Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2'nOVEMBER 1975 uöi ársins sýndu að á milli landa heföu farið 273.509 manns, en á sama tíma í fyrra höfðu 295.894 ferðast með vélum félagsins. 149.966 farþegar hafa farið með innaniandsflugi félagsins fyrstu átta mánuði þessa árs, en á sama tima í fyrra voru þeir 146.293. A þessu sama tímabili hafa 48.734 ferðast með International Air Bahama, en voru 56.410 i fyrra. Að sögn Sveins er eftirspurn hjá félaginu nii sist meiri en á sama tima í fyrra og bókanir held- Framhald á bls. 47. Sáttafundir með opinberum starfsmönnum yfir helgina FYRSTU átta mánuði þessa árs fluttu Flugleiðir tæplega 8% færri farþega á milli landa en sama tíma- bil í fyrra. Hins vegar hef- ur orðið nokkur aukning í innanlandsflutningum eða um 2,5% Á sama tíma hafa far- þegaflutningar Internati- onal Air Bahama dregist saman um hvorki meira né minna en 13.6%. Þrátt fyr- ir þessa fækkun farþega á milli landa er sætanýting vélanna betri en á s.l. ári, fyrst og fremst vegna minna sætaframboðs og fækkað var um eina vél á Atlantshafsleiðinni í vor. Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaöið í gær, að bráða- birgðatölur fyrir fyrstu átta mán- Lítill afli Þjóð- verja fyrir utan LANDHELGISGÆZLAN varð ekki var við neinn v-þýzkan tog- ara á veiðum fvrii innan 200 mílna mörkin í gærmorgun. Hins vegar voru margir v-þýzkir togar- ar þá að veiðum utan við mörkin úti af Vestfjörðum og úti af Aust- urlandi. Var afli þeirra litill á þessum slóðum. „TIL þess að ríkið grfpi inn í atvinnustarfsemi með beinni þátttöku þurfa að vera fyrir henili mjög þungvægir almanna- hagsmunir," sagði fjármálaráð- herra, Matthfas A. Matthiesen, í framsiigu mcð fjárlagafrumvarpi. „Opinber rekstur nýtur ekki SATTAFUNDUR Torfa Hjartar- sonar, rfkissáttasemjara, nieð fulltrúum samninganefndar ríkisins og Bandalags háskóla- manna hófst að nýju kl. 3 í gær en fundur hafði staðið fram yfir- miðnætti daginn áður moð opinberum starfsmönn- um og Læknafclagi tslands. Ekki var Mbl. kunnugt um hvernig fundunum nieð Bandalagi háskólamanna reiddi af í gær en í dag átti síðan að hefjast fundur með læknum og samninganefnd rfkisins. Allt er hins vegar óráðið um framhald samningaviðræðna við BSRB. Að því er Höskuldur Jónsson, sama aðhalds og rekstur einstakl- inga og félaga, sem er háður sam- keppni innanlands og utan. Þó ekki væri nema af þeiin sökuni getur hagkvæmni orðið minni og framfarir hægari í opinberum rekstri." Ráðherrann sagði að stefnu- ráðuneytisstjóri f fjármálaráðu- neytinu og formaður samninga- nefndar ríkisins, tjáði Morgun- blaðinu í gær verða samningamál ofangreindra aðila afgreidd til kjaradóms eftir helgina — lögum samkvæmt, svo framarlega sem ekki hafi tekizt samningar fyrir þann tíma. Höskuldur var að þvf spurður hvort rétt væri að ein- hver hreyfing hefði verið i fyrra- kvöld á samningamálunum við háskólamenn og svaraði hann því til að í þessum viðræðum hefði komið fram að menn gerðu sér Ijóst ástandið i þjóðfélaginu um þessar mundir. Um viðræðurnar við lækna sagði hann, að þær mörkun um þátttöku hins opin- bera í atvinnurekstri almennt væri að sínu mati nauðsynleg hverri rikisstjórn. Þá þurfi að athuga á hverjum tíma, hvort grundvöllur sé fyrir ýmissi at- vinnu- og þjónustustarfsemi, sem Framhald á bls. 47. hefðu farið fram með svipuðum hætti og við Bandalag háskóla- manna. Þá var Höskuldur að því spurður hvernig ríkið liti á úr- Framhald á bls. 47. A S.L. vetri beitti sóknarnefnd Digranessprestakalls sér fyrir stofnun félagssamtaka innan safnaðarins, er einkum skyldu stuðla að aukinni safnaðarvitund, safnaðarlífi og bættri starfs- aðstöðu innan prestakallsins. Söfnuðurinn á Kópavogskirkju að hálfu, en hefur hinsvegar ekki haft yfir að ráða neinum samastað i prestakallinu sjálfu. Er nú unnið að því að koma upp bráða- birgða-safnaðarheimili. Vill kirkjufélagið leggja því lið eftir föngum og efnir nú, sunnudaginn 2. nóv., til hlutaveltu í því skyni. Hefur verið reynt að vanda til þessa fyrirtækis og eru margir góðir munir á boðstólum, m.a. húsgögn, hjólbarðagangur, mál- verkaéftirprentun og vinningar allir eiga að vera nýtir hlutir. Hér verður ekkert happdrætti og Ljósm. Halli Már. Síld söltuð á Seyðisfirði eftir 7 ára hlé ÞAÐ var söltuð sfld á Seyðis- firði nú f vikunni og er það fyrsta síldin sem söltuð er þar f 7 ár. Það var þvf ekki af ástæðulausu að glatt væri á hjalla á planinu og margir renndu huganum aftur til þeirra „gönilu góðu“ daga, þegar lífið var sfld á Seyðis- firði. engin núll, þannig að enginn ætti að fara tómhentur. Hlutaveltan verður haldin í nýbyggðu húsi vestast við Álf- hólsveg norðanverðan (gengið inn frá Skeljabrekku) og hefst kl. 13.30 í dag. Er þess vænzt, að safnaðarfólk og aðrir velunnarar sæki hluta- veltuna og styrki hið unga félag til þess að verða að liði. (Fréttatilkynning). Treg rjúpnaveiði RJtJPNAVEIÐI virðist hafa verið heldur treg það sem af er veiði- tfmanum, samkvæmt þeim upp- lýsingum sem Mbl. aflaði sér f gær. Hafsteinn í Fornahvammi sagði að rjúpnaskyttur hefðu verið með fæsta móti hjá sér, kannski mest vegna þess að óhagstætt veður hefði verið um helgar. Hann sagði að mikið væri af rjúpu á heiðinni og einstaka maður hefði veitt vel. sá harðasti hefði fengið 60 stykki yfir daginn. Á Húsavik fengust þær upplýs- ingar hjá Sigurði P. Björnssyni fréttaritara Mbl. að þar hefði rjúpnaveiði gengið frekar treg- lega og fyndist mönnum þar nyrðra að ekki væri meira um rjúpu nú en í fyrra. Mesti fengur hjá einum veiðimanni hefur verið 40 rjúpur eftir daginn. Verulegt skref fram á við í hagstjórn hér á landi” — segir dr. Jóhannes Nordal um þá ákvörðun ríkisstjórnar að taka upp gerð lánsfjáráætlana Þátttaka ríkisins í atvinnurekstri: Samráð við forystumenn 1 einka- og samvinnurekstri Hlutavelta Kirkjufélags Digranessprestakalls Farþegum Flug- leiða fækkaði fyrstu átta mánuði ársins Glit opnar sýn- ingu á Akureyri Akureyri — 1. nóvember GLIT hf. opnaði sýningu á sér- unnum keramfkvörum f Blóma- búðinni Laufási á Akureyri f gær- kvöldi. Á sýningunni eru m.a. skúlptúrverk, veggskildir, kerta- stjakar, Ijósker og margt fleira. Flest verkin eru eftir tvo lista- menn, sem unnið hafa hjá fvrir- tækinu, þá Yoshitaka Esashi frá Japan og Paul Martin frá írlandi. Allir hlutirnir á sýningunni eru til sölu. Glit hf. var stofnað árið 1957 og var Ragnar Kjartansson mynd- höggvari aðalhvatamaður þess. Fyrirtækið var stækkað verulega fyrir fjórum árum og hafinn út- flutningur til Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Tékkóslóvakiu og Framhald á bls. 47. 1 FJARLAGARÆÐU sinni sl. þriðjudag, skýrði Matthfas Á. Mathiesen, f jármálaráðherra, frá merkri nýbreytni f íslenzkri efnahagsmálastjórn, sem ákveðið hefur verið að taka upp, sem er gerð sérstakrar lánsfjáráætlunar. „Henni er ætlað að samræma starfsemi allra lánastofnana f landinu og ákveða heildarframboð inn- lends og erlends lánsfjár, með hliðsjón af þeim útgjöldum þjóðarheildarinnar, sem stefnt er að og samræmast jafnvægi í stöðunni út á við,“ sagði fjár- málaráðhcrra í fjárlagaræðu sinni. Morgunblaðið hefur snúið sér til dr. Jóhannesar Nordals, Seðlabankastjóra, og leitað álits hans á þessari nýbreytni og þýðingu hennar. Dr. Jóhannes Nordal sagði: „Ég tel, að sú ákvörðun ríkis- stjórnarinnar, að alhliða láns- fjáráætlun verði lögð fram og samþykkt samhliða afgreiðslu fjárlaga geti orðið verulegt skref fram á við í hagstjórn hér á landi. I fyrsta lagi hefur það verið mikill veikleiki í fjár- málastjórn hér, að ákvarðanir í fjármálum rfkisins og ákvarðanir á öðrum sviðum fjármála hafa ekki orðið sam- ferða. Fjárlög hafa venjulega verið afgreidd fyrir árslok án þess að þá lægju fyrir undir- búnar áætlanir um opinberar framkvæmdir, sem fjár- magnaðar væru með lánsfé eða um starfsemi fjárfestingarlána- sjóða. Oft hefur þetta orðið til þess, að það aðhald, sem að var stefnt við afgreiðslu fjárlaga, hefur runnið út í sandinn og fram- kvæmdir sem þá var ætlað að fresta hafa komið inn á fjáröfl- unaráætlun og sprengt þann út- gjaldaramma, sem ætlunin var að halda opinberum útgjöldin innan. Með því móti að taka ákvarðanir um opinberar fram- kvæmdir, heildarlántökur er- Iendis og útlán fjárfestingar- Iánasjóða og annarra hlið- stæðra fjármálastofnana, samtímis afgreiðslu fjárlaga á að vera tryggt miklu betra sam- ræmi milli þessara ákvarðana. Áætlanir um lánsfjármarkaði hafa vitaskuld verið gerðar hér á landi um nokkurt árabil en þær hafa aldrei verið nægilega heildstæðar til þess að þær tryggðu samræmda stefnu í peninga- og fjármálum. Ætlun- in er, að sú lánsfjáráætlun, sem nú er í undirbúningi, nái til alls peningakerfisins svo og opin- berra stofnana og lánaviðskipta við útlönd. Þótt um nokkra frumsmíð verði að ræða, er ég bjartsýnn á, að hún muni tryggja vandaðri ákvarðanir í Jóhannes Nordal islenzkum efnahagsmálum en við höfum átt að venjast nú um skeið. Hinu má þó ekki gleyma, að áætlun af þesu tagi er aðeins tæki og það mun reyna á festu og raunsæi ríkisstjórnar og Alþingis til að beita því til verulegs árangurs.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.