Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 3
FÖSnJDAGTJR 4. júní 1965
TTMINN
í SPEGLITÍMANS
;* ............................... . .............................................................................................
/. / '/SSfíífíí', .,„////1 ,, , , /„, „,, ,„,,, , , ,„ ,,/ . ,,
Sumaríð er komið og tími til þess að taka fram baðfötin. Stúlkan
hér á myndinni sýnir ein hinna nýju baðfata, sem komin eru á
markaðinn erlendis. Þessi baðföt eru gerð af Pierre Cardin
í Paris.
Það hefur lengi verið sagt
í blaðaheiminum, að það sé ekki
frétt, ef hundur híti mann, en
það sé aftur á móti frétt, ef
maður bítur hund. Og nú hefur
þetta sem sagt gerzt:
Atburðurinn átti sér stað í
Nairobi í Kenya. Lögreglan
var á gangi um götur borgar-
innar að næturlagi fyrir nokkru
og sá þá mann einn ,CIement
Ihango að nafni, sem hagaði
sér „grunsamlega". Lögreglu-
mennirnir höfðu með sér hund,
„Judge“ að nafni og skipuðu
honum að handsama manninn.
En Ihango var ekki á þeim bux-
unum og snerist til varnar.
Fyrst beit hann hundinn í
hnakkann, og dró síðan upp
hm'f og særði hundinn í bakið.
En lögreglumennimir komu
hundi sínum tii aðstoðar og
handtóku manninn, sem fyrir
nokkmm dögum var dæmdur í
15 mánaða fangelsi fyrir að
bíta hundinn!
★
Sovétmenn eru farnir að
framleiða lítil ferðasjónvörp,
og kallast þau Junost. Er hér
um að ræða transistortæki,
skermurinn er 145 sinnum 183
millimetrar að stærð, tækið allt
20 sm á hæð, 27 sm á breidd
og 5 kg að þyngd. Á næsta ári
verða 10 þúsund slík tæki fram-
leidd í Sovétríkjunum.
Sænski kvikmyndaleikstjór-
inn Jöra Donner er byrjaður
á þriðju kvikmynd sinni, og
kallast hún „Hér byrjar ævin-
týrið". Aðalhlutverkin leika
sænska leikkonan Harriet And
ersson og finnski leikarinn
Matti Oravisto. Leikur hún
sænskan tízkusérfræðing, en
hann finnskan arkitekt.
Upptaka myndarinnar hófst
í Berlín í aprfl, en í júní og
júlí. verða helztu atriðin tekin,
en þau gerast í Finnlandi. Er
talið, að þetta verði bezta
kvikmynd Jöm Donners, en
hann skrifaði sjálfur handritið
og stjómar kvikmyndinni, en
hinn þekkti franski kvikmynda-
tökumaður Jean Badal, sem nú
siðast kvikmyndaði „What's
New, Pussycat?“ sér um kvik-
myndunina.
¥
Pólverjar ætla sér að flytja
út 7.5 milljónjr lítra af sínu
indæla vodka á þessu ári, að
því er pólska fréttastofan til-
kynnti nýiega. Pólskt vodka er
nú flutt út til alls 80 landa í
öllum helmsálfum. Hefur út-
flutningurinn aukizt um 250%
á tveim árum.
¥
José Taire, Portúgali, var við
hina beztu heilsu 12. marz s.I.,
þegar hann lýsti því yfir, að
hann myndi deyja þann 19.
marz. Hann sagði bæði konu
sinni og vinum og kunningjum
frá þessu, en enginn lagði trún-
að á þetta, því að han var mjög
hraustur.
En Taire gekk frá ýmsum
málum, sem hann vildi hafa í
lagi, þegar hann andaðist, og
þann 19. mari gaf han svo
skyndilega upp öndina, eins og
hann hafði sjálfur spáð.
¥
Kossar geta verið dýrkeypt-
ir. Það fékk sænskur maður að
reyna nýlega. Hann var að aka
í bifreið á aðalgötunni í bæn-
um Saffle, og hafði mun meiri
áhuga á stúlkunni sinni en stýr-
inu. Þegar kossinum lauk, hafði
hann ekið á töluverðri ferð á
tvo bfla, sem lagt var við vegar
brúnina, og varð hann að borga
um 180 þúsund krónur í skaða
bætur.
Konurnar í Víetnam eru einnig þjálfaðar til þess að taka þátt í styrjöldinni, sem þar geisar.
Þessi mynd er frá Hanoi, höfuðborg Norður-Víetnam, og sýnir starfsstúlkur í fataverksmiðju
þar í borg æfa sig í skotfimi. Þær eru i heimavarnarliði borgarinnar. Myndin er frá TASS.
Allar þekktustu kvikmynda-
stjömur heimsins flykktust til
Cannes, þegar kvikmyndahátíð
in stóð þar yfir í síðasta mánuði
og að sjátfsögðu höfðu þær
með ser nílkið af glæsilegum
fötum fyrir allar veizlurnar og
móttökurnar. Hér á myndinni
sést ein stjamanna, Caroll
Baker, í einum kjólnum, sem
hún hafði með sér. Hún upp-
lýsti jafnframt, að vegna hitans,
hefði hún ekki klæðzt neinu
innan undir kjólnum.
★
Eitt af því, sem athygli vakti
í sambandi við heimsókn Elísa-
betar Englandsdrottningar til
Vestur-Þýzkalands, var, hversu
oft hún skipti um hatta! Strax
fyrstu dagana bar hún á sínu
konunglega höfði hvirki meira
né minna en sex mismunandi
hatta.
★
Brazilíumenn hafa gert yfir-
lit yfir kaffiútflutning sinn árið
1964, og fluttu þeir alls út 15
milljón 60-kflóa sekki fyrir 760
milljónir dollara. USA keypti
mest kaffi ,cða 44% af heild-
arútflutningnum, en miðað við
ibúatölu, þá hefur fsland keypt
mest kaffi — eða fyrir 7.74
dollara á íbúa.
★
Allar útvarpsstöðvar í Indó-
nesíu eiga nú að hætta að spila
twist, rokk og jazztónlist, þar
sem yfirvöldin þar í landi telja
þessa tónlist ekki í samræmi
við þarfir íbúanna.
¥
Landsíminn í París grobbar
sig oft af því að veita símnot-
endum sínum betri þjónustu
en nokkur önnur símstöð i
heiminum. Nú reynir hann að
fullnægja þörf símnotenda fyr-
ir fögur ljóð!
Þessi þjónusta hófst 1. maí
s.!„ og þegar hringt er I síma
8283909, þá hefst upplestur fag
urra kvæða eftir hin klassísku
skáld Verlaine, Hugo, Rimbaud
og fleiri.
BEATLES NO. 1
með 82 myndum
BEATLES NO. 2
með 85 myndum
Bókin kostar kr. 35.00
Sendum að kostnaðarlausu 1
ef greiðsla fylgir.
FRÍMERKJASALAN
Lækjargata 6 A
Einangrunarkork
V/2“, 2". 3“ og 4"
fyrirliggjandi.
JÖNSSON & JÚLÍUSSON
Hamarshúsinu, vesturenda
Sími 15-4-30.
ALCON
DÆLUR
FYRIR SUMAR
BÚSTAÐINN,
GRIPAHÚSIN
OG ALLS STAÐAR
SEM ÞÖRF ER
FYRIR VATNSDÆLU
UMBOÐ:
GÍSLI JÓNSSON & CO.
SKÚLAGÖTU 26
REYKJAVÍK
SÍMI 11740
BJARNI BEINTEINSSON
LÖGFRÆÐINGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI & VALDI)
SlMI 13536