstöku skólafélög með bréfaskriftum og heimsóknum. Á ferðalögum sínum tekur hann þátt í starfi félaganna, fundum og slfku. Hughes kveðst einnig vera for- svarsmaður svokallaðs náms- ráðs IVF. Þeir félagar segjast ekki hafa verið á Islandi áður, en séu hér boðsgestir Kristilegs stúdenta- félags. Norræna mótið nær einnig út á land I kaffiteriunni eftir eina kvöldsamkomuna hittum við sr. Jón Dalbú Hróbjartsson skóla- prest, sem er stjórnandi móts- ins: Verður eitthvað um að vera eftir mótið? „Fimm hópar stúdenta, þrfr frá Noregi og tveir frá Svíþjóð, munu fara út á land til sam- komuhalda, til Akureyrar, Akraness, Stykkishólms, Suðurnesja og þorpanna fyrir austan fjall. Bæði verða haldnar samkomur á þessum stöðum og tekið þátt í guðsþjón- ustum, einnig heimsóttar stofn- anir og fyrirtæki og rætt við fólk um kristna trú. Islendingar verða með hverjum hópi til að stjórna og túlka á samkomunum." Hversu lengi eftir mótið stendur þetta? „Þessi herferð mun standa f 4—5 daga þ.e. frá 13,—17. ágúst. Þetta er einstakt tæki- færi til að kynnast ungu fólki, sem tekur kristindóminn alvar- lega. Herferðirnar verða aug- lýstar á hverjum stað og er ástæða til að hvetja fólk til að fylgjast með auglýsingum og sækja samkomurnar vel.“ IkrdsseOtur 0 Það er ljóst að miklir fjár- munir eru 1 veltunni við þetta framtak. Sigurður Birgir Arn- þórsson viðskiptafræðinemi er gjaldkeri mótsins: „Heildarútgjöld eru nálægt 15 millj. kr. Stærstu liðirnir eru maturinn, sem við fáum frá (Jtgarði, 8—9 millj. kr.( hús- næðiskostnaður er rúmlega 3 millj. kr., aðrir liðir eru minni s.s. Skálholtsferð ailra móts- gesta, tæknibúnaður, túlkunar- kerfi, sem var sérstaklega búið fyrir mótið og skreyting." Hvernig er mótið fjármagn- að? „Það er að mestu með móts- gjöldunum sem nema rúmlega 13 millj. kr. þar að auki fáum við styrki og höfum notið mjög góðrar fyrirgreiðslu borgaryfir- valda. Auk þess koma til ýmis framlög.“ Er þá gert ráð fyrir að endar nái saman? „Öllum kostnaði er stillt mjög f hóf og honum haldið niðri. Mótsgjaldið hrekkur ekki fyrir öllum kostnaði eins og fram kom áðan en öll sjálf- boðavinna félagsmanna sem liggur að baki, basar og kaffi- terfa, kemur vonandi til með að hjálpa nokkuð upp á fjárhag- inn.“ Heim- draga hleypt Eins og fram kemur hér á síðun um verða farnar svonefndar Lelfur Þorsteinsson er einn af þeim sem hefur séö um ferðamálin, en eins og nærri má geta er mikið verk að sjá mörg hundruð manns fyrir skoðunarferðum. boðunarferðir eftir mótið en fyrir hinn almenna þátttakanda hefur ferðanefnd mótsins skipulagt nokkrar skoðunar- ferðir. Þótt megin tilgangur flestra- erlendu gestanna með ferðinni hingað sé mótið sjálft nota þeir að sjálfsögðu tækifær- ið til að skoða landið. Dags- ferðir verða farnar dagana 13. og 14. ágúst, um Reykjanes, Borgarfjörð og Gullfoss og Geysi og yfir 500 manns hafa pantað far til Vestmannaeyja. Ein Fokkervél Flugfélagsíns verður í þeim flutningum I einn og hálfan dag. Þrjár langar ferðir verða, ein norður á Sprengisand önnur í Þórsmörk og ein gönguferð f Hvanngil. Er búist við mjög mikilli þátttöku f öllum þessum ferðum, en meira en helmingur erlendu þátt- takendanna verður hér nokkra daga eftir mót. Síðustu móts- gestirnir fara héðan 19.— 20. ágúst. I einu horni salarins f Höllinni hittum við Hjalta Hugason guðfræðinema, þar sem hann var við bóksölu. Hjalti er í stjórn K.S.F. og hefur umsjón með bóksölu félagsins. Hvaða bækur selur þú hér? „Hér er mikill fjöldi erlendra titla, aðallega á ensku, auk þess nokkuð á fslenzku. Af íslenzkum bókum leggjum við aðaláherzluna á Biblíuna og þær bækur, sem K.S.F. hefur gefið út. Nýjustu bækurnar eru Smárit K.S.F. — fjögur fyrstu ritin f nýjum flokki. Ég ætla að reyna að leggja aðaláherzluna á skýringarrit, handbækur og annað þ.h. til aðstoðar við biblfulestur." Er mikil bókaútgáfa hjá hin- um stúdentafélögunum? „Kristileg bókaútgáfa á Norðurlöndunum virðist blóm- leg, hafa bæði Norðmenn og Svfar komið með rit til kynningar og taka þeir við pöntunum. Bækur voru einnig sendar á mótið frá Danmörku en þær lentu f sjópósti." Af hverju er svona útgáfa stunduð? „Yfirskrift þessa móts er: Orð Guðs til þín og bókaútgáfa kristilegra stúdentahreyfinga miðar að þvf sama, að veita Guðs orði til okkar, sem lifum f dag og í því starfi hlýtur hún að beita öllum leiðum f fjölmiðlun, sem kostur er þ. á m. bókaút- gáfu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.