Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 17 Útgefandi Framkvœmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Augfýsingar Afgreiösla Áskriftargjald hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstrseti 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Sími83033 3500.00 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 180 kr. eintakiö. Olíukaup frá Noregi Uppáhaldsröksemd þeirra, sem ekki mega hugsa til þess, að hreyft verði við olíu- viðskiptum okkar við Sovét- menn var fram eftir vetri og vori sú, að við gætum hvergi fengið olíu á frjálsum markaði, eins og nú væri komið. Þessi röksemd er hrunin. Nú liggja fyrir yfirlýsingar þriggja norskra ráðherra þess efnis, að grundvöllur sé til olíukaupa Islendinga frá Noregi. Fryden- lund, utanríkisráðherra, Gjerde, olíu- og orkuráðherra, og Bakke, viðskiptaráðherra, hafa allir í viðtölum við íslenzka ráðamenn og íslenzka fjölmiðla látið í ljós þá skoðun, að íslendingar geti innan eins til tveggja ára fengið olíu keypta í Noregi. Þá vaknar sú spurning, hvort olía sú, sem við gætum fengið keypta frá Noregi yrði á hag- kvæmara verði en sú, sem við kaupum frá Sovétmönnum um þessar mundir. í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu, sagði Bjartmar Gjerde, að sú olía, sem Norðmenn mundu selja Islendingum yrði á meðal- verði, sem hann skilgreindi ekki nánar. í frétt frá fréttaritara Morgunblaðsins í Ósló í gær kemur fram það mat olíusér- fræðinga í Noregi, að geri ís- lendingar langtímasamninga við Norðmenn um olíukaup muni verðið verða talsvert lægra en Rotterdamverðið er. Þær upplýsingar, sem fyrir liggja benda því til þess í fyrsta lagi, að við getum fengið olíu keypta frá Norðmönnum og í öðru lagi, að sú olía verði seld á lægra verði en Rotterdam: markaðurinn segir til um. í þessum efnum skiptir auðvitað engu hvaða verð er sett á einstaka farma af olíu, sem nú er athugað um kaup á frá Noregi. Allir vita að einstakir farmar eru seldir á Rotterdam- verði en hið sérstæða við olíu- kaup okkar frá Sovétmönnum nú er einfaldlega það, að við borgum Rotterdamverð fyrir olíu, sem keypt er samkvæmt langtímasamningum. Nú liggur tvennt fyrir í olíu- málunum. Ríkisstjórnin á að óska eftir formlegum viðræðum milli ráðherra frá íslandi og Sovétríkjunum um verðviðmið- un á olíu í viðskiptasamningum milli ríkjanna. Ríkisstjórn ís- lands getur ekki sætt sig við það, að Sovétmenn neiti ósk íslenzkra stjórnvalda um slíkar viðræður. A.m.k. verður formleg neitun að liggja fyrir og þá munu íslendingar draga sínar ályktanir af slíkri framkomu og afstöðu sovézkra stjórnvalda. Nú þegar á að taka upp viðræð- ur við Norðmenn um hugsanlega samninga um olíukaup. Eðlilegt er, að olíufélögin taki upp slíkar viðræður við olíufélög í Noregi. Norska ríkið er aðili að a.m.k. einu þessara olíufélaga og má vænta þess, að áhrif þess á þeim vettvangi stuðli að því, að ha- gkvæmir samningar náist. Jafnframt er nauðsynlegt, að olíufélögin þrjú fái frjálsar hendur um að kanna aðra mögu- leika á olíukaupum til frambúð- ar. Eitt af því, sem rækilega þarf að kanna, er hvort hag- kvæmt er, að við kaupum hrá- olíu og gerum sérstaka samn- inga um vinnslu þeirrar hráolíu í olíuhreinsunarstöð í Evrópu. Slíkar stöðvar hafa margar hverjar meiri framleiðslugetu en framleiðslu þeirra nemur og því ekki ólíklegt að hægt sé að gera slíka vinnslusamninga við þær. Vandinn við þessa aðferð er sá, að úr vinnslunni mundu koma ýmsar olíutegundir, sem við þurfum ekki á að halda og yrðum þá að selja öðrum. Mark- aður fyrir slíkar afgangsolíur kann að vera misjafn. Þetta dæmi þarf að kanna rækilega. Veruleg hreyfing er nú komin á olíukaupamál okkar og er það vel. Ekki er við öðru að búast, þegar svo hrikalegar hækkanir verða á olíu en að við leitum allra hugsanlegra leiða til þess að fá olíu á sem hagkvæmustu verði. í þeim efnum skiptir öryggið mestu. Þeir, sem telja að frambúðar öryggi sé fólgið í áframhaldandi kaupum frá Sovétmönnum, hvert svo sem verðið er, gæta ekki að því, að samdráttur er í olíuframleiðslu Sovétmanna um þessar mundir. Þeir eiga m.a. í verulegum erfiðleikum með olíuframleiðslu í Síberíu. Þeir eiga erfitt með að standa við gerða samninga við leppríki sín í A-Evrópu og hafa nýlega skorið niður olíusölu til sumra þeirra. Talið er, að innan fárra ára þurfi Sovétmenn að flytja inn olíu og er m.a. bent á, að gífurleg hergagnasala þeirra til sumra Arabaríkja miði að því að tryggja þeim aðgang að olíulindum Araba. Sovétmenn telja sig ekki eiga neinum skyld- um að gegna við okkur íslend- inga. Hins vegar líta þeir vafa- laust svo á, að olíukaup okkar af þeim tryggi þeim ákveðin póli- tísk áhrif hér á landi. Þegar þetta er haft í huga verður mönnum væntanlega ljóst, að það öryggi, sem felst í olíu- viðskiptum okkar við Sovét- menn er takmarkað. Allt öðru máli gegnir um hugsanleg olíukaup okkar frá Noregi eða Bretlandi, sem verð- ur útflytjandi olíu að nokkrum árum liðnum, eða jafnvel Bandaríkjunum. Tengsl okkar við þessar þjóðir eru slík, að mun meira öryggi er fólgiö í samningum við þær en t.d. í samningum við Sovétmenn á óvissum tímum. JLeggjum valkosti um kjördæma- mátið fyrirþingflokkana íhaust” Gert er ráð fyrir að stjórnarskrárnefndin sem Alþingi skipaði fyrir síðustu áramót, leggi nokkra valkosti um kjördæmamálið fyrir þingflokkana í haust, að sögn dr. Gunnars Thoroddsen alþingismanns, for- manns nefndarinnar. En dr. Gunnar Thor- oddsen og ráðunautur nefndarinnar dr. Gunnar G. Schram ferðuðust um Norður- lönd í síðasta mánuði, og söfnuðu gögnum fyrir nefndina. Skýrslu um förina skiluðu þeir á fundi í nefndinni í gær þar sem meðal annars er greint frá deildarskiptingu þjóð- þinganna, kjördæmaskipan og kosningafyr- irkomulagi ásamt ýmsum öðrum atriðum í stjórnarskrám þessara landa. Morgunblaðið átti í gær viðtal við Gunnar Thoroddsen um störf stjórnarskrárnefndarinnar, og fer það hér á eftir. Um 30 atriði hafa sérstaklega verið rædd — í hverju hafa störf nefndarinnar aðallega verið fólgin fram að þessu? „Þessi nýja stjórnarskrárnefnd, sem skip- uð var rétt fyrir síðustu áramót, tók þegar til starfa og hefur haldið marga fundi síðan. í upphafi nefndarstarfsins var tekin saman skrá um nær 30 atriði sem sérstaklega þótti ástæða til að taka til meðferðar. Öll þessi atriði voru rædd á fundum nefndarinnar þar sem menn túlkuðu skoðanir sínar viðvíkj- andi þeim. Eitt þessara atriða var skipan Alþingis, það er að segja spurningin um það hvort skipta eigi Alþingi í tvær deildir eða hafa eina málstofu. Annað atriði var kjördæmaskipanin og í því sambandi var sérstaklega rætt um jafnræði stjórnmála- flokkanna og jöfnuð héraða, eða aukin áhrif kjósenda á persónuval við alþingiskosning- ar. Þá hefur verið rætt um kosningaaldur, og þjóðaratkvæði, um valdsvið og verkefni forseta, um stjórnarmyndanir, um þingrofs- rétt, um umboðsmann Alþingis, dómaskip- anina, sjálfstjórn sveitarfélaga og mann- réttindin, bæði endurskoðun núgildandi Gunnar Thoroddsen. Rœtt við dr. Gunnar Thoroddsen, formann stjórnarskrárnefndar ákvæða og ný mannréttindaákvæði auk margs annars." Kjördæmamálið rætt ítarlega í nefndinni — Hvaða mál hafa einkum verið til umræðu í nefndinni? „í stað þess að fyrri stjórnarskrárnefndir hafa sumar strandað í kjördæmamálinu eða frestað því að ræða það, ræddi þessi nefnd kjördæmamálið mjög rækilega strax á fyrstu fundum sínum. Þessar ítarlegu um- ræður hafa verið mjög gagnlegar. Þá hafa menn reynt að kynna sér fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndum okkar. En þó að margt megi um þau lesa og læra í ritum þótti nauðsynlegt að kynna sér með viðræðum við reynda ráðamenn hvernig ýmis atriði hefðu reynst í framkvæmd. Það varð því að ráði að ég sem formaður nefndarinnar og ráðunautur hennar, Gunn- ar Schram, prófessor, fórum um mánaða- mótin maí-júní til Oslóar, Stokkhólms og Kaupmannahafnar, þar áttum við viðræður við þingforsetana í þessum löndum og ráðherra og embættismenn sem sérstaklega fjalla um stjórnarskrár og kosningalög. Eitt þeirra mála sem rætt var þar, var deildar- skiptingin. En bæði Svíar og Danir hafa fallið frá henni og gert þing sín að einni málstofu. Allir sem við var rætt töldu þá breytingu til mikilla bóta. Norska Stórþing- ið skiptist hins vegar í tvær deildir, Óðalsþing og Lögþing, og virðist ekki áhugi í Noregi á að breyta því. Þá var rætt ítarlega um kjördæmaskipan og kosningafyrirkomu- lag í þessum þremur löndum, og þá sérstak- lega danska fyrirkomulagið sem felur í sér persónukosningar. Þar getur hver kjósandi annað hvort kosið flokkslistanna eða kostið ákveðinn frambjóðanda hvar á listanum sem hann er og ráða þessi persónuatkvæði úrslitum. Danir telja þetta .fyrirkomulag hafa reynst vel. Einnig var rætt um þjóðaratkvæði, um þingrofsrétt, sem ekki er til í Noregi, um mannréttindi, afturvirkni laga, stjórnarskrárbreytingar og margt fleira. Við skiluðum skýrslu um ferðina og þessar viðræður sem lögð var fram á fundi í stjórnarskrárnefndinni í gær.“ Valkostir fyrir þingflokkana — Er ágreiningur í nefndinni, ef svo er, um hvað? „Það hefur ekki komið til neinnar at- kvæðagreiðslu í nefndinni, menn hafa rökrætt án skuldbindinga. A næstunni er ætlunin að undirbúa tillögur um ákveðin endurskoðunaratriði og valkosti til dæmis varðandi kjördæmamálið. Stefnt er að því að geta lagt fyrir þingflokkana greinargerð- ir í haust um ýmis atriði stjórnarskrárinn- ar. Varðandi kjördæmamálið, sem er erfið- ast og viðkvæmast, geri ég ráð fyrir að nefndin leggi fyrir þingflokkana nokkra valkosti með upplýsingum, útreikningum og rökstuðningi. En um ýmiss mikilvægustu atriðin í endurskoðun stjórnarskrárinnar verður nefndin að sjálfsögðu að hafa samráð við þingflokkana áður en hún skilar endan- legum tillögum. Nefndin hefur annars tvö ár til starfa, það er að segja hún á að hafa skilað af sér fyrir árslok 1980.“ Mannréttindaákvæðin þarf að endurskoða — Hvaða atriði stjórnarskrárinnar telur þú að helst þurfi að endurskoða? „Þau mál eru ákaflega mörg. í fyrsta lagi er það vitaskuld kjördæmamálið, en þar næst koma mannréttindamálin sem þarf að endurskoða og bæta við ákvæðum. Einnig þarf að endurskoða ákvæði um dómsvaldið, gera þau ítarlegri, ýmislegt í sambandi við starfshætti Alþingis, skipulag fram- kvæmdavaldsins og sjálfstjórn sveitar- félaga. Það þarf að taka afstöðu til þjóðar- atkvæðagreiðslna um mikilvæg mál, um ármann Alþingis, það er að segja sérstakan starfsmann eins og er á Norðurlöndunum, til að gæta réttar borgaranna, svo nokkur dæmi séu tekin.“ Signý og Inga hlið við hlið í Höfn í Hornafirði, áður en lagt var af stað til Neskaupstaðar í Málin rædd í Norðfjarðarhöfn og sjálfsagt hefur ekki vantað umræðuefni hjá rallköppunum. fyrradag. (Ljósm. Elvar örn). (Ljósm. Ásgeir). Hörkukeppni í „Sjóralli ’79” RALLBÁTARNIR Inga og Signý verða ræstir klukkan 9 í dag og á Akureyri og verður þá haldið upp í lengsta áfanga Sjóralls 79 til fsafjarðar, þar sem áætlað er að bátarnir verði um klukkan 20.30 í kvöld ef allt gengur samkvæmt áætiun. Stigin í keppninni standa nú þannig, að þeir Baldur Sveinsson og Ólafur Skagvik á Ingu eru með 44 stig, en þeir Ásgeir Ásgeirsson og Gunnar Gunnarsson á Signýju eru með 41 stig en einnig má segja að staðan sé 3:2 fyrir Ingu eftir 5 áfanga þar sem aðeins eru tveir bátar í rallinu. Ólafur Skagvik sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ferð þeirra á Ingu hefði í alla staði gengið mjög vel og Flugfiskbátur- inn úr Vogunum staðið sig með sóma, en á slíkum báti sigraði Hafsteinn Sveinsson í bátarallinu í fyrra. Á leiðinni til Raufarhafnar í fyrrinótt sgaði Ólafur að þeir „hefðu lent í hvelli þegar þeir komu fyrir Langanesið", en eftir það tekið þessu rólega og farið með landi til Raufarhafnar. Þar hefðu þeir síðan slappað af til klukkan 6.45 um morguninn, en þá haldið af stað til Akureyrar og verið þar klukkan 12 á hádegi. Signý lenti hins vegar í erfið- leikum út af Borgarfirði og fékk á sig hnút. Ásgeir og Gunnar urðu að halda inn til Borgarfjarðar, en eftir skoðun þar kom í ljós að skemmdir voru ekki alvarlegar á bátnum og áfram var haldið til Raufarhafnar. Signý lagði af stað frá Raufarhöfn klukkan 11.10 í gærmorgun og var komin til Akur- eyrar um klukkan 15.30. Eins og áður hefur komið fram vann Signý legginn frá Höfn til Neskaupstaðar, en þeir á Ingu eru engan veginn sáttir við að sá dómur standi. Þeir benda á, að fyrir utan Stokksnesið hafi þeir þurft að stoppa og keyra til baka tíl móts við Signýju. Mælir sýndi, að vélin ofhitaði sig og var fyrir- hugað að Inga drægi Signýju til baka til Hafnar þegar í ljós kom að það var aðeins mælirinn, sem ekki var í lagi. Var þá lagt af stað að nýju og á leiðinni inn Norð- fjörðinn náði Signý forskoti á andstæðinginn og taldist sigurveg- ari á þessum áfanga. Við það eru Bjarni og Ólafur ekki sáttir og benda á að bilun í Signýju hafi tafið þá um a.m.k. hálftíma og vilja að þennan áfanga teljist bátarnir hafa verið jafnir. Dómsmálaráðherra. Steingrímur Hermannsson, skýrir blaðamönnum frá hinni nýju reglugerð. Ljósm.: Kristlnn. Barir lokaðir öðr- um en matargestum Opnunartími veitingahúsa rýmkadur til kl. 3 um helgar Nýjar reglur um veitingatíma áfengis og slit á skemmtunum, dansleikjum og öðrum samkvæmum taka gildi mánudaginn 16. júlí n.k. Hér er annars vegar um að ræða breytingu á reglugerð um sölu og veitingar áfengis sem sett er skv. áfengislögum nr. 82/1969, en hins vegar breytingu á reglum um slit á skemmtunum og öðrum samkomum sem settar eru skv. lögum nr. 120/1947 um heimild til þess að marka skemmtunum og samkomum tíma. A blaðamannafundi, sem dóms- málaráðherra boðaði til í sam- bandi við þessar breytingar kom fram, að að þeim hefur verið unnið frá því í fyrrahaust og m.a. verið leitað álits flestra þeirra aðila er mál þetta snertir, svo sem áfengis- varnaráðs, samtaka veitinga- og gistihúsaeigenda, lögregluyfir- valda, sveitarstjórnar og fleirra. Helstu nýmælin sem felast í hinum nýju reglum eru meðal annars þau, að skemmtanir (dans- leikir og önnur samkvæmi), sem hefjast að kvöldi föstudags eða laugardags eða kvöldið fyrir al- mennan frídag mega nú standa til klukkan 03 eftir miðnætti. Áður máttu skemmtanir, sem hófust að kvöldi laugardags, standa til klukkan 02 eftir miðnætti. Skemmtunum, sem hefjast að kvöldi virkra daga, skal annars, hér eftir sem hingað til, slíta klukkan 01 eftir miðnætti. Þar sem heimilt er að hafa veitingastaði opna lengur en til klukkan 23.30, t.d. nú í Reykjavík, verður heimilt að veita áfengi meðan veitingastaður er opinn, þó ekki lengur en til klukkan 2.30 aðfararnótt laugardags, sunnu- dags eða almenns frídags, en til klukkan 00.30 aðra daga. Annars staðar getur lögreglustjóri leyft áfengisveitingar fari fram eftir klukkan 23.30, þó ekki lengur en svo að veitingum sé hætt hálfri klukkustund áður en skemmtun lýkur. Heimilt verður að hafa vínveit- ingahús opin innan þeirra marka sem að framan greinir og meðan húsrúm leyfir, en áður varð sem kunnugt er að loka húsunum klukkan 23.30. Ennfremur verður nú heimilt að veita áfengi á miðvikudögum jafnt og aðra virka daga. Áfengi má hér eftir aðeins veita til matargesta í hádegi á virkum dögum, þ.e. frá klukkan 12.00 til klukkan 14.30. Vínstúkur mega þó aðeins vera opnar á milli klukkan 12.00 og klukkan 13.00, en áður var heimilt að veita áfengi í hádegi án sérstakra takmarkana. Sá háttur verður framvegis aðeins leyfður laugardaga, sunnudaga og al- menna frídaga. Áfengisveitingar verða sem fyrr bannaðar síðdegis að öðru leyti en því að heimilt verður að veita áfengi á herbergi til fastra dvalar- gesta á gistihúsi frá klukkan 14.30 til klukkan 18.00. Ennfremur má geta þess að með hinni nýju reglugerð er heimilt að byrja að veita áfengi að kvöldi dags klukk- an 18.00 í staðinn fyrir klukkan 19.00 eins og verið hefur. Að sögn dómsmálaráðherra, Steingríms Hermannssonar, horfa breytingar þessar flestar til meira frjálsræðis, jafnframt því sem leitast hefur verið við að draga úr skaðsemi áfengisneyslu með því að takmarka vínveitingar í hádegi á virkum dögum og síðast en ekki síst með því að stuðla að auknum fjárframlögum til fræðslu og kynningar á skaðsemi áfengis- neyslu. I þessu skyni hefur dóms- málaráðherra farið þess á leit við fjármálaráðherra að gjöld fyrir vínveitingaleyfi og leyfi fyrir skemmtunum, þar sem áfengis- veitingar eru leyfðar, verði tvö- földuð frá því sem nú er. Slík hækkun myndi auka tekjur ríkis- sjóðs um á að giska 10 milljónir á ári og er sem fyrr segir ætlunin að verja því fé til fræðslu og kynn- ingarstarfs um skaðsemi áfengis í samráði við þau samtök sem gegn því berjast. Dómsmálaráðherra tók fram að breytingar þær, sem hér um ræð- ir, séu gerðar til reynslu. Komi hins vegar í ljós að þær leiði til aukinnar áfengisneyslu verða þær teknar til endurskoðunar. Reglugerðin ekki borin undir samband veitingahúsaeigenda „Við vissum ekkert um þessi gögn, sem lögð voru fram á blaða- mannafundinum hjá dómsmálaráð- herra í gær,“ sagði Hólmfríður Árnadóttir, framkvæmdastjóri sambands veitinga- og gistihúsaeig- enda í viðtali við Mbl. „Reglugerðin hefur ekki ennþá borist til sambandsins og því hefur hún ekkert verið rædd í hópi veitingamanna, en ég mun nú boða fund strax á morgun til þess að ræða málin." Aðspurð um það hvaða álit hún hefði á þessum breytingum sagði Hólmfríður að í henni fælust marg- ir góðir hlutir, sem veitingamenn hefðu mikið barist fyrir á undan- förnum árum. „Rýmkunin á opnunartíma veit- ingahúsa finnst mér mjög jákvæð, þó hún hefði að mínu mati mátt vera meiri. í því sambandi vil ég geta þess að það er algjör misskiln- ingur að veitingahúsin hagnist eitthvað á þessari rýmkun, þar sem allt vinnuafl og annað slíkt er mjög dýrt á þessum tíma, þ.e. á nóttunni. Þrátt fyrir það að veitingahúsin séu lengur opin en áður, er það heldur engin trygging fyrir því að fólk eyði meiri peningum." Varðandi það hvort þessi rýmkun á opnunartíma veitingahúsana leysti þann mikla leigubílavanda, sem hingað til hefur verið, sagði Hólmfríður að hún teldi, að svo væri ekki. Leigubílavandræðin myndu aðeins færast aftur um eina klukkustund, eins og nú væri staðið að málum. „Að mínu mati er það einnig mjög jákvætt að heimila það að veita áfengi á herbergi til fastra dvalargesta á gistihúsi á milli klukkan 14.30 og 18.00. Það eykur til muna þjónustuna til ferða- manna. En að mínu mati er það fáránleg ráðstöfun að takmarka opnunartíma hádegisbaranna við einn klukkutíma, þ.e. frá 12 til 13, og að einungis matargestir fái heimild til þess að kaupa sér drykk. í fyrsta lagi sé ég ekki hvernig hægt er að fylgjast með því að maður sem kaupir sér drykk á bar, fari síðan og fái sér að borða, því að á mörgum hótelum er því þannig farið að matsalirnir eru alls ekkert tengdir við barina. Eg held að þessi ráðstöfun eigi eftir að hafa mikinn vanda í för með sér. Mörg hótel geta ekki afgreitt mat til allra hótelgesta sinna á sama tíma og hefur þá skapast sú venja að fólk bíði á börunum og fái sér jafnvel drykk fyrir matinn. Með þessari ráðstöfun er öllum stefnt í hádegismat á sama tíma, en hótelin geta yfirleitt ekki annað slíku álagi. Með þessari ráðstöfun er þjónusta við ferða- menn einnig mjög skert, og veit- ingamönnum sýnd mjög lítil tillits- semi, þar sem slíkt er ekki einu sinni rætt við þá áður en ákvörðun er tekin. Menn virðast gleyma því að um 6% af vinnuafli þjóðarinnar starfa við ferðamannaiðnað og afla um 6% gjaldeyristekna þjóðarinn- ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.