Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 ■ SÍMAR ÍO 28810 car rental 24460 bilaleigan GEYSIR BORGARTUNI 24 LOFTLEIDIR C 2 11 90 2 11 38 Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig með heimsóknum, kveðjum, blómum og góðum gjöfum á 80 ára afmæli mínu 5. marz s.l. og gerðu mér daginn ógleymanlegann. Guð blessi ykkur öll. Jónína Jónsdótir, Álfheimum 16, Reykjavík. Tunna af grá- sleppuhrogn- um ekki seld undir 71.400 GRÁSLEPPUVEIÐI er nú fyrir nokkru hafin, en það sem af er, hefur veiðin verið lítil, sökum vonzkuveðurs úti fyrir Norð- urlandi, og samkvæmt því sem Morgunblaðinu var tjáð í gær, reikna menn með að veiðin þar verði minni en í fyrra. Lágmarks- söluverð grásleppuhrogna hefur nú verið ákveðið og er það 280 dollarar tunnan eða 71.400 krónur. í fyrra var lágmarksverð fyrir hrognatunnu ákveðið 260 dollarar eða 66.300 krónur og seldist nokkurt magn af hrognum á hærra verði en því og fór allt í 290 dollara tunnan. Morgunblaðinu var tjáð í gær, að eftirspurn eftir grásleppu- hrognum væri svipuð og í fyrra, en menn væru ekki farnir að selja neitt af hrognum enn, menn vildu bíða og sjá hvernig veiðin gengi. Giscard ræðir við þingleiðtoga París, 29. marz. Reuter. GISCARD D'Estaing P>akklands- forseti átti í dag fundi með leiðtogum stjórnar og stjórnar- andstöðu í Frakklandi. Var haft eftir talsmanni forsetans að hann hygðist reyna að vinna að sann- gjarnri samhúð meirihluta og minnihluta á þingi. sem þó stefndi ekki samheldni meirihlut- ans í hættu. Giseard er sagður vera hlynntur því að veita vinstri- mönnum formennsku i' nokkrum áhrifamiklum þingnefndum og ganga með því til móts við þann na“r helming kjósenda sem greiddi þeim atkvæði sitt. Oskemmtilegur afmælisdagur UNGUR piltur varð fyrir bif- reið á Stekkjarbakka við Grænastekk laust eftir klukk- an 15 í fyrradag. Hann var fluttur á slysadeild Borgar- spítalans og reyndist vera ökkiabrotinn og með áverka í andliti og víðar á líkaman- um. Pilturinn varð 21 árs í gær og hefur þetta því ver- ið heldur óskemmtilegur af- mælisdagur. Þess má geta að eftir slysið missti bílstjórinn stjórn á bifreiðinni svo að hún valt en engin meiðsli urðu á þeim, sem í bílnum voru. Utvarp Reykjavlk FÖSTUDKGUR 31. marz MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund harnanna kl. 9.15. Þórunn Hjartardóttir endar lestur „Blómanna í Bláf jöllum" sögu eftir Jennu og Ilreiðar Stefánsson (4). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög milli atr. Ég man það enn kl. 10.25. Skeggi Áshjarnarson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00. Gcrvase de Peyer og Sin- fóníuhljómsveit Lundúna leika Klarínettukonsert op. 3 eftir Alun Hoddinott. David Atherton stj./ Fíl- harmoniusveitin í Bcrh'n leikur Sinfóni'u nr. 7 í d-moll op. 70 eftir Antonín Dvorák. Rafael Kubelik stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SIÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna. Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan. „Reynt að gleyrna** eftir Alene Cor liss Axel Thorsteinson les þýð- ingu sfna (12). 15.00 Miðdegistónleikar Lamoureux hljómsveitin í París leikur „Á sléttum Mið-Asíu“, sinfóni'skt Ijóð 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 S\ipmiklir s\anir (L) Þáttur úr dýramvnda; flokknum „Survival”. í þjóðgarði nokkrum í Eng- landi er stórt álftaver. Nýlega var fundin aðferð til að greina fuglana í sundur. og nú þekkjast meira en þúsund einstaklingar með nafni. Þýðandi og þiilur Gylfi Pálsson. eftir Alexander Borodín. Igor Markevitch stjórnar. Rússneska ríkishljómsveitin leikur Strengjaserenöðu í C-dúr op. 48 eftir Tsjaí- kovský. Jevgení Svetlanoff stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Útvarpssaga barnanna. „Dóra“ eftir Ragnheiði Jóns- dóttur Ragnarsson. 22.00 Metropolis Þýsk híómjnd frá árinu 1926 eftir l ritz I.ang. Aðalhlutverk Birgitte llelm og Gustav Frölirh. Sagan gerist í framtíðar- borginni Metropolis. þar sem einræðisherra ra‘ður ríkjuni. Borgarbúar skipt- ast í tvo hópa. fyrirfólkið. sem býr við allar heimsins lystisemdir. og vinnufóikið. sem þralar neðan jarðar. Erlendur Sveitisson flytur formála. Þýðandi Guðhrandtir Gfsla- son. Dagskrárlok Sigrún Guðjónsdóttir les sögulok (22). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. KVÖLDIÐ______________________ 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðfangsefni þjóðfélags- Ásdís Skúladóttir þjóðfé- lagsfræðingur flytur erindi um rannsóknir á öldruðum í fslenzku þjóðfélagi. 20.00 Sinfónfa nr. 2 í e-moll op. 27 eftir Sergej Rakhman- inoff Sinfónfuhljómsveitin í Fíla- delfíu leikur. Hljómsveitar- stjórii Eugene Ormandy. 20.50 Gestagluggi Hulda Valtýsdóttir stjórnar þætti um listir og menning- armál. 21.40 Gítarkonsert í a-moll op. 72 eftir Salvador Bacarisse Narciso Yepes og Sinfóníu- hljómsveit spænska útvarps- ins leikat Odón Alonso stjórnar. 22.05 Kvöldsagani „Dagur er upp kominn“ eftir Jón Helgason Sveinn Skorri Höskuldsson les (4). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Gleðistund Umsjónarmenni Guðni Ein- arsson og Sam Daniel Glad. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. 21.00 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. 23.30 FÖSTUDVGUR Umsjónarmaður Ómar 31. mars Blómatínsla Óla í „Morgunstund barn- anna“ í dag lýkur Þórunn Hjartardóttir lestri sög- unnar um „Blómin í Blá- fjöllum" eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson. Saga þessi kom út árið 1970 og aðspurður sagði Hreiðar Stefánsson að hún væri í raun lítið ævintýri. Hún fjallaði um það þegar pabbi, mamma og stóri bróðir fóru í kaupstaðinn en skildu Óla litla einan eftir hjá ömmu sinni á meðan. Óli litli veit aö mamma hefur gaman af blómum og ætlar að tína handa henni nokkur blóm. Þegar Óli litli er byrjaður að tína finnst honum alltaf sem blómin séu því fallegri sem þau eru lengra í burtu, og fer hann því lengra og lengra. Að lokum lendir hann inn í fjallinu, en þaðan er ekki hægt að komast út nema leggja mikið á sig. Hreiðar sagði að lokum að einnig mætti líta á söguna sem dæmisögu, það sem er í fjarlægð sé alltaf girnilegast. LOKALESTUR „Blómanna í Bláfjöllum" er í Morgunstund barnanna" f dag klukkan 9.15. Bókin er eftir hina vinsælu harnahókahöfunda Jennu og Ilreiðar Stefánsson, en teikn- ingar í bókinni gerði Baltazar. Gospel-tónlist „Á gleði- stundV* SÍÐASTI dagskrárliður út- varpsins í kvöld er þátturinn „Á gleðistund“ í umsjá þeirra Guðna Einarssonar og Sams Daniels Glads. í viðtali við Mbl. sagði Sam Glad að í þættinum í kvöld yrðu þrjú efni tekin fyrir. Fyrst er bandaríkjamaðurinn Chuck Girard kynntur, en hann var í hljómsveitinni Lovesong sem stofnuð var í byrjun sjötta áratugarins. Upphaflega lék hljómsveitin venjulega pop-tónlist en breytti síðan um stíl og tók að leika gospel-tón- list. Má segja að meðlimir Lovesongs hafi verið Jesú-hipp- ar, þó með öllu ólíkir guðsbörn- unum með Moses Efávid í fararbroddi. Leikin eru í þætt- inum nokkur lög hljómsveitar- innar, en hljómsveitin lagði upp laupana í kringum 1973. Næst er tekið fyrir í „Á gleðistund" innlent efni, og er fyrst leikin lög af plötunni „Unga kirkjan" sem út kom fyrir nokkrum árum. I þriðja lagi er vikið lítillega að norskri tónlist. Norsk-bandaríska söngkonan Evi syngur nokkur lög, en Evi þessi er nú búsett í Svíþjóð. Tværs-kórinn á lokaorðið í þættinum í kvöld, en sá kór er einnig norskur. Þetta er fjórði þáttur þeirra félaga Guðna og Sam Glad og er ætlunin að „Á gleðistund" verði á hálfs mánaðar fresti út vetrardagskrána. „Svipmiklir svanir“ nefnist brezk dýramynd sem sýnd verbur i sjónvarpi klukkan 20.35 i kvöld. Myndin fjallar um nýlega aöferö sem fundin var upp til aÖ greina fuglana í sundur, i þjóögaröi einum i Englandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.