Morgunblaðið - 13.07.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULI 1978
5
Ráðherrar þing-
uðu að Hvanneyri
FUNDUR norrænu samvinnu-
ncfndarinnar um landbúnaðar
mál var haldinn í Bændaskólan-
um að Hvanneyri 6. júlí s.l.
Landbúnaðarráðherrar Noregs,
Svíþjóðar og íslands sátu fund-
inn, en auk þeirra mættu til
fundarins fulltrúar iandbúnaðar-
ráðuneyta Norðurlanda ásamt
ýmsum fulltrúum stofnana
landbúnaðarins.
Á fundinum var gerð grein fyrir
stöðu landbúnaðarins í hverju
landi fyrir sig, svo og innflutningi
og útflutningi landbúnaðarvara.
Gerð var grein fyrir starfsemi
alþjóðastofnana, er snerta land-
búnað Norðurlandaþjóðanna.
Föstudaginn 7. júlí heimsóttu
fundarmenn tvo bændur í Borgar-
firði og skoðuðu býli þeirra og
búskap. Ekið var um Húsafell og
Kaldadal og Þingvellir skoðaðir
undir leiðsögn þjóðgarðsvarðar.
Næsti fundur norrænu sam-
vinnunefndarinnar verður haldinn
í Danmörku í janúar 1979.
(Fréttatilkynning).
Heildaraf linn
fyrstu 6 mán. held-
ur minni en í fyrra
HEILDARAFLINN fyrri hluta
þessa árs varð alls 782,010 lestir
samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags Islands en varð ails
857,984 lestir í fyrra og stafar
þessi munur að langmestu leyti af
lakari ioðnuvertíð f ár, þar scm
nú vantaði um 80 þúsund tonn
upp á miðað við hcildaraflann á
loðnuvertíðinni í fyrra. Heildar-
botnfiskaflinn fyrra helming
þessara tveggja ára er hins vegar
svipaður eða 276,464 lestir nú á
móti 284,916 lestum í fyrra.
Heildaraflinn í ár skiptist þann-
ig að bátaaflinn fyrstu sex mánuð-
ina varð samtals 149,413 lestir
miðað við 158,056 lestir á sama
tíma 1977, og togaraaflinn varð nú
127,051 lestir á móti 126,861 lest í
fyrra. Bátar lönduðu alls 92,588
lestum í verstöðvum á svæðinu
Vestmannaeyjar-Stykkishólmur
og togarar 51,320 lestum. Á
Vestfhörðum lönduðu bátar á
þessu tímabili 20,124 lestum og
togarar 23,576 lestum, á Norður-
landi lönduðu bátar 15,559 lestum
og togarar 31,809 lestir, á Aust-
fjörðum lönduðu bátarnir 19,269
lestum og togararnir 17,426 lestum
en erlendis lönduðu bátar 1873
lestum og togarar 2920 lestum.
Loðnuaflinn fyrstu sex mánuð-
ina í ár varð samtals 468,425 lestir
en 553,026 lestir í fyrra á sama
tíma, rækjuaflinn var nú alls 4641
lest á móti 4239 í fyrra, humarafl-
inn 1988 lestir nú en en 1966 lestir
í fyrra, hörpudisksafli var núna
3575 lestir en í fyrra 1646 lestir,
kolmunnaafli var núna 7656 lestir
en 5228 lestir í fyrra og annar afli,
svo sem spærlingur, var núna
20,108 lestir en 6954 lestir í fyrra.
Aflabrögð í júnímánuði einum
voru svipuð og í sama mánuði í
fyrra, botnfiskaflinn nú var. t.d.
41,122 lestir á móti 39,415 lestum
í fyrra og heildaraflinn 44,867
lestir á móti 46,538 lestum í fyrra.
Allharður árekstur varð á gatnamótum Höfðabakka og
Vesturlandsvegar fyrrihluta dags í gær. Þar rákust á
fólksbíll og sendiferðabifreið með þeim afleiðingum að hinn
síðarnefnda valt á hliðina. Ekki urðu þó slys á fólki í
þessum árekstri. Ljósm. Óskar Sæm.
Jónas Kristjánsson
Fyrirlestur
í Norræna
húsinu
JÓNAS Kristjánsson, prófessor,
flytur fyrirlestur í, kvöld klukkan
20.30 í Norræna húsinu. Fyrir-
lesturin fjallar um handrit Is-
lendingasagnanna og útskýrir
Jónas fyrirlesturinn með skugga-
myndum.
Á eftir fyrirlestrinum eða
klukkan 22.00 verður sýnd kvik-
myndin „Heyrið vella á heiðum
hveri“, en sú mynd fjallar um
íslenzka hveri.
Verðlaun fyrir bílasprautun
Blaðaúrklippan hér fyrir ofan
barst Mbl. nýlega frá Ástralíu.
Þar segir frá ungum Islendingi,
Friðriki Hjaltasyni að nafni,
sem nýlega vann til verðlauna í
iðnskóla í Sydney. Verðlaunin
hlaut Friðrik fyrir bilasprautun,
en hann hefur fengizt við að
mála frá sjö ára aldri, þótt að
sennilega hafi Friðrik ekki verið
farinn að sprauta bifreiðar þá.
Verðlaun
fyrir upp-
lýsingar
um bókastuld
PÉTUR Pétursson, heildsali, hefur
heitið hverjum þeim 50 þúsund
krónum er komið getur lög-
reglunni á spor innbrotsþjófa er
brutust inn í heildverzlun hans að
Suðurgötu 14 aðfararnótt. 19. júní
sl. Þaðan hvarf m.a. állt hæsta-
réttardómasafn Péturs og Ritsafn
Einars Ben. auk fleira en Pétri
þykir sárast að hafa misst
bækurnar og sérstaklega dóma-
safnið.
Amnesty:
130 ekki 30
I þýddri Observergrein í Mbl. i
gær um Amnesty International
stendur 'að á Lundúnaskrifstofu
samtakanna vinni 30 manns.
Prentvilla hlýtur að hafa orðið í
textanum í hinu brezka blaði, því
Mbl. hefur verið upplýst um að á
skrifstofunni vinni 130 manns.
tökum við upp
nýjar vörur m.a
□ Mittisjakka
Stutterma 09’
langerma □ Skyrtur herra og
dömu. □ Rifflaðar flauelsbuxur
herra og dömu. □ Kakhi herra-
ög dömubuxur. □ Pils — Kjólar
*— Bolir.