Morgunblaðið - 19.10.1978, Page 40

Morgunblaðið - 19.10.1978, Page 40
 UTSYNARKVÖLD Hótel Sögu sunnudagskvök mmmmmmm FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 Stórhækkanir á flugfargjöldum, smjörlíki og gosi: Verðlagsnefnd hækk- ar fyrri tillögur sínar VERÐLAGSNEFND tók í gær til endurskoðunar verðákvarðanir á flugfargjöldum, smjörlíki og gosdrykkjum en þær höfðu legið hjá ríkisstjórninni óstaðfestar í allt að þrjá mánuði. Akvað nefndin mótatkvæðalaust að heimila meiri hækkanir en áður höfðu verið samþykktar og senda máiið aftur til ríkisstjórnarinnar. Nú eru þrír mánuðir síðan verð- lagsnefnd heimilaði 18% hækkun á gosdrykkjum en samþykkt þessi hefur legið óafgreidd hjá ríkisstjórn- inni síðan og hefur þessi dráttur að sögn valdið gosdrykkjaverksmiðjum miklum vandræðum. Verðlagsnefnd ákvað í gær með tilliti til þess dráttar, sem orðið hefur á erindi gosdrykkjaverksmiðjanna og vegna aukins reksturskostnaðar verksmiðj- anna að heimila 25% hækkun á gosdrykkjum. Heimild til 15.2% hækkunar á far- og farmgjöldum í innanlandsflugi hefur legið óstaðfest hjá ríkisstjórn- inni í tvo mánuði og heimild til 8,9% hækkunar á smjörlíki hefur legið óstaðfest á annan mánuð. Verðlags- nefnd ákvað í gær að heimila 20,8% hækkun á far- og farmgjöldum í innanlandsflugi og 25% hækkun á smjörlíki. Erindin hafa verið send ríkis- stjórninni til staðfestingar. Er óljóst hvenær og hvort erindin hljóta staðfestingu og framangreindar hækkanir taka gildi. Ölgerðin reisir stórhýsi fyrir 1,5-2 milljarða kr. ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson hefur ákveðið að ráðast í byggingu vcrksmiðjuhúsnæðis, en fyrirtæk- inu hefur verið úthlutað lóð í svonefndri Borgarmýri, sem er við Vesturlandsveg. norðan Arbæjar- hverfis í Reykjavík. ræða fjárfestingu að upphæð milli 1,5 og 2 milljarða króna og ekki er enn ljóst hversu mikiö hægt er að fjármagna þetta með lánum, en við gerum ráð fyrir að bygging þessi taki nokkur ár og ætlum þegar hún er komin langleiðina að selja þær eignir, sem verksmiðjan er nú í til þess að geta notað fjármagnið í hina nýju byggingu. Að lokum sagði Eiríkur Hannes- son að ekki væru digrir sjóðir til þess að ráðast í byggingu sem þessa, þar sem yfirvöld hefðu ekki leyft þær hækkanir sem nauðsynlegar væru til að endurnýja vélar og tæknibúnað. SÍLDARSTEMMNING — Mjög góð loðnuveiði var hjá síldarbátunum aðfararnótt þriðjudagsins og aflinn beztur fast með fjörunni. Á þessari mynd Óskars Sæmundssonar sést Eyjaver að veiðum skammt austan Ingólfshöfða og í baksýn gnæfir jökullinn. Eiríkur Hannesson, skrifstofu- stjóri Egils Skallagrímssonar, sagði að fyrirtækið hefði fengið 28 þúsund fermetra lóð sem hægt væri að byggja á allt að 12 þúsund fermetra hús og yrði á næstu árum unnið að þeirri byggingu í áföngum eftir því sem fjarhagsútvegun og geta verk- smiðjunnar leyfði. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist að vori og verður í fyrstunni reist 2000 fer- metra hús er rúma á lager og verður síðan reynt að flytja þangað gos- drykkjaátöppunina, en síðast myndi ölsuðan verða flutt, en hún er til húsa við Frakkastíg. Auk þess er fyrirtækið staðsett við Rauðarárstíg og hefur leiguhúsnæði, en áætlað er með hinni nýju byggingu að verk- smiðjan verði öll undir einu þaki. — Við munum reyna að fara hægt í sakirnar, því að hér verður um að Y ængir fljúga áfram — VÆNGIR munu starfa áfram og halda úti því áætlunarflugi, sem félagið hefur tekið að sér, sagði Guðjón Styrkársson stjórnarfor- maður í gær, er hann var spurður um gang mála hjá Vængjum, eftir að Flugleiðir höfnuðu hug- rnyndum um samvinnu fyrirtækjanna. — Viö eigum í nokkrum erfiðleikum vegna þess að við höfum ekki fengið að hækka fargjöldin nema um 10% á þessu ári og hafði okkur verið lofað 15%, hækkun í ágúst sem ekki er enn komin, en við vonum að þetta ástand muni lagast þrátt fyrir óraunhæft verð, sagði Guðjón að lokum. Hótel Akureyri stór- skemmdist í eldsvoða Akurcyri 18. uktóber ELDUR kom upp í húsinu nr. 98 við Hafnarstræti, Hótel Akureyri, kl. 21.45 í' kvöld. Húsið er mjög stórt þriggja haða timburhús í' miðbæ Akureyrar og tvö stór timburhús næst sunnan við það. Eldurinn var mjög hráður. en slökkviliðinu tókst að komast fyrir hann á röskum hálftíma. Einn maður skarst nokk- uð á hendi af glerbroti, en að öðru leyti er ekki vitað að neinn hafi orðið fyrir mciðslum. Allt tiltækt slökkvilið Akureyrar, um 40 manns, og allir lögreglumenn sem til náðist var kallað út í kvöld þegar eldurinn kom upp. Þá voru almannavarnir bæjarins einnig í viðbragðsstöðu, ef svo illa kynni til að takast að eldurinn bærist í nærliggjandi hús. Verið var að vinna við málningu og aðrar lagfæringar í Verzluninni Tízkubæ, sem er eitt fjögurra fyrirtækja á neðstu hæð hússins. Skyndilega varð eins konar spreng- ing þar sem unnið var með olíumáln- ingu og verzlunin varð strax alelda. Þeir sem unnu við lagfæringarnar kölluðu strax upp að kviknað væri í og lögregluþjónar sem voru í ná- grenninu, skiptu strax með sér verkum, sumir lokuðu Hafnarstræti fyrir umferð, aðrir gengu úr skugga um að allt fólk væri farið úr húsinu og hafði það verið tæmt þegar slökkviliðið kom á vettvang. Á hótelinu býr Halldór Lárusson veitingamaður ásamt fjögurra manna fjölskyldu og þar að auki voru tveir næturgestir í hótelinu. Annar þeirra var öldruð kona, sem strax var flutt í sjúkrahús í öryggisskyni. Eldurinn barst fljótt upp á aðra hæð hússjns og fór þar nokkuð vítt um. Slökkviliðinu tókst samt að komast fyrir eldinn áður en hálftími var liðinn frá upptökum hans og gekk afar vasklega fram. Margir urðu til þess að rétta hjálparhönd við að bjarga hlutum og varningi út úr húsinu einkum úr fyrirtækjunum á neðstu hæð, en þau eru auk Tízkubæjar, Raforka, Brauðgerð Kristjáns Jónssonar og Pedromynd- ir. Á þessu stigi málsins er ekki ljóst hve tjónið er mikið en greinilegt er að það er gífurlegt bæði af eldi, reyk og vatni. Samt verður að telja það happ, hve fljótt tókst að ráða við eldsvoðann, þannig að ekki hlaust af stórbruni, enda var logn hér í kvöld og því auðveldara að fást við slökkvistarf. Þess má geta að yfirmenn slökkviliðs Akureyrar höfðu að undanförnu haft í huga að halda slökkviliðsæfingu í miðbænum og þá sérstaklega ráðgert að hún snerist um þetta hús. Þá er það einnig að nefna að nú voru eins og fyrr segir aðeins tveir næturgestir á hótelinu, en síðastliðna nótt var hvert einasta herbergi skipað og gestir eins margir og hótelið rúmaði, þ.e. milli 40 og 50 gestir. Sv.P. Buðust til að leggja slitlag á þjóðvegina — sagði Halldór E. Sigurðsson — ÞAÐ er rétt að Kanadamcnn komu hér við á ferð sinni sl. vetur og hugðust bjóðast til að leggja varanlegt slitlag á þjóðvegi okkar. Sex tónskáld semja afmælis- verk fyrir Norræna húsið í TILEFNI af afmadi Norræna hússins hafa scx norram tónskáld samið verk sérstaklega að beiðni forráðamanna hússins. og verða þau öll frumflutt á hátíðartón- leikum á laugardag. Þetta kemur m.a. fram í viðtali við forstöðu- mann Norræna hússins Erik Sönderholm á bls 10 í blaðinu í dag. Auk þess verður á sunnudag stofnuð tónlistardeild í bókasafni Norræna hússins. með safni af nótum og bókum um tónlist. Danska tónskáldið Vagn Holmboe hefur samið verk fyrir fjórraddaðan blandaðan kór við textann „Þótt form þín hjúpi graflín" úr Fegurð himinsins eftir Halldór Laxness og flytur Hamra- hlíðarkórinn það. Svíinn- Ake Hermanson hefur samið verk fyrir flautu með einleikarann Manuelu Wiesler sérstaklega í huga. Norð- maðurinn Ketil Sæverud hefur samið tríó í tilefni afmælishátíð- arinnar og Finninn Einar Englund hefur samið píanósónötu og kemur til að flytja hana sjálfur. Erling Drene hefur samið kammerkon- sert fyrir píanó og strengjahljóm- sveit og Jón Nordal verk fyrir fjórraddaðan blandaðan kór (Hamrahlíðarkórinn) við þjóðvís- vjina Kveðið i bjargi. Verða öll verkin frumflutt á laugardag. sagði Halldór E. Sigurðsson fyrr- verandi samgönguráðherra er Mbl. spurðist fyrir um þetta mál. — Við höfðum hins vegar ekki mikinn áhuga á frekari viðræðum við þá þegar í ljós kom, að þeir vildu auk þess sem þeir legðu fram vélar og tæki, koma með sinn eigin mannskap og vinna allt verkið sjálfir. Það hafa þeir líklega gert vegna atvinnuástandsins heima fyrir en málið var sem sagt látið niður falla vegna þessara skilyrða þeirra, sagði Halldór, en við höfðum meiri áhuga á að vita hvort um hagstæð lán gæti verið að ræða. Kannski hefur það líka átt þátt í að halda ekki málinu áfram að þá hafði ég ákveðið að láta af embætti ráðherra hvernig sem kosningar færu og því varð ekki af frekari bréfaskiptum enda e.t.v. heldur ekki gott að við hefðum ýtt nokkuð á eftir þessu til þess að þeir færu ekki að sækja málið fastar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.