Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975 I Fyrirbærið Stuðmenn verður að teljast hið iangmerkílegasta sem fslenskur poppheimur hefur getið af sér f seinni tíð. Það hefur einnig verið kunngert að kjarni Stuðmanna, þ.e. Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson, eru hið ágæta Spilverk þjóðanna. Einn illviðris laugardag fvrir nokkru fóru umsjónarmenn Stuttsfðunnar f heimsókn til þeirra Spilverksmanna til að forvitnast um fortfð, nútfð og framtfð þeirra og fara þær umræður hér á eftir f tveim hlutum. f fyrri hluta var mest rætt um Stuðmenn, en f seinni hluta, sem birtast mun sfðar, var mest rætt um Spilverk þjóðanna. A.J. Bald. J.B. Þátttakendur eru: ST: Stuttsfðan B: Sigurður Bjóla Garðarsson E: Egill Ólafsson St: Steinar Berg (umboðsmað- ur Spilverksins) V: Valgeir Guðjónsson ... samt tókst okkur nú að leyna einni flösku, sem Jakob geymdi í trompet- tösku... ST: Hvernig kom það til að Stuðmenn voru stofnaðir? V: Upphaflegu Stuðmenn voru ég, Jakob (Kobbi Magg), Gylfi Kristinsson, og Ragnar Daníelsson sem einnig var í fyrsta Spilverkinu. Hugmyndin kom þegar við vorum að lesa undir stærð- fræðipróf f 2. bekk 1970. Við höfðum verið í kaffi vestur á Hringbraut og vorum að aka f Bláu-Helreiðinni, blár Opel bíll, sem Jakob var á með A- númeri. Þá kemur sú hugmynd upp hvort við ættum ekki að stofna grfnhljómsveit og taka gamla slagara og rokkara og búa til grfnrokkara. Síðan var farið að æfa fyrir árshátíð, sem haldin var á Hótel Sögu. Þetta var mikill dansleikur, sem haldinn var þarna. Alræmd- ustu drykkjumenn skólans voru dyraverðir og leituðu þeir ofboðslega grimmt, vegna þess þeir máttu eiga vfnið, sem þeir fundu. Enda hefur aldrei verið minna vfn á skólaballi (al- mennur hlátur) Stuðmenn voru þarna með herbergi, þar sem við klæddum okkur og þar var meira að segja tekin flaska. Samt tókst okkur nú að leyna einni flösku, sem Jakob geymdi f trompettösku. Þarna spiluð- um við Someone (Tremeloes) Hippy Hippy Shake og Draum- ur okkar beggja, sem var fyrsta Stuðmannalagið. Þetta lag kom svo sfðar á bakhlið litlu plöt- unnar Gjugg f Borg. Bjólan seg- ir að það sé bezta Stuðmanna- lagið. B: Ég er harður á því. E: Það er allavega mesta Stuðmannalagið. V: Þetta var spilað við mik- inn fögnuð þetta kvöld. Svo var hljótt um Stuðmenn þar til ég og Jakob komumst f skemmti- nefnd. Þá komu þessir Stuð- menn aftur fram á mikilli drykkjuhátfð f Saltvfk (veturinn ’7I—72’) Á þessum tfmum hafði Þórður Árnason bæst f hljómsveitina, en spilaði einungis með henni á æfingum. ... f pásu kom upp ágrein- ingur um ristaðar brauð- sneiðar... ST: Höfðuð þið ekkert leikið f hljómsveitum áður? Vi Jú, ýmsum, sem tæplega tekur að nefna. Ég var í hljóm- sveitinni Complex f Réttar- holtsskóla. Þar voru Ágúst Atlason söngvari, Þórður, Gylfi og Eirfkur Þorsteinsson knatt- spyrnumaður var trommari. Sú hljómsveit leystist upp eftir að hafa leikið einu sinni, f pásu kom upp ágreiningur um ristaðar brauðsneiðar. Stuðmenn urðu svo til aftur síðastliðinn vetur, þegar við þrír fórum út, til að taka upp Sumar á Sýrlandi, ásamt Jakobi og Tómasi. Og sú plata var hálfgert „Jam-session“. — Við vorum að vinna við hana meira og minna í þrjár vikur. ST: Var efnið tilbúið? V: Lögin voru að mestu leyti til en margir textanna samdir á staðnum. E: Indverskum restauröntum og vfða um London. ST: Hver fjármagnaði fyrir- tækið? St.: Ámundi borgaði farið fyrir þá leiðina út. — Já, hvern- ig komust þið heim. B.: Labbandi. Eða, réttara sagt Jakob borgaði hluta af far- inu og við borguðum það sjálfir að hluta. ST: Hverjir voru aðstoðar- Upphaflegu Stuðmenn: Valgeir, Gylfi, Jakob og Ragnar. Stuðmenn í stuði. F.v. Valgeir, Þórður, Jakob og Gylfi Jakob Magnússon með andarhausinn (BP) Egill Ólafsson (BP) 1 Festi í sumar: F.v. Allan Myrphy, Bjðlan og Valgeir, (BP) Preston Ross Hayman (F) Þórður Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.