Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981 Víkintfur á æíingu: frá vinstri, Gunnar örn Kristjánsson, Lárus | Agnarsson, öskar Tómasson, Heimir Karlsson, Jóhann Þorvarðarson, Guðmundsson, Þórður Marelsson. Aðalsteinn Aðalsteinsson, Ragnar Helgi Helgason, Magnús Þorvaldsson og Youri Sedov. Gislason, Gunnlaugur Kristfinnsson, Jóhannes Bárðarson, Róbert I Myndir Mbl. Emiiia. „Víkingur mun leika betur en í fyrra“ - segir Youri Sedov, þjálfari Víkings „ÉG VEIT, að VikinKur mun leika betur en á síðasta keppnistímabili Eiegar strákarnir komust í UEFA-keppnina. En hvort það færir okkur slandsmeistaratign er annað mál; um það er of snemmt að spá því hugsanlegt er. að önnur lið hafi tekið meiri framförum en við,“ sa«ði Youri Sedov, þjálfari 1. deildarliðs Víkings þetfar blaðamaður hitti hann að máli á æfingu á Krasvelli Vfkings við Hæðargarð. Youri og strákarnir hans voru nýbúnir að koma upp miklu neti, sem var vel strengt og strákarnir æfðu sig að skjóta i netið, boltinn kastaðist til þeirra og þá var að ná að skjóta aftur. Annars staðar léku ieikmenn innan lítils fer- hyrnings en þar gilti að spila knettinum; ná upp spili. Það var mikið kapp í strákunum og Youri stjórnaði æfingunni eins og her- foringi. Youri Sedov er með Víkingsliðið annað árið í röð. Hann er í fremstu röð meðal þjálfara í heimalandi sínu og sjálfsagt þó víðar væri leitað. Hann var meðal fremstu knattspyrnumanna í Sov- étríkjunum og lék um árahil með Spartak Moskvu. Eftir að hann lagði skóna á hilluna, tók hann að þjálfa 1. deildarlið í Sovétríkjun- um og 1973-75 var Youri Sedov með sovéska landsliðið. Hann varð síðan yfirmaður þeirrar stofnunar í Sovétríkjunum, sem hefur með samræmingu tækniþjálfunar að gera. Youri Sedov tók við af landa sínum, Youri Ilitchev, hjá Víkingi og margra mál er, að með þessum tveimur snjöllu þjálfurum hafi knattspyrna Víkinga gjörbreyst til hins betra. Víkingar náðu góðum árangri á síðastliðnu sumri. Þeir urðu Reykjavikurmeistarar, sigruðu Þrótt í úrslitaleik á Laugardals- velli 2-1. Þá hafnaði Víkingur í 3. sæti 1. deildar og þátttaka í UEFA-keppninni var tryggð. Á ársþingi KSI var Víkingi afhent Drago-styttan fyrir prúðastu framkomu 1. deildarliða. Og í vetur klykktu strákarnir hans Youri út með því að verða ís- landsmeistarar innanhúss. Fjórir góðir; góður árangur. Dagblöðin hafa spurt bæði áhugamenn og leikmenn 1. deildar hvaða lið þeir telji líklegust til að blanda sér í toppbaráttuna. Margra mál var, að Víkingur verði eitt þeirra. Blaðamaður bar þessa spurningu undir Youri. „Við mun- um reyna að gera okkar besta og hver veit, kannski verður hægt að óska Víkingum til hamingju með Youri Sedov meistaratitilinn eftir áratuga bið. Þessar spár gera okkur erfiðara fyrir, andstæðingarnir munu leggja harðar að sér gegn okkur. En það er dulítið skrítið, finnst mér, að almenningur skuli hafa fengið trú á Víkingi. Við höfum misst leikmenn. Það er mjög erfitt að sigra í 1. deild. En sjálfsagt hafa menn séð eitthvað í leik Víkings, scm gerir það að verkum, að þeir spá félaginu velgegni. Það er vissulega rétt, að strák- arnir hafa lagt hart að sér. í upphafi keppnistímabilsins í fyrra var ég óánægður með leik Víkings en smám saman batnaði leikur liðsins og því tókst að tryggja sér UEFA-sæti. Strákarnir hafa lært frá í fyrra. I liðinu eru ungir og efnilegir leikmenn, ég nefni Heimi, Lárus, Aðalstein og Jó- hann. Þeir hafa fengið meiri reynslu, einkum í liðssamvinnu. Þá eru traustir leikmenn með reynslu og leikmenn á borð við Róbert Agnarsson, Ragnar Gísla- son og Óskar Tómasson eru óðum að ná sér af meiðslum, en okkur vantar tilfinnanlega meiri breidd. Nú þarf ég að leggja áherzlu á að fá liðið til að leika á fullu allan leikinn. Það gefur okkur aukna möguleika á að skora og eins að koma í veg fyrir að andstæð- ingarnir skori. Strákarnir þurfa að vera „aggressívari" og ná meiri festu í leik liðsins. Liðið í dag er óþekkjanlegt frá því sem var á sama tíma í fyrra og við erum á réttri leið. Spurningin er bara þessi; hve miklum fram- förum hafa önnur félög tekið. Þú spyrð hvaða lið verði í baráttunni um titilinn. Valsmenn eru sterkir, hafa á að skipa sterkum og stæðilegum einstaklingum. Þá verða Framarar sterkir, einnig Skagamenn og hugsanlega Breiða- blik.“ H.Halls. „Ánægjan meiri" - segir Jóhannes Bárðarson, miðvörður Víkingsliðsins Jóhannes Bárðarson „VID KOMUM til íslands- mótsins þokkalega vel undir- búnir. en ég held að ekki verði að marka gengi liðanna fyrr en eftir 5 umferðir. Þá fara línurnar að skýrast,“ sagði Jóhannes Bárðarson, mið- vörðurinn sterki i liði Vikings í spjalli við blaðamann. Hann var þá á æfingu ásamt félög- um sinum. Jóhannes Bárðar- son er gamall i hettunni. Hann hóf að leika með meist- araflukki Vikings sumarið 1969; hefur því verið í 12 ár í eldlínunni. „Gengi Víkings í sumar fer eftir byrjuninni og hvernig ungu strákunum í framlínunni tekst upp. Við höfum farið illa með marktækifæri en ég hef trú á, að það lagist. Leikmenn eru í mikilli framför og fyrr en varir held ég að Lárus Guð- mundsson fari að nýta mark- tækifæri sín betur en hingað til. Nú svo hefur Ómar Torfa- son sýnt miklar framfarir eftir að hann kom til Víkings." En hvað um þig sjálfan. Margra mál er, að þú hafir gjörbreyst sem knattspyrnu- maður eftir að sovésku þjálf- ararnir tóku við Víkingi. „Já, þeir hafa fundið mína réttu stöðu, haffsent. Áður hafði ég spilað tengilið eða stöðu frammi. Með sovésku þjálfurunum hefur knattspyrna okkar gjör- breyst. Menn hafa meira gam- an af hlutunum heldur en í djöflaganginum hjá ensku þjálfurunum sem hjá okkur voru, og það sama á við um mig. Ég veit ekki hvernig hlutirnir æxlast í sumar en ég er sannfæður um, að ef Youri verður áfram hjá okkur, þá mun liðið blómgast, að því tilskildu að við verðum með sama mannskap. Þá er það mikill bónus fyrir okkur, að vera í UEFA-keppninni. Áhuginn er meiri." Hvaða lið telur þú, að komi til með að berjast um ís- landsmeistaratign? „Ég held að það verði Reykjavíkurfélög- in. Þau virðast sterk í sumar. Þá nefni ég Breiðablik. Þeir hafa sýnt skemmtilega takta en spurning hve lengi þeir halda þetta út. Þeir eru svipað- ir og við áður fyrr. Við vorum mjög sterkir á vorin en þegar í alvöru 1. deildar kom datt botninn úr þessu." H.Halls. „Setjum markið hátt“ - segir Lárus Guömundsson „Ég HEF þá trú, að við getum náð langt I sumar. Mórallinn er í gftðu lagi, allir eru staðráðnir í að gera sitt bezta í sumar.“ sagði Lárus Guð- mundsson, miðherjinn ungi hjá Víkingi þegar blaðamað- ur hitti hann á æfingu á grasvelli Vikings við Hæðar- garð. Lárus Guðmundsson er kornungur, aðeins tvítgur og hefur þegar vakið mikla at- hygli fyrir leikni sína og út- sjónarsemi. Þrátt fyrir ungan aidur, hefur hann skipað sér í röð beztu leikmanna íslands. Blaðamaður spurði hvort hann hefði orðið fyrir vonbrigðum að komast ekki til Tékkóslóv- akíu. „Það er ánægjulegt að vera kominn í hópinn. Ég reiknaði ekki með að komast með til Tékkóslóvakíu." Nú er Víkingsliðið ungt að árum. Kemur það til með að há ykkur í sumar? „Það má ekki gleyma því, að Víkingsiiðið er góð bianda ungra og reyndra leikmanna. Við eigum ekki minni möguleika en aðrir; og ef ekki í sumar, þá næsta sumar. En við ætlum okkur að ná langt, og því setjum við markið hátt. Árangur næst ekki nema metnaður sé fyrir hendi. Þann metnað höfum við Víkingar. Við erum nú í UEFA- keppninni og það hefur aukið áhugann um allan helming. Þá höfum við frábæran þjálfara, Youri Sedov. Hann hefur hald- ið áfram starfi landa síns, Youri Ilitschev, fyrrum þjálf- ara okkar og mér finnst ég hafa haft mjög gott af að vera undir leiðsögn slíkra manna; frábærra þjálfara." Hvaða lið telur þú að komi til með að berjast um meist- aratign í ár? „Ég held að Valur og Fram verði sterk í sumar. Nú einnig Akranes en síðustu árin höfum við átt góðu gengi að fagna gegn þeim,“ sagði Lárus Guðmundsson. H.Halls. Lárus Guðmundsson Víkingur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.