Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 197« Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sfmi 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80 Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Ý stjórnmálum gildir X það sama og við skip- stjórn. Þegar öldur rísa og boðar brotna þurfa skip- stjórnarmenn að sýna hæfni og æðruleysi. Á ýf- ingatímum eins og þeim, sem nú ganga yfir landió, hlýtur sú krafa að vera gerð til þeirra, sem í for- ystu eru, að þeir fari að öllu með gát og láti ekki tilfinningar sinar og annarra ráða ferðinni. Yfirvegun og skynsemi eru nauösynlegir eðliskostir á stórum stundum. Á þetta er minnzt hér af augljósum ástæðum, enda hefur Morgunblaðið gert þær kröfur til sjálfs sín, að það láti ekki tilfinninga- hita hlaupa með sig í gönur, en vegi og meti stað- reyndir stjórnmála af kaldri skynsemi. Enda þótt á ýmsu hafi gengið í innan- landsmálum undanfarna daga og úfar risið með mönnum og flokkum vegna ummæla um Ólaf Jó- hannesson dómsmála- ráðherra og ummæla hans um þá, sem á hann hafa ráðizt, er ekki ástæða til að hlaupa upp til handa og fóta og fella endanlega dóma, heldur ættu menn að kynna sér rækilega öll rök og fullyrð- ingar með og móti og reyna svo sjálfir, að mynda sér skoðun á þeim forsendum, sem fyrir liggja. Morgun- blaðið hefur birt heimildir þessa máls og vill með því gefa lesendum sínum tæki- færi til að fylgjast sem bezt með því. Þannig telur blað- ið sig bezt gegna því hlut- verki sínu að vera lang- stærsta blað landsins og mæta þeim kröfum sem til þess eru gerðar sem slíks. Aðalatriði þessa máls virðist nú vera það, að dómsmálaráðherra lagði í ræðu sinni á Alþingi í gær heiður sinn að veði fyrir þvi, að engin fjárhagsleg tengsl væru milli Klúbbs- ins og Framsóknarflokks- ins — og meðan annað kemur ekki í Ijós verða menn að taka slíka yfirlýs- ingu góða og gilda, og rengir Mbl. það ekki að ráðherrann skýrir frá þessu eftir beztu vitund. Einnig er það kjarni þessa máls, að rannsókn þeirra sakamála, sem unnið er að, leiði til þess, að hinir seku verði fundnir, og stefna verður að því, að öll kurl komi til grafar. Við getum ekki unað því, að íslenzkt þjóðfélag sé mergsmogið af sakamönnum, sem e.t.v. hafa framið glæpi, sem hingað til hafa verið tengd- ir öðrum löndum en Is- landi. Hitt er svo annað mál — og ekki veigaminna — að lífshagsmunir íslenzku þjóðarinnar, landhelgis- málið, hefur að því er virð- ist fallið í skuggann fyrir þeim umræðum um dóms- mál, sem hér hefur af aug- ljósu tilefni verið drepið á. Islenzka þjóðin ætlast til þess, að á því máli sé tekið af alvöru og festu og athygli manna verði beint að kjarna þess, því að mikið er í húfi, að vel takist til. Forsætisráðherra, Geir Orðvíg og ábyrgð Hallgrímsson, mun í dag gefa þjóðinni skýringar á því, hvernig það mál stend- ur og er þess þá að vænta að athyglin beinist að því fyrst og síðast. Hvernig sem því máli reiðir nú af, er nauðsyn- legt að landsmenn samein- ist um, að friðunar- áformum á miðunum verði framfylgt, og enda þótt ný hætta skapizt á miðunum, verður að bægja henni frá með þolgæði og þolinmæði, enda má segja, að ekki sé óeðlilegt að Bretar hafi enn ekki áttað sig til fulls, svo skammur tfmi sem liðinn er frá útfærslu okkar. En hvernig sem nú fer, er hitt víst að mikið hefur áunnizt með upplýs- ingastarfsemi í Bretlandi og öll þróunin í alþjóðahaf- réttarmálum hnígur hægt og bítandi í þá átt, sem við helzt kjósum. Við eigum að einbeita kröftum okkar að því að flýta þeirri þróun, en jafnframt er nauðsyn- legt að berast ekki á bana- spjót hér innanlands, meðan við eigum í hatrammri baráttu fyrir lífi okkar á miðunum og erlendis. Ríkisstjórn Is- lands á því mikið verk fyrir höndum á næstu vikum. Lífshagsmunir þjóðar- innar krefjast þess, að sterk stjórn með mikinn þingmeirihluta verði við völd á Islandi. Mikil leit að ræningj- um 119 verka Picassos Avignon 2. febrúar — Reuter LÖGREGLAN f Frakklandi leitar nú þriggja byssumanna sem rændu 119 af sídustu verk- um Pabio Picasso um helgina úr Páfahöllinni f Avignon, þar sem 201 verk Picassos voru til sýningar eftir dauða hans. Eina verulega vfsbending lögregl- unnar um ræningjana er að einn þeirra talaði spænsku. Næturvörður sem byssumenn- irnir lúbörðu segir að einn þeirra hafi talað spænsku, en þeir skildu ekki eftir nein fingraför. Þetta er einhver mesti listaverkaþjðfnaður sög- unnar og sumir sérfræðingar telja að málverkin séu um 20 milljón franka virði eða sem svarar um 695,2 milljónum fsl. kr. Talið er hins vegar að verk- in hafi verið tryggð fyrir lægri upphæð en þetta. Picasso hafi ekki sett nafn sitt á neitt hinna stolnu verl$a, en meðal þeirra er uppáhalds- verk hans sjálfs, „Ungi málar- inn“, að því er embættismenn sögðu í dag. Lögreglan vonar að þremenn- ingarnir muni að lokum hegða sér á líkan hátt og þeir sem stóðu fyrir síðasta meiri háttar listaverkaþjófnaðinum í Frakk- landi árið 1961, er málverkum eftir Cezanne var stolið úr safni í Aix-en-Provence en þau síðar skilin eftir f stolnum bfl. Lögreglumenn segja að ræn- ingjarnir virðist ekki hafa haft nokkra sérstaka áætlun um hvaða verk þeir tækju með sér, og stjórnandi sýningarinnar, Paul Ruaux, sagði: ,,Ég held að þeir hafi tekið þau verk sem auðveldast var að ná. Þetta eru hreinustu helgispjöli fyrir okkur.“ Borgarstjórinn í Avignon kallaði ránið „óskap- Iegt áfall fyrir borgina". Observer: Bretar geta veitt allt að 2.2 millj. lonn á ári inniui 200 niíhia BREZKA blaðið Observer segir s.l. sunnudag, að sú skoðun eigi vaxandi fylgi að fagna innan brezka fiskiðnaðarins, að ef rfkisstjórnin ráði ekki við Is- lendinga, þá eigi hún að ganga f lið með þeim. Þá skýrir blaðið frá þvf, að eitt stærsta útgerðar- fyrirtæki í Bretlandi, The Brit- ish United Trawlers, hafi sent brezka Jandbúnaðarráðuneyt- inu áskorun þess efnis, að gera eins fljótt og unnt er ráðstafan- ir til að ná óskoruðum yfirráð- um á hafsvæðum umhverfis Bretlandsstrendur. Blaðið segir, að gert sé ráð fyrir yfirráðasvæði allt að 200 mílum frá ströndum landsins eða að miðlínu, þar sem minna en 400 sjómílur eru milli stranda, auk þess sem gert sé ráð fyrir því að 100 mílna fisk- veiðitakmörk verði sett þar sem Bretar einir megi veiða, ellegar að miðlínu þar sem það á við. Observer-greininni fylgdi kort, þar sem sýnd voru mörk hugsanlegs yfirráðasvæðis. Þar voru sýnd fiskimið og aðskiljan- Iegar fisktegundir merktar inn á kortið eftir veiðisvæðum. Blaðið hefur það eftir The Brit ish Jnited Trawlers, að þegar Bretar hafi náð yfirráðum á þessum hafsvæðum geti þeir veitt allt að 2.2 milljónir tona á ári. „Þetta mundi hafa í för með sér að við gætum sjálfir veitt allt að 90 af hundraði þess afla, sem við þurfum á að halda, á móti 85 af hundraði nú. Samt sem áður væru 1.4 milljónir tonna eftir til útflutnings og til að semja um veiðar við aðrar þjóðir í skiptum fyrir veiðar Breta á fiskimiðum annarra þjóða.“ Þá segir blaðið: „Hvað viðkemur íslenzka þorskinum, sem hefur numið um 10 af Framhald á bls. 27 Amalrik í bréfi til Fords: Sovézk yfirvöld virða ekki Helsinki- yfirlýsinguna Moskvu — 1. febr. — Reuter. Sovézkri sagnfræðingurinn og andófsmaðurinn Andrei Amalrik hefur ritað Ford Bandarikjaforseta bréf þar sem hann segir, að sovézk yfirvöld standi i vegi fyrir því, að hann fái að heimsækja Bandaríkin ásamt konu sinni. I bréfinu kveðst Amalrik hafa fengið til- boð um að halda fyrirlestra við Harvard-háskóla og George Washington háskóla í Banda- ríkjunum, en auk þess háskól- ann í Utrecht í HoIIandi. Hann segir sovézk yfirvöld hafa neit- að sér um fararleyfi á þeirri forsendu að boð verði að berast frá einstaklingum en ekki stofnunum. Síðan hafi þeim hjónum báðum borizt boð frá einstaklingum, en konu hans sé neitað um fararleyfi, án þess að ástæðan fáist tilgreind, segir Amalrik í bréfi sínu til Banda- ríkjaforseta. Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.