Morgunblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1, JUNI 1976
37
VELVAKAMDI
Velvakandi svarar i síma 10-100
kl 14—15. frá mánudegi til föstu-
dags
0 Góður forseti
Kristln Guðmundsdóttir, 4
götu 2, Rauðavatni skrifar:
Kæri Velvakandi, þökk fyrir
siðast. Ég get ekki stillt mig um
að skrifa þér línu og láta ánægju
mína og minna í ljós með að fá að
hafa Kristján Eldjárn doktor
fyrir forseta næsta tímabil. Hann
er maður, sem alveg sómir sér vel
í sinni stöðu og er landi voru til
sóma, bæði heima og erlendis.
Ágætlega menntaður maður og
vitur maður, góðgjarn og blátt
áfram og í alla staði vaxinn sínu
starfi.
Megi drottinn blessa hann og
hans ágætu konu.
0 Gölluð vara
Jóna Hannesdóttir Reyni-
grund 81 I Kópavogi skrifar:
Leyfist verzlunum að svíkja
gallaða vörur inn á viðskiptavini
sína? Ég keypti kuldastigvél í skó-
verzlun (Velvakandi sleppir
nafninu) í Reykjavík. Mér var
sagt að þetta væru ágæt stígvél,
en væru á niðursettu verði vegna
þess árstíma, sem nú fer í hönd.
Þau litu líka ágætlega út og ég
mátaði annað þeirra áður en
kaupin voru gerð. Við nánari
athugun reyndist vera svo mikið
ósnið á þeim, að ógerningur er að
ganga á þeim.
Lagði ég því leið mina aftur i
verzlunina og spurði kurteislega
hvort ég mætti ekki leggja þau
inn, þar sem þau væru ónothæf.
Afgreiðslustúlkan brást hin
versta við, og sagði það ekki koma
til mála, og bætti því við, að ég
væri i a.m.k. 10. manneskjan i dag
(þetta var um hádegið), sem
kæmi með sams konar stigvél til-
baka, vegna sama galla, og væri
hún alveg óhagganleg í því, að
hún tæki þau ekki aftur.
Ég spurði hana hvort þetta væri
þá ekki sönnun þess, að verið
væri að selja fólki ónothæfa vöru,
en svarið var, að kaupandinn
bæri sjálfur ábyrgð á þvi sem
hann keypti. Verzlunin Iegði kapp
á það að selja þessa vöru, en þær
tæki ekki eitt einasta par aftur.
Það er sjálfsagt rétt að
kaupandinn beri ábyrgð á því sem
hann kaupir, en þarna var ekki
um augljósan galla að ræða, sem
best sést á þvi að fleiri létu glepj-
ast en ég. Finnst mér því rétt að
vekja athygli fólks á þessu og
segja, gætið vel að þvi sem þið
eruð að kaupa.
0 Göngubrölt
Þork. Hj. skrifar:
Húsmóðir skrifar i Velvakanda
hinn 19. maí sl. stutta klausu um
Keflavíkurgönguna, er fór fram
15. maí sl. Þar segir „Húsmóðir"
meðal annars: „Ævinlega er það
jafn ömurlegt að sjá vellærða og
frjálsa tslendinga beita sér fyrir
striðs- og kúgunarvagn
kommúnismans og með hverju ár-
inu sem líður versna af honum
sögurnar. Sízt ættu þær að vera
gleðiefni lærðum mönnum sög-
urnar frá Suður-Viet Nam og
Kambódíu."
— Já, þannig ritar „Húsmóðir",
og svo sannarlega geta allir heil-
brigt hugsandi íslendingar og
óheilaþvegnir af Þjóðviljaáróðri
tekið undir þessi orð með „Hús-
móður". Nú, þegar e.t.v. hillir
undir samninga við Breta í land-
helgisdeilunni, tryllast kommar
gjörsamlega, við að sjá óska-
draum sinn að engu verða, um aó
varnarliðið hverfi á brott og úr-
sögn úr Nato sé alls ekki til
umræðu. Og allt þeirra göngu-
brölt milli Keflavikur og Reykja-
víkur runnið út í sandinn.
Árangurinn aðeins slitnir skó-
sólar.
0 Áróðri laumað
í barnastundina
Þork. minnist á sögurnar
frá Viet Nam og Kambódíu. Ekki
hefur barnasöguhöfundurinn
sænski Inger Sandberg eða lesari
barnasögunnar um Friðbjörn
Brandsson Sigríður Sigurðar-
dóttir sýnilega áttað sig á þvi. I
morgunútvarpinu er hún að segja
böj-nunprtt upt Viet Nam, þar sem
Bandaríkjamenn drápu menn, um
að kommúnisminn sé það albesta,
að hann segi ekkert annað en það
sem Jesús Kristur sagði og svo
framvegis. Hún er að reyna að
telja börnunum trú um að Jesús
Kristur hafi líklega sagt fyrir um
hluti eins og þá sem nú eru að
gerast í Suðaustur-Asiu, þar sem
fjöldamorð fara fram eins og i
Kambódíu. En tii hvers í ósköp-
unum er íslenzkt ríkisútvarp að
fara með þetta i barnastund, sem
fólk varar sig ekki á? Líklega
hafa útvarpsmenn ekki varað sig
á lesaranum, þvi þessu er laumu-
lega komið inn í söguna, allt í
einu. Valið á þeirri sögu er þó
áreiðanlega ekki gert af óvita-
skap, eins og pistillinn var sl.
laugardagsmorgun.
alvarlegra en það, sagði David.
— Það hefur ýmislegt gerzt sfð-
an ég hitti þig sfðast. Má ég segja
þér frá þvf.
Enn einu sinni sagði hann sfðan
frá atburðum sfðustu daga frá þvf
hann hafði ekið út til hallarinnar,
verið fagnað þar af Marcel og að
sfðan hefðu skipazt veður f lofti.
Hann sagði Gautier frá ferðinni
til Spánar, frá viðræðum þeirra
við Mme Desgranges og heim-
komu þeirra. Hann sagði honum
frá Lazenby og gullinu og sfðasta
fundi sfnum og Mareel Carrier.
Gautier hlutstaði af athygli
eins og hans var vandi.
,— Þú virðist ekkert undrandi,
sagði David, þegar hann hafði
lokið máli sfnu.
— I mfnu stafi verður maður
aldrei hissa á neinu. Heldurðu
þeim sé alvara í þvf að lögsækja
Carrier.
— Ég býst við þvf. En það getur
tekið óratfma.
Gautier brosti.
— Öldungis hárrétt. En maður-
inn er sterkrfkur og hann hefur
efni á að ráða alla beztu lögmenn
sem völ er á. Maður sem hefur
komizt yfir gullstengur er ekki á
flæðiskeri staddur.
HÖGNI HREKKVISI
„Þú^stendur í beðinu hans Högna!“
jazzBaLL©td8Kóu Búru
Dömur
athugið
Nýtt 3ja vikna
námskeið hefst
8. júní.
h Líkamsrækt og
megrun fyrir dömur
á öllum aldri.
líkcnn/icdsl
+ Morgun- dag- og kvöldtímar.
Tímar 4 sinnum eða 2 í viku.
Aðeins 2 námskeið fram að sumarleyfi.
Uppl. og innritun í síma 83730.
jazzDanedCQkdi búpu
GARDENA
FJOLBREYTT
ÚRVAL
SLÖNGUTENGI
GARÐÚÐARAR
UTSOLUSTAÐIR:
Verslanir J. Zimsen,
Reykjavfk
Kron jðrnvöruverzlun,
Reykjavlk,
Byggingavöruverzlun
Kópavogs,
Kaupfélag Hafnfirðinga,
Þakpappaverksmiðjan
Garðahreppi,
Kaupfélag
Suðurnesja,
Keflavlk,
Gunnar Ásgeirsson h.f.,
Akureyri,
Brynjólfur Vignisson,
Egilsstöðum,
Verzlunin Miðhús,
Vestmannaeyjum,
Verzlun J. Fr. Einarsson,
Bolungarvik.
unnai S^ógeitóóon k.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16.
GLERÁRGÖTU 20. AKUREYRI.
JVDO
BYRJENDANÁMSKEIÐ
Japanski þjálfarinn Naoki Murata 4 DAN
þjálfar í öllum flokkum. Innritun og upp-
lýsingar í síma 83295 alla virka daga frá
kl. 13 — 22.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
ÁRMÚLA 32.