Morgunblaðið - 09.08.1975, Page 22

Morgunblaðið - 09.08.1975, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGUST 1975 + Móðir okkar MARGRÉT ARNDÍS GUÐBRANDSDÓTTIR, Veghúsastíg 1 lést 7. ágúst. Börnin. + Eiginmaður minn TRYGGVI LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON Flókagötu 15. er andaðist 1. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudag- inn 1 1 ágúst kl 1 5.00 F.h barna, tengdabarna og barnabarna Una Svava Jakobsdóttir. + Útför sonar mlns, föður okkar og bróður BIRGIS EINARS SIGURÐSSONAR fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 1 2. ágúst kl. 3 e.h. Fyrir mlna hönd, dætra og systkina Petrína Jónsdóttir, Látraströnd 11, Seltjarnarnesi. + Þakka innilega hlýhug og hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns LEIFS ÞÓRHALLSSONAR, deildarstjóra, Karfavogi 54. Fyrir hönd aðstandenda Hildegard Þórhallsson. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar sonar mins og bróður HARÐARJÓHANNSSONAR. Friðrika Eggertsdóttir og systkini hins látna. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu við andlát og jarðarför konu minnar og móður okkar GUÐRÚNAR PÉTURSDÓTTUR, Hólmgarði 46. Sérstakar þakkir fyrir ágæta hjúkrun, og læknisþjónustu á Vífilsstaða- hæli. Gunnar Eysteinsson og börn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför SIGFÚSAR JÓNSSONAR, fyrrv. framkvæmdastjóra. Elín Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. + Systkinin frá Gauksstöðum og aðrir aðstandendur þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og útför JÓHANNESARJÓNSSONAR, Gauksstöðum, Garði. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viðandlát og útför FRIORIKS STEINSSONAR, bakara. Sérstakar þakkir til séra Sigurðar Sigurðarsonat Björgunarsveitarinnar Tryggva og lögreglunnar á Selfossi, einnig Hjálparsveit skáta Hafnar- firði Soffia Simonardóttir, Sigríður Friðriksdóttir, Árni Jóhannsson, Friðrik Friðriksson og barnabörn. Geir Vigfússon Hall- anda, Hraungerðishreppi F. 3. júlí 1900. D. 29. .ÍÚH 1975. Geir Vigfússon bóndi í Hall- anda f Hraungerðishreppi varð bráðkvaddur 29. júlf síðastliðinn. Utför hans verður gerð f dag frá Hraungerðiskirkju. Geir Vigfússon var fæddur 3. júlí 1900 á Eyrarbakka. Foreldrar hans voru hjónin Vigfús Vigfús- son, síðast bóndi f Hallanda, og Sigurveig Hildibrandsdóttir. Þau fluttust að Hallanda árið 1921, en hættu búskap borið 1924, er Geir tók við búinu og jörðinni. Geir ólst upp hjá foreldrum sín- um í Gaulverjabæjarhreppi, og var snemma bráðgjör og dugmik- ill til vinnu. En árið 1921 urðu þáttaskil í lífi hans, þegar foreldr- ar hans fluttust búferlum að Hall- anda. Hann trúlofaðist heima- sætu frá Langholti, Margréti, dóttur Þorsteins bónda þar. Þau giftust árið 1924 og reistu bú í Hallanda, hjáleigu frá Langholti. Kynni Geirs og tengdir við Langholtsfólkið hafði mikil áhrif á ævi hans og lífsstefnu. Bróðir Þorsteins, tengdaföður hans, Sig- urður alþingismaður Árnesinga og ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Islands, voru miklir áhugamenn um framfarir í íslenzkum land- búnaði. Þeir trúðu óhikað á mátt moldarinnar og framtíð sveitanna með vaxandi framförum og bætt- um ræktunaraðferðum. Geir Vig- fússon drakk þessa stefnu í sig, og var svo gagntekinn af henni, að hann vék aldrei frá henni. Þegar Geir hóf búskap í Hall- andi, var alls ekki bjart að sjá fram á leið í atvinnulífi landsins. Hoiskefla verðbólgu og verðbreyt- inga reið húsum á flestum aiþýðu- heimilum í landinu. Óróleiki ríkti í verðlagsmálum og margir misstu trúna á komandi tíma, möguleika og framvindu til bættra framfara og ræktunar í sveitum landsins. En ungi bóndinn í Hallanda, sneið sér stakk með vexti og vék aldrei frá hugsjónum æsku sinn- ar, sótti fram til vegs og gengis, eftir því sem hentugleikarnir leyfðu. Þegar veitt var fé til endur- 'bygginga gömlu og úreltu torf- bæjanna f sveitum landsins, var hann í tölu fyrstu bændanna, er sótti um lán til að byggja stein- steypuhús á jörð sinni. Með til- komu þess urðu mikil þáttaskil í + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ÞORLÁKSJAKOBSSONAR, verslunarmanns Blönduósi Þuríður Einarsdóttir og synir. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns mlns, föður, sonar, bróður og tengdasonar GUNNLAUGS HANNESSONAR bónda Litla-Vatnshorni, Dölum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness og allra er veitt hafa hjálp I veikindum hans Guð blessi ykkur öll. Ása Gisladottir og böm Stefanla Guðjónsdóttir Guðrún Jónasdóttir Ragnheiður Hannesdóttir Vlglundur Sigurjónsson Ólafur Hannesson Nanna Jónsdóttir. lffi fjölskyldunnar f Hallanda, og boðuðu henni meiri og fyllri breytingar á komandi tímum. Það hefur aldrei verið eftir- sóknarvert hlutskipti að vera hjá- leigubóndi á Islandi. En á lfðandi öld hefur sumum slfkum tekizt að lyfta grettistökum. Geir f Hall- andi er í hópi þeirra. Þegar hann tók við jörðinni Hallanda, var þar lítið tún og fremur illt til nytja, heyskapur á engjum lftill í nánd bæjarins nema veitusláttur lítill. Engjar voru langt frá bænum, fremur litlar og í flestum árum snöggar. Eftir að Flóáveitan fór að bera ávöxt breyttist heyfengur mjög til batnaðar, og urðu þá möguleikar til bætts efnahags, sem Geir notaði síðar til aukinnar ræktunar, eftir að stórvirk tæki komu til túnræktunar. Honum tókst að margfalda túnin í Hall- anda og gera þau víðlend og grös- ug, svo að margt höfuðbólið á ekki á líðandi stund svo stór tún. Geir í Hallanda varð lengi vel að sækja frá heimili sínu til vinnu. Hann var margar vertíðir í Vestmannaeyjum og stundaði þar sjóvinnu. Hann var duglegur verkamaður að hverju sem hann gekk, og var mjög eftirsóttur til slfkra starfa. Hann var sérstak- lega góður félagi, skemmtilegur og raungóður, hjálpsamur og úr- ræðagóður. Geir f Hallanda var mikill gleði- maður, sannur og skemmtilegur á góðri stund. Hann starfaði mikið og lengi f ungmennafélagi sveitar sinnar, var þar ávallt búinn og boðinn til starfs. Hann kunni manna bezt -að skila hlutverki á Ieiksviði, sérstaklega skophlut- verkum. Hann kunni vel að móta persónuna sem hann tók að sér, gera henni góð skil, heillandi og skopleg, sérkennda af kímni hans sjálfs og vilja. Leikurinn var hon- um eðlilegur og þvingunarlaus, jafnt í framkomu og framsetn- ingu. Ég minnist þess að f æsku minni vakti leiklist hans hjá mér sanna kátfnu og var til mikillar skemmtunar. Geir var gleðimaður í hópi vina, kunni vel að segja frá og gera frásögn sína heillandi í látleysi og fábreytileik hins einfalda. Hann kunni vel að herma eftir, og gerði það án afskæmis og án þess að meiði um of þá sem í hlut áttu. Þar komu leikarahæfileikar hans líka fram í sinni fullu og hrif- næmu fyllingu. Ég þekkti Geir Vigfússon frá blautu barnsbeini, og hafði oft talsverð skipti við hann, sérstak- lega, þegar ég var samtýmis hon- um sumarlangt. I heimi minning- anna ber hann hæst, sem mann hinnar sönnu og falslausu gleði, jafnt við dagleg störf og á góðri stund, eða á leiksviðinu, þar sem hann skemmti sveitungum sínum' af sönnum hug. Hjónin f Hallandi, Geir og Margrét, eignuðust sex börn og ólu þar að auki upp einn dreng. Þau eru: 1. Helga, ógift í Reykjavík. 2. Sigurveig, gift Ingimar Ingi- marssyni, flugumferðarstjóra í Garðakauptúni. 3. Sigurbjörg, gift Hauki Gísla- syni hreppstjóra á Stóru- Reykjum. 4. Karftas, gift Jens Árna Ingi- mundarsyni í Reykjavík. 5. Margrét, gift Eirfki Kúld Sig- urðssyni bifreiðastjóra í Reykja- vík. 6. Öskar kvæntur Sigríði Ölafs- dóttur, búa á Selfossi. 7. Hörður Hansson, fóstursonur- inn, kvæntur Svanlaugu Eiríks- dóttur; eiga heima á Selfossi. Einnig átti Geir son áður en hann giftist, Reynir, sem er raf- virki og vinnur við Vélskólann í Reykjavík, kvæntur Guðlaugu Elíasdóttur. I Hallanda var oft mannmargt á sumrin, unglingar og börn sóttust eftir því að vera í návist Geirs bónda. Oft dáðist ég að því, hve þau unnu honum og báru hlýjan hug til hans eftir sumarlöng kynni. A fáum bæjum í Hraungerðis- hreppi er jafnkvöldfagurt og f Hallanda, sérstaklega nýtur sín þar vel sólarlag á björtu kvöldi um hásumar. Sólin merlar hið gróna land með margskonar lit- brigðum, allt vestur að bökkum ölfusa'r og Hvítár á mótum Sogs- ins, þar sem það blandast tært og hreint jökulvatninu af hálendinu. Lengra er vörðurinn mikli,Ing- ólfsfjall og austar Grímsnesið, klætt skógi eða Hraunin eins og það ver nefnt að utanverðum Flóa, áður fyrr. Það var'einmitt á slíku kvöldi, er ég hitti Geir bónda Vigfússon í hinzta sinn á heimili sínu. Þá var mér ekki f huga, að það yrði í síðasta sinn. En stundin er hröð og heimslífið skammt, og himinn mikill... Ég flyt Margréti Þorsteinsdótt- ur og systkinum frá Hallanda mínar fyllstu samúðarkveðjur við útför Geirs Vigfússonar, og jafn- framt öðrum aðstandendum og vinum. Jón Gfslason. KVEÐJUORÐ I dag verður til moldar borinn Geir Vigfússon bóndi á Hallanda í Hraungerðishreppi í Arnessýslu. Hann lést 29. júlí síðastliðinn. Þáttaskil hafa orðið f lífi góðs drengs, þegar jarðvistardögum hans lýkur og hann heldur á nýjar brautir. Geir bjó alla tíð á Hallanda, en þá jörð ræktaði hann og hýsti á sinni búskapartíð, svo að til fyrirmyndar var. Hann hætti búskap fyrir fáum árum, en bjó áfram á jörð sinni. Við bú- stofni og jarðarnotum tók þá sonur hans. Með sanni má segja að Geir hafi alla tíð verið sá mátt- arstólpi, sem hvert byggðarlag sækist eftir, ötull og öruggur. • Geir var mjög heilsteyptur maður og skoðanafastur og rök- viss, heillyndur og hollráður, og mjög sannspár. Hann var mjög vel gefinn og hugði vel að hverju máli, áður en hann kvað upp sinn dóm, en þó skjótráður. Leituðu því margir álits hans á málum og málefnum. Reyndist það ávallt vel. A yngri árum starfaði Geir mikið með ungmennafélagi sveit- ar sinnar og var þá um áraraðir einn ötulasti maður leiklistar- innar og lék þá af lífi og sál öllum til ánægju. Dýravinur var hann mikill og sannur unnandi hesta- mennsku, enda átti hann góð hross. Síðasta skipti, sem fundum okkar bar saman, 3 dögum fyrir andlát hans,mun ávallt verða mér minnisstætt, því að þá hitti ég Geir hvað glaðastan og hressastan um árabil. Hann lék á alls oddi. Ungur á árum gekk Geir að eiga hina mætustu konu, Margréti Þorsteinsdóttur frá Langholti f Hraungerðishreppi. Hún var Geir góð kona og voru samvistir .þeirra eins og bezt verður á kosið. Þau eignuðust 7 börn og eru 6 á lífi. Fjölskylda Geirs kveður hann með þakklæti fyrir allt. Ingimar Ingimarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.