Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 29 fclk í fréttum ...að niðurlotum kominn + ÞESSI mynd er tekin af Carter Bandarikjaforseta nokkru áður en hann varð að hætta þátttöku i trimmhlaupi um hæðótt og erfitt landsvæði, ekki langt frá sumarbústað sinum i Camp David á laugardaginn var. í myndartextanum segir að svo sé að sjá sem forsetinn neyti siðustu krafta sinna i hinu erfiða hlaupi. Forsetinn var fluttur heim i sumarbústað sinn, en hann hefur oft komið við sögu t.d. i sambandi við heimsfréttir á stjórnmálasviðinu. Carter hafði fljótlega jafnað sig og töldu liflæknar forsetans að honum myndi ekki hafa orðið meint af áreynslunni. Húsmœður með brugðin kökukefli + HÚSMÆÐUR i vigahug. Þessi mynd er frá mótmælaaðgerðum húsmæðra í Nýju Deli, höfuð- borg Indlands, fyrir skömmu. — Húsmæður mótmæltu i fjöl- mennri göngu verðhækkunum á matvörum. Þar hefur jarðhnetu- olia, sem mun vera mikið notuð til matargerðar á heimilum, hækkað um fimmtiu prósent á siðustu 6 mánuðum. Voru kon- urnar mjög háværar i þessari kröfugöngu, höfðu á lofti auk kröfuspjalda hvers konar bús- muni. Sjá mátti þær margar láta ófriðlega með kökukeflin sin. Þess er getið i myndatextan- um, að fyrir hálfu ári hafi kilógrammið af jarðhnetuoli- unni kostað sem svarar G dollur- um (2280 isl. krónur) en nú sé kilóið komið upp i nær 9 doilara (eða nær 3400 krónur) «* Steiger í Mússólíni- kvikmgndum + KVIKMYNDALEIKAR- INN Hod Steiger fór með hlutverk Bentio Mussolinis í kvikmynd, sem gerð var fyrir um 5 árum. Fjallaði hún um síðustu daga hins italska einrœðisherra áður en italskir skæruliðar myrtu hann. Nú hefur Steig- er undirritað samning við kvikmyndafélag um að leika í annarri Mússólíni-kvik- mynd. Að þessu sinni á Steiger að leika Mússóiini er hann var á hátindi einræð- istimabils fasista á Ítalíu. — Leikarinn er nú 52ja ára. Loks mun hann svo leika i kvikmynd á móti Anthony Quinn, sem leikur Bedúína- foringjann „Ómar Mukht- ar“. Myndin er frá innrás Itala í Líbyu, en Mukhtar og menn hans borðust þá við itölsku innrásarsveitirnar. + FRANSKA lögreglan hefur nú g ert þá skipulagsbreytingu á starfsemi sinni, að konur hafa haslað sér völl þar meðal karlfuglanna. — Fyrir nokkru tóku franskar lögreglukonur til starfa í sjálfri Parisarlögreglunni. Er þetta ein hinna fyrstu tuttugu lögreglukvenna borgarinnar, sem hér er að stjórna í bilaumferðinni í hinni æðisgengnu hraðumferð Parísarborgar. Borgin Lyon var fyrst franskra borga tii að viðurkenna að kvenfólkið standi karlþjóðinni ekki að baki þegar um er að ræða almenn lögreglustörf. Lögreglukonurnar frönsku eru að öllu leyti jafnréttháar og karimennirnir í lögreglusveitunum. Breytt Naturelle Hárlína 3 tegundir af shampoo og hárnæringu. Nýr lagningarvökvi með HENNAEXTRAKT sem gefur hárinu aukna mýkt og glans. FÁST f SÉRVERSLUNUM. inuu'yu Við kynnum nýjar snyrtivörur frá PIERRE ROBERT Til sölu úr gömlu búi: svartar chesterfield leðurmublur, 5 st. enskar borðstofumublur; boröstofuborð, sex stólar, skenk- ur, skápur og innskotsborð. Húsgagnamiöstööin Skaftahlíð 24. DALE CARNEGIE CLMMi Kynningarfundur Veröur haldinn í kvöld 20. sept. kl. 20.30. aö Síöumúla 35 uppi. Námskeiöið mun hjálpa þér aö: Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFS- TRAUST. Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staöreyndir. Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐ- INGU og VIÐURKENNINGU. Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. Starfa af meíri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustað. _ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. Veröa hæfari aö taka viö meiri ÁBYRGÐ án óþarfa spennu og kvíða. Okkar ráölegging er því; Taktu þátt í Dale Carnegie námskeiðinu. í dag er þitt tækifæri. Hringiö eöa skrifiö eftir upplýsingum í sima. 82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN DAl.E C.ARNEGIf. Konráð Adolphsson. nAmskeidin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.