Morgunblaðið - 21.02.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
3
Aukabjörgunarbátar
ættu að vera í öllum
bátum niður í 20 tonn
— segir Garðar Guðmundsson skipstjóri
Ólafsfirði, 20. febrúar.
Fri Kristni G. Jóhannssyni
fréttaritara Mbl.
„EFTIR að Kristbjörg fórst í
mynni Ólafsfjarðar fyrir um
og áhöfn hans á Guðmundi
Ólafssyni sem björguðu skip-
brotsmönnunum af Krist-
björgu.
' -
Garðar Guðmundsson skipstjóri og kona hans Sigríður Hannesdótt-
ir.
þremur árum síðan tóku allir
bátar í Ólafsfirði af svipaðri
stærð og Guðmundur Ólafsson
aukagúmbáta um borð, eins og
þann sem við fimm skipverjar
af Guðmundi björguðumst á.
Þessum aukabátum var komið
fyrir frammi á, en þar var
gúmbáturinn sem bjargaði
skipverjum Kristbjargar,
þeim er af komust," sagði
Garðar Guðmundsson skip-
stjóri á Guðmundi Ólafssyni í
samtali við Mbl. í kvöld.
Garðar sagði að hann teldi
að slíkir aukabátar ættu raun-
ar að vera frammi á um borð í
öllum bátum allt niður í 20
tonn. Aðalbjargbátar eru á
stýrishúsi og þegar atvik
verða með svo snöggum hætti
og varð með Guðmund Ólafs-
son hætta skipverjar ekki á að
eyða löngum tíma í að ná þeim
bát.
Þess má geta að það var
einmitt Garðar Guðmundsson
Ágúst Sigurlaugsson vélstjóri á Guðmundi ólafssyni, sem Mbl, birti samtal við á baksíðunni í gær,
Ljósm. Mbl. Sv.P. ásamt konu sinni og þremur af átta börnum þeirra hjóna. Frá vinstri: Geir Hörður Ágústsson, Olga
Albertsdóttir, Sæbjörg Ágústsdóttir, Ágúst og Sigurlaugur Ágústsson. Ljósm. Mbl. Sv.P.
Auðvitað til fyrirmyndar
að hafa aukabáta um borð
— segir Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri
„ÞETTA er auðvitað til fyrir-
myndar og við erum að sjálf-
sögðu hlynntir því að menn
geri betur en lágmarkskröfur
segja til um,“ sagði Hjálmar R.
Bárðarson siglingamálastjóri,
er Mbl. ræddi við hann í gær f
tilefni af þvf að mennirnir
fimm, sem björguðust af Guð-
mundi ólafssyni frá Ólafsfirði,
komust af á gúmbjörgunarbát,
sem þeir höfðu aukalega um
borð.
Hjálmar sagði að lög og regl-
ur mæltu svo fyrir að fiskibátar
15 til 50 lestir skuli hafa einn
gúmbjörgunarbát sem rúmar
alla áhöfnina og er hann geymd-
ur á stýrishúsþaki. Fimmtíu
lesta til hundrað lesta bátar
skulu hafa tvo björgunarbáta,
sem rúma samanlagt 1.5 sinnum
fjölda skipverja.
„Við verðum að horfast í augu
við það að menn horfa í kostnað-
inn varðandi öryggistæki sem
annað," sagði Hjálmar R. Bárð-
arson, er Mbl. spurði hann,
hvort ekki kæmi til greina að
gera að skyldu fleiri en einn
björgunarbát í 15 til 50 lesta
bátum. „Það kostar sitt að hafa
aukabát, bæði kemur til báts-
verðið og viðhald, og einnig bera
menn við plássleysi um borð.
Ólafsfirðingar hafa leyst
þetta mál með því að hafa
aukabátinn minni, en skyldu-
báturinn í 15 lesta skipum og
stærri má ekki taka færri en sex
menn og ekki mega vera stærri
en tólf manna bátar í skipum,
sem eru undir 200 rúmlestir."
Mbl. spurði Hjálmar hvaða
skýringar hann kynni á því að
aðalgúmbjörgunarbáturinn um
borð í Guðmundi Ólafssyni flaut
ekki upp enda þótt skipstjóran-
um tækist að opna kistuna, sem
hann var í. „Af þeim upplýsing-
um sem koma fram í Morgun-
blaðinu ræð ég það, að þetta hafi
gerzt svo snöggt að skipstjóran-
um hafi ekki tekizt að lyfta
bátnum upp úr kistunni og hann
hafi ekki náð að fljóta upp eftir
að kistan valt með bátnum,"
sagði Hjálmar." Við munum
auðvitað fylgjast náið með sjó-
prófunum á Olafsfirði og draga
af þeim þann lærdóm, sem hægt
verður."
Maðurinn sem fórst
MAÐURINN. sem fórst þegar
Guðmundur Ólafsson ÓF 40 sökk
í fyrradag hét Þórir Guðlaugsson
til heimilis að Brekkugötu 19,
ólafsfirði. Hann var 49 ára gam-
all. Hann lætur eftir sig eigin-
konu og fjögur börn.
Þess má geta hér að Þórir var
skipverji á Stíganda frá Ólafsfirði,
sem sökk á síldarmiðunum um 700
sjómílur norð-austur af Langanesi
í águðst 1967. Skipverjar voru 12
og komust allir í gúmbáta.
Hröktust þeir í bátunum í tæpa 5
sólarhringa unz þeim var bjargað
yfir í Snæfugl frá Reyðarfirði
heilu og höldnu. Vakti þessu giftu-
samlega björgun athygli alþjóðar
og fagnaðarbylgja fór um landið
þegar tíðindin spurðust.
Sáttatillaga í flug-
mannadeilunni í dag
HÁSKÓLAREKTOR, Guðlaugur
Þorvaldsson, hefur boðað fulltrúa
Félags íslenzkra atvinnuflug-
manna til fundar klukkan 14 f
dag, þar sem hann mun væntan-
lega kynna nýja tillögu sátta-
nefndar til lausnar flugmanna-
deilunni, en Guðlaugur er nú einn
sáttanefndarmanna hér á landi,
þar sem ráðuneytisstjórarnir
Hallgrímur Dalberg og Brynjólf-
ur Ingólfsson eru staddir á
Norðurlandaráðsþingi í Stokk-
hólmi. Félagsfundur hefur verið
boðaður hjá F.Í.A. í kvöld.
Verkfallsaðgerðir FIA eiga að
koma til framkvæmda á föstudag,
en þann dag fljúga félagsmenn
ekki millilandaflug né til Sauðár-
króks, Akureyrar eða Húsavíkur í
innanlandsflugi. Á laugardag og
sunnudag munu þeir ekkert fljúga
í innanlandsflugi, en hins vegar
verður millilandaflug með eðlileg-
um hætti þá daga.
ÍSIfNSKT*
OSTáVáLM
Tœpleg240 ostategundir eru framleiddar á íslandi nú. Hefurðu bragðað Mysuostanad
lt