Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 4. jíinf 1965
HÖFNIN
Framhald af 16. síSu.
fá sér vinnu annars staðar. Veld
ur því þær miklu yfirborganir,
sem nú tíðkast í sífellt ríkari
mæli. Fer því saman, að verka
menn við höfnina hafa lægra
kaup og lengri vinnutíma en aðr-
ir verkamenn.
Ástandið í þessum málum er
nú orðið mjög alvarlegt, þvi að
höfnin er lífæð borgarinnar og
raunar landsins alls, og vinnu-
aflsskorturinn er til stórtjóns fyr
ir alla þjóðina. Verður að vinda
bráðan bug að því að bæta kjör
hafnarverkamanna, hækka kaup
þeirra og stytta vinnudaginn, og
reyna þannig að bæta úr því
alvarlega ástandi, sem nú ríkir.
GEYMSLUHÚSIÐ
Framhald ai 16 siðu.
mest af því sem þar var geymt,
en það voru aðallega matvæli í
eigu þorpsbúa, Einnig var þar og
bjóðageymsla fyrir bátana og náð-
ist allt út úr henni. Einnig var
búið að taka mest af þeim mat-
vælum, sem geymd voru í klefun
um, svo tjónið varð ekki eins
mikið og ella. í öðrum enda
hússins hefur verið fiskaðgerð, en
þar var allt tómt nú. í útbygg-
ingu frá húsinu var vélaverkstæði
kaupfélagsins og tókst að verja
það.
Slökkviliðið mun hafa ráðið nið
urlögum eldsins á tæpum tveim
tímum. Er álitið, að kviknað hafi
í út frá rafmagni, enda kom
eldurinn upp við inntakið. Er talið
að húsið sé ónýtt, enda var það
gamalt og innveggir allir úr
timbri með torftróði og útv:ggir
úr gamalli og lélegri steypu.
VIÐRÆÐUR
Framhald af 2. siðu
fundur í Verkamannasambandinu
fíl þess að ræða ástandið.
FnDtrúafundur sambandsfélaga
Alþplusambands Vestfjarða, sem
aðild eiga að samningum um kaup
og kjör landverkafólks, var hald-
inn á ísafirði 31. maí s.l.
Á fundinum voru mættir 20
fulltrúar frá 10 verkalýðsfélögum.
Öll verkalýðsfélögin á Vestfjörð-
um sögðu upp snemma í vor
samningum sínum við atvinnurek-
endur, og faila þeir úr gildi frá
og með 5. júní n.k.
Á fulltrúafundinum voru kaup-
gjalds- og kjaramálin jtarlega
rædd, auk þess sem tekin var af-
staða um sameiginlegar aðgerðir
og samstarf vestfirzku verkalýðs-
félaganna í þeim málum.
Fundurinn samþykkti samhljóða
að kjósa fimm manna samninga-
nefnd, er hæfi viðræður við
Vinnuveitendafélag Vestfjarða nú
þegar.
Samninganefndinni var jafn-
framt heimilað að óska eftir og
taka upp samstarf við stéttarfé-
lögin innan Verkamannasambands
íslands, ,sem nú eiga í samningum
við atvinnurekendasamtökin, ef
nefndin teldi að samningsumleit-
anir heima fyrir reyndust tilgangs.
litiar vegna núverandi viðhorfa í
þeim málum og vegna skipulags-
hátta atvinnurekenda samtakanna.
Ef til þess kemur, að vest-
firzku verkalýðsfélögin óski eftir
aðild að samninganefnd verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík, var
nefndinni heimilað í samráði
við stjórn Alþýðusambands Vest-
fjarða, að tilnefna einn eða tvo
fulltrúa til að taka þátt í starfi
samninganefndar stéttarfélaganna
innan Verkamannasambands ís.
lands.
GEIMSKOTIÐ
Framhald af 1. síðu
edyhöfða og raunar um gjör-
völl Bandaríkin, þar sem fólk
sat og fylgdist með skotinu í
sjónvarpi. Einnig var sjón-
varpað víða um Evrópu.
Sex mínútum eftir skotið
tilkynntu geimfararnir, að
þeir hefðu sjálfir stjórnað los
un geimfarsins frá eldflaug-
inni og að það væri komið á
braut umhverfis jörðu. Jarð-
firð þess er 280 km. og jarð-
námd 160 km.
Fjórum mínútum seinna
staðfesti McDivitt, flugstjóri,
að hann sæi merkjaljósin á
fyrsta og öðru þrepi eldflaugar-
innar og að allt væri í bezta
lagi um borð. Upphaflega var
ráðgert, að McDivitt stjórnaði
geimfarinu eins nálægt öðru
þrepi eldflaugarinnar og hægt
væri og White, sem átti að
stíga út úr geimfarinu í þriðju
umferð þess um jörðu, reyndi
að komast að þrepinu. En í ljó.s
kom, að fallhraði þrepsins var
meiri, en reiknað hafði verið
með og því erfitt að fylgja því
eftir.
Þegar McDivitt tilkynnti, að
hann hefði eytt um helmingi
eldsneytisins í tilraunum sínum
til að nálgast þrepið, fékk hann
skipun frá vísindamönnum í
Houston um að hætta frekari
tilraunum, enda var þrepið
komið í um fimm til sex kíló-
metra fjarlægð. Skömmu síðar
tilkynnti McDivitt einnig, að
White gæti ekki farið út úr
geimfarinu í þriðju umferð,
eins og áætlað var, að þar sem
hinum umfangsmikla undirbún-
ingi um borð var ekki lokið.
Það var því ekki fyrr en 15
mínútur fyrir 8 í kvöld, að
stóra fréttin barst út, að James
White hafði stigið út úr geim-
farinu, annar manna í heimin-
um.
Sá, sem fyrstur varð til þess
var sovézki geimfarinn Leonov,
sem fór út úr geimfarinu Vosk-
hod—2 í marz s.l.,Tók sú athöfn
öll 20 mínútur, en af þeim tíma
var Leonov aðeins 10 mínútur
alveg laus úti í geimnum, en
White hins vegar allan tímann.
Upphaflega var áætlað, að
White yrði aðeins 12 mínútur
úti í geimnum, en eins og áður
segir, dvaldist hann lengur,
vegna þess að boð frá jörðu
náðu ekki til geimskipsins. Þeg-
ar White fór út úr geimfarinu
valt það eins, og bolti og með-
an hann var úti, þaut það á-
fram með 28 þúsund kílómetra
hraða á klukkustund.
Með sér út í geiminn hafði
White litla myndavél, en hreyf-
ingum sínum stjórnaði hann
með lítilli eldflaug. Sagði hann
McDivitt, að hann sæi greini-
lega Kaliforníuströndina og
seinna Houston í Texas og
nokkru síðar sveif hann þannig
í lausu lofti yfir fæðingarstað
sinn í San Anthonio í Texas.
GOSIÐ
Framhald af 1. síðu.
um. Sagði hann að gosstrókurinn
hefði verið 15—20 þúsund fet á
hæð, þegar hann flaug yfir á
heimleið, en öðru hverjú hefðu
svartir vikurstrókar þeytzt hátt í
loft upp.
Rúnar flaug oft yfir gosstöðvam
ar, þegar Surtur var að byrja, og
sagði hann, að þetta nýja gos virt
ist ekkert minna. Það hefur þó
borið hægar að en fyrra gosið,
þótt það hafi nú sótt í sig veðrið.
Þarna gýs nú úr einum stað í
um fimm hundruð metra fjar-
lægð austur af Surtsey, eða í
stefnu af gamla Surt og á Geir-
fuglasker.
Auglýslng I Tímanum
kemur daglega fyrir
aup vandlátra tslaða- |
lesenda um allt land.
TÍMINN
15
Slml 5024 S)
Eins og spegilmynd
(Som 1 et spejl).
Ahrifamikil oscar-verðlauna-
mynd gerð af snillingnum Ing
mar Bergmann
sýnd kl. 9
Piparsveinn í Paradís
Bandarísk gamanmynd í litum
og cinemascope.
BOB HOPE,
LANA TURNER.
sýnd kl. 7
v/Miklatorg
Sími 2 3136
.-rfintl. flfflt/ i
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót atgreiðsla
Sendum gegn póst-
kröfu.
3UÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður.
Bankastræti 12.
HÚSEIGENDUR
Smíðum ollukynts mið
stöðvarkAjla fyrti sjálf-
virka oliubrennara.
Ennfremur sjálftrekkj
andi oliukatla. óháða
rafmagni.
• ATB.: Notið spar-
neytna fcatla.
Viðurkenndli af örygg-
isefttrliti ríkisins
Framieiðum einnlg
neyziuvatnshitara t &að.
Pantanir i sima 50842
Sendnm um allt land.
Vélsmiðja
Álítaness
pÓÁseafe
Samtíðin er > PórscatA
Slmt 11544
Skytturnar ungu
frá Texas
(Young Guns of exas)
Spennandi amerlsk litmynd um
hetjudáðir ungra manna 1 vilta
vestrinu
JAMBS MITCHUM
ALAN LADD
JODY MCCREA
Sýnd kl. 5.
51 mi 1«HS>
Undirheimar USA
Hörkuspennandi og viðburðarík
amerísk kvikmynd um ófyrir-
leitna glæpamenn í Bandaríkj-
unum.
GLIFF ROBERTSSON.
sýnd kl. 9
Bönnuð bömum
Billy Kid
Hörkuspennandi litkvikmynd
um baráttu útiagans Billy
Kid.
Sýnd kl. 5 og ?
Bönnuð innan 12 ára.
Allra síðasta sinn.
iTU
0
stmi . 1.SH4
it-Ki Engin sýning
í dag
LAUGARAS
simar J207e og -ihiíx
„Jessica"
Ný amerlsk stórmynd i Utum
og sclnemascope MyndiD ger
ist á hlnm fögru Sikiley 1 Mið
Jarðarhafl
Sýnd fcl ö, 7 og e.
ÍSLENZKUB TEXTl
GAMLfl BI0
Slrnl 1147»
Rififi í Tokíó
(Rififi a Tokio)
Frönsik sakamálamynd með
ensku taii.
KARL BOEHM
BARBARA LASS
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
Sfmi 16444
Viridiana
Aðeins fáar sýningar.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.____
T ónabíó
Stmi' 11182
Bleiki pardusinn
(The Pink Panther)
Heimsfræg og smildar vel gerö
ný, amerísk gamanmynd í lit-
um og Technirama.
David Niven.
Petei Sellers
og
Claudia Cardmale.
Sýnd ki 5 og 9
Hækkað verð.
JÍlií^
WÓÐLEIKHÚSIÐ
JárnMusíiui
Sýning í kvöld kl. 20.
20. sýning
fiatterfly
Sýning annan hvítasunnudag
kl. 20.
Aðgöngumiðasalan opin frá fcL
13.15 tli 20 Sími 1-1200
ÍLEIKFL
mYKjAYtm^
Ævintýri á gönguför
sýning í kvöld kl. 20.30
Uppselt.
Næsta sýning þriðjudag
Sú gamla kemur
í heimsókn
Sýning annan hvítasunnudag
kl. 20.30.
Fáar sýningar eftir.
Sýning miðvikudag kl. 20.30
3 sýningar eftir.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opln frá kl 14 Simi 13191.
KáBMEsBÍ.0
Sfml «188»
Líf og fjör i
sjóhernum
Sprenghlægileg og vel gerð
ensk gamanmynd ) litum
ScinemaScope.
Aðalhlutverk:
KENNETH MORE,
Lloyd NOLAN.
Endursýnd fcL 5, 7 og 9.
SfmJ 22140
Hver drap Laurent?
(L- homme a femme)
Æsispennandi frönsk morðgátu
mynd, gerð eftir sögunnl
„Shadow of guilt“ eftir Patrick
Quentin.
Sagan birtist sem framhalds-
saga i danska vikublaðinu Ude
og Hjemme undir nafninu
„De fem mlstænkte“
Aðalhlutverk:
DANEELLE DARRIEUX
MEL FERRER
Danskur skýringartextL
Bönuð ínnan 16 ára.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
sim nllípi
Dagar víns og rósa
Hin rnikið umtaiaða mvnö
Sýn a kl y
Bönnuð Öðrnum