Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTOBER 1975 GARÐAHREPPUR Blaðberi óskast í Arnarnesið IHflr&unfrlaKfc Upplýsingar í síma 52252 Vorhoðakonur, Hafnarfirði Aðalfundur félagsíns verður haldinn í Sjálf- stæðishúslnu mánudaginn 20. október kl 8.30. Dagskrá. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á þing landssambands sjálf- stæðiskvenna. Frú Ragnhildur Helgadóttir verður gestur fundarins. Stjórnin Launþegaráð Reykjaneskjördæmis Framhaldsstofnfundur Launþegaráðs Reykjaneskjördæmis, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarfirði, þriðjjdaginn 21. október 1975 kl. 20.30. Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráðherra og Gunnar Helgason, for- maður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins mæta á fundinn. MatthíasÁ. Mathiesen Gunnar Helgason. Allt Sjálfstæðisfólk í kjördæminu í launþegastétt, velkomið á fundii meðan húsrúm leyfir. , Undirbúningsnefnd, Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi Vestra, verður haldinn laugardaginn 25. okt. n.k. kl. 14 í sjálfstæðishúsinu á Siglufirði. Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í Langholti, verður haldinn sunnudaginn 19. okt. kl. 4 e.h. að Langholtsveg 124, Rvík. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Styrmir Gunnarsson ritstj. flytur ræðu og svarar fyrirspurnum. Stjórnin. VÖRÐUR / VÖRÐUR Landsmálafélagið Vörður heldur almennan félagsfund miðvikudaginn 22. október kl. 20.30 í Átthagasal, Hótel Sögu. Dagskrá: Kjör uppstillingarnefndar. Varðarfélagar eru hvattir til að fjölmenna. Átthagasalur — miðvikudaginn 22. október — kl. 20.30 — Eins og mér sýnist Framhald af bls. 25 tekur hnefafylli af heiðurs- merkjum úr vasa sfnum og rað- ar þeim á sængina. Nei, hvflfk dýrð! hvislar er lendi fjármálasnillingurinn og ranghvolfir f sér augunum. Ó. hvílikir hlunkar! Þú verður eins og nýrikur Hottintotti eða flóð- lýsti gosbrunnurinn i Tivolíl Já, það er partý hjá okkur i kvöld, svarar íslenski snilling- urinn. Við ætlum að splæsa á okkur smáveislu á ráðstefn- unni. Það voru þónokkuð margir sem misstu af ræðunni minni i gær og eru þessvegna ennþá rólfærir. Ó, fyrir hvað fékkstu öll þessi heiðursmerki? hvíslar er- lendi fjármálasnillingurinn með hrygluna i hálsinum. Fyrir embættisstörf auðvit- að, svarar íslenski snillingurinn og leggur eyrað að maganum á honum. Læge! Læge! Doktor! Doktor! Kom som en pile! Haldið þið ekki að helvitist monsjúrinn sé hrokkinn uppaf rétt einu sinni! — Stuttsíðan Fi amhald af bls. 14 Einn þessara manna var Frank Stokes, sem var ættaður frá Seantobia i Tate-hreppi i Mississippi. Hann hljóðritaði 40 lög frá ágúst 1927 til september 1929 ýmist einn eða með gitar- leikarnum Dan Sane eða fiðlu- leikaranum Will Batts. Tónlist Stokes er róleg, taktföst og bar einkenni þess, að hún hafði þróazt sem danstónlist. Frægasta lag Frank Stokes var án efa Mr. Crumb don't like it", en Crumb þessi var borgarstjóri i Memphis og barðist á móti hinu mikla skemmtanalifi borgarinnar. Annar vinsæll bluessöngvari, sem starfaði i Memphis, var Jim Jack- son, sem var fæddur i Hernando, Mississippi, i kringum 1880. Hann hljóðritaði 43 lög frá októ- ber 1927 fram i febrúar 1930. Frægasta iag hans var Kansas City Blues, sem sagt er að hafi selst i meira en milljón eintökum. Jim Jackson tilheyrði eldri kynslóð blues-söngvara, þvi meðal laga, sem hann hljóðritaði, eru lög eins og Attesitation Blues og „Old Dog Blue" sem bæði eru algeng þjóð- lög i Suðurrikjunum. Robert Wilkins er lika frá Hernando, M isifissippi, fæddur þar 1896. Hann er enn á lífi en þeir Frank Stokes og Jim Jackson eru löngu dánir. Wilkins er mjög fær gitar- leikari og vann fyrir sér i Memphis með að spila undir hjá svokölluð- um „medicine shows". Þegar Robert Wilkins fannst aftur 1964 hljóðritaði hann eina LP plötu. þar sem eitt af lögunum heitir „The Prodigal Son". Þetta sama lag settu Rolling Stones á plötuna Beggar's Banquet og sögðust hafa samið það. Siðan urðu þeir að greiða Robert Wilkins höfundar- laun. Furry Lewis fæddist i Green- wood. Mississippi, 1893. Hann fluttist til Memphis skömmu eftir aldamótin og byrjaði þá að læra á gítar. Hann er mjög fær gitarleik- ari eins og plöturnar hans sýna og notar mikið bottleneck. eða þá hnif til að fá fram sérstakan hljóm úr efri strengjum gitarsins. I Memphis störfuðu lika hinar svo kölluðu „Jug bands". Þeirra frægastar voru Memphis Jug Band og Gus Gannon's Jug Stompers. Hljóðfæraskipanin hjá þessum hljómsveitum var yfirleitt gitar, mandólin eða banjo, kazoo eða munnharpa og krús, sem blás- ið var í til að ná fram bassa. Það er vitað, að „jug bands," byrjuðu i Louisville, Kentucky, i kringum 1915. Siðan breiddust þær út. Skömmu eftir 1920 voru sex jug- hljómsveitir i Memphis. Þessar hljómsveitir voru jafn vinsælar hjá hvitum og svörtum. Mississippi-bluesnum hefur ver ið all vel lýst i fyrri grein, svo ekki þykir ástæða til að endurtaka það hér, en rétt er að taka það fram, að það var rúm fyrir fleiri stefnur i bluestónlist fylkisins en þá, sem Charlie Patton, Son House og Willie Brown urðu frumkvöðlar að. í Jackson, höfuðborg fylkisins, voru þeir Tommy Johnson og Ishmon Bracey upphafsmenn tón- listar, sem byggðist mikið á sam- spili tveggja strengja hljóðfæra, lítilli notkun „slide gitars" og i þriðja lagi var algengt að taktur- inn breytist innan sama lagsins. Helztu gitarleikarar, sem spiluðu í þessum stíl, voru Charlie McCoy, Walter Vincent, Arthur Pettis, Bo Carter og Willie Lofton. Frægasta lag Tommy Johnson er tvimæla- laust „Big Road Blues" sem hvita blues-hljómsveitin Canned Heat hefur hljóðritað og nafn hljóm sveitarinnar er tekið eftir einu laga Johnsons „Canned Heat Blues", sem fjallar um brugg- tegund nokkra, sem Johnson drakk mikið á bannárunum. Frægasti bluessöngvarinn frá Texas og sá fyrsti, sem komst á plötu var Blind Lemon Jefferson frá Couchman, Texas, þar sem hann var fæddur 1897. Hann var blindur frá fæðingu og til þess að geta unnið fyrir sér á einhvern hátt lærði hann á gitar. Hann fór til Dallas 1917 og varð brátt þekktur um öl! Suðurríkin, þvi hann hafði bil og ökumann til umráða. Hann var einn af fyrstu country bluessöngvurunum til að komast á plötu, snemma á árunum 1926. Hann varð fljótt ótrúlega vinsæll og plötur hans seldust i metupplögum. Ef hlustað er á plötur hans heyrist strax. að hann er frá Texas. en hann hefur greinilega orðið fyrir áhrifum viða að. Tónlistarstill Jeffersons er þannig að söngurinn og gítarspilið eru að miklu leyti óháð hvort öðru. Gitarinn er notaður sem andsvar við söngnum og augljóst er að Jefferson lék mikið af fingr- um fram. Jefferson var tvimæla- laust færasti gitarleikari frá Texas fyrir kreppuna. Jefferson varð úti i byl i Chicago, snemma ársins 1928. Aðrir athyglisverðir söngvarar frá Texas voru Texas Alexander, Henry Thomas, Little Hat Jones og Remling Thomas. jA " ' V'' i """ í ■ jgt ■ v ■. v ■ 1 ' f tungumálanámskeið á plötum. Einfalt — hagnýtt. Verð aðeins 1690,- kr. 8 plötur, 33ja snúninga. 2 hefti, erlendur texti, íslenzk þýðrng. Enska — þýzka — spænska — franska — italska — danska — sænska — norska — finnska — rússneska. Nokkur námskeið fyrirliggjandi á kassettum: enska, þýzka. franska. italska, verð 2.100. . Skrifið eða hringið i sima 94-3352 virka daga nema laugardaga klukkan 13—17. Lærið nýtt tungumál fyrir næstu utanlandsferð. pósthólf 46, ÍSAFIRÐI. Salval VÖRUBÍLAÚRVALIÐ ER HJA OKKUR Volvo 89 m/búkka og Robsondrifi árg. 1974 Volvo 88 m/búkka árg. 1967 Volvo 86 m/búkka árg. 1974 Volvo 86 árg. 1974 Scania 110 m/búkka árg. 1972 Ford W 9000 3ja hásinga ' árg. 1974 G.M.C. Astro 3ja hásinga árg. 1973 Mercedez Benz 1.519 árg. 1973 Mercedes Benz 1.513 m/túrbínu árg. 1968 Mercedes Benz 1.920 m/búkka árg. 1965 Bílasala Matthíasar, v/ Miklatorg, simi 24540. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: FÓSTRA óskast til að taka að sér forstöðukonustarf á dagheimili fyrir börn starfsfólks frá 15. nóvember n.k. eða eftir sam- komulagi Nánari upplýsingar veitir forstöðukona spítalans. Umsóknir er greini aldur, mennt- un og fyrri störf ber að senda skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 1 0. nóvember n.k. Reykjavík 1 7. október 1975, Skrifstofa ríkisspítalanna, Eiríksgötu 5, R. sími 1 1 760. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.