Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 Jón Torfason, Torfalæk: Frumvarp bænda? Framleiðslu- gjaldið I 2. grein frumvarpsins eru ákvæði um framleiðslugjald og kjarnfóðurskatt og nánari skýr- ingar í greinargerðinni. Ætlunin er að leggja á stighækkandi framleiðslugjald, þannig að af búi, sem er minna en 400 ærgildi (1=1 ærgildi; 1 kú=20 ærgildi), skal 'greiða 2% af grundvallarverði afurðanna. Af 401—600 ærgildum á að taka 4% af grundvallargverði, af 601—800 ærgildum verður skerðingin 6% af grundvallar- verði, af 801 ærgildi og meira skal greiða 8% af grundvallarverði og af framleiðendum utan lögbýla skal taka 10% af grundvallarverði. Hjá smábændum hefði þetta þýtt milli 100—200 þúsund króna tekju- missi á síðasta ári en hjá stór- bændum hefðu þetta orðið 1 —1,5 milljóna króna skerðing. Þetta gjald eiga bændur að bera einir, það dregst frá tekjum þeirra og vinnur þannig gegn 4. grein títtnefndra framleiðsluráðslaga sem hljóðar þannig: „Söluverð landbúnaðarvara á innlendum markaði skal miðast við það, að heildartekjur þeirra, er landbúnað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinn- andi stétta." En aldrei hefur tekist að ná þessu ágæta markmiði. Helstu gagnrýnisatriðin á fram- leiðslugjaldið eru að ósanngjarnt sé að láta það ná yfir alla bændur, smábændur ætti að undanþiggja því þeir mega síst við tekjumissi. Þá er hætt við að gjaldtakan verði flókin og setja þurfi á fót viðamik- ið skrifstofubákn til þess að reikna út gjaldið og fylgjast með inn- heimtunni — kannski gætu ein- hverjir uppgjafabændur fengið þar vinnu. Loks hefur verið bent á að óvíst sé hvort framleiðslugjald- ið komi að notum — það sé ekki nógu afgerandi. Jafnvel gætu sumir bændur brugðist þannig við að stækka búin og auka fram- leiðsluna til að mæta gjaldinu. Samfara ákvæðunum um fram- leiðslugjaldið eru heimildir til að refsa fyrir framleiðsluauka með tvöföldu skerðingargjaldi á aukn- inguna. Þá er heimild til að greiða bændum fyrir að draga úr fram- leiðslu. Ekki eru þessar heimildir skýrðar í greinargerðinni og kem- ur raunar ekki fram hvort þær verði notaðar og hvernig. Það gæti haft töluverð áhrif að greiða bændum fyrir að draga framleiðsl- una saman. í öðrum löndum, t.d. Noregi, hafa bændum verið greiddar uppbætur fyrir að minnka mjólkurframleiðsluna, það hefur gefið ágæta raun. Bent hefur verið á aðrar leiðir t.d. kvótakerfi, þar sem bændum yrði úthlutaður ákveðinn fram- leiðslukvóti, og það, sem umfram er, yrði greitt lægra verði. Það er alvarlegur galli á grein- argerð sjömenninganna að engir útreikningar eða áætlanir fylgja um áhrif framleiðslugjaldsins og kjarnfóðurgjaldsins. Þar segir aðeins: „Ljóst er, að þó fallist yrði á þær tillögur (þ.e. tillögur nefnd- arinnar) og þeim beitt, tekur nokkurn tíma að áhrifa þeirra gæti.“ Minna er varla hægt að segja. Hvað er nokkur tími Iangur? 2 ár? 8—10 ár7 Eða 20 ár? Skyldi nefndin ekki hafa reynt að áætla hve mikið framleiðslan drægist saman á næstu tveim til þrem árum ef tillögurnar væru í gildi? Það hefði líka verið gaman að sjá í greinargerðinni útreikn- inga á því hvaða áhrif kalár á Síðari hluti Norðurlandi eða rigningasumar á Suðurlandi munu hafa á búvöru- framleiðsluna. Það eru aðrar eins reikningskúnstir í kringum vísi- tölubúið og verðlagsmálin að sjömenningunum hefði ekki átt að blöskra að gera einhverja útreikn- inga og birta þá. Kjarnfóðurgjaldið I frumvarpinu er heimild til að ieggja gjald á allt innflutt kjarn- fóður, þegar útflutningsbætur nægja ekki, og nota það m.a. til að jafna hallann af útflutningnum. Af samþykktum bændafunda og ummælum bænda má ráða að þorri bænda sé andsnúinn kjarn- fóðurgjaldinu eins og það er hugsað samkvæmt frumvarpinu. Ástæður eru m.a. þær að skattur, sem lagður hefur verið á, er sjaldan eða aldrei afnuminn og hækkar yfirleitt með ári hverju. I öðru lagi er rökleysa að skattleggja sig til að borga sjálf- um sé kaup. I þriðja lagi hefur það lengi verið (eðlileg) stefna Stéttar- sambands bænda að reyna að lækka álögur á aðföng til landbún- aðar til að gera reksturinn hag- kvæmari. En nú á að hækka fóðurbætinn — af því leiðir að búrekstur verður óhagkvæmari og erfiðari. Þá hefur verið bent á að kjarnfóðurgjaldið komi líklega verst við smærri bændur því þeir hafa af minni tekjum að taka. Loks kynnu bændur að stækka bú sín til að geta borgað kjarnfóður- skattinn því hann dregst frá tekjum þeirra. Tökum dæmi. Á vísitölubúinu (miðað við árslok 1978) er keypt kjarnfóður fyrir ca 1 milljón króna. Ef kjarnfóður hækkaði um t.d. 30% gerði það um 300.000 króna útgjaldaauka hjá bóndanum sem hann á ekki gott með að borga. Mjólkurkýr getur greitt kringum 200.000 krónur fyrir vinnu bóndans. Bóndinn tekur því til þess ráðs að þilja stíu í verkfærageymslunni handa geld- neytunum og kálfunum til að rýma í fjósinu, slær síðan upp tveim básum í viðbót. hættir við að slátra kvígunni Laufu og lætur Rósu gömlu lifa eitt ár enn. Sum sé hann bætir við sig tveim kúm sem mjólka upp í fóðurbætisskatt- inn. Afleiðing: mjólkurframleiðsl- an eykst og vandinn magnast. Vitanlega bregðast ekki allir bændur svona við en sumir munu gera það, ekki af mannvonsku eða fjandskap við neytendur og krata — bændafólk er yfirleitt góðlynt og gæft — heldur vegna þess að þeir verða að gera það til að eiga fyrir nauðþurftum. Kvóti á kjarnfóður eða kjarnfóð- urskömmtun, þar sem ákveðinn skammtur fæst gjaldfrjálst á grip en umframkaup yrðu með háu gjaldi, drægi ef til vill ekki mikið úr mjólkurframleiðslunni heldur, en ætti að draga úr óeðlilegum fóðurbætisaustri og ýta undir fóðuröflun heima fyrir. Kjarnfóð- urskömmtun yrði einfaldast komið á með því að leggja gjald á allt innflutt kjarnfóður, en greiða hluta þess til baka, ákveðna upphæð á hvern framtalinn grip. I tillögum sjömenninganna var gert ráð fyrir þessu, þeir höfðu ákvæði um að endurgreiða mætti kjarn- fóðurgjaldið en þegar frumvarpið kom fram á Alþingi var því miður búið að fella þessa heimild niður. Vera má að bollaleggingar um kjarnfóðurskatt, til að draga úr framleiðslu, séu að verða óþarfar. Svo er forsjóninni fyrir að þakka. Til allrar blessunar var árferði heldur óhagstæðara sumarið 1978 en 1977. í helstu kornræktarlönd- um heims varð uppskeran því minni og Efnahagsbandalagið gat dregið úr niðurgreiðslum á fóður- korni. íslendingar njóta því þess hagræðis að kaupa fóðurbætinn á um það bil helmingi hærra verði nú en árið 1977. Bændur geta gefið kúnum sínum dýrari fóðurbæti og neytendur fá að kaupa mjólkur- vörurnar hærra verði — já, guðirnir eru góðir. Hverjum er um að kenna? Engum dylst að landbúnaðurinn á við örðugleika að etja. Bændur framleiða meira af mjólk og kjöti en þjóðin getur torgað. Fram- leiðsla dilkakjöts hefur að vísu ekki aukist verulega síðustu ár — nema í haust — en nokkur aukning hefur orðið í mjólkur- framleiðslu. Neysla innanlands hefur minnkað og verðlagshækk- anir hafa komið sérlega óhagstæð- ar gagnvart útflutningi. Útflutn- ingsbótakvótinn dugði hvergi nærri á nýliðnu ári og horfur eru á að um 3 milljarða króna vanti á þessu ári. Það er ósanngjarnt að bændur beri þennan skakka einir, þar sem þeir eiga ekki sök á verðbólgunni, hafa enda ekki bolmagn til þess. Bændur og samtök bænda munu reyna að draga úr framleiðslunni en þar til það tekst er eðlilegt að „ríkis- sjóður greiði útflutningsbætur, sem tryggi bændum fullt afurða- verð“ eins og segir í skýrslu sjömannanefndarinnar. Nú má spyrja, hverjum um sé að kenna. Hafa ekki bændur stækkað bú sín sjálfir? Ekki hafa kratarnir og Jónas dagblaður staðið í að byggja hlöður eða taka frá líf- gimbrar með bændum. Ekki hafa smjörlíkisframleiðendur hvatt bændur til að fjölga mjólkurkún- um eða kynbæta þær, Mikið rétt, en bændur hafa einfaldlega fylgt þeirri landbúnaðarstefnu, sem í gildi hefur verið, að stækka búin og framleiða meira. Auk ríkisins og ráðunautaþjónustunnar, sem hafa mótað og framkvæmt þessa stefnu, hafa margir aðilar óbeint ýtt undir stækkun búa og aukna framleiðslu. Svokallaðir neytenda- fulltrúar í sexmannanefnd hafa sífellt krafist þess að vísitölubúið yrði stækkað, af því leiðir fram- leiðsluaukningu. Ábendingar sér- fræðinga í atvinnumálum og áróður hafa beinst að því að lofsama hagkvæmni stærðarinnar. Kallað er á stærri skip, stærri flugvélar, stærri verksmiðjur, stærri álver, og hvernig bú? Smærri bú? Ónei. STÆRRI bú. Innflytjendur véla og rekstrarvara til búskapar hafa flutt inn af- kastameiri tæki og dýrari og hvatt menn til að kaupa meira og meira. Vinnslustöðvar búvara hafa líka hvatt bændur til að framleiða meira tii að auka veltuna hjá sér. Nú er verið að byggja ostagerðir hjá fjórum mjólkurbúum — samt er ostaframleiðslan miklu meiri en þarf til innanlandsneyslu. Hvað á að gera við þessar nýju ostagerðir ef mjólhurframleiðsla er komin í samræmi við innanlandsneyslu eftir 3—4 ár? Þær verða ekki afskrifaðar þá. Hvað á að gera við fólkið sem vinnur við úrvinnslu og dreifingu útfluttra búvara? Nei, það verður enginn hægðarleikur að draga úr framleiðslunni í skyndi. Kannski ætti að kenna stjórn- málamönnunum um þessi vand- ræði enda er ábyrgðin þeirra, skyldi maður ætla. Samt er ekki sanngjarnt að krossfesta þá eina vegna þessa, því þeir eru í raun ekki annað en fulltrúar aðskiljan- legra stétta og klíkna. Árið 1972 var samið frumvarp, sem gekk í svipaða átt og nú er lagt til, þ.e. miðaðist við að auka möguleika Framleiðsluráðs á að stjórna framleiðslunni. Það frumvarp dag- aði uppi á Alþingi. Haustið 1977 var sýnt að stefndi í óefni og Stéttarsamband bænda gerði til- lögur um að víkka heimildir Framleiðsluráðs með vægum fóð- urbætisskatti og framleiðslukvóta. Hefðu þær komist til framkvæmda væri vandinn með mjólkina eitt- hvað minni nú. Margir bændur voru andvígir fóðurbætisskattin- um þá eins og nú. Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttar- sambandsins, segir um þetta í Frey (18. tbl. 1978): „En það lét svo hátt í andstæðingunum (þ.e. and- stæðingum fóðurbætisskattsins), að stjórnvöldin heyktust á að breyta Framleiðsluráðslögunum að þessu sinni.“ Og allt var látið danka við það sama. Síðastliðið vor voru svo sumir þeirra þing- manna, sem heyktust á að rýmka Framleiðsluráðslögin, felldir í kosningunum — fyrir illvirki sín. Og hvað kom í staðinn? Hópur krata sem virðast hafa ósköp takmarkaðan skilning á landbún- aðarmálum. Er bótin bölinu betri? Valkostir? Hvernig, sem þessi mál þróast, er afar óæskilegt að sveitafólki fækki. Það er svosum ekkert allsherjar sáluhjálparatriði að bændur búi endilega eingöngu með kýr og kindur. En það er sálu- hjálparatriði að fólk búi í sveitun- um — bæði af félagslegum ástæð- um og fjárhagslegum. Fámennið í mörgum sveitum er að verða óbærilegt, einkum á veturna. Tvær til þrjár manneskj- ur eru að rjátla við skepnurnar oftast sitt í hvoru lagi allan daginn og félagslíf er lítið og dofinlegt. Ef sveitafólki fækkar meir verður félagsleg aðstaða þeirra, sem eftir eru, ennþá erfiðari, framkvæmdir sveitarfé- laganna torveldari, rekstur skól- anna dýrari og sum verk vart framkvæmanleg, t.d. smala- mennskur og göngur. Loks er þess að geta, að ef fækka ætti bændum að marki, væri einfaldast að ganga hreint til verks og leggja t.d. í eyði Húna- vatnssýslur báðar, Skagafjörð, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslu. Á þessu svæði búa rúmlega 1000 bændur svo þetta yrði milli 20 og 25% fækkun. Þá missa að vísu íbúar Hvammstanga og Blönduóss, stór hluti íbúa Sauðárkróks, Akur- eyrar og Húsavíkur atvinnu sína líka — en sagði ekki einhver að hér væri um valkosti að ræða. Þetta gætu orðið 6—8000 manns. Hvar á þetta fólk að vinna? Á kannski að tildra upp 4—5 álverum handa því að vinna í? Hvar á fólkið að búa? Er ekki verið að kvarta yfir því að of mikið sé fjárfest í óarðbærum byggingum? 3—4000 nýjar íbúðir eru ekki líklegar til að skila miklum arði. Nei, hér er ekki spurning um valkosti. Þetta er spurning um það hvernig afkoma og lífsskilyrði fólks til sveita verða bætt og tryggð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.