Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÖBER 1975 3 Eskifjörður: Sprengja úr þýzkri hervél látin liggja í reiðuleysi Flugvélasprengjan þar sem hún liggur f grjúturð á Völu- hjalla. ÞAÐ var á uppstigningardag í maf árið 1941, að þýzk herflug- vél fórst er hún rakst á Krossa- nesfjall norðanvert í mynni Reyðarfjarðar. Flugvélarflakið hefur allt síðan legið á svo- nefndum Vörðuhjalla og það sem meira er f flakinu hefur allan þennan tfma legið virk sprengja. Ýmsir þar.um slóðir hafa áhyggjur af sprengju þessari en hefur ekki tekizt að draga athygli yfirvalda að hætt- unni sem þvf er samfara að láta sprengjuna liggja þarna f reiðuleysi. Sunnudaginn 21. september sl. fóru þeir Geir Hólm og Hreggviður Guðgeirs frá Eski- firði til að skoða sprengjuna. Hreggviður tjáði Morgun- blaðinu, að hann furðaði sig á þessu kæruleysi að láta spengjuna liggja í 34 ár án þess að ganga úr skugga um það hvort sprengjan væri hættu- laus. Að sögn Hreggviðs mun sýslumanni Suður-Múlasýlsu hafa verið sagt frá sprengjunni en af hans hálfu var ekkert aðhafst f málinu. Ári síðar var Slysavarnafélagi Islands til- kynnt um sprengjuna, en þar var því svarað til að upplýsing- arnar yrðu að koma frá öðrum aðilum, og þá líklega sýslu- manni. Síðan Ieið enn og beið eða allt til þess að erindreki Almannavarna var á ferðinni eystra nu nýlega og var honum þá sagt frá þessu máli. Mun hann hafa skýrt Landhelgis- gæzlunni frá sprengjunni en ennþá hefur ekkert verið að- hafst. Fóru þeir félagarnir Geir og Hreggviður því ferð sina að flakinu á Vörðuhjalla, ekki hvað sízt í þeim tilgangi að vekja athygli alls almennings á sprengjunni. Magasfn-skothylki úr hrfðskotabyssu en fyrir aftan hálfur skósóli sem fannst þar hjá. (Ljósm. Hreggviður Guðgeirs) Geir Hólm og Hreggviður Guðgeirs, sem ferðina fóru Annar mótorinn virðist vera 12 strokka V-mótor. Kanaríeyjar 1975—1976 Brottför: 30. okt. 20. nóv. 4. des. 11 des. 18. des. 29. des. 8. jan. 1 5. jan. 29. jan. 5 feb. 12. feb. 26 feb. 4. marz. 25. marz 1. apr. 1 5. apr. 22. apr. 3 vikur 3 vikur 2 vikur 1 9 dagar 3 vikur 18 dagar 3 vikur 3 vikur 2 vikur 3 vikur 3 vikur 2 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 2 vikur 3 vikur uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt uppselt Allir fara í ferð með ÚTSÝN rSýnmgar Kaupmanná höfn Brottför: 12. okt. Clothing fair Brottför: 23. nóv. Furniture industry Brottför: 14. feb Scand. menswearfair Brottför: 1 3. marz Scand. fashion week Brottför 23. apr. Scand. gold & silver fair Verð frá kr. 38.300 SKÍÐAFERÐIR til Lech í Austurriki Brottför 15. jan. og 7. febr. l,erS meS gistingu og Vi Banckok og Pattaya Ógleymanleg ævintrýaferð Brottför: 1 9. des 15 feb. Kenya Brottför: 13. marz Safari og vikudvöl við London Ódýrar vikuferðir Brottför október: 5., 12., 18. nóvember: 1 8 15. 22. 29. Verðfrá kr. 38.000 Glasgow Helgarferðir Brottför: 10. og 24. okt. 7. og 21. nóv. Verðfrá kr. 27.500 FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SÍMAR 26611 OG 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.