Morgunblaðið - 09.08.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.08.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 9. ÁGUST 1975 Hand- knatt- leiks- fréttir KnattspyrnumaSurinn þjálfar handknattleiksmenn KA . . . Hörður Hilmarsson, knattspyrnu- maður úr Val og landsliðsmaður í þeirri grein, verður að öllum líkindum þjálfari handknattleiksmanna KA næsta vetur. Hefur Hörður undanfarna vetur verið leikmaður með KA í handknattleiknum og þá jafnan einn besti leikmaður liðs- ins Halldór Rafnsson, sem þjálfaði KA, er fluttur til Dalvíkur þar sem hann þjálfar Dalvíkinga í flestum þeim íþróttagreinum, sem þar eru stund- aðar Bliki og Völsungur bætast í KA-hópinn Hörður Már Kristjánsson sem síðastliðinn vetur varð markahæsti leik- maðurinn í 2. deild, hefur ákveðið að ganga úr Breiðablik Tvö lið eru efst á listanum hjá Herði, KA í 2 deild og Grótta í 1. deild Hörður var fyrír nokkru fyrir norðan og ræddi við for- ráðamenn Akureyrarliðsins um hugsanleg félagaskipti og bendir allt til þess að Hörður Már leiki í KA- búningnum næsta vetur Þá hefur Húsvíkingurinn Sigurður Sigurðsson ákveðið að flytjast til Akur- eyrar og leika með KA Sigurður er geysilega öflugur skotmaður og hefur verið bezti leikmaður Völsunga undan- farin ár. Er ekki að efa að Hörður og Sigurður verða KA mikill liðsstyrkur og ekki veitir liðinu af þvi þar eð Geir Friðgeirsson leikur ekki, en hann var einn sterkasti leikmaður liðsins i fyrra Vilberg í bæinn Linumaðurinn snjalli úr Ármanni Vil- berg Sigtryggsson, hefur undanfarið ár búið á Akranesi Nú mun Vilberg hins vegar vera að flytjast til Reykjavikur aftur og mun þá væntanlega leika með sínu gamla félagi, Ármanni, i vetur og er ekki að efa að þessi sterki varnar- maður og lagni linumaður á eftír að efla stöðugt vaxandi Ármannslið. Valsmenn fá markmann en missa Ágúst Ögmundsson Hinn efnilegi markvörður ÍR-inga, Hákon Arnþórsson, hefur gengið i raðir Valsmanna og æfir af krafti með þeim undir stjórn Hilmars Björnssonar Hákon lék með ÍR-liðinu siðastliðinn vetur og eínnig hefur hann leikið i unglingalandsliði Þá hefur heyrst að Ágúst Ögmunds- son hafi lagt skóna á hilluna og ætli ekki að leika með næsta vetur Aldrei er þó að vita nema þessi leikreyndi landsliðsmaður sjáist aftur á fjölunum þegar líður á keppnistímabilið. Hermann sankar að sér knattspyrnumönnum Hermann Gunnarsson verður þjálfari Leiknismanna í handknattleik næsta vetur, en liðið vann sig upp úr 3 deild siðasta keppnistímabil með miklum glæsibrag. Hafa Leiknismenn misst Guðgeir Leifsson úr sínum röðum, en aðrir knattspyrnumenn munu koma í hans stað Þannig munu Framararnir Jón Pétursson og Marteinn Geirsson ætla að æfa með Leikni i vetur, en þeir voru báðir hér á árum áður liðtækir handknattleiksmenn Handknattleiksskóli á Laugarvatni í dag hefst á Laugarvatni skóli fyrir ungt handknattleiksfólk undir leiðsögn Hilmars Björnssonar Eru það 45 piltar og 30 stúlkur á aldrinum 1 5— 1 9 ára sem verða nemendur skólans, en hann starfar næsta hálfa mánuðinn LIÐ VALS: Sigurður Haraldsson 2, Vilhjálmur Kjartansson 1, Grímur Sæmundssen 2, Magnús Bergs 2, Dýri Guðmundsson 2, Bergsveinn Alfonsson 1, Atli Eðvaldsson 1, Hörður Hilmarsson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Albert Guðmundsson 3, Hermann Gunnarsson 2, Ingi Bjöm Albertsson (varam ) 1. LIO FH: Ómar Karlsson 3, Jón Hinriksson 2, Magnús Brynjólfsson 1, Gunnar Bjarnason 3, Pálmi Sveinbjörnsson 1, Viðar Halldórsson 1, Ólafur Danlvalsson 2, Þórir Jónsson 3, Leifur Helgason 1, Logi Ólafsson 1, Helgi Ragnarsson 1, Jóhann Rikharðsson (varam.) 1. Viðar Halldórsson skoraði sigurmark FH-inga I leiknum í gærkvöldi FH-ingar gerðu sér lltið fyrir í gær- kvöldi og unnu Val með tveimur mörkum gegn einu f 1. deild íslands- mótsins i knattspyrnu. Þessi úrslit eru þó algjör andstæða við gang leiksins þar sem Valsliðið var sterk- ara frá fyrstu mfnútu til þeirrar síðustu. Áttu Valsmenn meðal annars fjögur hörkuskot f stengur eða þverslá FH-marksins og tækifæri þeirra önnur voru mýmörg í leiknum. Oft hefur maður orðið vitni að órétt- látum úrslitum, en sjaldan þó eins og i gærkvöldi en meðan lið getur ekki skorað er rétt að spara hrósyrðin. FH-liðið gerði einn hlut vel f leikn- um i gær. Leikmenn liðsins, — allir sem einn, — börðust eins og Ijón og gáfust ekki upp þó að á móti blési. Baráttunni geta þeir þakkað þennan sigur, en ekki eingöngu. þvi að án heppninnar hefði liðið ekki riðið feitum hesti frá þessari viður eign. Eru FH-ingar nú komnir með 11 stig i deildinni og eru öruggir með að verða ekki i neðsta sæti. Þeir eru reyndar mun nær toppnum og gætu þess vegna blandað sér í topp- baráttuna. Draumar Valsmanna um verð- launasæti i mótinu eru nú orðnir litlir sem engir. Liðið er með 10 stig og á þrjá leiki eftir. Með þvi að vinna þá alla gætu stigin að vísu orðið 1 7, en hæpið er að það nægi til að ná sæti sem tryggir Evrópukeppni. FH tekur forystu Hafnfirðíngarnir mættu til leiksins í gærkvöldi án sins bezta manns, Janusar Guðlaugssonar, sem brá sér á skfði upp i Kerlingarfjöll. Áttu því flestir von á þvi að mótspyrna FH- inganna yrði lítil og undrunin varð mikil þegar Leifur Helgason skoraði fyrsta mark leiksins fyrir FH þegar á 12. minútu. Logi Ólafsson sendi knöttinn inn i teig Valsmanna og skoppaði knötturinn á milli sofandi Valsmanna, þar til Leifur kom að og sendi hann með lausu snúningsskoti i mark Valsmanna uppi undir slá. Hermann kvittar Eftir laglegan undirbúning Alberts Guðmundssonar tókst Hermanni Gunnarssyni að skalla knöttinn i mark FH-inga á laglegan hátt á 38. mfnútu leiksins. Minútu áður hafði Hermann átt gott skot að marki FH- inga af stuttu færi, sem Ómar varði meistaralega með þvi að slá knöttinn F þverslá og þaðan hrökk knötturinn út á völlinn. Á sfðustu mínútu fyrri hálfleiksins kom annað stangarskot Valsmanna. er Atli Eðvaldsson átti þrumuskot utan í stöng FH- marksins. Sigurmark fyrirliðans Seinni hálfleikurinn var svo enn meiri einstefna að marki FH-inga en sá fyrri og var knötturinn langtímum saman við vitateig FH-liðsins. Ekki tókst Valsliðinu þó að skora, en úr einu hættulegu sókn FH-liðsins i seinni hálfleik fór knötturinn í net Valsmanna. Það var Viðar Halldórs- son sem skallaði knöttinn i mark Vals eftir að Ólafur Danivalsson hafði gefið fyrir markið. Eftir markið varð enn meiri þungi í sókn Valsmanna og á 80. minútu leiksins skallaði Guðmundur Þor- björnsson fyrst i slá FH-marksins. knötturinn barst út i teiginn til Inga Bjöms Albertssonar, sem sendi knöttinn á nákvæmlega sama stað á þverslánni og aftur hrökk knötturinn út i teiginn, en næsta skot Vals- manna fór hátt yfir. Framhald á bls. 31 Valur skaut í stengurnar meðan FH skoraði 2 mörk UBK undir nafni UMSK í Bikar- keppni FRÍ BIKARKEPPNI FRÍ hefst á Laugardals- vellinum i dag klukkan 14 og verður haldið áfram á sama tlma á morgun. Frá þvi var skýrt í gær að UBK tæki þátt i keppninni ! stað UMSK, en UBK er eitt af 10 sambandsfélögum UMSK. Þessu hefur nú verið breytt og það verður UMSK sem sendir lið til keppn- innar. Það er hins vegar önnur saga að í liði UMSK verða sennilega eingöngu félagar úr Breiðabliki — UBK Ragn- hildur Pálsdóttir úr Stjörnunní gæti þó orðið í liðinu, — ekki vantar hana getuna Spurningin er sú hvort hún hefur áhuga á að keppa með Breiða- bliksfólkinu og hvort Breiðabliksmenn telja hana löglega, en Ragnhildur hefur keppt fyrir norska félagið BUL í sumar. Meiðsli hrjá leik- menn íA og ÍBV Bæði dýrt og erfitt að detta úr bikarnum ÞEIR lögðu á sig mikið erfiði Þróttararnir frá Neskaupstað í bikarkeppninni í ár. Þeir drógust á móti ÍBV í Vestmannaeyjum í 16-liða úrslitunum. Leikurinn átti að fara fram á þriðjudaginn en það reyndist ekki unnt vegna þess að ekki var flugveður. Biðin þann daginn var því til ónýtis hjá Þrótturunum og sömuleiðis dag- inn eftir. Á fimmtudag var loks flugveður og var lagt af stað með Vængjavél klukkan fimm. Leikurinn hófst klukkan átta og frá Vestmannaeyjum var farið klukkan hálftólf. Nokkru eftir miðnætti var vélin yfir Norðfirði, en þar reyndist ólendandi vegna þoku. Varð vélin að lenda á Egils- stöðum og þar urðu leikmennirnir að útvega sér bflferð niður á Nes- kaupstað. Þangað var ekki komið fyrr en klukkan sex í gærmorgun. Og of an á allt var minnst hundrað þúsund króna tap fyrir félagið af ferðinni og þátttöku í leiknum! MEIÐSLI hrjá nokkra af sterkustu leik- rtiönnum Akurnesinga og Eyjamanna, en þessi lið leiða saman hesta sína á Skipaskaga í dag Er t d. talið ólíklegt að Jón Gunnlaugsson og Teitur Þórðarson leiki með Skagamönnum I dag og þeir Jóhannes Guðjónsson og Davlð Kristjánsson markvörður eru einnig meiddir. Af Vestmanneyingum er Ársæll Sveinsson meiddur og Sveinn bróðir hans hefur tekið sér hvíld frá knattspyrnunni. Þá er einnig óvist, að Tómas Pálsson verði með vegna meiðsla. Þrátt fyrir þessi áföll ætti leikur ÍA og ÍBV i dag að geta orðið skemmtilegur og Skagamenn hafa harma að hefna, því að þeir töp- Dregiðí 8-liða úrslitum bikarkeppninnarí gær: uðu fyrri leik þessara liða í Vestmanna- eyjum. i Keflavlk leika heimamenn við Vik- inga i dag og verður þar örugglega um hörkuleik að ræða, eins og ævinlega er þessi lið mætast. Hafa Vikingar ekki tapað leik i Keflavík undanfarið, en úrslitin oftast orðið jafntefli. Báðir leikirnir i 1. deild i dag hefjast klukkan 16 og þess má geta að leikn- um á Skaganum verður lýst. í 2 deild fara fram fjórir leikir um helgina. Breiðablik og Völsungur leika i Kópavogi klukkan 15, Ármann og Reynir leika á Melavelli klukkan 1 6 og á sama tima hefst leikur Vikíngs og Hauka á Ólafsvík Á morgun leika svo Selfoss og Þróttur á Selfossi og hefst leikur þeirra klukkan 20. KR-ingar heppnina KR-INGAR höfðu heppnina með sér í gær er dregið var um það hvaða lið Ieika saman í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Eiga KR-ingar að leika gegn Þór á Akureyri í næsta leik sínum i keppninni. Eftirtalin lið leika annars saman í 8-liða úrslitunum: Víkingur — Keflavfk FH — Akranes Valur — Vestmannaeyjar Þór — KR Sjálfsagt hafa forráðamenn allra liðanna sem eftir eru í keppninni óskað þess að lið þeirra höfðu með sér KR vann í fyrrakvöld -hvemig fer á morgun? EFTIR að hafa verið sterkari aðilinn á móti golunni í fyrri hálfleiknum á móti Fram I bikarkeppninni I fyrrakvöld, snerist dæmið við og það voru KR- ingar sem sóttu öllu meira í seinni hálfleiknum Þeim tókst þá að skora tvö mörk og tryggja sér þar með sigur I leiknum Atli Þór Héðinsson og Hálf- dán Örlygsson skoruðu mörkin, en Árni Stefánsson landsliðsmarkvörður hefðí auðveldlega átt að geta ráðið við bæði skotin. En Árni átti ekki góðan dag á fimmtudaginn frekar en aðrir félagar hans í Framliðinu, KR-ingar sýndu hins vegar oft laglega spretti I leiknum, einkum þó I siðari hálf- leiknum Þeir Haukur Ottesen, Stefán Örn Sigurðsson og Atli Þór Héðinsson voru sterkustu menn KR-liðsins að þessu sinni. Á morgun mætast KR og Fram aftur, en að þessu sinni I 1, deildarkeppn- inni. Fer leikurinn fram á Laugardals- vellinum og hefst klukkan 20 Verður fróðlegt að sjá hvor aðilinn hefur betur þá lenti gegn Þórsliðinu, sem leikur í þriðju deild, en hin liðin sem eftir eru leika öll í 1. deild. KR- ingarnir fengu „stóra vinning- inn“ og ættu að vera nokkuð öruggir með að komast í undan- úrslit, þó að liðið berjist fyrir lífi sínu í 1. deild. KR-ingar eru þó ekki búnir að sigra Akureyring- ana, sem hafa leikið mjög góða knattspyrnu f sumar miðað við það sem almennt gerist í 3. deild. Að sjálfsögðu eru allir leikirnir I bikarkeppninni úrslitaleikir og mikið er í húfi fyrir liðin að standa sig vel því bæði er um fé að tefla og rétt til að leika f Evrópukeppni. Það er þó hvim- leitt að leikir sörnu liða skuli vera tvisvar í viku. Þannig lék KR við Fram í bikarnum í fyrradag og þessi lið mætast aftur í deildinni á morgun. Vfkingur leikur gegn ÍBK á morgun og aftur á miðviku- daginn í bikarnum. Valur og IBV eiga sömuleiðis að leika í bikarn- um á miðvikudaginn og um næstu helgi eiga Valsmenn að leika gegn IBV í Eyjum. Við þessu verður þó ekkert gert, f bikarkeppninni er það tilviljun sem ræður. Leikirnir eiga allir að fara fram á miðvikudaginn í næstu viku, en þar sem tveir leikjanna eiga að fara fram í Reykjavík, verður öðrum leiknum væntanlega flýtt eða seinkað. ATLI ÞÓR fagnar marki slnu I leiknum í fyrrakvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.