Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 Halldór E. Sigurðsson um skattamál Klúbbsins: Skattar f>TÍrtiekisins ákveðnir — og tiltækum innheimtuaðferðum beitt HALLDÓR E. Sigurðsson sam- gönguráðherra, sem gegndi em- bætti fjármálaráðherra á árinu 1972, svaraði í neðri deild Al- , þingis i gær þeim þáttum i ræðu Sighvats Björgvinssonar (A) al- þingismanns um svonefnt klúbb- mál, er féllu undir hans þáver- andi ráðuneyti, efnislega á þessa lund: Skattrannsóknarstjóri hóf þeg- ar afskipti af máli viðkomenda, er ekki höfðu skilað framtölum fyrir árin 1971 og 1972, og kvað upp úrskurð í máli þeirra þann 18. september 1973. Síðar lögðu við- komendur fram framtöl ásamt uppgjöri fyrirtækis síns, viðkom- andi ár, og var hliðsjón af þeim höfð við siðari úrskurð máls, sem upp var kveðinn 29/1 1974. Þeim úrskurði var síðan áfrýjað til rík- isskattanefndar og hennar úr- skurður upp kveðinn 26/11 1975. Endanlegir skattar, þar með tal- inn söluskattur, voru ákveðnir 14 m.kr. Þar af hefur þegar verið greitt um 2.7 m.kr. Lögtak hefur farið fram i viðkomandi húseign, sem starfsemin fer fram í uppboð auglýst, sem ákveðið hefur verið að fram fari hinn 13. þessa mán- aðar. Niðurstöður þessa máls, að því er varðar þessa hlið þess, liggja Þvl fullkomlega fyrir. Olafur: Nær enginn grundvöD- ur til samkomulags I útvarpsþættinum „bein lína“ sl. sunnudagskvöld svaraði Ólafur Jóhannesson, dóms- málaráðherra fyrirspurn um landhelgismálið: Fréttamaður spurði Ólaf Jóhannesson fyrst að því hver væri stefna Framsóknarflokksins í hugsanlegum samningum við Breta í landhelgismálinu. Ólafur svaraði: „Mfn persónulega skoðun er sú, að það sé enginn grundvöllur eða nær enginn grundvöllur fyrir samkomulagi. Framsóknar- flokkurinn hefur ekki tekið form- lega ákvörðun um þetta efni en ég geri ráð fyrir því að stefna hans fari ekki langt frá skoðunum mínum í þessu efni. Ástæður mínar fyrir þessari skoðun eru þær, að Bretar hafa fengið umsaminn réttmætan umþótt- unartíma. Þeir hafa komið þannig fram síðan samningurinn rann út með hernaðarárás og öðrum hætti, að ekki er ástæða til þess að sýna þeim sérstaka linkind. Og í þriðja lagi, þá er ekkert i raun og veru afgangs fiskmagn sem um er að semja.“ Ólafur um ' stjórnar- samstarfið I útvarpsþættinum „Bein lfna“ sl. sunnudagskvöld svaraði Ólafur Jóhannesson, dóms- málaráðherra spurningu um stjórnarsamstarfið á eftirfar- andi hátt: Spurning hlustanda. „Mig langaði til að vita sem kjósandi Framsóknarflokksins fram að þessu, hvað Framsóknarflokkur- inn ætlar að verða lengi í ríkis- stjórn undir forsæti Geirs Hall- grímssonar? Ráðherra svarar hlæjandi: „Þetta var góð spurning. „Og hann hélt áfram: „Ég er nú ekki spámaður og það er ómögulegt að segja um það hversu langvarandi, langlíf þessi stjórn verður, það breytist nú oft.. . það er ekki gott að segja um það.“ Fréttamaður greip inn í og kvaðst vilja spyrja í framhaldi af þessari spurningu hvort það væri ekki erfitt fyrir Ólaf Jóhannesson sem forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar sálugu að sitja nú í stjórn með sjálfstæðismönnum sem hefðu barizt hatrammlega gegn vinstri stjórninni á sínum tíma. Ráðherrann svaraði: ,,Nú, þessi seta mín í þessari ríkisstjórn er ekki neinn dans á rósum en ég get svarað eins og þingmaðurinn sagði þegar hann var að kyssa kjósendurna með tóbakslöginn i skegginu „að það verður stundum að gera fleira en gott þykir.“ Nú, ég á góðar minn- ingar um vinstri stjórnina. Mér féll vel við samstarfsmenn mína þar, alla, alla án undantekningar, en þeir höfðu sinar skoðanir auð- vitað og börðust hart fyrir þeim. Ég hefi mikla aðdáun, sérstaklega á kempunni Hannibal, þó að hon- um yrði það á síðustu dagana að hlaupa í bland við tröllin.“ Sýslumaður um bréfið Morgunblaðið ræddi í gær við Jón Eysteinsson sýslumann Gull- bringusýslu og bæjarfógeta í Keflavík, en hann var settur bæjarfógeti þegar dómsmálaráðu- neytið skrifaði embættinu bréf hinn 11. marz 1975 en bréfaskipti þessi eru nú mjög til umræðu. Morgunblaðið spurði Jón hver hefði verið túlkun hans á um- ræddu bréfi. Jón svaraði: „Túlkun min á bréfi dómsmála- ráðuneytisins var sú með tilliti til simtals við ráðuneytisstjórann að ekkert væri hægt að gera vegna bréfa þeirra tveggja aðila sem höfðu ritað ráðuneytinu, og það eina sem myndi leysa þetta mál væri það að málið, þ.e. Geirfinns- málið, upplýstist með þá áfram- haldandi rannsókn." Þá ræddi Morgunblaðið enn- fremur í gær við Hallvarð Ein- varðsson vararíkissaksóknara, sem var aðalfulltrúi saksóknara þegar rannsókn Klúbbmálsins fór fram 1972 og Sigurjón Sigurðsson iögreglustjóra í Reykjavík, en í báða þessa menn er vitnað í greinargerð dómsmálaráðuneytis- ins. Hvorugur þeirra vildi tjá sig um málið, en Sigurjón sagði að skýring á afstöðu sinni til Klúbb- málsins kæmi fram i greinargerð ráðuneytisins, sem birtist í Mbl. á sunnudaginn og þyrfti því engu þar við að bæta. Loks hugðist Morgunblaðið ná tali af Þóri Oddssyni, aðalfulltrúa Sakadóms Reykjavíkur þegar Klúbbmálið var í rannsókn 1972. Þórir dvelur nú við störf og fram- haldsnám í Osló og reyndist ekki unnt að ná símasambandi við hann i gær. Kallaður fyrir einu sinni 1 RÆÐU sinni á Alþingi í gær, um svonefnt „Klúbbmái", sagði Ólaf- ur Jóhannesson dómsmálaráð- herra, að frekari lokun þessa vín- veitingahúss á sinum tíma „hefði enga þýðingu haft fyrir frekari rannsókn þess máls“, er þá var til meðferðar, tengt húsinu. „Ég hefi aldrei fellt niður lokun veitinga- hússins," sagði ráðherrann. „Það var nefnilega ekki beðið eftir mínum úrskurði." Síðan gat ráð- herra þess að það hefði verið lög- reglustjórinn, sem lokunina af- nam, og að það væri „að gera lítið úr frábærum og heiðarlegum em- bættismanni“ að slíkt hefði ekki verið gert samkvæmt „eigin sann- færingu“, heldur vegna álits starfsmanna í dómsmálaráðu- neyti. Þá sagði dómsmálaráðherra að Magnús Leópoldsson, hefði aðeins „einu sinni verið kallaður fyrir“, til þess að gefa skýrslu um „bif- reiðar og þess háttar". „Sigur- björn Eiríksson var aldrei kallað- ur fyrir,“ sagði ráðherrann. (sjá ræðu ráðherra á bls 12 í Mbl. i dag) ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU ,Það er alveg ófært að fólk sé sf og æ að fótbrjóta sig f hálkunni Ljósm. Friðþjófur. — Allar þrær Framhald af bls. 40 orðnar fullar á Austfjörðum. Síð- ast fyiltust þrær á Höfn í Horna- firði en fyrsta þróarrýmið losnar ekki fyrr en á miðvikudag — ár- degis opnast um 2000 tonna rými á Raufarhöfn og síðdegis um 1100 tonn á Reyðarfirði og 500 tonn á Fáskrúðsfirði, en þar af hefur þegar verið ráðstafað um 510 lestum til Reyðarfjarðar og full- ráðstafað er í rýmið á Fáskrúðs- firði. Fyrstu bátarnir — Asgeir og irni Sigurður eru því lagðir af stað til Vestmannaeyja til að landa þrátt fyrir langa siglingu fremur en að bíða eftir rými á Austfjarðahöfnum. — Jarðskjálfti Framhald af bls. 2 skjálftafræðing, og eins og fram kemur í upphafi staðfesti hann að talsverð ókyrrð hefði verið á þessu svæði á sunnudag og í gær. Stærsti kippurinn kom kl. 13.17 og mældist 5.0 stig á Richter, kl. 14.07 kom kippur sem mældist 4.5 stig og um 4ra stiga kippur kom kl. 14.42. Ragnar sagði, að á þessu svæði hefði verið rólegt allt frá 26. janúar en á laugardagskvöld hefði þó mælzt um 4.6 stiga skjálfti nálægt Kröflu. Síðan hafi ókyrrðin færst norður yfir og verið mjög mikil þar í gær. Ragnar vildi ekkert segja á þessu stigi hver þróunin yrði, en sagði að fylgzt yrði áfram mjög nákvæmlega með þessari hrinu. — Afmæli Framhald af bls. 28 Kunnur fiðluleikari. Ævisaga Sigurjóns er margbrot in og hann verðskuldar að eftir honum sé munað heima á tslandi á merkum tímamótum. Kona Sigurjóns er Magnea S. Ölafsdóttir, húnvetnskrar ættar. Magnea hefir búið manni sínum mjög snoturt heimili og alið honum þrjá mannvænlega sonu. Frú Magnea hefir nú i 48 ár verið organisti lúthersku kirkjunnar og þekkt sem pianókennari. Forseti kvenfélags kirkjunnar. Vinir þeirra hjóna senda þeim alúðarkveðjur og heillaóskir í tilefni tímamótanna. v Helgi Vigfússon — Þarabreiða Framhald af bls. 2 lega hvað þarna var á ferð — ekki olíubrák heldur þara- breiða. Gizkaði Þórður á að breiðan hefði verið um 3 km á lengd efi um 100 m á breidd. Kvað Þórður þetta ekki eins- dæmi heldur bærist þarinn iðulega út úr Breiðafirði um þetta leyti árs, þegar Isa leysti. Þarinn færi þá út úr firðinum með straumum en siðan tæki röstin við honum, og þar væri hann oft að velkjast fram og aftur töluverðan tíma. — Kristján Eldjárn Framhald af bls. 40 hann hefði í frístundum sínum stundað sérfræðigrein sína, menningarsögu og fornleifa- fræði. Þegar hann fyrst kom i embættið hefði hann átt nokk- ur verkefni, sem honum hafði ekki tekizt að Ijúka við. Sumt af því hefði hann lokið við. Þó sagði Kristján Eldjárn, að það sem hann teldi, að hanu hefði aðallega gert fræðigrein sinni gagn — eða svo vonaði hann a.m.k. — með því að hafa verið ritstjóri timarits Fornleifa- félagsins, en því starfi hefur hann gegnt í hartnær 30 ár. Forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, sagði að- spurður að hann hafði tekið sér góðan umhugsunar'íma, áður en hann ákvað að gefa kost á sér næsta kjörtimabil. „Þetta er í hvert skipti mikil ákvörðun og engin furða þótt menn hugsi sig um,“ sagði forseti tslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.