Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freystemn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Hótanir Sovétmanna Er það tilviljun, að röksemdafærsla talsmanna Alþýðu- bandalagsins þeirra Svavars Gestssonar og Ólafs R. Grímssonar er hin sama og hjá Belski ofursta, sem birti grein um varnarmál Islands í málgagni sovéska hersins, Rauðu stjörnunni, í síðustu viku? Sumir kunna að svara þessari spurningu á þann veg, að fyrir milligöngu sovéska sendiráðsins í Reykjavík hafi Belski ofursti, hver sem hann nú er, fengið sendar þingræður þeirra Svavars Gestssonar og Ólafs R. Grímssonar, sem fluttar voru 11. og 15. maí. Ofurstinn hafi síðan samið grein sína í Rauðu stjörnuna, sem birtist 22. maí á grundvelli þess, sem fram kemur í ræðunum. Boðskapur Alþýðubandalagsins um öryggismál íslands sé þess eðlis, að óhætt sé að þýða hann beint í málgagn sovéska hersins til að koma því á framfæri við lesendur þess, að ísland sé ríki, sem Sovétmenn þurfi að varast. Þessi kenning fær þó tæplega staðist, þegar til þess er litið, að þeir kaflar úr ræðu Svavars Gestssonar, sem falla saman við grein Belski ofursta, hafa hvergi birst opinberlega. Svavar Gestsson sleppti þeim, þegar hann birti ræðu sína í Þjóðviljanum. Ræða Ólafs R. Grímssonar hefur hvergi birst. Auðvitað er hugsanlegt, að sovéska sendiráðið í Reykjavík hafi fengið afrit af ræðunum í Alþingi, þar sem þær eru afritaðar af segulböndum til birtingar í þingtíðindum og blaðamönnum til afnota. Hér er um forvitni- legt rannsóknarefni að ræða, sem æskilegt væri, að þeir Svavar Gestsson og Ólafur R. Grímsson upplýstu. En getur ekki verið, að röksemdir sínar um öryggismál íslands hafi þeir Svavar Gestsson og Ólafur R. Grímsson fengið með því að fara í smiðju hjá sovéska sendiráðinu í Reykjavík? Er ekki þar að finna skýringuna á því, hve margt er líkt með ræðum þeirra og grein Belski ofursta? í ræðu, sem Benedikt Gröndal fyrrum utanríkisráðherra flutti á Alþingi 11. maí sl., sagði hann meðal annars: „Það leynir sér ekki, að allur undirtónn í hinni nýju áróðurssókn Alþýðubandalagsins er stuðningur við Sovétríkin og fordæming á hinum frjálsu ríkjum." Grein Belski ofursta er staðfesting á því, að herforingjar í Sovétríkjunum fagna röksemdafærslu Alþýðu- bandalagsins um að „eðli“ varnarstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli hafi breyst. Þessi „eðlisbreyting“ er kjarninn í hræðsluáróðrinum, sem Alþýðubandalagið ákvað að hefja á landsfundi sínum í nóvember. í ræðu sinni 11. maí sagði Svavar Gestsson: „Herstöðin í Keflavík er að verða eins konar miðpunktur í kjarnorkuvopnakerfinu á Norður-Atlantshafi.. í ræðu sinni 15. mai sagði Ólafur R. Grímsson, að varnarstöðin í Keflavík hafi verið gerð „að einhverjum mesta lykilþætti" í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi. í grein sinni 22. maí sagði Belski ofursti: „Sérlega varasöm er sú staðreynd, að Pentagon hyggst gera eyríkið að einni kjarnorku- stöðva í varnarkerfi USA.“ Þessa dagana dvelst sendinefnd frá Alþingi í Sovétríkjunum. Úr því að þingmennirnir ákváðu að fara í þessa ferð eiga umbjóðendur þeirra kröfu til þess, að þeir ræði við þá fyrirmenn, sem þeir hitta, þau málefni, sem hæst ber í samskiptum þjóðanna. Greinilegt er, að samspil Alþýðubanda- lagsins og sovéskra stjórnvalda hefur leitt til þess, að Sovétmenn telja sér henta að hafa í hótunum við Islendinga. í stað blíðusvips sýnir sovéska áróðursvélin nú vígtennurnar, þegar hún lítur í áttina til íslands. Þingmennirnir eiga að fá úr því skorið, hvað þessari stefnubreytingu veldur. Þeir eiga að æskja þess að fá að hitta Belski ofursta að máli. Til dæmis gætu þeir fellt niður ferðalag til Eistlands og þess í stað leitað svara við því, hvort það sé að beiðni Alþýðubandalagsmanna, sem Sovétmenn eru teknir til við að láta í það skína, að á íslandi séu kjarnorkuvopn. Islenskir ráðamenn verða að bregðast rösklega við hótunum Sovétstjórnarinnar. Hún kann að líta þannig á, að málflutning- ur hennar falli í góðan jarðveg, af því að Alþýðubandalagið hefur gert hann að sínum. Þennan misskilning verður tafarlaust að leiðrétta. Einnig verður að gera Sovétstjórninni ljóst í eitt skipti fyrir öll, að hótanir hennar í garð íslendinga eru til þess eins fallnar að spilla sambandi ríkjanna. Mætti í því sambandi benda Kremlverjum á það, að verði framhald á þessum hótunum skuli þeir búa sig undir að flytja stóran hluta sendiráðsstarfs- manna sinna á brott frá Reykjavík eða loka áróðursskrifstofu Novosti hér á landi. Ingvar Valdimarsson bendir á svæðiö sem lögö veröur áhersla 6 aö leita á í dag, en merl sýna allt svæöiö sem um 25 flugvólar hafa leitað á auk hundruöa leitarmanna á landi. Ljó Ingvar og Jóhannes Briem fjalla um staöarmerkingar þar sem fólk á sveitabæjum varö vart við TF—ROM á miðvikudagskvöld á austurleiö. Elíeser Jónsson gengur frá flugvól sinni, en hann leitaöi allan fimmtudaginn meö hóp manna um borö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.