Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981 19 Meiwtamálaráðuneytið um áfangaskólareglurnar: Breytingar litlar sé lit- ið til einstakra skóla VEGNA framkominna athugascmda og vegna umræðna í fjölmiðlum um „almennar reglur um starfshætti í áfangaskóla," sem staðfestar voru af Menntamálaráðuneytinu 10. júlí sl. sendi ráðuneytið frá sér greinagerð þar sem segir m.a. „Að undanförnu hefur verið um það rætt að samræma ýmsa þætti í Gísli Ólafsson Snæbjörn Ásgeirsson Fulltrúaráð á Seltjarnarnesi: Gísli Ólafsson, endur- kjörinn formaður Snæbjörn Ásgeirsson hættir í borgarstjórn eftir 20 ára starf AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs sjálf stæðisfélaganna á Seltjarnarnesi var haldinn í Félagsheimilinu laugar daginn 28. nóvember sl. Magnús Er lendsson var kosinn fundarstjóri en Magnús Valdimarsson fundarritari. Gísli Ólafsson formaður Full- trúaráðsins flutti skýrslu stjórnar og kom m.a. fram í henni, að fé- lagsmönnum Sjálfstæðisfélag- anna hefur fjölgað og eru þeir nú alls 399. Gísli Ólafsson var endurkjörinn formaður, en aðrir í stjórn voru kjörnir Helga Einarsdóttir og Kristinn Björnsson. Auk þeirra eru formenn sjálfstæðisfélaganna sjálfkjörnir í stjórn, Skúli Júlíus- son, Sjálfstæðisfélagi Seltirninga og Jónas Friðgeirsson FUS Baldri. Magnús Valdimarsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var honum þakkað fyrir mikil og góð störf. 1 varastjórn voru kjörin Ásgeir S. Ásgeirsson, Áslaug Harðardóttir og Lúðvík Lúðvíks- son. í kjördæmisráð voru kjörin Guðmar Magnússon, Kristín Frið- bjarnardóttir, Kristinn Björnsson og Kristinn P. Michelsen og til vara Helga Einarsdóttir, Guð- mundur Hjaltason, Halldór Elí- asson og Jónatan Guðjónsson. Formaður fulltrúaráðsins er sjálfkjörinn í kjördæmisráð. Á fundinum var samþykkt, að opið prófkjör skuli fara fram um val frambjóðenda á lista flokksins við næstu bæjarstjórnarkosn- ingar, og samþykkt reglugerð um framkvæmd prófkjörsins. Sam- kvæmt reglugerðinni var kosin þriggja manna kjörnefnd, en nefndina skipa Gísli Ólafsson, Helga Einarsdóttir og Snæbjörn Ásgeirsson. Á fundinum tilkynnti Snæbjörn Ásgeirsson, að hann muni ekki gefa kost á sér til bæjarstjórnar á næsta vori og þakkaði hann ágætt samstarf við bæjarfulltrúa flokks- ins og fulltrúaráð. Snæbirni voru þökkuð mikil og góð störf í hreppsnefnd og bæjarstjórn um tuttugu ára skeið. Undir dagskrárliðnum „önnur mál“ voru rædd ýmis bæjarmál og um kosningabaráttuna, sem fram- undan væri. Til máls tóku Guðmar Magnússon, Hörður Felixson, Magnús Erlendsson, Einar Sverr- isson, Sigurgeir Sigurðsson, Magnús Valdimarsson, Snæbjörn Ásgeirsson, Guðmundur Hjalta- son, Kristín Friðbjarnardóttir, Jón Helgason og Gísli Ólafsson. starfi skóla sem starfa eftir áfanga- kerfi. Þessir skólar hafa þróast nokkuð hver með sínum hætti og hefur þetta leitt til þess að veru- legur mismunur hefur komið fram milli skólanna í ýmsum fram- kvæmdaatriðum og hefur þetta ósamræmi ekki síst bitnað á nem- endum. Af þáttum sem hér um ræð- ir má í fyrsta lagi nefna einkunna- gjöf, reglur um flutning nemenda milli skola, reglur um skólasókn o.fl. og í öðru lagi samræmingu náms og námsáfanga svo og réttindi nem- enda af einstökum námsbrautum, en þau hafa í mörgum tilvikum ver- ið óljós.“ í greinargerðinni segir einnig að óskir um samræmingu hafi komið úr öllum áttum og ekki síst úr skól- unum sjálfum. Segir að á fyrri hluta árs 1980 hafi ráðuneytið skipað að ósk áfangaskóla, starfshóp til þess að gera tillögur um flest þau atriði sem áðurnefndar reglur taka til. Sá starfshópur skilaði tillögum sínum í júní 1980 en fljótlega kom í ljós að stjórnendur a.m.k. sumra þeirra skóla sem hlut áttu að máli voru ekki samþykkir niðurstöðunum. Þá var skipaður samstarfshópur til að vinna það verkefni að stefna a útgáfu sameininlegs námsvísis fyrir skólana sem starfa eftir áfangakerfi og samræma það með þá þætti í starfi skólanna sem samstaðan yrði um að samræma. Starfshópinn skip- uðu: Guðmundur Sveinsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Gunnar Rafn Sigur- björnsson, skólastjóri á Siglufirði, Hörður Lárusson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu sem er formaður starfshópsins, Ólafur Ásgeirsson, skólameistari Fjöl- brautaskólans á Akranesi og Örn- ólfur Thorlacíus rektor Mennta- skólans v/Hamrahlíð. Segir í greinargerðinni frá Menntamálaráðuneytinu að í hóp- num hafi verið algjör samstaða um reglurnar að undanskildum ákvæð- um um einkunnastiga og var það mat þeirra sem í starfshópnum sitja að breytingar væru tiltölulega litlar þegar litið væri til einstakra skóla. Að því er varðar ákvæði um ein- kunnastiga þá varð ekki samstaða í starfshópnum. Meirihlutinn vildi að notaðar yrðu heilar tölur frá einum upp í tíu en minni hlutinn vildi nota bókstafi. Ráðuneytið úrskurðaði því um. það atriði og ákvað að nota það fyrrnefnda. Segir í lok greinargerðarinnar að ráðuneytið muni taka til vandlegrar athugunar allar rökstuddar ábend- ingar og athugasemdir sem kunna að berast og í ljósi þeirra athuga um breytingar. 80 þúsund tonnum af loðnu landað á Eskifirði á árinu Kskifirdi, 1. desember. MIKLU hefur verið landað af loðnu hér á Eskifirði í haust og frá 17. ágúst til dagsins í dag er búið að landa 44.785 tonnum í verksmiðju Hraðfrystihúss Eskifjarðar. í gær voru fjögur skip að landa og voru þau með 3.500 tonn. Alls munu vera komin á land hér á árinu 80.366 tonn og þar fyrir utan 9.311 tonn af kolmunna. Jón Kjartansson hefur lokið við kolmunnakvóta sinn og er hættur veiðum. Enn eru síldarbátarnir að veið- um hér og köstuðu þeir hér innan við Mjóeyrina í gærkvöldi. Und- anfarið hefur síld hvorki verið fryst né söltuð hér á Eskifirði. Þrír bátar eru á veiðum fyrir erlendan markað, Votabergið, sem seldi erlendis í gær, Vöttur ogSæljón. - Ævar. mazDa umboðið a íslandi: bIlaborg hf Smiöshöföa 23, sími 812 99 ÓTRÚLEGT! Framdrífínn MAZDA 323 Saloon árgerð 1982 á kr. 98.700 Gengisskráning 17/11 ’81. MAZDA 323 Saloon Aðeins örfáum bílum, sem til eru I land- inu eróráðstafaö. Tryggið ykkur því bll strax. Já það er ótrúlegt, en fyrir kr. 98.700 getur þú keypt nýjan MAZDA 323 SALOON 4 dyra I deluxe útgáfu með margvlslegum aukabún- aði, svo sem: Plussáklæði á sætum, niður- fellanlegu 60/40 aftursæti, klukku, halogen- Ijósum, 3 hraða rúðuþurrkum og mörgu fleiru. MAZDA 323 er óvenju rúmgóður fjölskyldu- bíll með nægu rými fyrir fjölskylduna og far- angurinn. Þetta eru ein beztu bilakaupin í dag !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.