Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 13 „Náttúran hefur aJla tíð verið mitt yrkisefni...” „EF ÉG hrífst af einhverju, þá reyni ég að ná fram þeirri stemmningu sem er innra með mér og í náttúrunni. Það sem skiptir sköpum f allri listrænni túlkun er hvort listamanninum tekst að laða fram það sem býr innra með honum og blundar í náttúrunni. Ef það heppnast þá hefur honum tekist ætlunar- verk sitt.“ Svo sagði Jakob Hafstein þegar Morgunblaðið sótti hann heim á sýningu hans í Casa Nova. „Eg er fæddur á Akureyri árið 1914 en flutti við 7 ára aldur til Húsavíkur. Foreldrar mínir voru Júlíus Hafstein, sýslumaður, og Þórunn Jónsdóttir. Ég fór mjög snemma að fást við að teikna og mála. En allt frá upphafi er eins og ég hafi alltaf hneigst í áttina til náttúrunnar og hún hefur alla tíð verið mitt yrkisefni, hvort sem ég hefi tjáð það með orðum, söng eða myndum. Myndefni mitt er mestallt sótt út í náttúruna. Og það gleður mig að vita til þess að það virðist sem natúralisminn sé að vinna á meðal málara um allan heim.“ „Alveg á sama hátt og náttúr- an er mitt eftirlæti í myndlist- inni þá er ég hrifnastur af þjóðlögunum," sagði Jakob þegar talið barst að tónlist. „Ég hlusta oft á þjóðlög þegar ég er að mála. Það er eins og músík og myndlist styrki hvor aðra þegar litir og tónar fá að hljóma saman. Þjóðlögin eru svo að- gengileg fyrir þann sem hlusta vill og um leið segja þau okkur svo margt. Og með því að tvinna saman þessi tvö tjáningarform þá finnst mér eins og ég fái gagnkvæman og aukinn skilning á þeim. Músíkin hefur alltaf skipað stóran sess hjá mér. Ég var í M.A.-kvartettinum frá 1932 og þar til 1942, ásamt Steinþóri Gestssyni, Þorgeiri Gestssyni bróður hans og Jóni Jónssyni skáldi frá Ljárskógum. Á háskólaárum mínum var ég — rættvið Jakob Hafstein listmálara svo gæfusamur að komast í tilsögn hjá Ásgrími og Jóni Stefánssyni þar sem þeir höfðu vinnustofu saman í Bergstaða- stræti og nú er Ásgrímssafn. Það eina sem ég hefi lært í myndlist lærði ég þá. Jón kenndi mér uppbyggingu mynda og hvernig litir verka innbvrðis hver á annan. Þetta voru hreinir fræðifyrirlestrar sem ég fékk þarna og þeir voru fluttir yfir mér einum. Jón var mikill Jakob Hafstein með eina af þeim myndum sem hann sýnir þessa dagana í Casa Nova. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudagskvöld. kvennamaður og átti það til að fílósófera yfir mér um lífið, náttúruna og ástina. Það var gott veganesti fyrir mig að kynnast þessum mönnum og nema af gnægtabrunni leikni, lífsspeki og reynslu. Ásgrímur var alveg andstæð- an við Jón. Hann lét mig vinna og vinna og pískaði mig áfram við að handfjatla vatnslitina. Ég hef síðan fengist við olíuliti, pastel, túss og vatnsliti en vatns- litirnir munu ætíð verða mitt eftirlæti. Þeir eru svo erfiðir í meðförum því með þeim getur þú ekki leiðrétt vitleysur eins og með olíulitum. Vatnslitir eru kröfuharðir þegar maður hand- leikur þá og er að reyna að ná tökum á þeim. En þeir eru jafnframt eftirlátir þegar menn ná valdi yfir þeim. Með vatnslit- um næst svo mikil nálægð við fyrirmyndina. Það felst í því mikil uppörvun fyrir mig,þegar fólk vill eignast verk eftir mig. Fyrir það er ég þakklátur. Um leið. fylgir því mikil eftirsjá þegar ég sé á bak verkum sem ég hef lagt mig fram við. Það er eins og að gefa hluta af sjálfum sér — hluta sem maður getur ekki búist við að fá aftur. Ibsen sagði um þetta: „Evigt ejes kun det tabte“ og ég held að hann hafi þarna höndlað sannleikann þegar hann segir að það sem er okkur tapað er um leið okkar eilífa eign. Mér finnst að sérhver mynd- listarmaður ætti að tileinka sér umburðarlyndi gagnvart kolleg- um sínum og reyna að skilja hvað aðrir eru að gera án þess að setja sjálfan sig í dómarasæti og segja að eitt sé list og annað ekki. Núna er ég að vinna að verk- um sem ég ætla að fara með á bernskuslóðir til Akuréyrar og sýna þar. Þarna verður um að ræða allar tegundir af verkum sem ég hef fengist við. Laxeldisstöðin skoðuð. Myndir Kristján Oðalsgestir í skemmtiferð Veitingahúsið Óðal og Snar- fara-menn fóru s.l. laugardag í skemmtiferð til Akraness. Á leið- inni var m.a. komið við í laxeldis- stöð ríkisins í Kollafirði og slegið upp hlöðuballi. í Botnsdal var áð og snætt en síðan haldið beint til Akraness en þangað kom hópur- inn klukkutíma síðar en ráðgert var vegna þess að rútan bilaði. Frá Akranesi var lagt af stað kl. 21 á skreyttri Akraborginni til Reykjavíkur þar sem höfð var klukkutíma viðdvöl áður en haldið var á ný út í skipið og þar dansað fram eftir nóttu. Dansað í hlöðu að gömlum sið. Nýtt útibú á Svalbarðseyri Samvinnubankinn hefur yfirtekið starfssemi Sparisjóðs Svalbarðsstrandar og Innlánsdeildar Kaupfélags Svalbarðseyrar og opnað nýtt útibú á Svalbarðseyri. Útibúið mun annast öll almenn bankaviðskipti og trygginga- þjónustu fyrir Samvinnutryggingar og Líftryggingarfélagið Andvöku. ■ti - Afgreiðslutími: Mánud. - föstud. kl. 9.15 - 12.00 og 13.00 - 16.00 □ □ [ «□□□□□□□ Samvinnubankiiui MI.U !l!" !•!•■•!•■•!•■ !".W I Samvinnubankinn útibú Svalbarðseyri, sími 96-21338.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.