Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 21 Tékkóslóvakía: BYLTINGARAFMÆLI AP.lm.my„d Moammar Khadafy, Libýuleiðtogi, brosir hér breitt til fólksins á leið sinni til Græna torgsins i Tripoli-borg, en þar átti að minnast þess, að nú eru 12 ár liðin siðan Khadafy komst til valda i Libýu. IRA-fangi hættir li ungurverkfalli Bolfast. i. sopt. AP. IIAFT var eftir breskum yfir- völdum í dag, að Matthew Devi- in. IRA-skæruliði, sem verið hefur í hungurverkfalli i Maze- fangelsi í Belfast, hefði fallist á að hætta föstunni og að hann væri nú undir læknishendi á sjúkrahúsi. Devlin er fjórði fanginn, sem hættir við að svelta sig í hel. Matthew Devlin var handtek- inn 1977 og var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir banatilræði við lögreglumann. Hann hóf hung- urverkfallið 15. júlí sl. og hafði fastað í 52 daga þegar honum snerist hugur. Það var fjölskylda hans, sem fékk talið honum hughvarf og að hennar ósk var hann fluttur úr fangelsinu á sjúkrahús í Belfast til meðferð- ar. Tíu skæruliðar IRA, sem hafð- ir hafa verið í haldi í Maze- fangelsi, hafa svelt sig í hel frá því að þeir hófust handa um hungurverkfallið 1. mars sl. Þeir krefjast þess, að á þá verði litið sem pólitíska fanga en á það hafa þresk stjórnvöld ekki viljað fallast. }fWnl ■ • 65 biðu bana í námuslysi 65 NAMUMENN biðu bana þeg- ar mikil sprenging varð í kola- námu skammt frá borginni Most íran: Myrtur vegna trú- ar sinnar Lundúnum. i. septcmber. AP. ÍRANI með brezkan ríkisborg- ararétt var tekinn af lífi í íran siðastliðinn laugardag fyrir trúarbragðaskoðanir sínar. að því er dóttir hans heldur fram i brezka blaðinu Daily Telegr- aph i dag. Hinn látni. Hahbibol- lah Azizi fór til að heimsækja móður sína í Teheran. Að sögn dóttur hans var hann handtek- inn tveimur dögum eftir kom- una til íran en Azizi var Bahai —trúar. „Faðir minn var myrtur vegna trúar sinnar," sagði dóttir hans í viðtali við Daily Telegr- aph. Azizi var tekinn af lífi ásamt 70 öðrum í Teheran á laugardag. Azizi flutti til Engl- ands fyrir 12 árum og hafði fengið brezkan ríkisborgararétt árið 1976. S-Afríku vísað frá Allsherjarþinginu Samcinuðu þjoðunum. i. scptcmbcr. AP. ALLSHERJARÞING Samcinuðu þjóðanna samþykkti með 117 atkvæðum gegn 22 að banna sendinefnd S-Afríku að sitja fund þingsins um Namibiu. Áður hafði þingið samþykkt með miklum atkvæðamun að meina S-Afriku- mönnum að koma skoðunum sin- um á framfæri. S-Afríka fór fram á að skýra sjónarmið sín en eftir að Rudiger von Wechmar, hinn v-þýzki forseti Allsherjarþingsins hafði rætt við sendinefndir ýmissa ríkja, var gengið til atkvæðagreiðslu um þessa bón þeirra og var ósk S-Afríku felld með miklum at- kvæðamun. Kenneth Adelman, formaður bandarísku sendinefndarinnar greiddi atkvæði gegn tillögu um að vísa S-Afríku frá. Hann sagði eftir atkvæðagreiðsluna, að til- raunum vestrænna ríkja um lausn á deilunni um Namibíu væri stefnt í hættu með þessari samþykkt. í Tékkóslóvakíu i gær. Spreng- ingin varð djúpt neðanjarðar og voru 105 menn i námunni en björgunarliði tókst að bjarga 40 mönnum. Lubomir Strougai, for- sætisráðherra Tékkóslóvakíu hélt til Most þegar fréttist af slysinu. Slysið í Most er eitt hið versta í sögu Tékkóslóvakíu og raunar í A-Evrópu. I desember síðastliðn- um biðu 49 námamenn bana í Rúmeníu. í marz 1977 beið 31 námamaður bana þegar gas- sprenging varð í Ostrava. Árið 1924 biðu 142 námumenn bana í miklu slysi skammt frá Most. Þá varð námuslys í Tékkóslóv- akíu í maí síðastliðnum. Tveir björgunarmenn biðu bana og 21 maður slasaðist i sprengingu í námu í Móróvíu. Vestrænir sér- fræðingar halda því fram, að námur í A-Evrópu séu illa búnar og að öryggisreglum sé áfátt. Mikið tjón af völdum „Agnesar“ vScoul. l. scpt. AP. YFIRVÖLD í Suður-Kóreu segja. að 51 maður hafi týnt lifi og að 29 sé saknað af völdum fellibylsins Agnesar, sem í dag stefndi út á Japanshaf. Mikið var þá farið að draga úr honum. Mikið tjón varð í fellibylnum. Tæp sjö þúsund manns eru heimilislausir, og 77 þúsund hektarar ræktaðs lands eyði- lögðust. Er tjónið metið á tæpar 200 milljónir ísl. kr. Mestur vindhraði í fellibylnum var 61 km á klst. og úrfellið, sem honum fylgdi, var 660 mm. „Samstaöa á krossgötum“ - segir Lech Walesa við upphaf fyrsta landsfundar samtakanna AP-símamynd. 31. ágúst sl. var þess minnst í Póllandi, að 42 ár voru liðin frá innrás Þjóðverja i landið og þar með upphafi siðari heimsstyrjaldar. Þessi mynd er tekin í Gdansk þar sem margt fólk safnaðist saman af þessu tilefni. Það er yfirmaður kaþólsku kirkjunnar i Gdansk, sem hér blessar son Lech Walesa en við hlið Walesa stendur kona hans, Miroslawa. London, 4. sept. AP. í ÞANN mund sem Samstaða, hið óháða, pólska verkalýðs- samband, hjóst til að halda sitt fyrsta landsþing, var haft eftir Lech Walesa, leiðtoga þess, að samtökin stæðu nú á krossgöt- um þar sem ein gatan lægi til meiri áhrifa i pólskum stjórn- málum og þjóðfélagsmálum. í útvarpsviðtali við BBC í Gdansk, þar sem Samstaða var stofnuð fyrir ári, sagði Lech Walesa, að félagar hennar yrðu nú að ákveða hve langt skyldi ganga í glímunni við pólsk stjórnvöld. „Hvort við eigum að einbeita okkur að verkalýðsmál- unum eða gerast þjóðmálahreyf- ing. sem Pólverjar verðum við nefnilega líka að horfast í augu við vandamálin, sem við okkur blasa, og reyna að leysa þau. Aðrir munu ekki leysa þau fyrir okkur," sagði Walesa. Þegar Walesa var beðinn að líta um öxl og meta starf Sam- stöðu fyrsta árið, sagði hann: „Okkur hefur tekist að fletta ofan af mistökum stjórnvalda, samfelldum mistökum í 35 ár. Það er þó ekki nóg, á næstu tólf mánuðum verður pólska verka- lýðshreyfingin að einbeita sér að því að ná raunverulegum árangri." Walesa er stundum borið það á brýn af félögum sínum, að hann sé of eftirgefanlegur en í viðtalinu sagðist hann líta á sjálfan sig sem „mjög róttækan" mann. „Ef erfið hindrun verður hins vegar á vegi mínum, þá verð ég að fara samningaleiðina. Ég gefst ekki upp, heldur reyni að ná sama marki eftir öðrum leiðum," sagði hann. Walesa sagðist vera viss um, að næsta ár Samstöðu yrði miklu ánægjulegra fyrir allan þorra Pólverja. „Að vísu ekki fyrir alla, ekki fyrir mennina í háu stöðunum," sagði Lech Wal- esa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.