Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 47 r Brynjar Harðarson ungur Irikmaður hjá Val sem hór brýst í jrrKn hjá Geir Hallsteinssvni oj? Árna Árnasyni FH skoraði sigurmark Vals í gærkvöldi rétt fyrir leikslok. Lj«.sm. Emíiía. Valur sigraði í leik mikilla mistaka VALSMENN sigruðu lið FH með einu marki í Hafnarfirði í gær- kvöldi. Leikur liðanna endaði 22-21, eftir að FH hafði haft yfir í hálfleik, 11—8. Enn einu sinni áttu FH—ingar slakan síðari hálf- leik eftir að hafa leikið þokkalega vel í þeim fyrri. Það hefði í raun verið sanngjarnt að liðin hefðu skipt með sér stigunum í gær- kvöldi. Bæði liðin léku slakan leik þó ekki sé nú meira sagt, og leikmenn beggja liða gerðu sig seka um alveg ótrúlega margar villur, jafnt í vörn og sókn. Lið FH átti þrjú stórgóð tækifæri í lok leiksins til þess að jafna metin en klaufaskapur þeirra kom í veg fyrir það að þeir skoruðu. Síðustu 6 sekúndur leiksins voru Vals- menn tveimur færri á vellinum. En síðasta skot FH hrökk í þverslá og út í teiginn. Það var í raun einn maður sem stóð uppúr hjá Val og fleytti hann sigrinum í höfn. Það var Þorlákur Kjartans- son markvörður sem varði hvorki meira né minna en 26 skot og þar af þrjú vítaköst. Lið FH hafði frumkvæðið í fyrri hálfleiknum og náði í byrjun öruggri forystu. Þegar fyrri hálf- leikurinn var hálfnaður var stað- an 8—5, FH í vil. Valsmenn léku mjög illa og hver sóknin af annari rann út í sandinn. Lítil sem engin ógnun var í leik þeirra og þeir virkuðu þungir og seinir á sér. FH hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 11—8. Af átta mörkum Vals í fyrri hálfleik voru fjögur Firmakeppni KKÍ Körfuknattleikssamhandið hefur ákveðið að efna til árlegrar keppni „áhugamanna" i körfu- knattleik með nokkuð öðru sniði en tiðkast hefur til þessa. Keppn- in nefnist „Firmakeppni KKI“ og keppt er um meistaratitil. Rétt til þátttöku eiga allir hópar áhuga- manna. Gjaldgengir til þátttöku eru allir þeir sem ekki leika með meistaraflokkum Úrvalsdeildar- félaga og 1. deildarfélaga. Keppt verður í riðlum og úrslitakeppni verður síðan i mars. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til KKÍ, íþróttamiðstöð- inni í Laugardal, Box 864, fyrir 30. nóvember. 21:22 skoruð úr vítaköstum. FH-ingar misnotuðu tvö vítaköst í fyrri hálfleik og nokkur mjög góð marktækifæri. Ef heppnin hefði verið með þeim hefði forystan getað verið enn stærri. Síðari hálfleikur var mjög illa leikinn af hálfu beggja liða. Lið FH missti leikinn alveg út úr höndum sér og það var eingöngu vegna þess hversu Valsmenn voru slakir að leikurinn var jafn alveg fram á síðustu sekúndu leiksins. Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik hafði Valur jafnað metin, 13—13. Síðan var jafnt á öllum tölum upp að 18—18, þá voru sjö mínútur til leiksloka og Valsmenn náðu tveggja marka forystu, 20—18. FH jafnaði ogátti tvö góð tækifæri á að ná foryst- unni í leiknum. Valsmenn misstu boltann í tvígang beint í hendur FH-inga. I fyrra skiptið komst Valgarð í hraðaupphlaup, hoppaði inn í teiginn og skaut einn og óhindraður á markið en Þorlákur varði. í síðara skiptið komst Hans fram í gott færi en missti boltann út úr höndum sér. Valsmenn hófu sókn og Gísli Blöndal skoraði, 21—20. Hans Guðmundsson jafn- aði fyrir FH. Nú var allt á suðupunkti og á köflum virtust leikmenn ekkert vita hvar þeir voru eða hvað þeir voru að gera á vellinum. Mistök voru á báða bóga. Loks tók Brynjar Harðarson af skarið, braust laglega í gegn og skoraði sigurmark Vals. Þá voru 34 sekúndur til leiksloka. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst FH ekki að jafna þótt að ekki munaði miklu í lokin. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um liðin. Þau léku bæði illa. Alla yfirvegun og góðan „1. DEILDARLIÐ Keflavíkur leik- ur í kvöld við KR í hinu nýja íþróttahúsi í Keflavík. Þetta er annar æfingaleikur Keflvíkinga við lið úr úrvalsdeildinni í hinu nýja og glæsilega húsi. Fyrir handknattleik vantaði. Lið Vals var vægast sagt afspyrnuslakt og má muna sinn fífil fegri. Aðeins einn maður stóð uppúr, Þorlákur Kjartansson markvörður, sem í fjarveru Ólafs Benediktssonar varði mjög vel eins og áður sagði. Þá lék Bjarni Guðmundsson allvel. Fiskaði mörg vítaköst og skoraði sjálfur 2 mörk. En hann fékk enga hjálp. Stefán Halldórsson nýtti vítaköstin vel, skoraði úr öllum, átta talsins. En fyrir utan það sást hann ekki í leiknum. Aðrir leik- menn voru mjög slakir bæði í vörn og sókn. Lið FH var síst skárra, þar var það markvörðurinn Gunn- laugur Gunnlaugsson sem bar af eins og kollegi hans í Val. Gunn- laugur varði 17 skot. Þorgils Óttar stóð sig mjög vel á línunni og skoraði fimm mörk í ieiknum. Bráðefnilegur leikmaður sem stendur vel fyrir sínu. Það sama var upp á teningnum hjá FH og Val, sóknar- og varnarleikur var í molum. Enda mátti varla á milli sjá hvort liðið gerði fleiri vitleys- ur. í stuttu máli. íslandsmótið 1. deild. FH-Valur 21—22 (11—8) Mörk Vals: Stefán 8, öll úr víta- skotum. Þorbjörn Jensson 3, Steindór, Bjarni Gunnar og Þor- björn Guðmundsson tvö mörk hver. Björn, Gísli, og Brynjar 1 mark hver. Mörk FH: Þorgils Óttar 5, Krist- ján 3, Hans 3, Guðmundur Árni 3, Valgarð 3, Sæmundur 2, Geir og Sveinn 1 hvor. Brottvísun af leikvelli: Gísli, Brynjar, Steindór og Þorbjörn Jensson allir í Val 2 mínútur hver. Valgarð og Sæmundur hjá FH í 2 mínútur hvor. Misheppnuð vítaköst: Þorlákur Kjartansson varði tvívegis hjá Kristjáni Arasyni á 7. og 20. mínútu og svo hjá Géir Hall- steinssvni á 35. mínútu. ÞR skömmu léku Keflvikingar við Islandsmeistara Vals og urðu að sætta sig við nauman ósigur eftir að hafa leitt leikinn lengi vel. Leikurinn í kvöld hefst kl. 19.30. ÍBK mætir KR Óvæntur sigur Wales í miklum æsileik! í 3. riðli. þeim sama og íslend- ingar leika í. sigruðu Wales-búar Tékka í gærkvöldi. Fór leikurinn fram í Cardiff og urðu lokatölur hans 1—0 fyrir velska liðið. Var sigurinn dálítið óvæntur. en með honum hefur velska liðið náð góðri forystu í riðlinum og stend- ur ágætlega að vígi að verða eitt af tveimur efstu liðunum í riðlin- um. cn þau komast i lokakeppn- ina sem kunnugt er. David Giles skoraði sigurmark Wales þegar á 9. mínútu leiksins. Mick Thomas, sem lék með á ný í fjarveru Leighton James, óð þá upp vinstri kantinn, lék á hvern Tékkann af öðrum og sendi loks fyrir markið þar sem Giles beið og skoraði umsvifalaust. Tékkarnir sóttu lengst að meira og voru oft hættulegir við mark Wales. Þann- ig áttu þeir skot í þverslá og miðherjinn Ian Walsh varð öðru sinni að bjarga af marklínu eftir að markvörðurinn Dai Davies hafði misst knöttinn klaufalega frá sér. Segja má að velska liðið hafi boðið upp á þetta allt, því þjálfari liðsins, Mike England, lagði allt sitt í sóknarleikinn og lið hans tefldi aðeins fram þriggja manna vörn. En undir lokin náði velska liðið góðum tökum á íeikn- um og fékk nokkur færi á því að bæta við markatöluna án þess þó að það gengi upp. Wales hefur 6 stig að 3 leikjum loknum, Sovétmenn hafa 4 stig að tveimur leikjum loknum (báðir gegn Islandi). Þetta var hins vegar fyrsti leikur Tékka í keppninni að þessu sinni og eru Islendingar því enn í þriðja sætinu í riðlinum með 2 stig. Knaltspyrna 1 Steve Coppell skoraði fyrra mark Englands gegn Sviss og var auk þess nærri því að bæta fleiri mörkum við. Hann var einn af fáum leikmönnum í liði Eng- lands, sem lék ba'rilega frá upp- hafi leiksins til enda hans. Þróttur og ÍS sigruðu ÞIIÓTTUR sigraði UMFL í úr valsdcildarkcppninni í blaki i gærkvöldi. en þá fóru fram í Ilagaskóla tveir leikir í 1. deild karla og einn í 1. deild kvenna. Sigur Þróttar gegn UMFL var öruggur. 3—0. en hrinurnar end- uðu 15-7,15-13 og 15-0. Síðan léku IS og Víkingur og vann ÍS nokkuð örugglega, 3—1. ÍS vann fyrstu tvær hrinurnar, 15—3 og 15—9, en síðan hjó Víkingur til baka með sigri í þriðju hrinu, 15—5. En ÍS vann loks síðustu hrinuna 15—12 eftir mikinn barning. í leik þessum bar það annars til tíðinda, að einn úr liði Víkings var rekinn af leikvelli, en slíkt er fátítt í blaki. Loks má geta þess, að ÍS sigraði UBK 3—2 í 1. deild kvenna. Voru geysilegar sveiflur í leiknum og eftir fjórar hrinur stóð 2—2. í úrslitahrinunni var Þóra Andrésdóttir síðan óstöðvandi, nældi í 9 stig i röð með uPPgjöfum sínum og ÍS vann yfirburðasigur, 15—0! Osannfærandi sigur Englands gegn Sviss ENGLENDINGAR sigruðu Svisslendinga 2—1 i 4. riðli undankcppni IIM í knattspyrnu í gærkvöldi. leikurinn fór fram i Lundúnum. í hálfleik var staðan 2—0 fyrir Englendinga. Enska liðið lék án margra fastamanna og mátti glöggt sjá það á leik liðsins. Frammistaðan í fyrri hálfleik var þó all góð, en í síðari hálfleik voru þeir ensku mjög slakir og frekar heppnir að hafa bæði stigin upp úr krafsinu. Steve Coppell skoraði fyrra mark Englendinga á 22. mínútu og kom markið í kjölfarið á stöðugri sókn enska liðsins. Markið kom nokkuð á Svisslendingana og aðeins tíu míútum síðar skoruðu Englend- ingar aftur og var þá á ferðinni Paul Mariner. Englendingar hurfu því til búningsklefa með væna forystu í pokahorninu. En Sviss- lendingar komu tvíefldir til leiks í síðari hálfleik og þrátt fyrir að enska liðið væri sem fyrr meira í sókn, stóðst svissneska vörnin öll áhlaup nokkuð auðveldlega. Og ekki nóg með það, heldur tókst liðinu að minnka muninn, er Jorge Pfister skoraði á 75. mínútu leiks- ins. Sem sagt, í heild slakur leikur hjá Englendingum, en eftir að hafa tapað síðasta leik sínum í riðlinum fyrir Rúmenum, verða þeir ensku vafalaust hæst ánægðir með árangurinn engu að síður. Englendingar hafa nú fjögur stig að þremur leikjum loknum, en Rúmenar eru í öðru sæti með 3 stig eftir tvo leiki. Norðmenn hafa einnig þrjú stig, en hafa leikið 3 leiki. Handknattleiksdómarar í Reykjavík Aöalfundur Handknattleiksdómarafélags Reykjavíkur veröur haldinn í kvöld fimmtudag 20. nóv. kl. 21.30 aö Hótel Esju, 2. hæö. Fundarefni: 1. Stjórnarkjör. 2. Dómaramál. 3. Önnur mál. Héraðsdómarar, er ætla aö starfa, mæti meö mynd vegna endurnýjunar skírteina. H.K.R.R. — H.K.D.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.