Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 Sjálfstæðisflokkurinn felli nióur alla skatta og álögur vinstri stjórnarinnar Ræða Alberts Guömundssonar alþm. á fundi í Holta- og Hlíðahverfi Ég vil hefja mál mitt með því að þakka stjórn Félags sjálf- stæðismanna í Hlíða- og Holta- hverfi fyrir að bjóða okkur hjónum að vera gestir kvöldsins á þessari virðulegu samkomu, og jafnframt að leyfa mér að ávarpa ykkur. Ég reikna með því, að mér leyfist að tala um stjórnmál — mitt viðhorf til stjórnmálanna. Hvert stefnum við? Hvar stöndum við? Þessar spurn- ingar leita mjög á alla þá, sem eitthvað hugsa um stjórn- mál á Islandi í dag. Stjórnarfar okkar og meðferð landsmála og öll stjórnsýsla á opinberum vettvangi jafnt í landsmálum sem í sveitarstjórnarmálum hefur tekið á sig hinar margvís- legustu og ótrúlegustu myndir, allt frá tímum viðreisnar, eftir kosningarnar 1971, og þó ekki sízt eftir síðustu kosningar í maí-júní 1978. Tilgangurinn helgar meðalið Það er kannski erfitt að finna hliðstæður með öðrum þjóðum nú á undanförnum árum. Þó verður ekki fram hjá því horft, að einmitt með nágranna- þjóðum okkar á Norðurlöndum er að finna hliðstæður um óvissu, um riðlun flokks- skipunar og festuleysi í stjórn- málalegu tilliti, miðað við það sem áður var. Nefna má eitt dæmi í þessu sambandi, stofnun og starfsemi Framfaraflokksins í Danmörku, sem skóp mest af sínu fylgi frá gamla Hægri- flokknum og gerði hann mátt- vana, sem og ýmsa smáflokka þar í landi. Einnig má á það minna, að jafnaðarmanna- stjórnin í Bretlandi hefur setið sem minnihlutastjórn í skjóli nokkurra smáflokka, sem er einsdæmi í allri sögu þess mikla lýðræðislands og stjórnarfars þess, sem byggist á Magna- Carta, hinni heimsfrægu gömlu stjórnarskrá frá árinu 1215. Það er þó eftirtektarverðast í þessu sambandi, að á bak við allar þessar þjóðfélagsbyltingar var orsökina fyrst og fremst að finna í miðstýringu alþjóða kommúnismans frá Moskvu, sem hafði það á stefnuskrá sinni og órjúfanlegu markmiði að ná völdum í öllum þessum Jöndum með hvaða ráðum sem væri, undir kjörorðinu „Tilgangurinn helgar meðalið". En þessi fyrir^ ætlun alþjóða kommúnismans mistókst. Virdingarleysi fyrir Alþingí Ég hefi nefnt þessi fáu dæmi vegna þess, að ef við skoðum hina pólitísku eða stjórnmála- legu stöðu á Islandi í dag, fer ekki hjá því, að líkingin blasi óhugnanlega við okkur. Leyfi ég mér að rökstyðja þessa skoðun mína. Það eru því miður — jafnvel þúsundir ungmenna, verkafólks, miðaldra og miðstéttafólks, sem í dag hafa glatað áhuganum, og þá ekki síður trúnni á íslenzkt stjórnarfar og stjórnmálamenn. Þetta kom tilfinnanlega fram í síðustu kosningum. Það er ótrúlegt vonleysi og áhugaleysi með fólki í þessum efnum samfara virðingarleysi fyrir Alþingi, löggjafarvaldi og stjórnsýslu. Fólk lætur sér standa á sama hvernig rekur. Fólkið segir: Flokkarnir eru allir eins, enginn öðrum betri, ailir jafn duglitlir. Þessu illgresi hefur fyrst og fremst verið sáð inn í hugi manna af alþýðu- bandalagsmönnum (kommúnist- um), en — dáðleysi andstæðinga þeirra og kjarkleysi með undan- látssemi hefur ýtt undir árangur af iðju þeirra. Þetta hættulega og- hnitmiðaða áróðursstarf þeirra skapaði það hugarfar, sem fyrst og fremst skóp glundroðann i síðustu kosningum. F’ólki var orðið sama hvern það kaus. Fastmótuð stefna — Mótvægi gegn öfgaöflum Svona undirbýr kommúnis- minn valdatöku sína hér á íslandi, eins og í öðrum löndum. Það er nú hlutverk Sjálfstæðis- flokksins að græða upp hugarfar fólksins. Það verður að gefa þjóðinni nýja von, nýja trú og skapa traust á þeirri stjórn- málastarfsemi sem unnin er í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn verður að skapa með fastmótaðri stefnu almenna hugarfarsbylt- ingu í andstöðu við kommúnis- mann. Til þess að svo megi verða þarf öflugt og einart flokksskipulag, kjark, áræði og einbeitni, og umfram allt ferska stjórnmálahugsjón, sterka stefnumótun og göfugt mark- mið. Slík pólitísk hreyfing verður að ná til allra lýðræðis- lega hugsandi manna. Það er skylda Sjálfstæðis- flokksins — sem er hið eina andstæða pólitíska afl á Islandi gegn kommúnistum — að skapa og móta hreyfingu með öflugu starfi sínu, sem rumskar við fólki og vekur það til vitneskju um hættuástandið. Þetta starf þarf að vinna með einföldum rökum sem öll þjóðin^kilur. Sjálfstæðisstefnan og Sjálf- stæðisflokkurinn er og verður eina öfluga mótvægið gegn öfgaöflum á Islandi. Til að ná árangri verðum við að vinna betur en mótherjar okkar. Okkur stafar engin hætta af hugsjónasnauðum og stefnu- lausum Framsóknarflokki, sem fer sífellt hnignandi. Okkur stafar ekki heldur hætta af ofstopafullum Alþýðuflokki, Albert (Juðmundsson sem í síðustu kosningum naut góðs af glundroða og áhugaleysi fólksins fyrir íslenzkum stjórn- málamönnum. Ábyrg stjórnmálastefna, brennandi vilji — án eigingirni — sprottinn af íslenzkum rótum og rökum, mundi skapa virðingu og stjórnmálalega festu, og verða skæðasta vopnið gegn baráttuleiðum kommúnismans. Æskan og baráttuviljinn — Verkamaöurinn Eitt af því þýðingarmesta er að ná eyrum og augum æskunnar í landinu, sem á líðandi stundu er að verulegu leyti stjórnmálalega ráðvillt. Við verðum að skapa henni hugsjónir og stefnumið, sem hún getur meðtekið og verið hreykin af. Gefa henni baráttu- vilja. Varðandi verkalýðshreyfing- una í landinu, hinn vinnandi einstakling, má Sjálfstæðis- flokkurinn aldrei missa sjónar á því, að „verður er verkamaður launa sinna." Ekki hans sjálfs vegna — heldur vegna framlaga hans til íslenzku þjóðarinnar allrar. Þessu má Sjálfstæðis- flokkurinn. aldrei gleyma. Uppgjöriö Það hlýtur að vera ljóst, að framtíðin í íslenzkum stjórn- málum stefnir í lokaátök milli Sjálfstæðisflokksins annars vegar og Alþýðubandalagsins (kommúnismans) hins vegar. Það getur raunar engin barátta átt sér stað gegn Framsóknar- flokknum sem stjórnmálaflokki, heldur er þar um að ræða uppgjör við ákveðið peninga- vald, auðhring samvinnufélag- anna, sem Framsóknarflokkur- inn hefur sölsað undir sig og misnotað í marga áratugi. Svik Alþýöuflokksins — Styrkur Sjálfstæöisflokksins Þá getur tæplega átt sér stað hörð pólitísk barátta við Al- þýðuflokkinn, þar sem hann hefur sýnt sig einskis megnugan á pólitískum vettvangi, aðeins svikið kjósendur og prettað, samkvæmt síðustu reynslu. Það er því skylda Sjálfstæðis- flokksins að undirbúa sig sem bezt undir þau átök sem fram- undan eru og berjast af einlægni fyrir heilbrigðum íslenzkum viðhorfum í stjórnmálum, byggðum á heiðarleika, sparn- aði, grandvarleika og þjóðar- sóma. Við verðum að standa saman inn á við í flokknum jafnt sem út á við. Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt við ýmis vandamál að glíma. Það væri ekki heiðarlegt af mér að tala hér eins og lognmolla hefði ríkt eða ríki innan okkar vébanda. Enginn flokkur hefur orðið fyrir eins miklum áföllum á jafn skömmum tíma og Sjálfstæðisflokkurinn. Það er ekki langur tími liðinn síðan við misstum formann okkar, Ólaf Thors, og minnumst þess, að frá þeim tíma höfum við orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Fráfall Bjarna Benediktssonar, veikindi næstu forustumanna þar á eftir, Jóhanns Hafsteins og Magnúsar Jónssonar. Allt dynur þetta á flokknum með stuttu millibili — og skapar vandamái í forustu flokksins — en það, að Sjálfstæðisflokkurinn skuli aldrei bogna, sýnir á hve sterkum grunni hann er byggð- ur. Boginn og strengurinn Nýlega talaði ég á kvöldi sem þessu á Hvolsvelli og sagði ég þá, að fáum ætti að vera Ijósari en Rangæingum — vegna sögu sinnar — þörfin fyrir samstarf og samvinnu, því hvar myndi hún þekktari sagan um það, að ekki er hægt að verjast eða berjast til sigurs með bogann sér og strenginn sér. — Hvort í sínu lagi er hitlaust, en saman mynda strengurinn og boginn vopn bæði til sóknar og varnar. Enginn ágreiningur innan okkar raða Á síðasta kjörtímabili stóð ég ekki að myndun ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar vegna ágreinings um stefnu þá í efnahagsmálum o.fl., sem sú ríkisstjórn gerði að sinni. Því var þá uppi viss ágreiningur innan okkar raða, sem hélzt út allt kjörtímabilið — En það kjörtímabil er liðið. Nú erum við í stjórnarandstöðu og í andstöðu við núverandi ríkisstjórn og skattpíningar- stefnu hennar er engin ágreiningur ríkjandi innan okkar raða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið þátt i samstjórnum með öllum flokkum með misgóðum árangri — en endanlega hafa þær samstjórnir gefizt upp — eða tapað fylgi og þar með völdum Skattpíningarstjórnin Samstjórnir vinstri manna hafa alltaf brugðizt, og nú blasir við í upphafi nýja ársins þyngsta skattbyrði, sem yfir landsmenn hefur nokkru sinni dunið. Það hefur því aldrei verið meiri þörf fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og hinar heiðríku, djörfu hugsjónir hans, en ein- mitt nú, á þessum dimmu tímum vinstri stjórnar, þar sem Alþýðubandalagsmenn (kommúnistar) ráða mestu um stjórnarstelfiiúna. Við verðum því að setja saman bogann og strenginn og búast til sóknar, því ný orrusta getur skollið á fyrr en varir, kosningar eru kannski nær en margan grunar. Meirihlutastjórn Sjálfstæóisflokksins Hrein meirihlutastjórn Sjálf- stæðisflokksins er hin eina, sem þjóðin hefur aldrei reynt. Með störfum okkar frá degi til dags verðum við að vinna að meiri- hlutastjórn Sjálfstæðisflokks- ins. Eitt af því sem ég vil beita mér fyrir innan þingflokks sjálfstæðismanna og skapa hon- um þar með stóraukið fylgi í næstu kosningum er, að þing- flokkurinn lýsi því yfir nú þegar, að Sjálfstæðisflokkurinn muni fella niður alla þá skatta og álögur, sem lagðar hafa verið á þjóðina frá valdatöku vinstri flokkanna sl. ár. Og standa við þau loforð — gefa þjóðinni vonir og loforð, sem ekki bregðast. Stuðla að nánari tengslum við Vestur-íslendinga MORGUNBLAÐINU hefur borizt fyrsta tölublað nýs „Fréttabréfs“, sem Ferða- klúbburinn Ameríkuferðir stendur að. Aðaltilgangur og verkefni ferða- klúbbsins, sem er ólíkur öllum öðrum ferðafélögum í landinu, er eins og fram kemur í þessu fyrsta „bréfi" að efla um ókomna framtíð enn nánari tengsl við Vestur-ís- lendinga er verið hefur. Að vinna að meiri kynningu, sambandi og samvinnu við þá íslendinga, sem búsettir eru í Vesturheimi, en alls er talið að um hálf milljón manna sé af íslenzku bergi brotin vestan- hafs. Til þess aö ná því marki eru margar leiðir farnar og ýmis störf unnin innan „klúbbsins". „Klúbburinn" er samtök áhuga- fólks víðs vegar um Island. En mjög nauðsynleg er allveruleg fjölgun félagsmanna, sem er frum- skilyrði þess, að eitthvað raunhæft sé hægt að gera til að efla hin bráðnauðsynlegu tengsl við ís- lendinga vestanhafs. Ennfremur segir, að þar sem mikilvægasti máttarstólpi íslenzkrar sögu sé ættfræðin, þá vilji ferðaklúbburinn stuðla að því, að sem flestir viti deili á uppruna sínum og hjálpi fólki til að komast í kynni við frændfólk í Banda- ríkjunum og Kanada eftir því sem föng eru til. Litiðtilbeggja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.