Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 Um 500 hafa sótt um leyfi til grásleppuveiða (iRÁSLEPPUVEIÐI er nú hafin nctrúanlands «k austan. bann 1. aprfl hefst veiði við Uúnaflóa og Noróvesturland «k þann 17. apríl er heimilt að hefja Krásleppuveiði við Suður «k Suðvesturland. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér hjá Jóni B. Jónassyni deildarstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, þá hafa 500 umsóknir borist til sjávarút- vegsráðuneytisins um grásleppu- veiðar á þessu ári. A síðasta ári, en þá þurfti í fyrsta sinn að sækja — Raforkuverð hækkað... Framhald af bls. 32. það væri þó ekki komið í endan- lega hiifn. Frá umræðunum á Alþingi er nánar skýrt á þingsíðu Morgum blaðsins í dag, á bls. 12 og 13. I umræðunum kom fram að ein af meginástæðum fyrir erfiðleikum Rafmagnsveitna ríkisins er að sá þáttur í raforkusölu fyrirtækisins, sem er sala rafmagns til húsahit- unar, er óeðlilega hár. Um helm- ingur þeirrar raforku, sem fyrir- tækið selur, fer til húshitunar, en af heildartekjum þess nemur það fé, sem kemur inn fyrir raforku- sölu til húshitunar, aðeins 25%. Ennfremur hefur stefna fyrrver- andi ríkisstjórnar, sem miðaði að því að auka húshitun með raforku, valdið því að dreifikerfi hefur orðið of lítið langt fyrir tímann, þar sem burðargeta þess stenzt ekki slíkar kröfur. Þá kemur og fram, að uppbygg- ing Rafmagnsveitna ríkisins er með þeim hætti að unnt er að skipta fyrirtækinu í hluta, sem er arðbær og annan sem er félagslegs eðlis. Ríkisstjórnir hafa aldrei í raun gert slíkt upp við sig, og til félagslegra þarfa þurfi að koma fjárframlög. Sú félagslega þjón- usta sem Rarik þarf að láta í té er baggi á fyrirtækinu — það hefur alltaf goldið þessa. í athugun mun nú að gera úttekt á þessum tveimur þáttum Rarik, svo að unnt sé að gera sér Ijósa þessa tvískipt- ingu fyrirtækisins. — Björguðust naumlega... Framhald af bls. 32. náði strax taki á línunni sem við höfðum skotið í land, og var því fljótur að komast upp í fjöru með hjálp heimamanna, en ég var hins vegar dálítið lengur að átta mig á því að línan var þarna. Þegar ég náði henni hins vegar, var ég fljótur að komast upp. Agúst var hins vegar síðastur okkar upp, enda hafði hann flækzt í línunni, svo að honum gekk langverst að komast í gegnum brimgarðinn og var orðinn nokkuð þjakaður þegar upp var komið. Gizkum við á að við höfum verið í sjónum 5 til 15 niínútur en annars áttar maður sig alls ekki á tímanum undir svona kringum stæðum." Baldur sagði að þeir varðskips- menn væru vanir volki og hann kvaðst áður hafa komizt í hann krappann við svipaðar aðstæður. „Uins vegar höfum við hvergi fengið eins góða aðhlynningu og viðurgjörning og hérna," sagði Baldur enda voru þeir þremenn- ingar þá nýkomnir úr góðu gufu- baði til að taka úr þeim hrollinn. um leyfi til þessara veiða um leið og ýmis önnur takmörk voru sett fyrir veiðunum, var sótt um veiðileyfi fyrir 720 báta, en 150 notfærðu sér leyfið. Loðnuskipin hætta veiðum LOÐNUSKIPIN eru nú sum hver hætt veiðum. þar sem engin loðna hefur fundizt cftir páska við suðurströndina. Eftir páska héldu um og yfir 40 skip til loðnuveiða á ný og hafa þau leitað loðnu frá Reykjanesi allt austur fyrir Hornafjorð. án þess að hafa orðið viir. Ef miðað er við reynslu fyrri ára. þá hefur loðnuveiðum oft 'lokið um mánaðamótin marz- apríl. en einstaka sinnum hefur veiðin verið nokkuð fram í apríl. — Frumvarp um verðlagsmál Framhald af bls. 32. Hæstiréttur skipi tvo menn í verð- lagsráð og segir í frumvarpinu, að þeir skulu vera „óháðir fyrirtækjum og samtökum þeirra, sem lög þessi ná til og hafa þekkingu á viðskipta- og neytendamálum og kunnáttu í lögfræði eða hagfræði. Verðlagsráð getur fjallað um öll þau mál, sem lögin eiga að taka til, en ákvöröunar- vald í samkeppnismálum og varðandi upplýsingar og viðskiptaaðferðir gagnvart öðrum fyrirtækjum eöa neytendum er í höndum samkeppnis- nefndar, sem skipuð verður formanni verðlagsráðs og þeim tveimur verð- lagsráðsmönnum, sem Hæstlréttur skipar. Verðlagsstofnun annast dag- leg störf verðlagsráðs og veitir verðlagsstjóri stofnuninni forstöðu, en hann eða staðgengill hans skulu sitja fundi verölagsráös án atkvæðis- réttar. Við verðlagsstofnunina skal starfa sérstök neytendamáladeild. í lagafrumvarpinu segir, að verð- lagsstofnun geti krafizt allra upplýs- inga, sem nauðsynlegar eru vegna starfseminnar, kvatt menn á sinn fund til skýrslugjafar og einnig á hún aö hafa rétt til að kanna reikninga og bókhald og til að framkvæma athuganir á starfsstað. Verðlags- stofnun á að geta krafizt skýrslna frá öðrum stjórnvöldum, sem ekki eru háð venjulegri þagnarskyldu gagn- vart verðlagsstofnuninni. Við lausn efnahafsmála yrði ríkis- stjórninni heimilt að beita verðstöðv- un, en verður að leita álits verðlags- ráðs þar um og getur svo falið verðlagsstofnuninni eftirlit með ákvörðunum sínum. Þá segir í frumvarpinu, að verð- lagsstofnun skuli í því skyni „að örva verðskyn neytenda, efla verðsam- keppni og til að tryggja sanngjarna verðlagsþróun, rannsaka verð og álagningarhætti á einstökum vörum cg vöruflokkum og birta greinargerð- ir og fréttatilkynningar þar um“. í frumvarpinu er sérstakur kafli um óréttmæta viðskiptahætti og neytendavernd, þar serri ýmsar reglur eru settar fram um viðskipta- aðferðir gagnvart öðrum fyrirtækjum og neytendum. í frumvarpinu segir, að „hafi fyrirtæki hagnazt af aðgerðum, sem brjóta í bága við ákvaröanir verð- lagsráðs, samkeppnisnefndar eða verðlagsstofnunar, geti verðlagsráð ákveðið, að hagnaður umfram þann sem til var ætlazt, komi til frádráttar við ákvörðun verðs eða álagningar síðar“. Brot gegn lögunum skuli varða sektum og miklar sakir eða ítrekuð brot varðhaldi eða fangelsi allt að 4 árum. Heimilt er að beita sektum jafnframt refsivist. Svipta má söku- naut rétti til að stunda starfsemi, sem opinbert leyfi eða löggildingu þarf til, um tiltekinn tíma, allt að 5 árum eða ævilangt. Þá er upptaka eigna samkvæmt almennum hegningarlög- um heimil. [ frumvarpinu segir, að lögin skuli öðlast gildi 6 mánuðum eftir staðfest- ingu og bráðabirgðaákvæði er um, að þær samþykktir um hámarks- álagningu, hámarksverð og aöra framkvæmd verðlagseftirlits, sem í gildu eru, þegar lögin taki gildi, skuli halda gildi sínu áfram, „þar til verðlagsráð 'hefur tekið afstöðu til þeirra". Viðskiptaráðherra fól í marz 1976 þeim Björgvin Guðmundssyni, skrif- stofustjóra í viðskiptaráðuneytinu, Georg Ólafssyni, verölagsstjóra, og Gylfa Knudsen, fulltrúa í viðskipta- ráðuneytinu, að semja frumvarp til laga um verðlagsmál í samræmi við ákvæði stjórnarsáttmálans, segir í athugasemdum með frumvarpinu. Þar segir, að ráðherra hafi þegar tekið fram, að í frumvarpinu skyldu verða ákvæði um eftirlit með ein- okunarfyrirtækjum og fyrirtækjasam- tökum og síðar hafi ráðherra óskað eftir því að í frumvarpinu yrði kafli um óréttmæta viðskiptahætti og neyt- endavernd. Drög að frumvarpinu voru send eftirfarandi aðilum til umsagnar: Verzlunarráði íslands, Félagi ís- lenzkra stórkaupmanna, Kaup- mannasamtökum íslands, Félagi ís- lenzkra iðnrekenda, Vinnuveitenda- sambandi íslands, Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga, Alþýðusam- bandi íslands, Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, Bandalagi háskólamanna, Kvenfélagasambandi íslands og Neytendasamtökunum. Var fyrst gefinn mánaðarfrestur til umsagnar og síðan annar mánuður en aðeins tvö síðasttöldu samtökin skiluðu álitum í tæka tíð. Segir í athugasemdum með frumvarpinu, að aðrar umsagnir hafi borizt „löngu eftir aö tilskilinn frestur rann út“. Umsagnirnar fylgja með frumvarpinu. í athugasemdunum segir, að sam- kvæmt ósk viðskiptaráðherra hafi verið gerðar nokkrar breytingar á frumvarpsdrögunum, sú mesta til að kveða mun sterkar á um það en áður, að verðlagning skuli frjáls, ef sam- keppni er nægileg. —Slitnar upp úr? Framhald af bls. 32. baggi á atvinnuvegunum. Þá hefur einnig veriö rætt um að fara þess á leit við ríkisstjórn að vextir yrðu lækkaðir til þess að létta á atvinnuvegunum. Hefur misjafnlega verið í það tekið. Helzti möguleikinn er að ná samstöðu um launaskatts- málið, að því er Mbl. fregnaði í gær. I gær var haldinn mið- stjórnarfundur Alþýðusam- bandsins. Fundurinn var venju- legur, en þó mun 10-manna nefnd ASI hafa gert grein fyrir málunum þar, svo og full- trúarnir úr undirnefndinni, sem skýrðu viðræðurnar við vinnuveitendur. Ráðgerður er síðan 10-manna nefndarfundur í dag klukkan 14. — Rhódesía Framhald af bls. 1. Rhódesíu. Þá féllu í bardögunum átta hermenn Rhódesíustjórnar. Oáreiðanlegar fréttir herma að skæruliðarnir hafi farið yfir landamæri Rhódesíu í Burmadaln- um, um 300 kílómetra frá borginni Umtali. Meðferðis höfðu skærulið- arnir bæklinga þar sem sagði að blökkumenn myndu aldrei viður- kenna hina.nýju stjórnarskrá sem forsætisráðherra Rhódesíu, Ian Smith, og blökkumannaleiðtogarn- ir þrír, Abel Muzorewa, biskup, Ndabaningi Sithole og Jeremiah Chirau, sömdu. Samkvæmt þeirri stjórnarskrá eiga blökkumenn að fá aðild að stjórn Rhódesíu 31. desember í ár, en tveir útlægir blökkumannaleiðtogar hafa af- neitað stjórnarskránni og sagt að þeir muni halda, skæruhernaði sínum áfram. í dag átti Muzorewa, Sithole, Chirau og Smith með sér sinn þriðja fund um hvernig ráðherra- embætti eiga að skiptast á milli hvítra manna og blökkumanna, en enginn árangur náðist á þeim fundi. Annar fundur hefur verið boðaður á þriðjudag. í Lusaka var frá því skýrt í dag að ókunnir menn hefðu gert skotárás í síðustu viku á skæru- liðaforingjann Alfred „Nikita“ Mangena sem hefði særzt í árás- ipni. Hann er talinn eiga sæti í æðstu stjórn ZAPU, skæruliða- hreyfingar Joshua Nkomos. — Sadat Framhald af bls. 1. inn heyrist ekki og bendi til þess að skotið sé á mörk langt í burtu. „Við vörpum um 200 — 300 sprengjum á dag til að koma í veg fyrir að Israelsmenn komi upp nýjum stöðvum í nágrenni brúar- innar. Þeir hafa gert endurteknar tilraunir til að ná brúnni en við höfum jafnan hrakið þá í burtu,“ sagði Abu Fatal. Ekki er ljóst hvort skæruliða- hópurinn, sem Fatal er í forsvari fyrir, starfar sjálfstætt og óháð Arafat, sem skipaði sínum mönn- um að virða skilyrði ísraelsmanna fyrir brottför frá Líbanon. Bandaríska útvarpsstöðin ABC hafði í kvöld eftir heimildum nánum Sadat forseta, að forsetinn hefði orðið mjög reiður er hann uppgötvaði að Weizman kom ekki með neinar tillögur til Kairó, sem leitt gætu til nýrra friðarvið- ræðna. „Forsetinn telur sig hafa verið snuðaðan og er mjög reiður,“ hafði stöðin eftir heimildum sínum. — Carter í Brasilíu Framhald af bls. 1. Bandaríkin ættu alls ekki að nota efnahagsstyrk sinn til að beita Brasilíustjórn þvingunum vegna ásakana um misferli á sviði mannréttindamála. „Misferli á sviði mannréttinda er alþjóðlegt vandamál og við Bandaríkjamenn verðum einnig að líta í eigin barm í þeim efnum,“ sagði Carter. — Fjárhags- vandræði Framhald af bls. 13. kvaðst Pálmi miklu fremur vera þá, að fjárhagsvandamál fyrirtækisins voru búin aö vera lengi hjá ríkisstjórninni án þess að nokkuð væri gert til þess að leysa þau. Þær ráðstafanir, sem nú hefðu verið gerðar, hefðu leyst vandann að nokkru leyti — eftir stæöi það sem koma hefði átt inn fyrir verðjöfnunargjaldiö samkvæmt tillög- um þremenninganna, 235 milljónir króna. Kvaðst Pálmi vænta þess að á næstu dögum lægi fyrir lausn á þessu vandamáli. Þá benti Pálmi á aö meðalverö frá Rarik á raforku hefði fyrir skömmu verið 11.47 krónur á hverja kílówatt- stund, en hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur 12.92 krónur. Síðan hefði verðið verið hækkað um 20%. Því væri meðalverð raforku frá Rarik hærra í dag en frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur Og eftir 1. maí, er húshitunartaxtar hefðu hækkað um 25% kvaöst hann ætla aö raforkuverð til húshitunar yrði um 85 til 86% hærra hjá Rarik. — Afmæli Þórður Framhald af bls. 9. söngs var ókeypis unnio. Hér var vandað til söngs. Þórður Krist- leifsson hefði aldrei talið, hvorki börnum né unglingum, trú um það, að hægt væri að koma með söng né lestur fram fyrir almenning eftir snögga æfingu. Mikil æfing, dýpsta alvara, fullkomin vand- virkni, hæsta mark, er alltaf mark Þórðar Kristleifssonar. Þetta veit ég, aö allir hljóta að kannast við, sém þekkja Þórð. Þess vildi ég óska hverjum Islendingi ungum, að hann ætti eldmóð og einbeitni, líkt og Þórður Kristleifsson, til þess að ná hæsta miði í hverju góðu alúðar verki, sem vinna skal. Þó að sjónarsviptir hafi orðið að mörgum ágætum kennara, sem fór frá Laugarvatni, ýmist í fullu starfi ellegar að starfs lokum, þá hygg ég ekki ofmælt, að jafn áberandi viðbrigði hafi ég aldrei séð við brottför eins kennara. — Aður fór þar söngur um sali. Eftir brottför hans voru salir söngsins hljóðir. Enn voru þar söngraddir áfram, „en bundin var tungan og þagði“. Fagri söngurinn æsku- raddanna hvarf með honum. Þótt nemendur æfðu stundum sjálfir söng, var það að vonum allt svipur hjá sjón þess liðna tíma. Enginn æfði framar skólakór til kirkjusöngs. Mikill söngstjóri og organisti er stór þáttur hverrar guðsþjónustu. Þann þátt vantar nú við skóla Laugarvatns. Nú sendum við Mosfellshjón elskulegu heimili Þórðar Krist- leifssonar og frú Guðrúnar Eyþórsdóttur innilegt þakklæti fyrir samstarf liðins tíma og fyrir dýrmæt kynni. Með blessunaróskum. Rósa B. Blöndals. — ÍS varð bikarmeistari Framhald af bls. 31. ÍS og 15 á Val. ÍS tók 22 vítaskot og hitti úr 11, en Valur fékk 15 vítaskot og hitti úr 11. Leikinn dæmdu Erlendur Eysteins- son og Þráinn Skúlason og dæmdu þeir mjög vel lengst af, en undir lokin misstu þeir nokkuð tökin á leiknum. ÁG. — Aukatónleikar Framhald af bls. 2 skáldið og stjórnandinn Joseph Horovits, en hann stjornar hér tveimur verkum eftir sjálfan sig, m.a. hinum fræga Jazz-konserti fyrir píanó og hljómsveit, en einleikari í þessu verki verður Rhondda Gillespie frá Ástralíu. Hún er mjög frægur píanisti og hefur haldið tónleika víða um heim. Að lokum skal nefna enska tónskáldið Paul Patterson, en hann stjórnar einu verki eftir sjálfan sig er hann nefnir Rebecca. Að öðru leyti er efnisskráin mjög létt og mun hljómsveitin bregða á leik í orðsins fyllstu merkingu. Auk ofangreindra munu nokkrir íslenzkir einsöngvarar taka þátt í þessu spaugi. — Sovézkir Framhald af bls. 16 Þeir hafa viku til að áfrýja dómnum. Vinunrog vandamönn- um var meinað að hlýða á réttarhöldin, sem fóru fram í borginni Vasikon, rétt við Kiev. Þá hermdu fréttir að réttar- höldum yfir þriðja andófs- manninum, Pyotr Vins, hefði verið frestað til sjötta apríl. Vins var handtekinn 21. febrúar síðastliðinn, er hann neitaði að hlýða skipunum stjórnvalda og verða sér úti um vinnu. Hann er sonur baptistaleiðtogans Georgy Vins, sem nú er í fangelsi. ■ Marinovich og Matusevich voru handteknir í apríl í fyrra, eftir að húsrannsókn hafði verið gerð hjá níu félögum í Helsinki- nefndinni. I júlí var leiðtogi andófsmannanna, Mykola Rudenko, dæmdur í sjö ára þrælkunarvinnu og annar and- ófsmaður, Oleksa Tikhy, var dæmdur til 10 ára þrælkunar- vinnu. Andófsmenn í Sovétríkjunum hafa stutt vel við bakið á Marinovich og Matusevich í baráttu þeirra við stjórnvöid, og nú hefur einn af ættingjum Marinovichs, Maria Mencinsky, sem býr í Ástralíu, beðið Ástra- líustjórn að skerast í leikinn. — Stak- steinar Framhald af bls.7. hlutskipti sitt. Fáir ís- lenzkir kjósendur efast um „vilja" þess ti) að sitja enn einu sinni, ef sætt væri, að stjórnar og Natóaðild! Enginn myndi samt treysta því fyrir mótun utanrikis- eða öryggisstefnu þjóð- arinnar. Að baki ails hringlandaháttarins býr enn sá komma- kjarni. sem ferð réð hjá forverum. Sósíalista- flokki og Kommúnista- flokki. Það er mergur- inn málsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.