Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 29 Að selja sig Handrit: Pia Fröiich/Peter Márthesheimer. Kvikmyndun: Michael Ball- haus. Tónlist: Peter Raben. Leikstjóri: Rainer Werner Fass- binder. Eitthvað virðist hin nazíska fortíð plaga Þjóðverja, svo mjög sem hún birtist í listaverkum þeirrar þjóðar á síðari tímum. Ekki endilega beint heldur oft með felulitum. Höfundar reyna að draga upp hliðstæður við hið naxíska tímabil og leita þá gjarnan til eldri tímaskeiða. Af höfundum þýskum sem léku þennan leik á tíma hildarleiksins mikla má nefna Brecht, sem til dæmis í Galileo beinir spjótum að þeim vísindamönnum þýskum sem sátu eftir í stríðinu og hönnuðu stríðsvélar fyrir Krúppara, nú og ekki er ádeilan á katólsku kirkjuna vægari. Af yngri listamönnum í Þýskalandi standa stjórar kvikmyndanna, þeir sem kenndir eru við ný- bylgju, hvað fremstir og einn þeirra er Rainer Werner Fass- binder. Tel ég mynd hans Hjóna- band Maríu Braun, eitthvert hlífðarlausasta en jafnframt sanngjarnasta uppgjör við hina nazisku fortíð sem hér hefir sést á tjaldi. Hef ég ekki fyrr séð svo kaldhæðnislega lýsingu á sigr- uðu Þýskalandi og þarna birtist. Er dálítið skrýtið að sjá full- vaxna Þjóðverja berjast um sígarettustubba sem bandarískir hermenn fleygja frá sér, en í baksviði hljóma engilfagrir tón- ar úr smiðju Mozart. En niður- læging hins sigraða kemur fram á fleiri sviðum og þá einkum á því sviði þar sem konan er hvað best heima, sviði vændisins. Þegar sverfur að er líkami kon- unnar til sölu. Á þetta sérstak- lega við í sigruðu landi þar sem sigurvegararnir reika um með bólgnar herðar og fullan pakka af sígarettum. Saga Maríu Braun er saga konu sem selur sig, en hún er jafnframt saga Þýskalands saga „efnahagsund- ursins mikla", þar sem tilfinn- ingarnar víkja en eftir stendur köld sál hórunnar, sú sál sem hefir orðið að kyssa á skóþveng sigurvegarans og á þá þrá eina eftir, að standa honum jafnfætis efnahagslega. Á þennan hátt virðir myndauga Rainer Werner Fassbinder fyrir sér það Þýsks- land sem reist var upp úr gasklefum Auschwitch og Buch- enwald. Kalt er það myndauga og engu skotið undan, en þó finnum við ekki þann kulda sem er verstur allra, kulda hatursins. Frekar að Fassbinder vorkenni þessu sálarlausa fólki og þar með sjálfum sér. En maðurinn sem hann kennir ekki í brjósti um er Hermann Braun er tekur á sig morð Maríu Braun. Hann friðþægir fyrir glæp sinn innan rimlanna meðan kona hans hleð- ur utan á sig æ voldugri safölum, en undir er kaldur, svívirtur líkami hórunnar. Virðist mér Fassbinder loks hafa hitt nagl- ann á höfuðið í þessari mynd. í Maríu Braun segir hann þá sögu sem birst hefur í fyrri myndum hans í misjafnlega afskræmdu formi: Sögu hins sigraða Þýska- lands þar sem ríkjandi stjórn- málamenn æsa særðan metnað upp í andhverfu sína ofurmetn- að. Þessi háskalega tilfinning sem Grikkir nefndu Hubris lá að baki þriðja ríkisins. Ég vil skjóta því hér inn í lokin að myndin Mannsæmandi líf sem nú er sýnd (vonandi ennþá) í Regnboganum er tilval- in til sýningar á vegum skóla. Tel ég hana eiga mjög brýnt erindi þar sem hún er framlag í baráttu gegn eitrinu sem nú leggur æ fleiri vaxandi kynslóðir að velli. Mér er kunnugt Um að hægt er að fá leigðan sal í bíóinu til skólasýninga. Skólamenn hvernig getið þið varið það fyrir samvisku ykkar að leggja ekki eitt lóð á vogarskálarnar í bar- áttunni gegn þessum vágesti, sem ef til vill á eftir að bregða hvítri snöru um háls einhvers nemanda ykkar? Kvikmyndlr eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON Opið hús á 75 ára afmæli Verzlunarskóla íslands fimmtudagur 20. nóvember 1980. Dagskrá: 1. kl. 16.00. Safnast saman í hátíðarsal skólans og þegnar veitingar. 2. Sigurður Gunnarsson, skólastjóri, fer nokkrum orð- um um skólastarfið. Hans Kristján Guðmundsson, forseti N.F.V.Í., lýsir félagslífi nemenda. Gestum gefst tækifæri til að færa skólanum árnaðaróskir. 3. Skólakórinn flytur nokkur lög undir stjórn Jóns Cortes. 4. Húsnæöi skólans og búnaður skoðað. Kennarar, nemendur og skólastjórn verða til viötals fyrir gesti í kennslustofum skólans. Stofa 1 íslenskukennarar Stofa 2 Enskukennarar Stofa 3 Þýzkukennarar Stofa 4 Dönskukennarar Stofa 6 Stærðfræðikennarar og raungreina Stofa 7 Tölvukennarar Stofa 8 Latínu og frönskukennarar Stofa 9 Bókfærslu og hagfræðikennarar Stofa 10 Verzlunarréttar, sögu og vörufræðikennar- ar. Hellusundshús — vélritunarkennarar Skrifstofa — starfslið skrifstofu Hátíöarsalur — skólastjóri, skólanefnd. 5. kl. 19.00. Formaður skólanefndar, Sigurður Gunnarsson, kveð- ur gesti. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU smáauglýsingar smáauglýsingar smáauglýsingar — smáauglýsingar Húsgögn til sölu Tit sölu er sófasett meö pluss- áklæöi og borö og pinnastólar fré Vörumarkaöinum. Mjög vel meö fariö. Selst ódýrt. Uppl. í síma 52557. I □ Gimli 598011207 — 2 frl. atk. □ Helgafell 598011207 — IV/V. I.O.O.F. 11 = 16211208% = Ma. IOOF 5 =16211208 % = FL. Ensk efni Nýkomin karlmannafataefni, einnig kambgarn í kjólföt Þ. Þorgilsson klæöskeram. Lækjargötu 6A, Reykjavík Sími 19276. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur í safn- aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Tekiö á móti gjöfum til Eyjólfs- staöaskóla. Allir hjartanlega velkomnlr. Séra Halldór S. Gröndal 1 i.fi UTIVISTARFERÐIR Helgarferð í Þórsmörk á fullu tungli. Þríhelgar — Maríumessa. Fararstjóri: Jón I. Bjarnason. Upplýsingar og farseölar á skrifstofunni, Lækjargötu 6. Si'mi 14606. Aðalfundur SKRR Aöalfundur Skíöaráðs Reykja- víkur veröur haldinn að hótel Esju á 2. hæö fimmtudaginn 27.11 1980 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík heldur spilakvöld í Dómus Med- ica laugardaginn 2. þ.m. og hefst kl. 20.30. Fjölmennum. Skemmtinefndin. Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Æskufólk syngur. Sam- komustjóri Samúel Ingimarsson. Frá Guöspeki- fólaginu Áskríftaraímí Qangtara ar 39573. AD. — K.F.U.M. Fundur í kvöld aö Amtmannsstíg 2B kl. 20.30. Kirkjan á áratugn- um. Séra Lárus Halldórsson talar. Allir karlmenn velkomnir. Samhjálp Samkoma veröur aö Hverfisgötu 44 í kvöld kl. 20.30. Stjórnandi Sam Glad. Allir velkomnir. Samhjálp Hjálpræðisherinn | Flmmtudag kl. 20.30. Almenn samkoma. Laugardag kl 14 laugardagaskóli í Hólabrekku- skóla. Sunnudag kl. 10 sunnudagaskóli kl. 11 helgunar- samkoma, kl. 20.30 hjálprasöis- samkoma. Félagar frá Gideon taka þátt í samkomunni. í kvöld kl. 21.00 heldur Karl Sigurösson erindi: (Veda). Hug- leiöing kl. 18.10. Öllum opiö. Háteigskirkja Messa og fyrirbænir kl. 20.30 fimmtudagskvöld. Séra Tómas Sveinsson raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar fundir — mannfagnaöir ingar Hraðskákmót KR fer fram í Félagsheimilinu við Frostaskjól fimmtudaginn 27. nóv. 1980 kl. 20.00. KR-ingar fjölmennið og takið meö ykkur töfl. Stjórnin ÉFélogsstarf Sjálfstœðisflokksins \ Aðalfundur Félag ungra sjálfstæöismanna í Mýrarsýstu verður haldinn á Hótel Borgarnesi mánudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund. 3. Önnur mál. Stjornin Akureyringar Kvöldveröarfundur meö Halldóri Blöndal veröur ( litla salnum í Sjálfstæöishúsinu fimmtudaginn 20. nóv. kl. 7. Gengiö inn aöaldyramegin. Fjölmenniö. Allir velkomnir. Vöróur F.U.S. Aðalfundur F.U.S. Arnessýslu veröur haldinn laugardaginn 22. nóv. 1980 kl. 14 í Sjálfstæöishúsinu, Tryggva- götu 8, Selfossi. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál,- Gestur fundarins veröur Jón Ormur Halldórsson 1. varaformaöur Sambands ungra sjálfstæöismanna. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.