Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 17 Yfírlýsing vegna Kjarvalsstaða: VEGNA samþykktar aðalfund- ar Félags íslenzkra myndlistar- manna og yfirlýsingu talsmanns Bandalags íslenzkra listamanna í fjölmiðlum að undanförnu viljum við undirritaðir stjórnar- menn Kjarvalsstaða taka eftir- farandi fram: Deilur um rekstrarform Kjar- valsstaða voru settar niður skömmu fyrir jól með sam- komulagi, sem undirritað var af stjórnarmönnum Kjarvalsstaða annars vegar og forseta BIL og formanni FÍM hins vegar. I staða, sem fær þær stjórnum BÍL og FÍM til umsagnar. Umsagnirnar skulu lúta að faglegu mati á því, hverjir umsækjenda uppfylla þau skil- yrði sem sett voru er starfið var auglýst. Endanleg ráðning list- ráðunauts er hins vegar í höndum fulltrúa borgarstjórnar í stjórn Kjarvalsstaða. Það var ætíð ljóst, að stjórn Kjarvalsstaða var alls ekki alfarið bundin af því að ráða listráðunaut úr hópi þeirra, sem Svo brá hins vegar við, að umsagnirnar gengu lengra en að kveða á um framangreind atriði og var tekið fram í umsögnum beggja stjórnanna, að þær mæltu með því, að Ólafur Kvaran yrði ráðinn til starfans. Þeim meðmælum fylgdu þó hvorki rök né skýringar. Var þarna gengið lengra en sam- komulagið gerir ráð fyrir og svo sannarlega lengra en fulltrúar listamanna töluðu um á samn- ingafundunum, því að þeir Sjöín Davíð „Gentteman’s agreement” sam- rýmistekki nútímavinnubrögðum framhaldi af þessu samkomu- lagi setti borgarráð reglur fyrir stjórn Kjarvalsstaða og voru þær í fullu samræmi við sam- komulagið og þær tillögur, sem áður höfðu verið lagðar fram í stjórninni og ekki var ágrein- ingur um. Aðilar voru sammála um að ráða Kjarvalsstöðum listráðu- naut, til að vera í forsvari um iistrænan rekstur. I samkomu- laginu er nákvæmlega greint frá, hvernig að þeirri ráðningu skuli standa. Umsóknir ber að senda til stjórnar Kjarvals- stjórnir FÍM og BÍL teldu uppfylla hæfnisskilyrði. En auð- vitað var út frá því gengið, að mjög ríkar ástæður hlytu að þurfa að vera fyrir hendi ef fulltrúar borgarstjórnar kynnu að ráða umsækjanda, sem um- sagnaraðilarnir teldu ekki upp- fylla hæfnisskilyrði. Um stöðu listráðunauts sóttu þrír aðilar. Af umsögnum stjórna FÍM og BÍL mátti ráða, að tveir þeirra uppfylltu öll hæfnisskilyrði, þau Ólafur Kvaran listfræðingur og Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur. áréttuðu þar oft, að þeir myndu ekki raða umsækjendum. Ljóst er, að menntun framangreindra tveKgja umsækjenda er ákaflega svipuð og sambærileg en úrslit- um réð af okkar hálfu hin mikla og góða reynsla af starfi Þóru Kristjánsdóttur í áþekku starfi í Norræna húsinu. A síðustu stigum samninga- viðræðna í desember s.l. var margoft eftir því leitað, að gert yrði það sem kallað var „gentle- man’s agreement" um listráðu- nautsstöðuna, þannig að fyrir- fram yrði frá því gengið, hver fengi þá stöðu, áður en hún væri auglýst. Þessari málaleitan var af okkar hálfu alfarið vísað á bug, enda samræmist hún ekki nútíma vinnubrögðum við af- greiðslu opinberra mála. Þeir, sem fylgst hafa með málum Kjarvalsstaða að undan- förnu, mega sjá, að við undirrit- uð höfum fylgt hinu staðfesta samkomulagi út í yztu æsar í þeim tilgangi að fá góðan vinnufrið um Kjarvalsstaði, svo þar megi blómstra starf og list sem sé höfuðborginni til sóma. Ef að þeir, sem undirrituðu samkomulagið fyrir hönd lista- manna, hefðu unnið að málum með sama hugarfari og farið eftir gerðum samningum, þá hefði þessum skugga ekki brugð- ið nú á upphaf starfs að Kjarvalsstöðum. Stóryrðum manna í okkar garð vegna þessa máls, með brigslum um svik, fais og blekkingar verður ekki svarað hér. Þau koma sannleika þessa máls ekkert við og falla því sjálfkrafa dauð og ómerk. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir Davíð Oddsson. Leikarar og aðrir þátttakendur í Uppskafningnum. Uppskafningurinn í Breiðholtsskóla Leiklistarklúbhurinn Aristo- fanes í Fjölbrautaskólanúin í Breiðholti frumsýndi s.l. þriðju- dag 23. jan. í Breiðholtsskóla gamanleikritið Uppskafninginn eftir franska leikritaskáldið Moliérc. Þýðinguna gerði Bjarni Guðmundsson en leikstjóri er Anna S. Einarsdóttir. Tónlist siimdu Árni Guðmundsson og Birgir Bragason. en búningar eru fengnir að láni hjá Þjóðleik- húsinu. Bandalagi íslenzkra Ieik- félaga og Leikfélagi Reykjavíkur. Leikritið er nteð síðari verkum Moliére og gerist í París 1670 og er ádeila á snobb þess tíma. Leikritið hefur samt sent áður þótt eiga fullt erindi til dagsins í dag. Uppskafningurinn hefur aðeins einu sinni áður verið sýndur hér á landi, hjá Herranótt MR 1956. Sýningar eru í Breiðholtsskóla sem fyrr segir og verða tvær síðustu sýningarnar n.k. sunnudag og þriðjudag kl. 20.30. Miðasala er við innganginn. Þingsályktunartillaga Sverris Hermannssonar: Þegar verði rannsökuð ítarlega innsiglingin í Höfn í Hornafirði LÖGÐ IIEFUR verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar frá Sverri Hermannssyni um rannsókn á innsiglingarleiðinni í Höfn í Ilornafirði. Ályktunartillagan er svohljóð- andii „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórn- ina að láta þegar f stað rannsaka ítarlega innsiglingarlciðina í Höfn í Hornafirði og alla hafnaraðstöðu austur þar." I greinargerð með tillögunni segir, að ýmislegt þyki benda til að ískyggilega horfi um siglingu skipa til Hafnar í Hornafirði sökum breytinga á innsiglingarleið. Höfn í Hornafirði sé ört vaxandi bær sem liggi einna best allra að fiskimiðum. Það er þjóðhagsleg nauðsyn að fá úr því skorið þegar í stað til hvaða ráða þurfi að grípa, svo tryggja megi örugga innsiglingu og góða hafnaraðstöðu austur þar. > SexáYundi^ 1 jnedSighvatij, »m—ivsinjju. sem henjíd var upp athyjílisvert er aö ha*,T' *':^iim á Patreks- Get nafngreint á ann- an tug fundargesta — segir Sighvatur Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Sighvati Björgvinssyni. alþingismannit I dag, er ég var að fletta Morgunblaðinu eins og gjarna kemur fyrir, rakst ég á frétta- klausu, feitletraða, undir hinni athyglisverðu fyrirsögn: „SEX HJÁ SIGHVATI". Eins og gefur að skilja vakti klausan þegar í stað óskipta eftirtekt mína, en í ljós kom fljótlega, að átt var við, að á fundi, sem ég hélt á Patreksfirði s.l. sunnudag hafi aðeins sex manns verið mættir, þ.á.m. „bílstjóri minn". Kom mér hvort tveggja spánskt fyrir sjónir, en þó meira bílstjórinn. Til þessa hef ég aðeins talið mig eiga bíl, en engan bílstjóra og veit ekki betur en svo sé enn. Eins og Matthías Á. Matthiesen, alþm., getur upplýst Mbl. um var daginn áður, laugardaginn 20. þ.m., haldin á Patreksfirði vel heppnuð þorra- hátíð kvenfélagsins, sem stóð fram á nóttina og fór í alla staði prýðilega fram. Leynigestur blótsins var umræddur Matthías ásamt borðfélaga Pétri Sigurðssyni, fyrrum alþm. Skemmtu þeir gestum. Var almannamál, að ráðherranum fyrrverandi tækist jafnvel að skemmta fólki og honum hafði illa tekizt að stjórna fólki. Um það var rætt. „Aldrei myndi ég skipa Kjartani að syngja", var haft eftir Alþýðubandalags- manni í því sambandi. Svo miklu hafði Matthías betur. Daginn eftir, sunnudag kl. 2 e.h., fór svo fram þessi margfrægi fundur Alþýðu- flokksins. Rétt er, að atburðir kvöldsins áður höfðu áhrif á fundarsókn. Fundarmenn hefðu gjarna mátt vera fleiri. En ekki voru þeir þó sex. Svo illt var það ekki. í svipinn get ég nafngreint á annan tug fundargesta, en fjölmennari hafa allir aðrir fundir okkar á Patreksfirði verið. Satt er það. Nú veit ég, að ekki hefir Mbl. búið umrædda frásögn til. Hún er heimasmíðuð og send. Kannski hefur höfundur um þetta leyti verið að ganga frá framtali sínu til skatts og sú athöfn haft • þau áhrif að ekki var rétt fram talið í frásögninni. Meira en helmingi skotið undan. Og bílstjóra bætt við „framtal- ið“. Þeir sletta skyrinu sem eiga það. Hitt er hinsvegar umhugsunarefni, að ef jafn stór — eðalítill — hópur og sótti fund Alþýðuflokksins á Patreks- firði hefði varið atkvæði sínu með öðrum hætti en gert var í síðustu Alþingiskosningum á Vestfjörðum hefði annar af tveimur þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins þar fallið. Með vinsemd. Sighvatur Björgvinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.