Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 Lýðræði og láglaunafólk eftir Halldór Jónsson, verkfræöing Þegar maður hlustar á þjóð- málaumræður vekur það eftirtekt, hversu stjórnmálamenn láta sér títt um hag hinna lægst launuðu og þarmeð allrar alþýðu. Þeir vilja allt fyrir þetta fólk gera, taka af þeim ríku og færa þessu fólki. Kærleiksfaðmur þeirra umlykur þerinan yfirgnæfandi meirihluta fólks, sem af einhverjum ástæðum virðist ekki ná rétti sínum þrátt fyrir lýðræðislega yfirburði vegna fjölmennis. Kannski bara af því að þeir ríku séu ekki til. Minnihlut- inn virðist alltaf ná að kúga þessa vesalinga að þeir segja okkur. Því þurfi þeir endilega á þing tii að rétta hlut þeirra. En hverra hlut eru þeir að rétta? Láglaunafólkið Ef maður fer í gegnum þing- mannalistann, þá getur maður slegið því föstu, að meirihluti þingmanna hafa sjálfir farið veru- lega uppávið í lífskjörum við kjörið. Menn geta farið af sendi- sveinakaupi, sem ekki gerir einu sinni kleift að hafa tékkhefti í lagi, upp í þokkalegar tekjur, sem leyfa bíla og íbúðakaup. Meðan ekki er sú regla í gildi, að menn skuli aðeins halda stöðu í launum fyrir að fara á þing, trúi ég því ekki að um algerlega óeigingjarnar hugsjónir sé að ræða hjá mörgum af þessum alþýðuvinum. Það læðist að manni grunur um, að þessi barátta fyrir bættum kjörum hinna lægstlaun- uðu sé oft háð fyrir eigin hönd viðkomandi. Vilmundur og Jón Hannibals hafa nú yfirgengið svo hvorn annan í alþýðuást, að þeir rúmast ekki lengur báðir á Alþýðublað- inu, þó lengi hafi það blað verið í þörf fyrir hressa skríbenta. Er nú Vilmundur kominn með nýtt landsblað, sem á að yfirganga allt sem áður var ritað um alþýðu- kærleik, lýðræði og vekalýðsfimi. Fær hann meira að segja Hannes Hólmstein Gissurarson til þess að skrifa lof um sjálfan sig í blaðið, að því er virðist gegn því að skrifa sjálfur um, að Hannes sé ekki fasisti, þó róttækur sé. Þrátt fyrir 7 tilraunir mínar til þess að lesa blaðið, þá fæ ég ekki séð ávinning þess fyrir láglaunafólkið í landinu, að Vilmundi frátöldum. 25000 ein- tök x tíkall er talsvert fé. Og auglýsingadeild blaðsins er í lagi. Ekki fá allir þvílíka auglýsingu í sjónvarpinu, sem sjónvarpsþátt- urinn á þriðjudagskvöldið var. Þar fékk Vilmundur að spreyta sig á því, sem hann kallar verkalýðs- rekendur. Taka þá til bæna um hið rússneska lýðræði þeirra í verka- lýðshreyfingunni um leið og hann auglýsti blað sitt sem málgagn lýðræðis og verkalýðsbaráttu. Ekki skiptir máli hver burstaði hvérn. Vilmundur fékk sína aug- lýsingu. Niðurstaðan í þættinum virtist hinsvegar vera sú, að baráttan á pólitíska sviðinu um samningana í gildi og að kosningar væru kjara- , barátta, hafa leitt til þess að / kaupið hjá VR er 25% lægra fyrir aðgerðir Vilmundar alþingis- manns, en verkalýðsrekandinn Magnús L. og hinn „fjarstaddi" alþingismaður Eðvarð Sigurðsson sömdu við auðvaldið um. 25%< kjaraskerðing hins hjartkæra launþega Vilmundar virðist því frekar vera tilkomin fyrir aðgerð- ir alþingismannanna Vilmundar „Vísitölufitl virðist verða aðalverkefni nú- verandi ríkisstjórnar sem þess á milli gerir fátt annað en að sprengja súrálssprengj- ur og Flugleiðakínverja öðru hverju, svona til þess að minna á að hún sé nú ekki dauð.“ og Eðvarðs, en vegna hins rússn- eska lýðræðis þeirra Magnúsar L. og Eðvarðs konungs í verkalýðs- félögunum. Enda er það athyglis- vert, að öll pólitísk viðleitni vinstri ríkisstjórna þeirra alþýðu- vina beinist að því að stýfa af umsömdum verðbótum til laun- þegagreyjanna vegna baráttunnar við verðbólguna, sem virðist hafa „algeran forgang" eins og Ólafur sagði. Fyrir verðbólguna eru Hita- veitur, Rafveitur og öll önnur vísitölufyrirtæki iátin stunda taprekstur svo hægt sé að klípa í verðbætur launþegans. Vanda opinberru fyrirtækjanna er redd- að með lántökum upp á seinni tímann, sbr. enska lánið hans Gunnars, en einkafyrirtækin geta étið það sem úti frýs, hverjum er svo sem ekki sama um þau. Millifærsluáráttan kæfir sem fyrr alla heilbrigða hugsun íslendinga. Vísitölufitl virðist vera aðal- verkefni núverandi ríkisstjórnar, sem þess á milli gerir fátt annað en að sprengja súrálssprengjur og Flugleiðakínverja öðru hverju, svona til þess að minna á að hún sé nú ekki dauð. Svo þegar fella þarf gengið, sem náttúrulega leið- ir af sér meiri vísitöluvandamál seinna, þá er nú munur að hafa Þjóðviljann til þess að skýra það út fyrir alþýðunni, að hér sé aðeins um beina lífskjarabót handa samningssöddum launþeg- um að ræða. Það sé nú eitthvað annað en þegar íhaldið var að fikta í Seðlabankanum og fabrikk- eraði grímulausar árásir á lífs- kjörin í formi gengisfellinga. í sjálfu sér er ágætt, að ríkis- stjórnir geri sem minnst en láti fólkið sjálfrátt. Þó eiga ríkis- stjórnir að hafa uppi tilburði til þess að beina orku landsmanna inn á nýjar orkunýtingarleiðir, hafa frumkvæði um nýja orkuöfl- un, en láta vinnumarkaðinn um að semja um kaup og kjör. I stað vísitölusvindls ættu þær að stýra þjóðfélaginu í gegnum skattakerf- ið og peningakerfið, sem myndi ekki vera jafn sveifluvekjandi eins og núverandi stýring í gegnum verðbólguna og vísitölukerfið. En það er eins og fólkið vilji hafa revíu. Það vill hafa unga og hressa gladiatora eins og Vilmund til þess að gæta hags síns og segja sér sögur. Það virðist alltaf trúa útskýringum sinna manna og sætta sig við ástæðurnar fyrir því, hversvegna Vilmundi fannst nauðsynlegt að skerða kaupmátt- inn um 25% þegar hann var að stjórna hér um árið. Að minnsta kosti var hann fljótur að leiða talið frá þessu smáatriði í þættin- um góða og siapp með það — hérumbil. A meðan pólitíkusarnir syngja seiða sína fyrir fólkið um einlæga ást sína á því, þá gleymir fólkið öllu um það, sem höfuðmáli skipt- ir fyrir það; að auka þjóðartekj- urnar til þess að létta hverjum og einum byrðarnar. Og niðursokk- inn í stritið á akrinum gleymir þrællinn að aðgæta hvað húsbónd- inn aðhefst milli mála eða hugsa um vinnusparandi vélar og aðferð- ir. Því fer sem fer og fólkið virðist láta sér þennan sjónleik vel lynda. Og sé það ánægt, er þá ekki bara allt í lagi? Afram Vilmundur, „you’re doing well by doing good“, eins og stendur í kvæði Tom Lehrers um eiturlyfjasalann. Tuttuguogfimmþúsundsinnum- tíkall — Bravó. En kjarabætur á íslandi verða ekki sóttar í vasa þeirra ríku. Aðeins með aukinni þjóðarfram- leiðslu geta allir notið meira af efnislegum lífsgæðum, sem fólkið setur ofar menningu og félags- fræði. Staðreynd, sem allir sjá en enginn vill skilja. Lýðræði í verkalýðs- hreyfingunni Það virðist nú vera helsta bar- áttumál Vilmundar að koma á lýðræði í verkalýðshreyfingunni. Mikið má Gunnar Thoroddsen vera feginn, að þarna er athygl- inni beint frá honum. Því hann átti, sem kunnugt er, að koma á lýðræði á Islandi í stjórnarskrár- nefnd. Nú geta menn gleymt því aftur, að Vestfirðingar hafa 5falt atkvæði á við Reykjanesbúa o.s.frv. Nú skiptir aðeins máli, að ekki sé „rússneskt lýðræði" í verkalýðshreyfingunni. 25.000 ein- tök á viku því til styrktar (sinnum tíkall, NB) og hinni „óþolandi spillingu" skal útrýmt. Það er nokkuð til í því,<að lítt verjandi sé, að fámennir félagsfundir, eða þátttökulitlar allsherjaratkvæða- greiðslur, geti tekið örlagaríkar ákvarðanir. Ég minnist þess úr Verkfræðingafélagi Islands, að 10—20 manns, sem nenntu að mæta á aðalfundi, fóru með öll völd í meira en þá hundrað manna félagi. Þá var tekið upp, að senda atkvæðaseðla í pósti til félags- manna með utanáskrifuðu svar- umslagi, þegar kjósa átti í stjórn í félagið. Eftir það er engin spurn- ing um vilja félagsmanna. Þetta er einföld og virk aðferð, ef menn vilja fá fram vilja félagsmanna. Ég hef verið veikur fyrir hug- myndinni um hlutfallskosningar í verkalýðsfélögum. En eftir þátt- inn hans Vilmundar, þá efast ég. Sjálfsagt yrði ekki sama ráðleysið og braskið, og er í samsteypuríkis- liðhlaupana en þeir ekki við hann. Ekki er að búast við að t.d. Alexander mikli eða Napoleon hefðu skilið svoleiðis kerfi, hvað þá búið við það. stjórnum okkar íslendinga, í svo- leiðis kjörnum verkalýðsstjórnum. Það yrðu myndaðir meirihlútar eins og í þæjarstjórnum, sem tröðkuðu á minnihlutanum, eins og venja er og vera ber. Líklega er vænlegra til árangurs í fagfélagi, að sigurlisti taki öll völd í sínar hendur og standi og falli með verkum sínum. Vinni þeir vel fyrir sína menn verða þeir endurkosnir og fá frían bíl eins og Magnús átölulaust. En eins og Eðvarð sagði, eiga verkalýðsfélögin að sækja styrk sinn til sjálfra sín og ráða sínum málum sjálf. Þau eiga hvorki að þurfa mig né Vilmund til að kenna sér að lifa. Almenn félagsmáladeyfð íslendinga er hinsvegar arfur frá Agli Skalla- Grímssyni og því ólæknandi, hvað sem þeir sænskmenntuðu félags- fræðingar og Ólafur Ragnar ham- ast. Landinn vill fá að vera í friði, sé hann saddur og nennir þá ekkert að hlusta á félagsmála- og menningarþvæiu. Hvað þá að taka eftir því, að nú þarf að byggja tröllaukið hús yfir Seðlabankann, stofnun sem fyrir aldarfjórðungi rúmaðist í tveimur skrifborðs- skúffum í Landsbankanum og Stjórnarráðinu. Er verðbólgan kannski minni núna? Lýðræði í Sjálf- stæðisflokknum Það er dálítið spaugilegt að virða fyrir sér Sjálfstæðisflokkinn núna, bæði í stjórn og utan. Og lögleg yfirvöld í flokknum geta barasta ekkert gert. Skipulags- reglur flokksins eru þannig, að þar er ekki gert ráð fyrir klofningi og engin viðurlög við því þó mið- stjórnarmaður t.d. gangi skyndi- lega í lið með kommúnistum. Þannig verður lýðræðislegur meirihluti flokksins að þola það, að minnihluti hans fari sínar eigin í nafni flokksins. Það þætti lélegt í hvaða her sem væri, ef liðhlaup væru í lagi, aðeins yrði generáll- inn að leita eftir sáttum við Þar sem ekki er hægt að búast við, að Vilmundur sé tiltækur til þess að berjast fyrir lýðræði í Sjálfstæðisflokknum, þá hefur mér dottið í hug að flytja þyrfti tillögu um eftirfarandi breytingar á skipulagsreglum flokksins á nk. landsfundi, e.t.v. að fengnu dagskrárleyfi miðstjórnar: 10. gr. í skipulagsreglum flokks- ins hljóðar svo: „Flokksráð mark- ar stjórnmáiastefnu flokksins, ef ekki liggja fyrir ákvarðanir lands- fundar. Ekki má taka ákvörðun um afstöðu flokksins til annarra stjórnmálaflokka nema með sam- þykki flokksráðs." Hér verði bætt við: Nú tekur einhver flokksráðsmaður upp opinbera stjórnmálastefnu sem meirihluti flokksráðs telur ekki samrýmast stjórnmálastefnu flokksins. Getur þá meirihluti flokksráðs vikið honum úr flokks- ráði. Við 20. gr. lið e, bætist: Sé miðstjórnarmanni vikið ur flokks- ráði skv. 10 gr., skal hann víkja úr miðstjórn og öllum öðrum emb- ættum flokksins, en flokksráð kjósa annan í hans stað. Enginn er í Sjálfstæðisflokkn- um öðruvísi en í gegnum sjálf- stæðisfélögin. Því er ekki verið með þessu að reka menn úr flokknum. Enda ekki hægt heldur að setja þá í endurhæfingu meðal óbreyttra liðsmanna. Ekkert er því til fyrirstöðu að menn geti unnið sér traust á ný í flokknum. En réttindi meirihlutans ættu þarna að vera tryggð gegn því að vera sproksettir að geðþótta ein- stakra manna. Og ráðin yrði bót á þeim algera skorti á húsbónda- valdi í flokknum, sem veikt hefur stöðu formanns stórlega. Ætti þá að verða léttara fyrir flokkinn að sýna forystuhæfileika sína þegar formaður, varaformaður, flokks- ráð og miðstjórn geta verið heils- hugar og óskipt í afstöðu sinni til stjórnmálanna. Þjóðmál eru nú mörg og brenn- andi. Eigi þess að vera nokkur kostur að bæta hag þessarar elsku, láglaunaþegans, verður Sjálfstæðisflokkurinn að vera fyllilega starfhæfur. Því hann er eini flokkurinn, sem hefur alltaf sagt sannleikann og launþegar og aðrir geta treyst til þess að gera það áfram, og eini flokkurinn sem raunverulega vill bæta kjör allra. Þeir flokkar sem lofuðu samning- unum í gildi ættu nú að sjást glöggt í ljósi efndanna. Og ekki bólar á þjóðartekjuaukandi fram- kvæmdum. Er ekki fullreynt, kæri laun- þegi? 28. ágúst 1981. Gömlu krónunum safnað saman UNDANFARIÐ hafa tveir bíl- ar Seðlabankans verið á hring- férð um landið og hefur verið safnað saman gömlum seðlum og gamalli mynt. Samkvæmt upplýsingum sem Morgun- blaðið fékk hjá Stefáni B. Stefánssyni aðalféhirði Seðla^ bankans söfnuðust um 10 tonn af mynt í þessari ferð, en nú hefur rösklega helmingur gömlu myntarinnar skilað sér til bankans. Hins vegar hafa um 98% seðlanna skilað sér. Á meðfylgjandi myndum sem Sigurður P. Björnsson, fréttaritari Morgunblaðsins á Húsavík tók, sjást starfsmenn vera að bera gömlu peningana út í flutningabílana, en á hinni má sjá bíla Seðlabankans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.