Morgunblaðið - 16.04.1978, Side 32
GLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JBorauntiI«bil>
AUGLÝSINGASIMrNN ER:
22480
JRirtiudibiit
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1978
Varnarliðið reisir jarðstöð:
Á að komast í
gagnið í sumar
Bandarískt fyrirtæki með
lægsta tilboðið í jarðstöðina
Sjö erlend tilbod á bilinu frá 909—1600 milljónir króna
VARNARLIÐIÐ er að koma sér
upp jarðstiið. sem komast á í
Katínið í sumar. Verið er að reisa
undirstöður undir jarðstöðina.
sem síðan verður flutt beint frá
Bandaríkjunum ok sett niður á
stað eÍKÍ lanKt frá vatnstankinum
á KeflavíkurfluKvelli. Þessi fram-
kvæmd var samþykkt í varnar-
máiadeild utanríkisráðuneytisins
á si'ðastliðnu sumri.
Páll Asgeir Tryggvason sendi-
herra og yfirmaður varnarmála-
deildar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þessi jarðstöð ætti
bæði að geta tekið við boðum frá
gervihnetti og sent boð til hnattar,
fullkomin fjarskiptastöð, sem
auka mundi al|t öryggi í fjar-
skiptamálum íslands við umheim-
inn.
Nokkrum sinnum hefur það
gerzt að sæsímastrengir milli
Islands og annarra landa hafa
slitnað og hefur ísland þá verið
sambandslaust við umheiminn. í
neyðartilfellum hefur þá varnar-
liðið hlaupið undir bagga og lánað
Framhald á bls. 30.
Við opnun tilhoða í jarðstöðina í gær. Lengst til vinstri eru Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, Halldór
E. Sigurðsson ráðherra. Við langa borðið eru fulltrúar Pósts- og síma, en við hljóðnemann er Jón Skúlason
póst- og símamálastjóri. Ljósmynd Mbl. Ól. K.M.
SJO crlend tilboð bárust Póst- og
símamálastjórn í hyggingu og
tæki jarðstöðvar íyrir fjarskipta-
samband um gervihnött til og frá
íslandi. Lægsta tilboðið var frá
handan'ska fyrirtækinu ITT
Space Communications. Hljóðar
tilboðið upp á 909 millj. 343 þús.
kr. Tilboðin voru opnuð að
viðstöddum Ilalldóri E. Sigurðs-
syni ráðherra embættismönnum
Flugvél maga-
lenti á
TVEGOJA hreyfla flugvél af
gerðinni Piper Astic magalenti á
Isafjarðarflugvelli í gærmorgun.
Isafirdi
I Flugmaðurinn var einn í vélinni
og slapp hann ómeiddur, en
I skemmdir á flugvélinni voru ekki
fuilkannaðar, þegar Mbl. fór í
prentun í gær. Óhapp þetta olli
því að áadlunarflugvél Flug-
félags íslands tafðist á ísafirði.
þar sem hún komst ekki í loftið
vegna hinnar vélarinnar, sem lá
á miðri flugbrautinni. Þegar Mbl.
síðast frétti í gær var ekki ljóst,
hvað olli því að flugvélin maga-
lenti.
Óhappið varð laust eftir klukkan
11:30 í gær. Flugvélin, sem er í
eigu Flugfélags Norðurlands, var
að koma til Isafjarðar að sækja
þrjá farþega til Akureyrar, en
Flugfélag Norðurlands heldur uppi
tveimur föstum ferðum í viku
þarna í milli, á þriðjudögum og
laugardögum. Eftir að flugvélin
magalenti rann hún beint áfram
unz hún stöðvaðist á miðri flug-
brautinni. Talið er að skemmdir
hafi orðið á skrökk og hreyflum.
Þegar vélin magalenti var áætlun-
arflugvél frá Flugfélagi íslands á
ísafjarðarflugvelli og átti hún að
fara þaðan laust fyrir klukkan
tólf. Þrjár ferðir voru fvrirhugað-
Framhald á bls. 30.
þriggja manna jarðstöðvarnefnd-
ar, sem unnið hefur að framgangi
málsins, tók fram við opnun
tilboða í gær að ekki væri endilega
víst að lægsta tilboðið væri
hagstæðast að óathuguðu máli.
Tilboðin miða við byggingu loft-
nets stöðvarinnar, en það verður
32 metrar í þvermál, stálgrind
undir loftnetið, undirstöðuhús,
aðaltækjasal stöðvarinnar og allan
radíóbúnað, sendingar- og mót-
tökutæki ásamt stjórntækjum.
Útboðsgögn voru send til 14
erlendra aðila, en einnig var óskað
eftir sértilboðum í varaaflstöð og
ýmsan annan útbúnað til þess að
gefa íslenzkum fyrirtækjum kost á
að bjóða í verkin.
Næstlægsta tilboðið var frá
STS. S.p.A. á Ítalíu og hljóðaði það
upp á 934 millj. 380 þús. kr. Nr. 3
var tiiboð frá bandaríska fyrir-
tækinu E.System Inc. í Dallas í
Texas upp á 117 millj.kr. Nr. 4 var
Framhald á bls. 30.
og ýmsum fulltrúum þeirra sem
buðu í verkið. Jón Skúlason póst-
og si'mamálastjóri sagði í samtali
við Morgunhlaðið í gær að það
myndi taka nokkrar vikur að
kanna tilboðin, en reiknað væri
með að jarðstöðin gæti verið
komin í notkun seinni hluta
nsesta árs.
Ólafur Tómasson, formaður
Tveir af hinum erlendu fulltrúum fyrirtækjanna sem buðu í byggingu
og tækjabúnað jarðstöðvarinnar. Vinstra megin er Larry M. Layzell
fulltrúi ITT sem á lægsta tilboðið í stöðina, en hægra megin er fulltrúi
E. System sem átti þriðja lægsta tilboðið.
„Ástæda til ad verja
unglinga gegn sýning-
um ofbekiiskvikmynda’’
- segir Hulda Valtýsdóttir í kvikmyndaeftirlitinu -
AÐ UNDANFORNU hefur sýn-
rngum fjölgað hér á landi á
svokölluðum hryllingsmyndum
þar sem kvikmyndaframleið-
endur ganga si'fellt lengra og
lcngra í því að nota sem
ógeðslegustu atriði í myndum
sínum. en á flestum Norður
löndunum hefur verið tekið
upp strangara eftirlit með
slíkum myndum. því almenn-
ingur þar krefst þcss að ungl-
ingar séu varðir fyrir slíkum
myndum með þvf að banna
sýninar á þeim. Morgunblaðið
sneri sér til Huldu Valtýsdótt-
ur, en hún er í kvikmyndaeftir-
litinu ásamt Erlendi Vilhjálms-
syni og Jóni Gissurarsyni, og
innti hana álits á þeirri þróun
sem á sér stað í þessum efnum
og hvort ástæða sé til að gera
breytingar á fslenzkum lögum
um sýningar slíkra mynda.
„Eg vil ekki vera ósanngjörn
gagnvart kvikmyndahúsunum,"
sagði Hulda, „því það er mjög
misjafnt hvers konar myndir
þau bjóða upp á.
En það fer í vöxt að ofbeldis-
kvikmyndir sem eru sýndar
byggja á stöðugt hryliilegra
Framhald á bls. 30.
Veðurguð-
irnir and-
stæðir K.B.
Andersen
ÓHAGSTÆÐ veðurskilyrði
komu í veg fyrir að Knud Börge
Andersen, utanríkísráðherra
Dana, kæmist til Vestmanna-
eyja og Egilsstaða í gær, svo
sem gert hafði verið ráð fyrir
í hinni opinberu dagskrá heim-
sóknar hans til íslands. í
Eyjum var skyggni aðeins 200
metrar og á Egilsstöðum viðr-
aði heldur ekki fyrir heimsókn-
ina. Þess í stað skoðaði ráð-
herrann laxeldisstöðina í
Kollafirði og síðdegis í gær var
ráðgert að fara til Hveragerðis.
í Kollafirði tók á móti
ráðherranum Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri og sýndi hann
K.B. Andersen stöðina, eldisker
bæði úti og inni. Áður en lagt
var af stað upp í Kollafjörð um
klukkan 10 í gærmorgun var
farið í skoðunarferð um vestur-
hluta höfuðborgarinnar og rétt
uni tólfleytið, er aftur var
komið til borgarinnar, var farin
hringferð um Breiðholtið og
austurhluta borgarinnar. Há-
degisverður var síðan snæddur
Framhald á bls. 30.
30 breskir
blaðamenn
koma með
Stranglers
BLAOAMANNAFUNDUR vegna
nýrrar hijómplötu brezku hljóm-
sveitarinnar Stranglers verður
haldinn í Skíðaskálanum í
Hveradölum 3ja maí n.k., en pá
um kvöldið leikur hljómsveitin á
tónleikum í Reykjavík.
Það er fyrirtækið United Artists,
sem gefur hljómplötuna út, og er
reiknað með að um 30 brezkir
blaðamenn komi með hljómsveit-
inni vegna blaðamannafundarins,
þar á meðal frá Melody Maker,
New Musical Express og BBC.
Einnig munu um 30 fulltrúar
United Artists í Evrópu, Japan og
Bandaríkjunum koma hingaö af
þessu tilefni.